Morgunblaðið - 10.08.2007, Síða 14

Morgunblaðið - 10.08.2007, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING EFTIR þriggja ára ferðalög og upptökur hefur Jennifer Fox lok- ið heimildar- myndinni Flying: Confessions of a Free Woman. Þar ferðast hin bandaríska Fox til Pakistans, Indlands og Sómalíu og ræðir við konur um líf þeirra og hagi, drauma og vonir. Hún fjallar einnig um eig- ið líf og talar mikið um nauðsyn þess að hætta að skammast sín fyr- ir að vera kona: „Ég mun ekki skammast mín fyrir kyn mitt. Ég mun ekki skammast mín fyrir að vera ógift og barnlaus. Ég mun ekki skammast mín fyrir fóstureyð- ingarnar mínar.“ Hið síðasttalda hefur verið mikið hitamál í Banda- ríkjunum en Fox segist hafa farið í fjórar eða fimm fóstureyðingar. Hin pakistanska Shazia hefur hins veg- ar ekki þurft á slíku að halda því hún er enn hrein mey 32 ára gömul þar sem hún valdi að giftast ekki til þess að geta haldið áfram að mennta sig. Margir hafa sagt þættina öllu raunverulegri, raunsærri og fjöl- þjóðlegri útgáfu af Beðmálum í borginni (Sex and the City). Til að mynda segir gagnrýnandi The New York Times að serían sé „að hluta til persónuleg dagbók og að hluta til heimshornaflakksnáttfatapartí“. Fox segist finna til mikillar sam- kenndar með konunum enda sé munurinn minni en flestum virðist, þær séu bara einni til tveim kyn- slóðum á eftir hinum vestrænu kon- um í baráttunni. Þessar fullyrðingar Fox eru þó aðeins einar margra sem orðið hafa umdeildar í kjölfar þáttaraðarinnar. Beðmál í Pakistan Heimshornaflakk og viðtöl við konur Jennifer Fox RÁÐIST var á bangladesska rit- höfundinn Tas- lima Nasrin í gær þegar hún var stödd á bóka- kynningu í borg- inni Hyderabad á Suður-Indlandi. Um sextíu með- limir í múslimska stjórnmálaflokknum Majlis-e- Ittehadul-Muslimeen réðust inn á kynninguna og hentu blómum og töskum í hana auk þess sem þeir reyndu að fleygja stólum í rithöf- undinn. Nasrin komst undan við ill- an leik en án alvarlegra áverka. Hún hefur búið í Indlandi síðan hún flúði heimaland sitt árið 1994 eftir að öfgatrúarmenn úthrópuðu verk hennar sem guðlast og heimt- uðu að hún yrði tekin af lífi. Þar áttu þeir meðal annars við bókina Skömm (Lajja) þar sem fjölskylda í Bangladess, sem er hindúatrúar, er ofsótt af múslimum. Bókin er bönn- uð í Bangladess þar sem múslimar eru í miklum meirihluta. Bangladess varð til þegar það klauf sig frá Pakistan árið 1971 en bæði ríkin voru til ársins 1947 hluti af Indlandi en klufu sig frá því vegna deilna við önnur ríki Ind- lands þar sem hindúar eru í meiri- hluta. Hálf milljón rúpía hefur verið lögð til höfuðs Nasrin sem er enn bangladesskur ríkisborgari en hef- ur sótt um indverskt ríkisfang. Hún er fædd múslimi en telur sig nú guðlausa og hefur verið virk í bar- áttu fyrir réttindum kvenna í Bangladess og Indlandi. Ráðist á skáldkonu Taslima Nasrin HINIR árlegu Kammer- tónleikar á Kirkjubæjar- klaustri verða haldnir í sex- tánda sinn nú um helgina. Þetta er annað árið í röð sem messósópransöngkonan Guð- rún Jóhanna Ólafsdóttir er list- rænn stjórnandi hátíðarinnar, en það er Menningarmála- nefnd Skaftárhrepps sem stendur fyrir henni. Auk Guð- rúnar koma fram á þrennum tónleikum þau Víkingur Heiðar Ólafsson, píanó, Elena Jáuregui, fiðla, Francisco Javier Jáuregui, klassískur gítar og Robert Brightmore, klassísk- ur gítar. Tónlist Stjörnur á Kirkju- bæjarklaustri Víkingur Heiðar Ólafsson Á MORGUN