Morgunblaðið - 10.08.2007, Side 33

Morgunblaðið - 10.08.2007, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 33 an af pjatti, prjáli – já og jafnvel kóngafólki. Amma var mikill fagur- keri, reyndar svo mikill að henni fannst oft ástæða til þess að gera grín að pjattinu í sér. Sem barni fannst mér gaman að stríða henni á þessum eiginleikum hennar. Mig langar til að segja aðeins frá því: Ferðirnar með ömmu og afa til Bolungarvíkur eru sveipaðar ævintýraljóma. Ekki sak- aði að langafi Einar var jafn mikill morgunhani og ég. Við vorum venju- lega vöknuð á undan öðrum og því fékk ég að fara með honum niður á höfn og í frystihúsið. Langafi hafði lítið lag á því að greiða síðhærðum smákollum en hann var praktískur maður og brá á það ráð að setja á mig húfu og draga vel niður fyrir eyru þó hásumar væri. Ofsalega kættist ég þegar ég kom til baka og amma tók um höfuð sér og óaði og æjaði yfir út- ganginum á mér. Ég sá það seinna að hún ýkti þessi viðbrögð sín mér til skemmtunar. Við ræddum þetta stundum síðar meir og þá rifjaði hún upp efitrfarandi sögur. Þegar amma var ung stúlka lá leið hennar til Reykjavíkur. Áður en hún lagði af stað rétti velviljaður ættingi henni nokkra aura og sagði henni að kaupa sér einhvern „hégóma“ – eitt- hvað sem hún vildi sjálf eiga. Unga stúlkan að vestan sneri heim með þessa líka dásamlega litskrúðugu regnhlíf. Slíkur og annar eins óþarfi hafði ekki sést á æskuslóðunum og ættingjanum góðhjartaða varð að orði: „já, þetta er sannkallaður hé- gómi“. Amma sagði mér söguna með bros á vör en sneri ekki við blaðinu. Seinna meir keypti hún eina fyrstu sólhlífina sem tekin var til nota á Ís- landi. Og hvar ætli vanti síður sólhlíf heldur en við Ægisíðu? Þessar sögur sem hún sagði af sjálfri sér sitja í mér, trúlega vegna þess að ég skil þessi innkaup ömmu og finnst sög- urnar eiga vel við okkur báðar. Amma gaf okkur öllum í fjölskyld- unni svo margt sem komið hefur að gagni og mun halda áfram að gera um ókomin ár. Við, ungviðið í fjöl- skyldunni, dvöldum ef til vill ekki við áhrif hennar á okkur þegar við vor- um að vaxa úr grasi, en þegar sá tími kom að við fórum í okkar „kaupstað- arferð“ þá gátum við sótt í reynslu- sjóðinn sem amma hafði byggt upp. Börn hennar eru fjögur, barnabörnin þrettán og nú eru barnabarnabörnin orðin sjö. Allur sá lærdómur sem við höfum fengið í arf frá ömmu mun lifa í okkur öllum og vonandi getum við miðlað þeim mannkostum á sama hátt og hún gerði. Það er gæfa að eiga minningar um þessa góðu konu og ég er þakklát fyrir að sonur minn Pétur Bjarni skuli hafa fengið tæki- færi til að kynnast henni. Ég votta afa mína dýpstu samúð og kveð ömmu með söknuði. Tinna Laufey Ásgeirsdóttir. Mér eru minnisstæðar allar góðu stundirnar hjá ömmu minni og afa mínum á Ægisíðunni. Alltaf tóku amma og afi á móti gestum með bros á vör og amma lumaði iðulega á ein- hverju góðgæti fyrir svanga krakka og fullorðna. Stundum þegar við frændsystkin- in vorum í pössun á Æjó setti amma okkur í ,,krefjandi“ verkefni, eins og til dæmis að strjúka af speglinum eða