Morgunblaðið - 10.08.2007, Síða 2

Morgunblaðið - 10.08.2007, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is FORMAÐUR utanríkismálanefndar telur íslensk stjórnvöld hafa verið sein til við að svara ýmsum spurn- ingum er varða framtíð ratsjáreftir- lits hér við land. Fulltrúi Samfylking- arinnar í nefndinni segir stöðu málsins útskýrast af ágreiningi milli fyrri ríkisstjórnarflokka um málefni Ratsjárstofnunar. Fundurinn var haldinn að beiðni Steingríms J. Sigfússonar, fulltrúa Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, í utanríkismálanefnd. Að sögn Bjarna Benediktssonar, þing- manns Sjálfstæðisflokksins og for- manns utanríkismálanefndar, voru málefni Ratsjárstofnunar rædd, sem og heræfingarnar sem haldnar verða hér á næstunni. Hann segir mörgum spurningum ósvarað hvað varðar framtíð Ratsjárstofnunar. Eins og fram hefur komið rennur samningur Ratsjárstofnunar og Bandaríkjahers út hinn 15. ágúst næstkomandi en herinn hefur til þessa fjármagnað rekstur stofnunarinnar. Bandaríkjamenn hættir að taka við merkjum frá ratsjárkerfinu Nú nýverið setti utanríkisráðu- neytið á laggirnar starfshóp sem er ætlað að svara því hvaða fyrirkomu- lag verði á ratsjáreftirliti hér við land. Bjarni bendir á að fylgst sé með tvennskonar flugumferð frá ratsjár- stöðvunum, annars vegar borgara- legum flugvélum sem sendi frá sér staðsetningarmerki, og hins vegar vélum sem það geri ekki. „Banda- ríkjamenn hafa tekið við þessum [síð- arnefndu] upplýsingum, greint þær og brugðist við, jafnvel með því að senda þotur og fylgja flugförum eftir. Nú þegar Bandaríkjamenn gera ekki kröfu til þess að fá þessar upplýs- ingar til að uppfylla skyldur sínar samkvæmt varnarsamningnum þá er spurning hvað menn ætla að gera við þessar upplýsingar. Líka vaknar upp sú spurning hvort skynsamlegt sé fyrir stjórnvöld að leita samstarfs við NATO um að bandalagið gegni sama hlutverki og Bandaríkjamenn gerðu þegar þessar aðstæður sköpuðust.“ Hann bendir hins vegar á að ekki sé langt þar til íslensk stjórnvöld yf- irtaki verkefni Ratsjárstofnunar. Að- spurður hvort hann telji íslensk stjórnvöld hafa verið of sein að taka til við að svara þessum spurningum játar Bjarni því. „Já, mér finnst það nú reyndar. Ég vil samt taka það fram að ég er ekki að gera lítið úr því risaverkefni sem við stóðum frammi fyrir þegar Bandaríkjaher ákvað að hverfa héðan á brott. […] En miðað við það að við erum að fara að taka yfir þennan rekstur með mjög mikl- um tilkostnaði eftir nokkra daga þá finnst mér fullmargt óljóst um það hvernig og á hvaða forsendum við ætlum að eyða svona miklum pen- ingum í verkefnið.“ Bjarni segir ljóst að skoða þurfi hvort þörf sé á jafn víðtæku eftirliti í íslenskri lofthelgi og ratsjárstöðv- arnar hafi sinnt fram til þessa. Töluverður kostnaður mun fylgja yfirtöku ríkisins á ratsjárkerfinu. Fyrrum ríkisstjórn samþykkti síð- astliðið vor að verja 241 milljón á þessu ári og 824 milljónum á því næsta til reksturs Ratsjárstofnunar, en þær fjárveitingar hafa ekki verið samþykktar á Alþingi. Segir Bjarni að það skjóti skökku við að ákvarð- anir um þetta hafi verið teknar áður en fyrrnefndar spurningar hafi verið ræddar. Að sama skapi segir hann ýmis atriði er varða umgjörð stofn- unarinnar óljós, t.a.m. hver kjör starfsmanna verði, en jafnframt að engin lög hafi verið sett um stofn- unina. Steingrímur J. Sigfússon