Morgunblaðið - 10.08.2007, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 13
ERLENT
Tbilisi. AFP, AP. | Stjórnvöld í
Georgíu reyndu í gær að afla sér
stuðnings annarra ríkja í deilu við
Rússa um meinta árás á landið og
óskuðu eftir fundi í öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna vegna ásak-
ana þeirra um að rússnesk her-
flugvél hefði skotið flugskeyti á
Georgíu.
Georgíumenn sögðu upplýs-
ingar frá ratsjám sanna að rúss-
neskar herþotur hefðu farið inn
fyrir lofthelgi Georgíu og skotið
flugskeyti í áttina að ratsjárstöð.
Flugskeytið sprakk ekki og lenti á
akri nálægt uppreisnarhéraðinu
Suður-Ossetíu þar sem rússneskir
hermenn annast friðargæslu.
Georgíumenn hafa sakað Rússa
um að styðja aðskilnaðarsinna í
Suður-Ossetíu og Abkasíu.
Júrí Balújevskí, yfirhershöfð-
ingi Rússa, sagði í gær að Georgíu-
menn hefðu falsað gögnin til að
kynda undir spennu í samskiptum
ríkjanna.
„Ég er einfaldlega sannfærður
um að þetta hafi verið ögrun af
hálfu Georgíu. Þetta var ögrun
gagnvart rússneska friðargæslu-
liðinu og Rússlandi í heild,“ sagði
Balújevskí.
Bandarískur embættismaður
sagði í sjónvarpsviðtali í Georgíu
að hann tryði ekki yfirlýsingum
um að Georgíumenn hefðu sjálfir
skotið flugskeytinu. Hann hvatti
þá til að rannsaka málið með „trú-
verðugum“ hætti.
Flugu að bandarískri herstöð
Rússneski undirhershöfðinginn
Pavel Androsov skýrði frá því í
gær að tvær rússneskar sprengju-
flugvélar hefðu flogið yfir Kyrra-
hafseyjuna Guam – þar sem
Bandaríkjamenn eru með herstöð
– í fyrsta skipti frá því að kalda
stríðinu lauk. Rússnesku flug-
mennirnir brostu til flugmanna
bandarískra herþotna sem reyndu
að hindra ferð þeirra, að sögn
Androsovs.
Rússnesku sprengjuflugvél-
arnar tóku þátt í þriggja daga her-
æfingu sem mun hafa verið ætlað
að sýna vaxandi hernaðarmátt
Rússa.
Saka Georgíumenn um fölsun
Öryggisráð SÞ
beðið að ræða
meinta árás
Reuters
Ögrun? Míkhaíl Saakashvílí, forseti Georgíu (t.h.), skoðar flugskeytið
dularfulla sem fannst á akri nálægt uppreisnarhéraðinu Suður-Ossetíu.
AÐEINS um þúsund dvergfílar tilheyra dýrategund-
inni sem þessi fjölskylda telst til. Fílarnir eru búsett-
ir á Borneó og eru um metra lægri en frændur
þeirra annars staðar í Asíu og eru þekktir fyrir bæði
geðprýði og ljúflyndi. En fílarnir hafa neyðst til að
hafa meiri samskipti en þeim finnst ákjósanlegt við
mannfólkið, því stöðugt er gengið á skóglendið þar
sem þeir hafast við. Á síðustu 40 árum hafa 40% þess
svæðis þar sem fílarnir búa horfið – ýmist vegna
skógarhöggs eða undir byggingar.
Reuters
Smáfílar á Borneó í útrýmingarhættu
Kaíró. AP. | Son-
ur Muammars
Gaddafis, leið-
toga Líbíu, við-
urkenndi í gær
að fimm búlg-
arskir hjúkrun-
arfræðingar og
palestínskur
læknir hefðu
sætt pyntingum
þegar þeim var
haldið í fangelsi í Líbíu vegna ásak-
ana um að þau hefðu sýkt börn af
alnæmi af ásettu ráði.
„Jú, þau voru pyntuð með raf-
magni og þeim var hótað að ráðist
yrði á ættingja þeirra,“ sagði Seif
al-Islam Gaddafi, sem er álitinn
líklegur eftirmaður föður síns sem
leiðtogi Líbíu.