sortera tölur. Við fengum að launum aura sem við notuðum til þess að kaupa okkur snúð og kókómjólk. Amma skar snúðinn niður fyrir okk- ur í músabita og, eftir því sem við elt- umst, kattabita. Amma hafði gaman af því að syngja og söng fyrir okkur barna- börnin lögin ,,Ó, Jesú bróðir besti“ og ,,Sól úti, sól inni“ með sinni fallegu röddu. Hún sagði okkur sögur frá uppvextinum, hvernig hún lærði að synda og hvernig rjómaís var búinn til á jólunum með mikilli fyrirhöfn. Þá sagði hún okkur að pabbi hennar hefði ákveðið að styðja hana til náms í Kvennaskólanum í Reykjavík, en fyrir það var hún afar þakklát þótt fjarveran frá fjölskyldunni í Bolung- arvík hafi verið henni erfið. Amma hafði þann einstaka hæfi- leika að leggja áherslu á hið góða við lífið. Hún var ekki mikið fyrir að tala um erfiðleika eða böl heldur minntist þess með bros á vör hvað hún hefði haft það gott alla ævi. Þegar hún veiktist og minnið brást virtust ein- ungis góðar minningar sitja eftir. Aldrei heyrðist hjá ömmu minni bak- tal um nokkurn mann. Frá því ég var lítil brýndi amma fyrir mér að það væri mikilvægt að finna sér góðan og vandaðan lífsföru- naut. Í dag skil ég hvað hún hafði mikið til síns máls, enda átti amma alveg einstakan eiginmann, hann afa. Amma, þegar mér er hugsað til þín minnist ég hlýjunnar, gleðinnar og góðvildarinnar sem ætíð stafaði frá þér. Þú varst afar jákvæð kona og hláturmild. Þú hafðir einstakt lag á að sjá hið góða í fólki og setja þig í spor þeirra sem áttu bágt. Ég held að mamma hafi rétt fyrir sér þegar hún segir að við getum best minnst þín með því að reyna að líkjast þér. Þú sagðir stundum að þú værir rík vegna þess að þú ættir svo góða að. Ég veit að við höfum líka verið afar heppin að eiga þig að. Mig langar að lokum til að kveðja þig með vísunni sem þú kenndir okkur barnabörnun- um: Þegar lundin þín er hrelld, þessum hlýddu orðum: Gakktu með sjó og sittu við eld, svo kvað völvan forðum (Höf. ók.) Margrét Halldóra Hallgrímsdóttir (Móa). Hún er dáin, þessi góða, ljúfa, fal- lega kona, sem hlýjaði mér um hjartarætur í hvert skipti sem ég kom á Ægissíðuna. Við áttum sam- eiginlega vini, sem við gátum enda- laust talað um. Hún þekkti ömmu mína, Stellu, og sagði mér oft sögur frá því þegar hún heimsótti hana og afa minn á Laugaveginn. Hún hafði líka hitt pabba minn lítinn. Þetta voru ánægjulegar stundir, sem við áttum saman, og ég vil þakka þær. Anna Blöndal. Seztu hérna hjá mér, systir mín góð. Í kvöld skulum við vera kyrrlát og hljóð. (Davíð Stefánsson) Elsku systir. Tíminn líður hratt en minningar frá liðnum ævidögum lifa. Margs er að minnast og margs að sakna. Halldóra systir sem við kölluðum Dódó var mikil og góð systir og góð fyrirmynd. Hún var ævinlega hress og jákvæð og gott að vera í návist hennar. Hún stóð sig vel í öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Henni gekk vel í skóla og var dugleg við heim- ilisstörfin og hafði mikla ábyrgðartil- finningu gagnvart okkur yngri systk- inunum, ekki síst litlu systur. Í Einarshúsi áttum við forðum heima, ólumst upp í stórum