lagði fram bókun á fundinum þar sem hann gagnrýndi harðlega hvernig fyrrverandi og núverandi ríkisstjórn hefðu staðið að málum í kjölfar brott- farar Bandaríkjahers. Benti hann á að engin umræða og engin stefnu- mótun hefði farið fram á sjálfstæðum íslenskum forsendum. Ekkert eigin- legt samráð hefði verið haft við utan- ríkismálanefnd og hinn nýi samráðs- vettvangur stjórnmálaflokkanna sem boðaður var síðastliðið haust hefði ekki enn litið dagsins ljós. Engu að síður hefðu stjórn- völd ákveðið að hér skyldu fara fram ýmiss konar heræf- ingar og að stjórn- völd sæju um rekst- ur ratsjárstöðva- kerfis í hernaðar- skyni en allt þetta hefði í för með sér kostnað fyrir Íslend- inga. Meta verði þörf á ratsjáreftirliti eftir íslenskum forsendum Árni Páll Árnason, varaformaður utanríkismálanefndar og þingmaður Samfylkingarinnar, segir að utanrík- isráðherra hafi tekið rösklega á mál- um Ratsjárstofnunar og skipaður hafi verið starfshópur um framtíð ratsjárkerfisins. „Í því skiptir mestu að viðbúnaður okkar verði skynsam- legur, að hann byggist á íslenskum þjóðarhagsmunum og kostnaði verði stillt í hóf sem kostur er.“ Spurður hvort ekki sé rétt að stefnumótunar- vinnan fari nokkuð seint af stað mið- að við að tekið verði við rekstri kerf- isins eftir tæpa viku segir Árni Páll að núverandi utanríkisráðherra hafi ekki beðið boðanna hvað það varðar. „Eins og fram hefur komið þá var ágreiningur um það í tíð fyrri rík- isstjórnar hvernig þessum málum yrði fyrirkomið og þáverandi stjórn- arflokkum tókst ekki að komast að samkomulagi. Þess vegna kemur þetta mál óútkljáð inn á borð núver- andi utanríkisráðherra.“ Árni Páll segir mikilvægt að starfshópurinn komist fljótt að nið- urstöðu um það hvaða verkefnum Ratsjárstofnun þurfi að sinna. „Það er ljóst að það þarf að starfrækja loftvarnarkerfi hér ef við eigum að tengjast loftvarnarkerfi NATO eða einstakra ríkja. Það er ekki auðvelt fyrir okkur að vera aðili að NATO og loka kerfinu. Þá værum við að segja að við værum varnarlaust ríki innan bandalagsins og hefðum ekki búnað sem hentaði þörfum bandalagsríkja okkar sem eru tilbúin til að koma okkur til varnar á hættutímum.“ Hvað varðar þær upphæðir sem fyrri ríkisstjórn hafi samþykkt þá verði að hafa í huga að þær byggjast á rekstr- arkostnaði kerfisins þegar það var rekið á forsendum Bandaríkja- manna. Nú verði að meta það út frá íslenskum forsendum. Óvissa um framtíð Ratsjárstofnunar Bjarni Benediktsson Árni Páll Árnason Steingrímur J. Sigfússon Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is ALLT útlit er fyrir að samkeppni hefjist um gagnaflutninga um sæ- strengi til og frá landinu undir lok næsta árs. Farice hf., sem rekur Fa- rice-sæstrenginn milli Íslands, Fær- eyja og Bretlands, undirbýr lagn- ingu annars sæstrengs. Í gær greindi fjarskiptafyrirtækið Hib- ernia Atlantic, sem rekur sæstrengi milli N-Ameríku og Evrópu, frá ákvörðun um lagningu nýs sæ- strengs, sem muni tengja Ísland við flutninganet fyrirtækisins. Stóraukin flutningsgeta Í frétt frá Hibernia kemur fram að Ísland muni fá beina tengingu við Norður-Ameríku, Írland, London og meginland Evrópu í gegnum sæ- streng með 10 Gbps-tengihraða. Sæ- strengurinn gefi kost á mun meiri og tryggari flutningsgetu til og frá landinu og beinan aðgang að 42 borgum og 52 aðgangsstöðum að þjónustu (PoPs) í gegnum háhraða- net Hibernia. Tengingin