Talið er að með því að viður-
kenna pyntingarnar vilji hann
sannfæra umheiminn um að hann
sé einlægur stuðningsmaður um-
bóta í landinu. Hann baðst þó ekki
afsökunar á pyntingunum fyrir
hönd stjórnvalda í Líbíu og ve-
fengdi sumar af ásökunum palest-
ínska læknisins, sagði þær „hel-
bera lygi“.
Arftakinn
viðurkennir
pyntingar
Seif al-Islam
Gaddafi
Eftir Arndísi Þórarinsdóttur
arndis@mbl.is
ÁSTANDIÐ í Pakistan verður
stöðugt eldfimara og nýlega vökn-
uðu spurningar um það hvort for-
seti landsins, Pervez Musharraf,
myndi lýsa yfir neyðarástandi, en í
gær var tilkynnt að hann hygðist
ekki gera það, þrátt fyrir eindregin
tilmæli samstarfsmanna sinna.
Upplýsingaráðherra Pakistans,
Tariq Azim, segir að ýmsar ógnir
steðji að landinu, bæði innan og ut-
an frá. Það er ekki ofsagt – hreyf-
ingar öfgafullra íslamista í landinu,
það er að segja rótttækra múslíma
sem vilja að í landinu verði sett á
stofn íslamskt ríki, verða stöðugt
háværari og kastaðist í kekki milli
stjórnarinnar og íslamistanna í síð-
asta mánuði, þegar hinir síðar-
nefndu tóku Rauðu moskuna í Isl-
amabad traustataki. Yfir 100
manns féllu í átökunum sem fylgdu
í kjölfarið.
Að auki fer mikið fyrir stuðn-
ingsmönnum afganskra talibana í
norðvesturhluta landsins, nálægt
landamærunum að Afganistan.
Þar er sagt að hryðjuverkamenn
lifi góðu lífi og hafa Bandaríkja-
menn horn í síðu svæðisins og hafa
þarlend stjórnvöld jafnvel gefið til
kynna að gripið verði til einhliða
aðgerða á þar, telji þau tilefni til.
Vongóður um
frjálsar kosningar
Forseti Bandaríkjanna, George
W. Bush, gaf í gær til kynna að all-
ar aðgerðir Bandaríkjamanna á
svæðinu yrðu í samvinnu við
stjórnvöld í Pakistan, en að hann
gerði ráð fyrir að Pakistan yrði
samvinnuþýtt í baráttunni við
öfgamenn og að hann væri vongóð-
ur um að Musharraf myndi halda
frjálsar, sanngjarnar kosningar.
Kjörtímabil Musharraf er senn á
enda og hefur hann sóst eftir því að
sitja áfram, þó að það gangi þvert á
lög ríkisins. Hefði Musharraf lýst
yfir neyðarástandi hefði hann þar
með getað setið óáreittur í eitt ár
enn.
Fréttirnar um uppnámið við
stjórnvöld Pakistans bárust degi
eftir að Musharraf afboðaði
skyndilega komu sína á friðarráð-
stefnu Pakistans og Afganistans
sem hófst í gær og sagði að aðkall-
andi mál heimafyrir kæmu í veg
fyrir að hann mætti.
Forseti Afganistans, Hamid
Karzai, sagði hundruðum ætt-
bálkaleiðtoga á ráðstefnunni í gær
að „framtíð og örlög landanna
tveggja væru samtvinnuð“.
Karzai sagði að hann tryði því að
báðar þjóðirnar gætu knésett Al-
Qaída og talibanahreyfingarnar.
Hann sagði aðgerðir hreyfinganna
hafa komið óorði á trúarbrögð
landanna tveggja, íslam.
Forsetinn hvattur til þess að lýsa yfir neyðarástandi en kaus að gera það ekki
Stöðugt vaxandi órói í
Pakistan vekur víða ugg
Í HNOTSKURN
»Pervez Musharraf, for-seti Pakistans og yfir-
hershöfðingi, tók við völdum
árið 1999 í kjölfar valdaráns.
»Ný skoðanakönnun gef-ur til kynna að 62% Pak-
istana vilji að Musharraf segi
af sér sem yfirhershöfðingi.
Í NÓVEMBER á næsta
ári munu Bandaríkja-
menn velja sér forseta.
