Morgunblaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 10.08.2007, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 11 ÚR VERINU FRÉTTASKÝRING Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is ÓFRÁVÍKJANLEGT skilyrði fyrir úthlutun byggðakvóta er að viðkom- andi útgerð hafi áður landað að minnsta kosti tvöfalt meiru af fiski, í þorskígildum talið, til vinnslu í við- komandi byggðarlagi. Standi útgerð báts til dæmis til boða að fá 5 tonna byggðakvóta, verður hún að sýna fram á að 10 tonnum að minnsta kosti hafi áður verið landað til vinnslu í heimahöfn bátsins. Þá fyrst getur útgerðin fengið kvótann, enda telst hún hafa uppfyllt þetta skilyrði fyrir úthlut- un. Fiskistofa sér um að úthluta byggðakvótanum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, meðal annars löndunarskilyrðinu. Fyrir þarf að liggja samningur viðkomandi út- gerðar og fiskverkanda um löndun og vinnslu á fiski í heimahöfn báts- ins. Þegar sá samningur liggur fyrir og sýnir að um er að ræða tvöfalt meira en viðkomandi byggðakvóti, fær útgerðin kvótann. Þar sem skil- yrði fyrir úthlutun hafa áður verið uppfyllt getur útgerðin ráðstafað byggðakvótanum að vild. Hún getur leigt hann, selt hann, hún getur landað aflanum á markað eða sent hann utan óunninn í gámum. Stuðlað að fiskvinnslu Hinrik Greipsson, sérfræðingur í sjávarútvegsráðuneytinu, segir að með þessu sé stuðlað að því að fiski sé landað til vinnslu á þeim stöðum, sem byggðakvótinn tilheyrir sam- kvæmt úthlutunarreglunum. Því sé mönnum frjálst að ráðstafa byggðakvótanum að vild, þegar þeir fái hann. Skilyrðin fyrir úthlutun hafi þegar verið uppfyllt. Í einhverjum tilfellum hefur byggðakvóta verið úthlutað á staði, þar sem engin fiskvinnsla er. Þetta á við um staði eins og Stöðvarfjörð og Kópasker. Þar hafa verið veittar þær undanþágur að nægilegt er talið að fiskinum sé landað á viðkomandi stöðum og hann hugsanlega slægður þar, en fari síðan til vinnslu annars staðar. Unnið innan sveitarfélagsins Loks ná nefna að það skilyrði er sett fyrir úthlutun að fiskurinn sé unninn í viðkomandi sveitarfélagi. Byggðakvóta var úthlutað á Hauganes og Árskógssand og skal samkvæmt reglugerð vinna fiskinn á viðkomandi stöðum. Þessi byggðar- lög eru hins vegar innan sveitarfé- lagsins Dalvíkurbyggðar og þar sem ekki er fiskvinnsla á Árskógssandi, óskaði sveitarfélagið Dalvíkurbyggð eftir sérreglu þess efnis að byggða- kvótinn væri unninn annars staðar í sveitarfélaginu. Svipað gildir um Ísafjarðarbæ, þar er sama hvar innan sveitarfé- lagsins byggðakvótinn er unninn. Punktakerfi og skyndihjálp Byggðakvóti og úthlutun hans er nokkuð flókið fyrirbæri. Úthlutun byggðakvótans nú byggist á tveimur reglugerðum, sem voru gefnar út um miðjan maímánuð. Önnur fjallar um úthlutun til fiskiskipa, hin til byggð- arlaga. Til skipta voru 4.385 þorsk- ígildistonn. Við úthlutun til byggð- arlaga er í raun miðað við þrjá meginþætti. Sá fyrsti er eins konar punktakerfi. Þar er farið yfir þætti er varða samdrátt hjá byggðarlögum í aflaheimildum, lönduðum afla og vinnslu. Byggðarlögin fá þá útreiknaða punkta eða stig, sem gefa til kynna hvort eitthvað og þá hve mikið kem- ur í þeirra hlut. Annar þátturinn er eins konar skyndihjálp, og er hugs- aður til úthlutunar byggðarlaga sem hafa orðið fyrir áföllum vegna stöðv- unar tiltekinna veiða. Loks er sér- stakur „pottur“ upp á 750 þorskígild- istonn, sem rennur til þeirra byggðarlaga, sem áður nutu byggða- kvóta Byggðastofnunar. Sveitarfélögin höfðu tíma til 4. júní til að óska eftir frávikum frá reglu- gerð um úthlutun. Heimildunvar út- hlutað á skip og báta innan viðkom- andi byggðarlaga. Skilyrði var að skipin hefðu leyfi til veiða í atvinnu- skyni, væru skráð í byggðarlaginu 1. maí 2007 og væru í eigu aðila með heimilisfang í viðkomandi byggðar- lagi. Þeim skipum sem fá úthlutað byggðakvóta skylt að landa tvöföld- um þeim kvóta til vinnslu í viðkom- andi byggðarlagi. Að frágengnum tillögum frá sveitarstjórn-unum út- hlutaði Fiskistofa síðan heimildun- um á viðkomandi báta, samkvæmt umsóknum skipseigenda. Úthlutun- in var seint á ferðinni í ár en það staf- aði af því að gera þurfti breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, sem voru ekki samþykktar fyrr en í þinglok. Vegna þess er þeim sem fá úthlutað byggðakvóta nú heimilt að færa hann yfir á næsta fiskveiðiár. Geta ráðstafað byggðakvóta að vild Útgerðirnar verða þó áður að hafa landað tvöfalt meiri fiskafla en úthlut- un nemur til vinnslu í heimabyggð                       !! "  " #  $  % & '( )&  )& *%" )& +& % )& *$ , % *  $ - % " - % "   - % "        - % " .