kl. 14 verða opn- aðar hvorki fleiri né færri en fimm nýjar sýningar í Safna- safninu á Svalbarðsströnd í Eyjafirði sem nýlega var tekið til gagngerra endurbóta og stækkað til muna. Það sem gef- ur að líta er innsetning eftir Finn Inga Erlendsson, teikn- ingar eftir Stefán J. Fjólan, en báðir eru þeir Akureyringar, vatnslitamyndir eftir Hrefnu Sigurðardóttur og tálguverk eftir Kjartan Th. Ingimundarson. Þá verða sýnd leirverk eftir Svövu Skúladóttur og grænir glermunir verða til sýnis í bókastofu safnsins. Myndlist Mikið um að vera í Safnasafni Finnur Ingi Daníelsson BERGUR Thorberg opnar sýningu á kaffiverkum sínum í dag kl. 15 í Klemmunni á Dal- vík. Sýningin er í beinum tengslum við Fiskidaginn mikla sem er á laugardeginum og stendur hún yfir alla helgina. Bergur hefur breytt kaffi í fullgilda málningu, mál- ar öll verk sín á hvolfi og snert- ir ekki flötinn sem hann vinnur á hverju sinni. Verður hann á staðnum og sýnir fólki hvernig hann vinnur verk- in. Bergur hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum víða um Evrópu og í Bandaríkjunum. Myndlist Kaffiverk á Klemmunni Verk eftir Berg Thorberg Eftir Ásgeir H Ingólfsson asgeirhi@mbl.is ÚTGÁFA Bjarts á tveimur bókum Gunnars Gunnarssonar, Svartfugli og Aðventu, heyrði til töluverðra tíð- inda – einfaldlega sökum þess hve sjaldgæft það er að klassísk íslensk skáldverk séu endurútgefin, þannig að margar helstu perlur bókmennta- sögunnar má aðeins nálgast á bóka- söfnum þegar lagerinn klárast. En hverjir eiga útgáfuréttinn að skáld- um sem fallin eru frá og hverjar eru leikreglur og venjur í því umhverfi? 70 ára reglan Höfundarréttur erfist – nema höf- undur hafi samið um annað – og gildir í sjötíu ár frá fyrstu áramót- um eftir dauða höfundar. Eftir það verður rétturinn almannaeign og því getur hver sem er gefið út bækur höfunda sem létust árið 1937 frá og með næstu áramótum. Athafnaskáld geta til dæmis byrjað að gefa út Einar H. Kvaran við þarnæstu ára- mót án þess að spyrja neinn og Ein- ar Benediktsson árið 2011. Forlögin eru venjulega með útgáfuréttinn sem þau semja við ættingjana um – en erlendis er þó ekki óalgengt að sérstök réttindafyrirtæki (estate) fari með höfundarrétt látinna lista- manna og er Gunnarsstofnun sjald- gæft íslenskt dæmi um það. Útgáfusamningarnir eru flestir þess eðlis að útgáfan heldur rétt- inum á meðan hún heldur verkunum í prenti – og ef handhafar höfund- arréttar eru ósáttir þurfa þeir venjulega að gefa útgefanda ákveð- inn frest til þess að prenta nýtt upp- lag ef samningurinn er enn í gildi. Útgáfuréttur á verkum einstakra höfunda er oftast á sömu hendi en þó ekki alltaf, áðurnefndar útgáfur á verkum Gunnars (í þýðingu hans sjálfs) eru hjá Bjarti en ekki hefur verið samið um rétt á öðrum verk- um skáldsins en Fjallkirkjan er enn á vegum Eddu þar sem eitthvað er enn eftir af upplaginu frá 1997. Gunnar þýddur á ný Edda er með langflesta útgáfu- samninga við eldri höfunda, þar á meðal Laxness, Þórberg, Stein Steinarr, Davíð Stefánsson og Tóm- as Guðmundsson. Hólmfríður Matt- híasdóttir, réttindastjóri útgáf- unnar, segir ætlunina að búa til fleiri sýnisrit líkt því sem kom ný- lega út með verkum Halldórs Lax- ness og þá væri í athugun að gefa út klassískar bókmenntir íslenskra höfunda í kiljum en ekkert væri þó ákveðið enn. Skúli Björn Gunnarsson, for- stöðumaður Gunnarsstofnunar, er mjög ánægður með þær móttökur sem kiljurnar nýju hjá Bjarti