Áður en að því kemur
þurfa stærstu flokk-
arnir tveir að kjósa sér
fulltrúa í kosningunum
og er það gert í hverju
ríki fyrir sig á fyrri
hluta ársins. Fordæmin
sýna að úrslit kosning-
anna í þeim ríkjum þar
sem fyrst er kosið móta mjög niðurstöð-
una í þeim sem á eftir fara og eru úrslitin
meira og minna ráðin þegar kemur að
þeim síðustu. Því er það orðið ríkjunum
kappsmál að kosningin fari sem fyrst fram
svo að áhrif kjósenda þeirra verði sem
mest á landsvísu. Í Flórída hefur t.d. iðu-
lega verið kosið í mars en nýlega var til-
kynnt að þar yrði kosið í lok janúar. Því
stefnir í að þetta langa ferli muni í fram-
tíðinni fara fram á fáum vikum.
Forkosningum
vestanhafs flýtt
Barack Obama,
frambjóðandi
LEIÐTOGAR Írana lofuðu Írökum í gær
stuðningi við að koma á friði í Írak en
sögðu jafnframt að eina leiðin til að koma
á ró á svæðinu væri að herlið Bandaríkj-
anna færi af vettvangi. Forsætisráðherra
Íraks, Nuri al-Maliki, og forseti Írans,
Mahmoud Ahmadinejad, áttu fund í gær.
George W. Bush Bandaríkjaforseti er
ekki hrifinn af viðræðum stjórnvalda í
Íran og Írak og hann hefur varað Maliki
við því að stofna til of náinna kynna við
Írana. Segir hann það stefnu Bandaríkj-
anna að þeim, sem stundi niðurrifsstarf-
semi, skuli refsað og á þá við Írana.
Bush varar við
vinskap við Íran
NÚ ER talið að 2.000
manns hafi látist í flóð-
unum í Suður-Asíu. Að
sögn AP-fréttastofunnar
hafa gagnrýnisraddir
tekið að hljóma um litlar
forvarnaraðgerðir ind-
verskra stjórnvalda, en
ár hvert ber monsún-
vindurinn með sér mikl-
ar rigningar og ár hvert
látast fjölmargir Ind-
verjar í flóðunum sem þeim fylgja. Gagn-
rýnendur horfa til Bangladess, sem er mun
fátækara land, en slapp samt betur við flóð-
in vegna fyrirbyggjandi aðgerða stjórn-
valda, sem m.a. fólust í nýju kerfi til að spá
fyrir um flóð. Það gaf fólki færi á að flýja
áður en vatnselgurinn æddi yfir hús þess.
Ekkert slíkt kerfi er til á Indlandi.
Indland sagt hafa
verið óundirbúið
Maður og api í
Bangladesh í gær.
MÁRITANÍA hefur samþykkt lög þess efn-
is að þeir sem verði uppvísir að þrælahaldi
verði dæmdir í fangelsi. Þrælahald var af-
numið með lögum í Máritaníu árið 1981 en
enginn hefur nokkru sinni verið sóttur til
saka fyrir brot á lögunum. Eiga hin nýju
lög að marka tímamót í baráttunni gegn
ánauð. Máritanía er á jaðri Sahara-
eyðimerkurinnar í Norðvestur-Afríku.
Örðugt þykir þó að bera kennsl á vand-
ann því víða hafa þrælar búið með sömu
fjölskyldunum í áratugi og eru álitnir hluti
af henni.
Gripið til aðgerða
gegn þrælahaldi
JAPANSKUR maður var blekktur 61 sinni
af svikahröppum. Bragðarefirnir hringdu
í manninn og sögðu honum að banka-
upplýsingar hans hefðu borist til al-
ræmdra fjársvikamanna. Þeir buðu hon-
um að forða upplýsingunum úr klóm
glæpamannanna gegn 5.000 jena greiðslu.
Maðurinn átti að greiða 30.000 jen og fá
25.000 endurgreidd síðar. Svo léku svika-
hrapparnir leikinn aftur og aftur, því þeir
sögðu illa ganga að ná upplýsingunum. Að
lokum hafði maðurinn greitt þeim um 20
milljónir króna.
Fávís Japani
féflettur 61 sinni