Morgunblaðið - 10.08.2007, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 37
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Bingó kl. 14. Ferð á
Snæfellsnes 15. ágúst, farið fyrir Jökul,
lengsta viðdvöl á Hellissandi, þar sem
snæddur verður hádegisverður og
byggðasafnið skoðað. Fararstjóri Guð-
mundur Guðbrandsson. Skráning á
skrifstofu eða í síma 411 2700.
Árskógar 4 | Kl. 9-16 baðþjónusta.
Bingó hefst í dag kl. 13.30 (2. og 4.
föstudag í mán). Kl. 10-16 púttvöllurinn.
Ferðaklúbbur eldri borgara | 13.-16.
ágúst. Ekið fyrir Vatnsnes og Skaga til
Sauðárkróks um Skagafjörð að Lauga-
felli í Eyjafjörð til Akureyrar og Hrís-
eyar-Dalvík, nokkur sæti laus vegna for-
falla. Upplýsingar í síma 892 3011,
Hannes.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Far-
þegar í ferð um Langasjó/Lakagíga,
munið fundinn á mánudaginn kl. 10 að
Stangarhyl 4.
Félag kennara á eftirlaunum | Dags-
ferðin 23. ágúst frá Akureyri að Aldeyj-
arfossi með kvöldverði í Rauðuskriðu í
Aðaldal. Síðustu forvöð að skrá sig og
greiða fargjald í s. 595 1111.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin. Hádegisverður kl.
11.40. Kaffi á könnunni til kl. 16. Félags-
vist kl. 20.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Kl. 10
vefnaður og ganga. Kl. 11.40 hádegis-
verður.
Furugerði 1, félagsstarf | Í dag kl. 14
verður fjöldasöngur í salnum. Heiðmar
Jónsson leikur undir á píanó. Kaffiveit-
ingar kl. 15. Allir velkomnir.
Hittingur | Hópur fyrir ungmenni á aldr-
inum 16-30 ára. Hópurinn er fyrir þá
sem eiga fáa vini og vilja bæta úr því.
Upplýsingar gefur Ingibjög í síma
694 6281. Heimasíða: www.blog.cent-
ral.is/hittingur16-30. Netfang: hitting-
ur@gmail.com.
Hraunbær 105 | Kl. 9 kaffi, spjall og
dagblöðin. Kl. 9-12 baðþjónusta. Kl. 12
hádegisverður. Kl. 14 bingó. Kl. 14.45
bókabílinn. Minnt er á ferðina á Snæ-
fellsnes, miðvikudaginn 15. ágúst.
Skráning á skrifstofu eða í s. 587 2888.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er opið
öllum. Kíktu í morgunkaffi og kynntu þér
sumardagskrána. Hvernig dagskrá/
tilboð viltu sjá í félagsstarfinu næsta
vetur? Hugmyndabanki Hæðargarðs er
opinn daga milli kl. 9-16 virka daga. Síð-
degisferð í Borgarnes 9. ágúst kl. 13. S.
568 3132.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða-
klúbbur og umræður í umsjón Önnu kl.
10. Opið hús, spilað á spil kl. 13. Kaffiveit-
ingar kl. 14.30.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir. Kl. 9.15-14.30 handavinna.
Kl. 11.45-12.45 hádegisverður. Kl. 13.30-
14.30 sungið v/flygilinn. Kl. 14.30-14.45
kaffiveitingar. Kl. 14.30-16 dansað í að-
alsal undir stjórn Sigvalda. Döðlu-
rjómatertur í kaffitímanum. Allir vel-
komnir.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Morgun-
stund, leikfimi, hárgreiðslu- og fótaað-
gerðarstofur opnar allan daginn. Bingó
kl. 13.30, allir velkomnir.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan er opin
frá kl. 17-22. Kvöldbænir kl. 20. Allir vel-
komnir.
