Morgunblaðið - 10.08.2007, Síða 16

Morgunblaðið - 10.08.2007, Síða 16
16 FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI „Það er nú ekki allt orðið troðið, en það er kominn ótrúlegur fjöldi,“ segir Júlíus Júlíusson, framkvæmdastjóri Fiskidagsins mikla á Dalvík. „Ég myndi giska á að það séu komnir um 7-8 þúsund gestir í bæinn. Það er straumur inn.“ Í kvöld hefst Fiskisúpukvöldið mikla, undanfari Fiskidagsins mikla, og þá geta gestir og gangandi spígsporað um bæinn og bragðað á fiskisúpu. Fyrir utan um 70 hús í bænum munu loga tveir kyndlar, sem þýða að gestir geti verið ófeimnir við að koma inn og fá „súpu og vinalegheit,“ eins og Júlíus orðar það. Í hverju húsi er súpan elduð á sinn hátt, og því er hægt að bragða um 70 mismun- andi súpur í kvöld. Að auki hafa menn verið iðnir við að skreyta bæinn. Allir bæj- arbúar hafa fengið fisk til að skreyta lóðamörkin sín og einnig hefur götunum verið gefin ný nöfn. Nöfn eins og Silungabraut og Haf- meyjubraut prýða nú bæinn. Vináttukeðja mynduð í fyrsta skipti Fiskidagurinn mikli hefur orðið fyrirferðarmeiri með árunum og þannig eru fleiri viðburðir nú yfir fleiri daga en bara hinn eina sanna Fiskidag. Sl. miðvikudag fóru t.a.m. um 150 manns í sérstaka fiskidagsgöngu. Í ár verður jafnframt mikið lagt upp úr náunga- kærleikanum og í kvöld kl. 19 verður mynduð vináttukeðja úr gest- um bæjarins. Herra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands og Vigdís Finnbogadóttir fv. forseti munu einnig flytja ávörp um vináttuna. Eftir það verður tekið til við fiskisúpuna „Þetta verður mikið fjör og mér skilst að ýmsar vörur hafi klár- ast í verslununum á Akureyri; Nettó, Bónus og Hagkaup, t.d. soð, kraftur, og tómatur,“ segir Júlíus framkvæmdastjóri, enda er búist menn við fjölmenni í kvöld. Fiskisúpukvöldið mikla haldið á Dalvík HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ BIRGIR Torfason, eigandi skemmti- staðanna Kaffi Akureyri og Vélsmiðj- unnar, segir undirskriftasöfnunina gegn meirihluta bæjarstjórnar Akur- eyrar hafa farið vel af stað. „Hingað til hefur mér ekki verið neitað um undir- skrift af þeim aðilum sem ég hef leitað til,“ segir Birgir, en aðilarnir sem hann hefur leitað til koma flestir úr þjón- ustugeiranum. Birgir hefur að auki stofnað bloggsíðuna akureyri.blog.is til að safna undirskriftum frá óánægðum bæjarbúum. Í gærkvöldi höfðu yfir hundrað athugasemdir borist, að mestu frá óánægðum lesendum. Skátarnir hætti með tjaldstæðin Á undirskriftalistunum er einnig krafist að aðrir aðilar en Skátafélagið Klakkur taki að sér rekstur tjaldsvæð- anna í bænum. Birgir segist vilja bjóða reksturinn út til annarra félaga í bæn- um, til að mynda Hestamannafélagsins, Bílaklúbbs Akureyrar eða íþróttafélag- anna Þórs og KA. Hann telur að þann- ig geti félögin aflað sér fjár, auk þess sem þau munu geta tryggt öflugri gæslu á svæðunum en verið hefur þeg- ar stórar hátíðir eru í bænum. „Skát- arnir hafa ekki verið nógu margir á þessum hátíðum,“ segir Birgir og tekur fram að undirskriftum verði að öllum líkindum skilað til bæjarstjórnarinnar í næstu viku. „Hamrasvæðið með bestu tjaldsvæðum landsins“ Edward Huijbens, talsmaður stjórn- ar tjaldsvæðanna, segist treysta bæj- arbúum til að standa vörð um upp- byggingu að Hömrum, sem byggist á hugmyndafræði skátanna: „Hamra- svæðið er óumdeilanlega eitt af bestu tjaldsvæðum á landinu og ég treysti bæjarbúum til að standa vörð um það.“ Edward segist jafnframt vonast til að Birgi gangi sem best með undir- skriftalistana: „Þá skýrast línur um það hverjir eru öfga- menn og hverjir vilja leysa málin, sem ég tel mjög gott. Ég held hins vegar að menn verði að athuga vel hvers vegna það stendur upp á okkur eina að greiða úr vanda sem er áskapaður vegna þess að nokkrir aðilar vilja halda partí í bænum. Útihátíðunum hafa hingað til fylgt ýmis vandamál, af hverju eigum við einir að leysa þau? Mér finnst rangt að halda því fram að við séum ekki vandanum vaxin eins og sagt er á und- irskriftalistanum, af því að við séum ekki að leysa vandamálin sem fylgja hátíðinni þegar ákveðnir hagsmunaaðil- ar halda risapartí. Þeir eiga að leysa sinn vanda.