verði komin á haustið 2008. Hibernia er í eigu fyrirtækis Kenneths Peterson, fyrrum aðaleig- anda Norðuráls. Haft er eftir Pet- erson, sem er stjórnarformaður fyr- irtækisins og Bjarna K. Þorvarðarsyni, framkvæmdastjóra þess, að strengurinn muni stórbæta gagnaflutningssamband við Ísland. Hann muni þjóna fyrirtækjum sem þurfi á háhraða-flutningsleiðum að halda og líti á Ísland og framboð hér á ódýrri og endurnýjanlegri orku sem álitlegan kost fyrir gagnamið- stöðvar og netþjónabú. „Við höfum í nokkra mánuði unnið að undirbúningi að lagningu annars strengs til Evrópu og þetta hefur engin áhrif þar á,“ segir Guðmundur Gunnarsson, framkvæmdastjóri Fa- rice, um fyrirætlanir Hibernia. Guð- mundur segir undirbúning að lagn- ingu annars sæstrengs til Evrópu, sem hefur fengið vinnuheitið Eurice, ganga vel. „Við erum nýbúnir að fá tilboð frá helstu framleiðendum svona kerfa. Við erum að skoða þau núna og tökum ákvörðun á næstu vikum.“ Hann segir Farice þjóna að verulegu leyti þörfum netþjónabúa sem rætt hefur verið um á Íslandi. „Það hefur alltaf legið fyrir að ein- hvern tíma muni verða þörf á þriðja strengnum, þannig að kannski geng- ur þetta allt ágætlega upp. Þeim er að sjálfsögðu frjálst að leggja hingað streng ef þeir telja einhvern við- skiptagrundvöll fyrir því.“ Lagður frá Landeyjasandi Gert er ráð fyrir að nýr strengur Farice verði lagður út frá Landeyja- sandi og komi á land annaðhvort í Hollandi eða Norður-Þýskalandi. Tímaáætlanir gera ráð fyrir að hann verði kominn í gagnið í október eða nóvember á næsta ári. Guðmundur sagði ljóst að nýi strengurinn yrði mun dýrari en lagn- ing Farice á sínum tíma enda um mun lengri streng að ræða og með miklum mun meiri flutningsgetu en Farice 1. Stefnir í samkeppni um sæstrengi Í HNOTSKURN »Félög í eigu ColumbiaVentures Corporation keyptu 12.200 km sæstreng milli N-Ameríku og Evrópu árið 2003. »Starfshópur samgöngu-ráðherra áætlaði sl. vetur að þrjár mismunandi leiðir við lagningu nýs strengs til Skot- lands, Írlands og með grein til Færeyja gætu kostað 2,8 til 3,9 milljarða króna.                !"#    $%&' (               ÁKVEÐIÐ var á hátíðarfundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar í gær að gera Salóme Þorkelsdóttur fyrr- verandi alþingismann að heiðurs- borgara í bænum. Hátíðarfundurinn var haldinn í tilefni þess að bærinn er 20 ára. „Salóme var einfaldlega djúpt snortin og þakklát þeim heiðri sem við í bæjarstjórn Mosfellsbæjar veittum henni með því að tilnefna hana heiðursborgara,“ sagði Ragn- heiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, að fundinum loknum. Salóme er þriðji heiðursborgari bæjarins. Sá fyrsti var Halldór K. Laxness og annar er Jón M. Guð- mundsson, stórbóndi á Reykjum og fyrrverandi oddviti. Fundurinn í gær var haldinn í Bókasafni og Listasal Mosfellsbæjar í Kjarna en þar er miðstöð þjónustu og stjórnsýslu bæjarins. Þar fór einnig fram fjölbreytt dagskrá. Í Listasal var opnuð sýning á ljós- myndum úr bæjarlífinu úr fórum bæjarblaðsins Mosfellings, djasstríó lék og flutt var verkið „…og fjöllin urðu kyr“ sem gert var í tilefni af- mælisins. Morgunblaðið/Ómar Hátíðarfundur Salóme Þorkelsdóttir, Ragnheiður Ríkharðsdóttir og Sól- rún Björnsdóttir á samkomu bæjarstjórnar í tilefni af 20 ára afmælinu. Salóme gerð að heiðurs- borgara í Mosfellsbæ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.