Íþróttahúsið Digranes | Vottar Jehóva
halda landsmót 10.-12. ágúst í Íþrótta-
húsinu Digranesi í Kópavogi. Mótið hefst
í dag, föstudag, kl. 9.20 og lýkur á
sunnudag kl. 15.20. Aðalræðan nefnist:
Hverjir eru sannir fylgjendur Krists? og
verður flutt á sunnudag kl. 11.10. Ræðan
verður túlkuð á ensku og táknmáli
heyrnarlausra.
Gullbrúðkaup | 50 ára brúð-
kaupsafmæli eiga í dag, 10
ágúst, hjónin á Grund II,
Eyjafjarðarsveit, Gunnar
Egilson og Auður Birna Egil-
son. Þau verða að heiman.
70ára afmæli. 13. ágústnæstkomandi, verður
Jarmíla Hermannsdóttir sjö-
tug. Af því tilefni tekur hún á
móti fjölskyldu og vinum á
heimili sínu í Fjóluhvammi 4 í
Hafnarfirði, sunnudaginn 12.
ágúst nk. á milli 10 og 16.
50ára afmæli. Hinn 6.ágúst síðastliðinn varð
Kristján Helgi Tómasson
fimmtugur. Mikið rosalega er
það gaman. Veislan er í kvöld.
Mikið stuð.
dagbók
Í dag er föstudagur 10. ágúst, 222. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Ef einhver þykist hafa öðlast þekkingu á einhverju, þá þekkir hann enn ekki eins og þekkja ber. (I.Kor. 8, 2.)
Það verður hátíðarstemning íGrímsness- og Grafnings-hreppi á morgun, 11. ágúst,en þá fer fram hreppshátíðin
Grímsævintýri.
Guðrún Þórðardóttir er formaður
Kvenfélags Grímsneshrepps sem á veg
og vanda að hátíðinni: „Hátíðin er hald-
in samkvæmt hefð, helgina eftir versl-
unarmannahelgi ár hvert,“ segir Guð-
rún. „Hátíðin er einn af meginviðburð-
unum í hreppnum, enda á hún sér
rúmlega 80 ára sögu.“
Hátíðin hófst á sínum tíma sem tom-
bólusöfnun kvenfélagsins til góðgerð-
arstarfs: „Fyrir um tveimur áratugum
hófu kvenfélagskonurnar síðan að selja
bakkelsi, brodd, sultur og hannyrðir,
sem á endanum þróaðist í útimarkað,“
útskýrir Guðrún. „Nú fléttast inn í dag-
skrána kraftakeppnin Uppsveitavík-
ingurinn, þar sem sterkustu krafta-
jötnar landsins takast á. Við höldum
líka sundlaugar-rokktónleika í nývígðri
laug Grímsness- og Grafningshrepps
þar sem hljómsveitin Ingó og Gummi
bróðir heldur uppi fjörinu. Sunnlenskir
glímumenn sýna glímu, og hoppu-
kastali og allskyns skemmtun verður í
boði fyrir börnin.“
Hátíðin er meginfjáröflunarleið
Kvenfélags Grímsneshrepps, sem
stendur fyrir margskonar góðgerð-
arstarfi innan sveitar og utan: „Við höf-
um meðal annars styrkt grunnskólann
og leikskólann með gjöfum, Sjúkrahús
Suðurlands, Barnaspítala Hringsins og
Beinvernd,“ segir Guðrún. „Við höfum
börn og aldraða í okkar heimabyggð
sérstaklega í huga, og ár hvert býður
félagið öllum Grímsnesingum 60 ára og
eldri í dagsferð, þar sem við gerum
okkur glaðan dag.“ Grímsævintýri er
haldið á Borg í Grímsnesi, við félags-
heimilið. Hefst hátíðin kl. 13 og stendur
fram eftir degi. Tombólan hefst kl.
13.30, og eru veglegir vinningar í boði,
sem kvenfélagskonur hafa safnað og
sunnlensk fyrirtæki hafa gefið til söfn-
unarinnar. Sundlaugartónleikar Ingó
og Gumma bróður hefjast kl. 15.
