Morgunblaðið - 10.08.2007, Qupperneq 15
SÍÐASTA helgi Sumartónleika í
Skálholti 2007 upphófst sem ósjald-
an áður á nýhafinni verzlunar-
mannahelgi handa kyrrlátum dýrk-
endum helgrar Sesselju, meðan
hávaði landsmanna blét Bakkus.
Tónleikar laugardagsins voru
hvorki fleiri né færri en þrennir,
þ.e. kl. 15, 17 og 21, og gegndu hinir
fyrstu fyrirsögninni Söngarfurinn.
„Af hjarta hljóð“
TÓNLIST
Skálholtskirkja
Snorri S. Birgisson: Lysting er sæt að
söng, auk sálma- og þjóðlagaútsetninga
eftir Sigursvein D. Kristinsson, Jórunni
Viðar, Hallgrím Jakobsson og Sigursvein
K. Magnússon. Aurora Borealis (Margrét
Hrafnsdóttir sópran og Ólöf Sigursveins-
dóttir selló). Laugardaginn 4.8. kl. 15.
Sumartónleikar
Ríkarður Ö. Pálsson
Fóru þar útsetningar á gömlum ís-
lenzkum sálma- og þjóðlögum eftir
ofangreinda höfunda er sumar
höfðu áður heyrzt í Skálholti, þ. á
m. „Musiculof“ – snilldarmeðferð
Snorra S. Birgissonar á „Lysting er
sæt að söng“ auk sálmsins „Lofið
drottin“, „Hvítasunnukvæðis“ og
vókalísu við ónefnt lag; lengsta (12
mín.) samfellda tónverkið og, eins
og styttri lögin 27, frábærlega vel
útfært af sópran-selló dúóinu Au-
rora Borealis eða „Kátu döns-
urunum“, ef manni leyfist að end-
urskíra norðurljósin að hætti Skota.
Tíu útsetningar voru eftir Sig-
ursvein D. Kristinsson. Þær voru
oft hinar prýðilegustu, þó að fimm
útsetningar Jórunnar Viðar – jafn-
vel þótt undirleikur væri umritaður
úr píanófrumgerð – hefðu að mínu
viti yfirleitt betur að óþvinguðum
innileik og látlausum sjarma. Að
meðtöldum tveim ágætum útsetn-
ingum Hallgríms Jakobssonar staf-
aði ferskum þokka af úttekt yngri
nafna Sigursveins D. og tónskóla-
arftaka, K. Magnússyni, í krist-
alstærri „col legno“ útgáfu hans af
Ljósið kemur og frumlegri sam-
tímis beitingu á tvítóna plokk-
þrábassa og stroknum mótlínum í
Blástjörnunni.
Dóttir hans átti veg og vanda af
lýtalitlum, röggsömum en sveigj-
anlegum sellóleik við bráðfallegan
og tandurhreinan sópransöng Mar-
grétar Hrafnsdóttur, jafnvel þótt
söngtextinn hætti mikið til að heyr-
ast þegar ofarlega dró á höf-
uðtónasviðinu. Engu að síður nutu
beztu útsetningarnar sín afar vel í
fjölbreyttri og innlifaðri túlkun
þeirra stallna.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 15
3
Ná›u flér í Lottómi›a á næsta
sölusta› e›a á lotto.is
lotto.is
firefaldur pottur!
Eftir Sverri Norland
sverrirn@mbl.is
Í SÍÐUSTU viku greindi Morgun-
blaðið frá nýju listgalleríi í miðbæ
Reykjavíkur – Gallerí Ágúst er í eigu
Sigrúnar Söndru Ólafsdóttur, en á
morgun, laugardag, verður opnuð
vígslusýning þess, FENÓMENA.
Sýna þær Ásdís Sif Gunnarsdóttir og
hin argentínska Rakel Bernie verk
sín.
Blaðamanni gafst færi á að líta inn í
húsakynnin. Var undirbúningur að
sjálfsögðu í fullum gangi; listakon-
urnar, Sigrún Sandra og ungur að-
stoðarmaður þeirra þeyttust til og frá,
röðuðu, skipulögðu og spekúleruðu.