glöðum hópi. Sex bræður og tvær systur auk fóst- ursystur okkar. Eftir að foreldrar okkar fluttust í Péturshúsið sem síðan þá er kallað „Einarshús“ var oft glatt á hjalla og ekki að ástæðulausu að húsið væri oft kallað „hús gleðinnar“. Þar var mikill gestagangur, þangað sótti unga fólk- ið og allir voru velkomnir. Dódó hafði sérstaklega góða frásagnargáfu og mundi alla hluti. Oft sagði hún við mig: Hidda, manst þú ekki eftir þessu eða hinu. Nei annars, þú ert svo ung að það er ekki von að þú munir það. Pétur bróðir sagði oft skemmtilegar sögur af henni. Eftir að Dódó og Haraldur giftu sig og eignuðust sitt heimili var gott að heimsækja þau. Þegar þau fluttu á Ægissíðuna varð fastur liður hjá mörgum úr fjölskyldunni að enda Reykjavíkurför sína með því að koma til þeirra. Dódó bað þá ævinlega fyrir kveðju í Víkina sínu kæru og var þá Einarshúsið ofarlega í huga hennar. Í mörg ár kom Dódó í Einarshúsið, mömmu og pabba til halds og trausts. Börn þeirra Dódóar og Har- aldar hafa verið foreldrum sínum mikil stoð í ellinni og barnabörnin veitt þeim mikla gleði. Haraldur var henni einstaklega góður eiginmaður og reyndist henni vel til hinstu stund- ar. Ég og fjölskylda mín vottum Har- aldi, börnum þeirra og fjölskyldunni allri, innilega samúð. Stundum er það Guðsgjöf að fá að kveðja sína nán- ustu hinstu kveðju eftir erfið veik- indi, en minningin lifir. Guð geymi þig, elsku systir. Hafðu þökk fyrir allt og allt. Hildur Einarsdóttir. Þegar mér var sagt lát kærrar frænku minnar, Halldóru Einars- dóttur, eða Dódóar eins og hún var alltaf kölluð, hvarflaði hugurinn strax til æskuáranna. Ég fæddist í „Gulu búðinni“, sem svo var kölluð en hún stóð á kambinum í Bolungarvík, skáhallt á móti Einarshúsi en svo var æskuheimili Dódóar nefnt á þessum tíma. Amma okkar, Halldóra Jó- hannsdóttir, bjó í „Gulu búð“ ásamt sambýlismanni sínum, Kristjáni E. Kristjánssyni, og Halldóru Pálínu Halldórsdóttur, bróðurdóttur hans. Mamma var þar einnig til heimilis ásamt okkur Kristínu systur. Mikill samgangur var á milli heimilanna og frá árinu 1937, þegar mamma flutti til Reykjavíkur og Kristín fór til Ingibjargar móðursystur okkar og Páls Sólmundssonar, manns hennar, höfðum við amma fæði og allan að- búnað frá Einarshúsi. Halldóra Pál- ína flutti fljótlega eftir þetta í Ein- arshús og ólst þar upp frá níu ára aldri í skjóli föðurbróður síns. Ég var áfram í „Gulu búð“ en þegar veikindi ömmu ágerðust, en hún lést 1940, gerðist það oftar og oftar að ég gisti í Einarshúsi. Dódó tók þessa litlu frænku sína upp á arma sína og átti ég visst ból fyrir ofan hana í rúminu. Og hvað þessi fallega og góða frænka mín var mér ástrík og góð eins og reyndar allir á heimilinu. Dódó hafði sérstakt lag á okkur börnunum, hældi okkur fyrir það sem við gerðum og lét okkur finnast við mikilvægir þátttakendur í hinu daglega lífi. Þannig varð t.d. það að sópa eldhúsgólfið spennandi og skemmtilegt. Haustið 1941 fluttist ég svo til Reykjavíkur til mömmu minn- ar og stjúpa en var næstu sumur í Einarshúsi. Meðan á námi stóð var Dódó heimagangur