„Það er vissara að mæta tímanlega á
hátíðarmarkaðinn, enda eru kven-
félagskonur rómaðar fyrir elda-
mennsku sína, og er næsta víst að hinar
margrómuðu pönnukökur og kleinur
kvenfélagsins seljast hratt upp,“ bætir
Guðrún við að lokum.
Mannlíf | Hátíð haldin í Grímsness- og Grafningshreppi á morgun
Glatt á hjalla í Grímsnesi
Guðrún Þórðar-
dóttir fæddist á
Akranesi 1962.
Hún lauk stúdents-
prófi frá Fjöl-
brautaskóla Vest-
urlands 1982,
B.Ed-gráðu frá
KHÍ 1987 og við-
bótarmenntun í
sérkennslu frá sama skóla. Guðrún hef-
ur lengst af starfað sem kennari á Sel-
fossi, en er núna fjármálastjóri verk-
takafyritækis sem hún rekur ásamt
eiginmanni sínum, Ingileifi Jónssyni
verktaka, og eiga þau hjónin tvo syni.
Tónlist
Grand rokk | Dikta, Jan Mayen og
Lada Sport halda rokktónleika á
Grand rokk. Húsið opnað kl. 23.
Aðgangseyrir er 1.000 kr.
Players, Kópavogi | Kántrýsveitin
Klaufar með ósvikna kántrý-
stemmningu á Players alla helgina.
Reykholtskirkja | Kl. 16. Douglas A.
Brotchie, organisti Háteigskirkju,
flytur verk eftir Bach, Buxtehude
og Jón Nordal. Tónleikarnir eru
haldnir til styrktar Orgel- og söng-
málasjóði Bjarna Bjarnasonar og
eru hluti af orgeltónleikaröð Reyk-
holtskirkju.
Myndlist
Hafnarborg | Joan Pearlman sýnir
málverk og myndbandsinnsetningu
á þremur rásum og ber sýningin
yfirskriftina Element/Frumkraftur.
Joan Perlman er með masters-
gráðu í myndlist frá San Francisco
Art Institute og hefur hún haldið
einkasýningar og tekið þátt í sam-
sýningum víða um Bandaríkin.
Saltfisksetur Íslands | Sigrún Lára
Shanko sýnir meðal annars Ragn-
ars sögu loðbrókar og er hún sögð
á fimm veggteppum. Sýndur verður
selskinnsjakki sérhannaður af Egg-
erti feldskera fyrir þessa sýningu,
einnig kjóll hannaður af Hildi Bolla-
dóttur. Sýningin stendur til 20.
ágúst.
Uppákomur
Borg | Uppsveitavíkingurinn 2007,
sterkustu menn landsins keppa kl.
13. Tombóla kvenfélagsins, útimark-
aður, handverk, grænmeti, spákona
o.fl. Ingó og Gummi bróðir syngja í
sundlauginni kl. 15. Glíma, hoppu-
kastali o.fl.
KONA nokkur í hlutverki hofgyðju hefur hér kyndil á loft í gríðarmikilli mannréttinda-
athöfn sem fram fór í Aþenu í gær. Hundruð aktívista og áhorfenda söfnuðust saman í
miðborg Aþenu í því skyni að hefja „ljósflakk“ heimshorna á milli og hvetja fólk til þess
að sniðganga Ólympíuleikana í Peking á næstu ári. Háværar raddir kvarta yfir því sem
kallað hefur verið „hryggilegt met í mannréttindabrotum“ og hafa ýmislegt út á skipu-
lagningu Ólympíuleikanna að setja.
Aðgerðasinnar í Grikklandi láta í sér heyra
Stræti Aþenuborgar böðuð birtu kyndla
Reuters
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ
birtir til kynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að kostn-
aðarlausu. Tilkynningar
þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja
daga fyrirvara fyrir
sunnudags- og mánu-
dagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælis-
tilkynningum og/ eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer.
Hægt er að hringja í
síma 569-1100, senda til-
kynningu og mynd á net-
fangið ritstjorn@mbl.is,
eða senda tilkynningu og
mynd í gegnum vefsíðu
Morgunblaðsins,
www.mbl.is, og velja lið-
inn Senda inn efni".