Stöllurnar hafa unnið að sýningunni
undanfarnar fjórar vikur. „Efnið var
mestmegnis til reiðu þegar við hóf-
umst handa,“ útskýrir Rakel, „en síð-
an þurftum við að vefa þetta saman,
og átta okkur á hugmyndum og mark-
miðum hvor annarrar.“
Athyglisvert er að listakonurnar
höfðu aldrei hist áður en vinnan fór í
hönd. „Mariangela Capuzzo paraði
okkur saman,“ segir Ásdís, „Hún er
„freelance“-sýningarstjóri í Banda-
ríkjunum og þekkir vel til verka okkar
beggja; hefur líka oft komið hingað til
lands.“
Kattarlegar kvensur
Í forvitnilegum texta, sem áð-
urnefnd Mariangela ritar um listakon-
urnar, segir hún opnunarsýningu
Gallerís Ágústs færa saman tvo ólíka
samtíðarlistamenn, sem í rannsókn
sinni á hinu venjulega standi oftlega
andspænis hinu furðulega og óvenju-
lega. Vísast er nokkuð til í þessum
orðum. Teikningar, skúlptúrar, stillur,
innsetningar og vídjóverk sýnast á
tíðum draga upp myndir úr öðrum
heimum, fjarrænum og skrítilegum.
Þema sýningarinnar er einhverskon-
ar leit að kennimörkum og líkindum,
„ídentíteti“, en auk þess stúdía á
margbreytileika femínískra týpa og
karaktera.
Rakel hefur gert nákvæmar og
grípandi teikningar, en tækni hennar
og myndbygging eru undir greinileg-
um japönskum áhrifum. „Ég hef til
dæmis löngum heillast af japönskum
landslagsteikningum,“ staðfestir hún.
„Með hinu smáa skaparðu hið stóra.“
Teikningarnar tvinnar hún svo við úr-
klippur; snifsi og glefsur héðan og
þaðan. „Ég leita að módelum í
kvennatímaritum og tískublöðum,“
glöggvar hún blaðamann. Konur
hennar virka dularfullar, kröftugar,
dáldið nornalegar jafnvel og þrungn-
ar slægð og klókindum, en sumar eru
einnig giska kisulórulegar. Öðru máli
gegnir þó um fyrirsæturnar í tísku-
sneplunum: „Þær virðast svo brot-
hættar, og í raun við dauðans dyr; ég
set þær saman uppá nýtt og bý til
mínar eigin konur!“
Ólíkir vinklar að sjálfinu
Hugmyndir Rakelar um konu
byggjast á sjálfstæðri, óháðri kjarna-
kvendisfígúru. Hún skyggnist í list
sinni eftir öruggum stað þar sem hún
getur falist og notið verndar; í raun
eru portrettmyndir hennar af þessum
konum sjálfsmyndir að hennar mati.
Sprettur þar fram skýr tenging við
verk Ásdísar á sýningunni, sem segir:
„Frammí salnum eru stillur, ljós-
myndir úr vídjóverki sem sýnt verður
hér í bakherbergi. Myndefnið eru
performansar sem ég hef unnið að í
gegnum tölvu síðan í janúar.“ Á
hverjum sunnudegi kveðst hún hafa
fangað klukkutímalöng myndskeið
með skype-netsíma, og síðan veitt út
ljósmyndir. Hver og ein dregur því
upp mismunandi lundarfar listakon-
unnar, og stemningin veltur vitaskuld
á hugarástandi hennar á hverjum
sunnudegi.
Ásdís heldur áfram: „Vídjóið sjálft
verður sýnt í gegnum plastskúlptúr
með sýningarvél, en þegar myndinni
er varpað í gegnum skúlptúrinn verð-
ur hún þrívíð.“ Blaðamaður hváir og
spyr hvort þetta sé ekki eitthvað sem
maður þurfi að sjá með eigin augum.