hjá okkur í Reykjavík og kom oft með skólasystur sínar með sér. Alltaf var jafn gaman að hitta hana og ekki gleymi ég hvað ég var stolt af þessari fallegu frænku minni þegar hún kenndi bekknum mínum í æfingakennslu í Austubæj- arskólanum. Mín heitasta ósk var að líkjast henni. Árið 1946 giftist Dódó svo honum Haraldi sínum og stofn- uðu þau heimili. Ég varð strax heimagangur hjá þeim og dáðist ég að því hve allt var fallegt og mynd- arlegt á heimili þeirra. Ég gleymi aldrei þegar við Halldóra Pálína, sem þá var komin til Reykjavíkur, vorum að handfjatla barnafötin þegar von var á fyrsta barninu, allt var svo fal- legt og fínt. Eins og Dódóar var von og vísa leyfði hún okkur að taka þátt í tilhlökkuninni og endahnúturinn var þegar hún trúði mér fyrir því að smyrja brauð í skírnarveisluna henn- ar Elsu. Auðvitað stjórnaði hún því en lét mér finnast ég bera ábyrgðina. Árið 1950 fluttum við fjölskyldan aft- ur heim til Bolungarvíkur og fækkaði þá samverustundum nema að sumr- inu en ekkert sumar leið svo að hún kæmi ekki heim í foreldrahús á með- an báðir foreldrar hennar lifðu. Að lokum viljum við Geir senda Haraldi og fjölskyldunni allri innileg- ustu samúðarkveðjur með þökk fyrir allt. Góð kona hefur kvatt og hennar verður sárt saknað. Guð blessi minn- ingu Halldóru Einarsdóttur frá Bol- ungarvík. Una Halldóra Halldórsdóttir. Meira: mbl.is/minningar Þau voru ljúfur vorboði sem birtist okkur árvisst fyrir vestan. Þeim fylgdi líka dálítið framandlegur and- blær, komin sunnan úr Reykjavík. En umfram allt voru Halldóra föð- ursystir mín, Haraldur Ásgeirsson eiginmaður hennar og börnin sann- kallaðir aufúsugestir í Bolungarvík. Heim, sagði Halldóra frænka mín, þegar hún talaði um Bolungarvík. Því þó hún hafi hleypt heimdragan- um ung og farið suður til Reykjavík- ur til mennta, slitnuðu tryggðar- böndin við átthagana aldrei. Þetta voru sælir sumardagar. Heimili afa og ömmu í Bolungarvík var samkomustaður fjölmenns barnahóps. Systkinabörnin okkar að sunnan fluttu með sér nýtt tungutak, sögðu okkur frá furðum borgarlífsins og við endurguldum kannski með því að leiða þau um okkar bolvísku undraveröld, þar sem fjaran, Bólin, nótabátarnir, Brjóturinn og byggðin öll var leikvöllurinn. Inni beið svo Halldóra, Dódó frænka, þess albúin að tala við okkur og bera í okkur góð- gerðirnar. Anginn, sagði hún stund- um við mann, með ekta vestfirskum sérhljóða og þeirri væntumþykju sem var henni eðlislæg. Þegar að því kom að við fengum að fara suður til Reykjavíkur var ekkert sjálfsagðara en að setjast upp á Æg- issíðunni, heimili þeirra Halldóru og Haraldar. Engum þótti það í raun- inni neitt tiltökumál þá. Núna sér maður hversu erilsamt það hlýtur að hafa verið að fá allan þennan stóra hóp systkinabarna að vestan í heim- sókn hvenær sem var. Dódó frænka var kjölfesta í fjöl- skyldunni; ættarstólpinn sjálfur og frænkan góða sem ætíð mátti setja traust sitt á. Það geislaði af henni höfðingsbragur, sem stafaði af glæsi- leika hennar, góðum gáfum, hlýleika og persónutöfrum. Þau Haraldur og Halldóra voru