Einnig er hægt að senda
vélritaða tilkynningu og
mynd í pósti. Bréfið skal
stíla á.
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
Orð féllu niður
ÞAU leiðu mistök urðu við vinnslu
greinarinnar „900 fæðutegundir
komnar á skrá“ um gagnagrunninn
Ísgem hjá fyrirtækinu Matís að í
myndatexta féllu niður orðin „orku-
dreifing í %“. Hið rétta er að mynda-
textinn segir frá hlutfallslegri dreif-
ingu orkunnar (orkudreifingu í %) í
umræddri matvöru og á ekki við
magn þessara efna í vörunni.
LEIÐRÉTT
FYRIRTÆKIÐ IOD ehf. hefur sent
frá sér eftirfarandi athugasemd í til-
efni af frétt í Viðskiptablaði Morg-
unblaðsins í gær um Acer-fartölvur,
og að Svartækni sé sölu- og þjón-
ustuaðili Acer á Íslandi.
„Í tilefni af villandi tilkynningum
og auglýsingum frá samkeppnisaðila
vill IOD ehf. taka eftirfarandi fram:
IOD er eini viðurkenndi sölu- og
dreifingaraðili Acer á Íslandi og
jafnframt eru þjónustuverkstæði
IOD viðurkennd þjónustuverkstæði
Acer á Íslandi.
Helstu söluaðilar IOD á Acer á
höfuðborgarsvæðinu eru Tölvulist-
inn, Nóatúni og Hlíðarsmára, Att,
Bæjarlind, Hagkaup, Smáralind,
Hagkaup, Kringlunni og MAX raf-
tæki, Kauptúni, Garðabæ. Auk
þessa er fjöldi dreifingaraðila um
land allt.
IOD ehf. hefur nú þegar leitað
réttar síns til að stöðva að rangar og
villandi auglýsingar haldi áfram að
birtast á síðum dagblaða.“
Athugasemd
vegna Acer
MENNINGAR- og sögutengd
gönguferð verður sunnudaginn 12.
ágúst kl. 11, en gangan hefst við
Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysu-
strönd. Gönguferðin er í tengslum
við gönguverkefnið AF STAÐ á
Reykjanesi.
Genginn verður hringur frá
Kálfatjörn um Þórustaðastíg sem
er gömul þjóðleið, að Þórustaða-
borginni og Staðarborg sem eru
gamlar fjárborgir og til baka að
Kálfatjörn. Svæðið býr yfir minjum,
sögum og fróðleik sem leiðsögu-
maður Reykjaness mun miðla á
leiðinni. Reynt verður að gera
gönguna bæði skemmtilega og
fræðandi fyrir alla fjölskylduna.
Áætlað er að gangan taki 2-3 klst.
með stoppum. Gangan er auðveld
en gott er að vera vel skóaður. Í lok
göngunnar verður Minjanefnd
Vatnsleysustrandar með opið hús í
Skjaldbreið, gömlu hlöðunni og
Norðurkoti, gamla skólahúsinu sem
er verið að gera upp á Kálfatjörn.
Minjanefndin verður jafnframt með
kaffisölu á staðnum.
Gangan er annar hluti af fimm
menningar- og sögutengdum
gönguferðum um hluta af gömlu
þjóðleiðunum á Reykjanesskag-
anum sem farnar verða á tíma-
bilinu frá 6. ágúst til 2. september.
Boðið er upp á þátttökuseðil þar
sem göngufólk safnar stimplum
fyrir hverja ferð. Þegar búið verð-
ur að fara 3-5 gönguleiðir verður
dregið úr seðlum og einhver hepp-
inn fær góð gönguverðlaun. Dregið
verður eftir síðustu gönguna. Þátt-
takendur eru beðnir að muna eftir
að taka þátttökuseðla með í ferðir.
Menningar- og
sögutengd
gönguferð um
Reykjanes
Fáðu
sms-fréttir
í símann
þinn af
mbl.is