$  - % " - %  $ /  % 0 .'( $ . ((& *' &   %   % . '   % 1%  % 1% #  % 0 $ ' 0 $ .           2 .$  $ $( /3  . $ /3  '! /3  4   5 '  5 * %  ) ! % *  %&   % 1% 1 % 1% &  % *  $ 0%!  (&            &  &  &  Í HNOTSKURN »Þeim skipum sem fá út-hlutað byggðakvóta er skylt að landa tvöföldum þeim kvóta til vinnslu í viðkomandi byggðarlagi. »Standi útgerð báts tildæmis til boða að fá 5 tonna byggðakvóta, verður hún að sýna fram á að 10 tonn- um að minnsta kosti hafi áður verið landað til vinnslu í heimahöfn bátsins. »Þar sem skilyrði fyrir út-hlutun hafa áður verið uppfyllt getur útgerðin í raun ráðstafað byggðakvótanum að vild, selt eða leigt eða sett fisk- inn á markað Morgunblaðið/Brynjar Gauti Veiðar Smábátar njóta að miklu leyti úthlutunar byggðakvótans. Hér er verið að landa á Arnarstapa en þangað fer reyndar enginn byggðakvóti. Mestur byggðakvóti kom að þessu sinni í hlut Ísafjarðarbæjar, 454 tonn. Eftir Hjört Gíslason hjgi@mbl.is BJÖRN Kalsö, sjávarútvegsráð- herra Færeyja, hefur lagt fyrir fær- eyska lögþingið tillögu um fækkun fiskidaga fyrir næsta fiskveiðiár um 2%. Jafnframt felast í tillögum hans svæðalokanir og nýjar reglugerðir um veiðarfæri, sem ætlað er að draga úr sókn í þorskinn. Samkvæmt tillög- unum fækkar fiskidögum um 704. Fiskifræðingar hafa metið stöðu þorskstofnins nálægt sögulegu lág- marki og lögðu þeir til að fiskidögum yrði fækkað um 40%. Miklar veiðitakmarkanir Auk þess að fækka fiskidögunum, leggur ráðherrann til miklar veiði- takmarkanir á Færeyjabanka, niður- skurð um 10 til 20% eftir skipaflokk- um til að draga úr sókn í þorskinn. Jafnframt er ákveðnum svæðum lok- að til verndunar þorskinum. Hann vill einnig að viðskipti með veiðidaga verði takmörkuð frá því sem nú er, einkum á milli skipaflokka. Loks er lagt til að engar veiðar verði stund- aðar í hálfan mánuð um mitt sumar og um jól og áramót. Ákvörðun hefur verið tekin um það í Færeyjum að öllum veiðiheimildum verði sagt upp í lok ársins 2017 en til þessa hafa heimildirnar verið til 10 ára og endurnýjast svo til sjálfkrafa. Fyrir árið 2018 taka svo við ný lög sem kveða á um fiskveiðistjórnun og hve lengi fiskveiðiheimildir muni gilda. Skiptar skoðanir Skiptar skoðanir eru um þessar ákvarðanir og kemur það meðal ann- ars fram í færeyska blaðinu Sosial- urin og norska blaðinu Fiskaren. Í norska blaðinu er rætt við Íslending- inn Auðun Konráðsson, sem er for- maður félags smábátaeigenda í Fær- eyjum, Meginfelagi útróðrarmanna. Hann telur niðurskurð óþarfan og bendir á að einmitt við aðstæður sem nú, sé gott tækifæri til að sjá hve vel fiskidagakerfið reynist. Útgerðar- menn í Færeyjum benda á að veiði- takmarkanir séu mun meiri en 2% fækkun fiskidaga. Þessar takmark- anir muni leiði til mun minni afla, sem aftur leiði til minni vinnu í landi. Miklar takmarkanir á veiðum á Fær- eyjabanka leiða til þess að fiskidagar þar nýtast ekki lengur eins vel og hef- ur verð á fiskidögunum því lækkað. Hjalti í Jákupsstovu, forstjóri Fiskirannsóknarstovunnar, segir til- lögur sjávarútvegsráðherranns ganga mun skemmra en stofnunin hafi lagt til. Hrygningarstofn þorsks- ins sé mjög slakur um þessar mundir og því sé það slæmt að ekki sé farið að ráðleggingum um að banna veiði á króka næst landi. Þar séu mikilvæg uppeldissvæði smáfisks, sem nauð- synlegt sé að vernda. Vill fækka fiski- dögum um 2% Fræðsla og nánari upplýsingar á www.or.is www.or.is Umhverfi Nesjavallavirkjunar og Hengilssvæðið er með vinsælustu útivistarsvæðum á landinu, tilvalin til náttúruskoðunar og gönguferða. Það er einnig skemmti- leg upplifun að fræðast um hið tæknilega stórvirki, Nesjavallavirkjun. Um svæðið liggja merktar gönguleiðir og fræðslustígar í boði eru skoðunar- ferðir um virkjunina fyrir einstaklinga og hópa. Gestamóttaka er opin í sumar, mánudaga til laugardaga kl. 9:00 - 17:00 og sunnudag kl.13:00 - 18:00. ÍS L E N S K A S IA .I S O R K 3 80 04 0 6. 2 0 0 7 Íslensk vísindi - vistvæn orka Komdu í heimsókn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.