einstaklega myndar- leg hjón sem hvarvetna var tekið eft- ir og geisluðu ævinlega af ást og hamingju. Árin sem yfir þau færðust breyttu þessu ekki í neinu. Ógleymanleg eru sumarkvöldin í heima í Bolungarvík, þegar hún fór á kostum, rifjaði upp bernskusögurnar og við krakkarnir gerðum hlé á leikj- um okkar til þess að missa ekki af einu einasta orði. Allar voru sögurn- ar græskulausar og fyrst og fremst sagðar til þess að varpa skemmtilegu ljósi á gengna tíð. Þau faðir minn voru einstaklega kær og samrýnd systkini. Voru þau enda hin elstu í stórum barnahópi á erilsömu heimili sem lagði þeim sam- eiginlegar skyldur á herðar. Þau voru samtíða í Reykjavík á skólaár- um sínum, faðir minn í Verslunar- skólanum, en hún í Kvennaskólan- um. Aðdáunarvert er að lesa bréfaskipti þeirra frá þessum tíma til foreldra sinna vestur í Bolungarvík, þar sem skín í gegn gagnkvæm um- hyggja hvort fyrir öðru. Ástríki og gagnkvæma virðing entist ævi þeirra beggja. Þegar veikindi frænku minnar ágerðust nú á síðari árum komu vel í ljós hinir miklu mannkostir Haraldar Ásgeirssonar. Hann annaðist hana af einlægri nærgætni og bar hana á höndum sér. Missir hans er núna mikill eftir nærri sex áratuga ástríkt hjónaband. Frændfólkið mitt af Æg- issíðunni, makar þeirra og afkom- endur, sjá nú á bak góðri móður, tengdamóður, ömmu og langömmu. Þeim öllum votta ég og fjölskylda mín dýpstu samúð. Guð blessi minn- ingu kærrar frænku minnar. Einar Kristinn Guðfinnsson. Meira: mbl.is/minningar Það er svo margt að minnast á frá morgni æsku ljósum er vorið hló við barnsins brá og bjó það skarti af rósum. (Einar E. Sæmundsen) Það er svo sannarlega margs að minnast um frænku mína Halldóru Einarsdóttur og æskuheimili hennar í Bolungarvík, þar sem glaðværð og sönggleði ríkti, en ekki verður það allt sett á blað hér. Fyrir tæpum þrem vikum heim- sótti ég hana, þá var hún mikið veik og fann ég að þetta væri okkar síðasti fundur. Það kom aðeins glampi í aug- un og mér fannst hún hlusta þegar ég talaði um gamla daga heima í Bol- ungarvík. Mér þótti ákaflega vænt um þessa frænku mína sem mér fannst alltaf vera kát og glöð og einstaklega ráða- góð. Hún hafði líka svo skemmtilega frásagnargáfu, þannig að hún gat bæði hlegið og grátið í senn. Oft leitaði ég ráða hjá frænku minni varðandi matargerð en á því sviði var hún einstök enda hús- mæðrakennari að mennt. Heimili Halldóru og eiginmanns hennar, Haraldar Ásgeirssonar frá Sólbakka í Önundarfirði, var fallegt og mikið menningarheimili. Hjá þeim áttu margir ættingjar og vinir at- hvarf um lengri eða skemmri tíma. Fjórtán ára gömul kom ég þangað en þá þurfti ég að dvelja í Reykjavík um tíma, heimili þeirra stóð mér síð- an alltaf opið. Elsku Haraldur, ég veit að sökn- uður þinn og barna ykkar er mikill en minningin um ástkæra eiginkonu og móður mun lifa. Við hjónin, börn okkar og fjöl- skyldur þeirra sendum þér, Elísabet, Ragnheiði, Ásgeiri, Einari Kristjáni og fjölskyldum þeirra okkur dýpstu samúðarkveðjur. Hvíl í friði, elsku frænka mín. Kristín Sigurðardóttir. Hlý og brosmild, vel gefin, stolt