Stöllurnar hlæja og jánka því.
Kynngimagnaður kraftur
Rakel, sem búsett er í Miami í
Bandaríkjunum, kveðst að lokum
stödd á Íslandi í fyrsta skipti. Hún
segist dolfallin yfir kynngimætti og
vænleik íslenskrar náttúru, og
heillast af orku og frumkrafti náttúr-
unnar. „Þetta er einsog að verða vitni
að tilurð heimsins (e. genesis),“ segir
hún, og talar fjálglega með viðeigandi
handapati og bendingum – líkt og
sönnum listamanni sæmir. Að hennar
sögn langar hana til þess að sýna aft-
ur hér landi – hver veit nema hún geri
það aftur í félagi við Ásdísi Sif, enda
virðist fara einkar vel á með þeim.
Hver veit nema vinagleðin smitist út í
sýninguna…
Margbreytilegt lundarfar kvenna
Morgunblaðið/Frikki
Sveiflukenndar Ásdís og Rakel rannsaka breytilegt síhugarástand kvenna og duttlunga þeirra.
Ásdís Sif Gunnarsdóttir og Rakel Bernie vígja samvinnuverkefni sitt á fyrstu sýningu Gallerís Ágústs
Gallerí Ágúst er til húsa á Bald-
ursgötu 12. Vígslusýning þess kall-
ast FENÓMENA, og verður opnuð
kl. 16 á morgun, laugardag.
Í MORGUNBLAÐI gærdagsins var á baksíðu og 14. blaðsíðu greint frá því
að Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður hefði hlotið hin norrænu hönn-
unarverðlaun Ginen í ár. Til þess að varpa ljósi á klæðahönnun Steinunnar
voru birtar tvær ljósmyndir af verkum hennar, en svo óheppilega vildi til að
ranglega var farið með nafn ljósmyndara, sem er Mary Ellen Mark.
Leiðrétting
MANNLÍF á götum Reykjavíkur er
viðfangsefni Ara Sigvaldasonar ljós-
myndara í Fótógrafí, þar sýnir hann
á annan tug svarthvítra ljósmynda
tekinn án vitundar þeirra sem mynd-
aðir eru. Myndirnar eru hráar í takt
við augnabliksstemninguna sem á
þeim ríkir. Ari hefur sérhæft sig í
ljósmyndum með áþekku mótífi, fyr-
ir ekki löngu sýndi hann í Gerðu-
bergi ljósmyndir víða að úr heim-
inum, götu- og mannlífsmyndir.
Þessi vinnuaðferð er þekkt úr sögu
ljósmyndarinnar og þegar vel tekst
til geta hversdagsleg augnablik öðl-
ast birtingarmátt eilífðarinnar og
varpað ljósi á einhvern sannleika um
lífið og samfélagið.
Ari Sigvaldason leggur nokkra
áherslu á húmor í myndum sínum og
takmarkar það að nokkru leyti sýn-
ingu hans nú. Þær myndir sem
óræðari eru og bjóða upp á túlkun að
vild áhorfandans eru að mínu mati
áhugaverðari en þær sem byggja
meira á húmornum. Sé hann mark-
miðið verður þó tæpast annað sagt
en að því sé náð, þó svo að jafnan sé
umdeilanlegt hvað telst fyndið. Hnit-
miðaðri efnisleg nálgun hefði skilað
undirritaðri eftirminnilegri sýningu,
eða meiri áhersla á sjónræna þætti
en hér er reyndin, en aðall sýning-
arinnar er einlægur áhugi ljósmynd-
arans á mönnum og mannlífi.
Brosað
út í annað
Hver er þar? „Myndirnar eru hráar
í takt við augnabliksstemninguna
sem á þeim ríkir.“
MYNDLIST
Ljósmyndir
Fótógrafí við Skólavörðustíg.
Til 1. september. Opið 12-18 alla virka
daga en 10-16 um helgar.
Ari Sigvaldason
Ragna Sigurðardóttir