“ Undarleg ímynd fyrir bæinn Edward segir að „grátkór“ um- ræddra hagsmunaaðila sem myndast hafi í kjölfar hátíðarinnar sé undarleg ímynd fyrir bæinn. „Það er undarlegt að koma fram í fjölmiðla og gráta það að þeir hafi ekki grætt nógu mikið, af því að engir gestir komu,“ bætir hann við og bendir á þá jákvæðu ímynd- arsköpun sem átt hafi sér stað í kring- um Fiskidaginn mikla á Dalvík. Ekki náðist í Sigrúnu Björk Jak- obsdóttur bæjarstjóra vegna málsins, en hún sendi frá sér yfirlýsingu sem birt er á blaðsíðu 8 í blaðinu í dag. Hart deilt Vinir Akureyrar segja stjórnendur tjaldsvæðanna vanhæfa. Edward Huijbens talsmaður þeirra segir að Vinirnir skapi bænum undarlega ímynd. Hagsmunaaðilar leysi sín vandamál sjálfir Edward Huijbens Á HÁDEGISTÓNLEIKUM Ketilhússins í dag mun Björg Þórhallsdóttir sópransöngkona koma fram ásamt Daníel Þorsteinssyni píanó- leikara. Björg var í vor valin bæjarlistamaður Akureyrar. Á tónleikunum verða flutt íslensk sönglög í rómantískum anda með megináherslu á lög Atla Heimis Sveinssonar við ljóð Jónasar Hall- grímssonar og Davíðs Stefánssonar. Einnig verða flutt lög nokkurra helstu tónskálda þjóðarinnar svo sem Jóns Þórarinssonar, Þór- arins Guðmundssonar, Árna Thorsteinssonar og Tryggva M. Baldvinssonar við ljóð íslenskra öndvegisskálda. Tónleikarnir hefjast kl. 12 og munu standa yfir í um það bil þrjú korter. Björg Þórhallsdóttir Björg með hádegistónleika ÍBÚAR Grafarholts eignast kirkju í lok næsta árs, en þá á söfnuður- inn fimm ára afmæli. Karl Sig- urbjörnsson biskup tók fyrstu skóflustunguna að byggingunni á miðvikudag. Kirkjan verður með sérstöku sniði að ýmsu leyti, til dæmis blasir útsýni upp í himininn og út í fallegan garð við kirkjugest- um í stað hefðbundinnar alt- aristöflu. Hingað til hefur kirkjustarfið verið dreift um hverfið. „Við köll- um þetta einu blokkarkirkjuna á Íslandi,“ segir Sigríður Guðmars- dóttir sóknarprestur. „Það er messað í blokk fyrir eldri borgara, en svo er barnastarfið í Ingunn- arskóla. Við erum í rauninni á mörgum stöðum.“ Yngsta sókn landsins Grafarholtssókn er yngsta sókn þjóðkirkjunnar og meðlimir hennar eru líka að miklu leyti ungt fólk og börn. Kirkjustarfið tekur mið af því. „Það er lagt mikið uppúr barna- og æskulýðsstarfi. Það eru fjölskyldumessur og sunnudaga- skóli, og svo er líka starf með eldri krökkum,“ segir Sigríður. Kirkjan mun rísa við Kirkjustétt 8, sem verður að teljast sérstaklega viðeigandi heimilisfang fyrir starf- semina, en í næsta nágrenni er einnig að finna götunöfnin Kristni- braut og Prestastíg. Kirkjubyggingin var boðin út með þeim hætti að fjórir aðilar fengu gefna upp upphæðina, 210 milljónir, sem kosta á til bygging- arinnar fullbúinnar og settu fram tillögur í samræmi við það. Tillaga þeirra Þórðar Þorvaldssonar og Guðrúnar Ingvarsdóttur hjá arki- tektastofunni Arkís og verktakafyr- irtæki Sveinbjörns Sigurðssonar ehf. varð fyrir valinu. Nýja kirkjan verður 700 fermetr- ar að stærð, en Grafarholtssókn telur nú um 5.200 sálir. Kirkjan mun allajafna taka 160 manns í sæti, en auðvelt er að opna út í við- bótarrými í safnaðarsal og skála svo að allt að 370 manns komist þar fyrir í stærri athöfnum. Lokaður garður Eitt helsta einkenni kirkjunnar verður að þar verður stór gluggi í stað altaristöflu og fyrir utan gluggann verður lítill garður. Inn- blásturinn að þessu fyrirkomulagi voru klausturgarðar fyrri tíma. „Það er töluvert um altarisgarða í biblíunni, til dæmis í sálmi nr. 84 þar sem segir „Hve yndislegir eru forgarðar þínir, drottinn?“,“ segir Sigríður. „Þetta er lokaður garður, það er ekki hægt að komast inn í hann nema til að halda honum við og þrífa. Þarna kemur dagsbirtan inn og ef það er snjór þá sést það og eins ef það er vindur. Maður tekur svolítinn þátt í náttúruöfl- unum, þetta er dýnamísk alt- aristafla. En þetta er líka lokað rými, þannig að þetta er eiginlega innhverf náttúra,“ sagði Sigríður að lokum. Útsýni upp í himininn í stað altaristöflu Eftir Gunnhildi Finnsdóttur gunnhildur@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Skóflustunga Karl Sigurbjörnsson biskup tók fyrstu skóflustunguna ásamt börnum úr sókninni. Kennileiti Nýja kirkjan í Grafarholti á að standa við torg í næsta nágrenni við grunnskóla, leikskóla og aðra þjónustustarfsemi í hverfinu Altarisgarður Ekki verður hefðbundin altaristafla í kirkjunni, heldur stór gluggi út í lokaðan garð. Hugmyndin er sótt í klausturgarða fyrri tíma.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.