og glæsileg fór föðursystir mín Hall- dóra Einarsdóttir um völlinn og veitti hvatningu og gleði, huggun eða hjálp, allt eftir því hvað best átti við hverju sinni. Hún var mannvinur mikill og einstaklega skilningsrík. Umburðarlynd og glögg á fjölbreyti- leika manneskjunnar. Dódó frænka var fædd og uppalin í Bolungarvík. Æskustöðvarnar skip- uðu alla tíð stóran sess hjá henni enda hafði hún alist upp í góðri og samheldinni fjölskyldu milli tignar- legra vestfirskra fjalla. Í bernsku okkar kom sumarið þeg- ar Dódó og börn hennar komu vestur til Bolungarvíkur. Stundum mættum við öll systkinabörnin í Einarshús til afa og ömmu í því skyni að hitta þessa skemmtilegu frænku okkar og fjölskylduna hennar. Alltaf nutum við þess að hún beindi orðum sínum hlýlega til okkar og spjallaði við okk- ur rétt eins og við værum fullorðin. Á þessum tíma töldum við slíkt eðlilegt og sjálfsagt. Með auknum þroska kunnum við betur að meta hversu dýrmætt það er að alast upp í fjöl- skyldu þar sem vinátta og góðvild ríkir. Eftir að Dódó og Haraldur giftu sig varð heimili þeirra samastaður fjölskyldu og vina úr Bolungarvík. Haraldur og Dódó reistu sér fallegt hús á Ægisíðu 48. Ægisíðan og fjöl- skyldan þar eru órjúfanlegur hluti af minningum okkar systkinanna og við erum full þakklætis fyrir að hafa átt þar víst athvarf og gleðistundir. Heimilið var fallegt, húsgögn og hús- munir með sterk persónueinkenni. Einfalt og afar smekklegt. Hér mátt- um við ganga um eins og heima hjá okkur og vissum að óhætt var að taka fleiri með sér ef þannig stóð á. Hér fóru gleði og erill einstaklega vel saman. Dódó var mikil fjölskyldumann- eskja og ræktaði með einstökum hætti tengsl við frændfólk sitt allt. Þegar ég hélt mín fyrstu jól í Reykja- vík fékk ég heimsókn. Dódó var mætt með heimagerðan jólaglaðning. Eng- inn skildi betur að hugurinn leitaði heim á slíkum stundum. Enginn skildi betur að hugur og hjarta þráðu að vera á tveimur stöðum. Fleiri leiftrandi minningar ylja. Einlæg þátttaka í gleðistundum okkar og hvernig hún miðlaði af reynslu sinni þegar þungbærir atburðir og sorg sóttu að. Enginn vafi leikur á að Dódó á ríkan þátt í hversu vel fjöl- skyldan hefur haldið saman og ekki látið vináttu og tryggð víkja fyrir dægurþrasi og léttvægari málum. Að sitja á spjalli með Dódó sem fullorðin manneskja var gefandi og lærdómsríkt. Fjölmörg viðkvæði og setningar hafa sest að í huganum. Öll lýsa þau kærleik og djúpum skilningi á mönnum og málefnum. Gullkorn sem ég mun koma áfram til minna af- komenda. Af hennar fundi fór maður glaður, bjartsýnn og betri maður. Síðustu misserin hrakaði heilsu frænku minnar ört. Einstakt var að fylgjast með umhyggju allrar fjöl- skyldu hennar og ekki síst Haraldar þennan tíma. Þeim færi ég öllum dýpstu sam- úðarkveðjur mínar og fjölskyldunn- ar. Með söknuði, virðingu og kærri þökk kveð ég frænku mína, ógleym- anlega konu öllum sem henni kynnt- ust. Blessuð sé minning hennar Ester Jónatansdóttir.  Fleiri minningargreinar um Hall- dóru Einarsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.