hafa fengið. Hann segir að fyrst hafi ver- ið leitað til Eddu en þar á bæ hefði verið afar lítill áhugi á útgáfunni og því hefðu þeir leitað til Bjarts. Þeirra stefna sé að vinna markvisst að útgáfumálum Gunnars en ekki hefur enn verið samið sérstaklega um aðrar bækur en þessar tvær. Samningarnir við Eddu voru gerðir áður en Gunnarsstofnun tók við höf- undarréttinum og gilda nú aðeins um þær bækur sem enn eru í prent- i.Hjá Bjarti fengust þau svör hjá forleggjaranum Snæbirni Arn- grímssyni að ekki væri sérstaklega verið að skoða aðra látna höfunda en Gunnar. Hjá þeim er verið að vinna að kennsluleiðbeiningum fyrir Svartfugl og Aðventu. „Þá eru uppi hugmyndir um að fá úrvalsþýðanda til þess að þýða verk Gunnars aft- ur,“ segir Snæbjörn, en bækur Gunnars hafa þegar verið þýddar úr dönsku af honum sjálfum, Halldóri Laxness, Magnúsi Ásgeirssyni, Ein- ari Kvaran og fleirum. Almennt tel- ur þó Sæbjörn að litlar tekjur séu úr því að hafa að gefa út eldri höfunda, „þeir ná sjaldnast hæðum eftir and- látið“. JPV útgáfa hefur gefið út Svövu Jakobsdóttur og Sigfús Daðason auk þess að endurútgefa mörg fyrri verka Guðbergs Bergssonar, oft endurskoðuð, en annað sé ekki sér- staklega í skoðun. Útgáfa eftir andlátið  Lítið gefið út af klassík en Gunnar Gunnarsson verður hugsanlega þýddur aftur  Höfundarréttur að almannaeign sjötíu árum eftir lát höfundar Morgunblaðið/Brynjar Gauti Skriðuklaustur í Fljótsdal Þar er Gunnarsstofnun til húsa, ein fárra stofn- ana sem sjá sérstaklega um höfundarrétt látins höfundar. Í HNOTSKURN » Úrval klassískra ís-lenskra bókmennta í ís- lenskum bókabúðum. » Laxness má vel við una.Nokkuð er til af Þór- bergi. Eftir Stein Steinarr er aðeins til örþunn kilja af Tímanum og vatninu og jafnmikið er til af Davíð Stefánssyni. Ekkert fannst eftir Einari Benediktsson fyrr en í þriðju búðinni þar sem stórbók með verkum hans var til sölu. » Ekkert fannst eftir eftir-farandi skáld: Jónas Hallgrímson, Matthías Jochumsson, Einar Kvaran, Guðmund Hagalín, Sigurð Nordal, Kristmann Guð- mundsson, Benedikt Grön- dal, Huldu og Torfhildi Hólm. KIRKJULISTAHÁTÍÐ í Reykjavík hefst á morgun, laugardag, og stendur til 19. ágúst. Hátíðin var fyrst haldin á vígsluári Hallgríms- kirkju árið 1987 og heldur upp á tuttugu ára afmæli sitt með dagskrá undir yfirskriftinni „Ég vil lofsyngja Drottni“. Í dag verður hitað upp fyr- ir hátíðina með tónleikum í Hall- grímskirkjuturni kl. 16.13 þar sem flutt verða sýnishorn af því sem koma skal á hátíðinni. Á tónleikunum í dag flytur Helgi Hrafn Jónsson tónlistarmaður frum- samda tónlist auk þess sem hann segir frá fjölbreyttri dagskrá á hátíð sem ber yfirskriftina „Listvaka unga fólksins“ og fer fram í Hallgríms- kirkju laugardagskvöldið 11. ágúst. Bandaríski tónlistarmaðurinn Nico Muhly flytur frumsamið verk fyrir píanó á tónleikunum í turninum en Nico gaf nýverið út geisladiskinn Speaks Volumes hjá íslenska útgáfu- fyrirtækinu Bedroom Community. Einnig spila Robin Blaze kontra- tenór, Kristinn Örn Kristinsson pí- anóleikari og Elfa Rún Kristins- dóttir fiðluleikari á tónleikunum sem verða í beinni útsendingu á Rás 1. Nánar má lesa um dagskrá hátíðar- innar á kirkjulistahatid.is. Upphitun fyrir Kirkjulistahátíð Morgunblaðið/RAX Hátt uppi Elfa Rún Kristínsdóttir fiðluleikari leikur í turni Hallgríms- kirkju. Hún mun ásamt fleirum endurtaka leikinn í dag. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.