Morgunblaðið - 10.08.2007, Side 40
Að Kristur láti loksins
verða af því að koma
aftur, birtist í göngunni og
taki þátt í gleðinni. … 44
»
reykjavíkreykjavík
GLÆNÝ sjónvarpsstöð helguð
enskri knattspyrnu hóf formlega
göngu sína um síðustu helgi þegar
sýnd var í beinni útsendingu viður-
eign Man. Utd. og Chelsea um Góð-
gerðarskjöldinn. Sýn 2 nefnist stöð-
in og á dagskrá verðar beinar
útsendingar frá úrvalsdeild og 1.
deild, Coca-Cola Championship, auk
innlendra og erlendra þátta um
enska boltann. Samkvæmt frétta-
tilkynningu frá 365 nær Sýn 2 til yfir
98% heimila í landinu.
Á meðal þeirra dagskrárliða sem
Sýn 2 mun bjóða upp í vetur eru:
Premier League News (ensku frétt-
irnar) – hálftímalangur fréttaþáttur,
sýndur alla virka daga klukkan 20.
Premier League – Preview (leikir
helgarinnar) – vikulegur þáttur þar
sem hitað verður upp fyrir leiki
helgarinnar, Premier League – Re-
view (ensku mörkin), PL Classic
Matches (bestu leikir Úrvalsdeildar-
innar), Premier League World
(heimur úrvalsdeildarinnar) o.fl.
Þeir Guðni Bergsson og Heimir
Karlsson gera svo upp leiki dagsins
og þátturinn 4-4-2 með Guðna Bergs
verður á dagskrá kl. 18.10 á laugar-
dögum. Þar sýna þeir Heimir öll
mörk dagsins, auk þess sem þeir
beina sjónum sínum að öðrum mark-
verðustu atvikum í leikjunum með
aðstoð skarpra vel þekktra spark-
spekinga.
Eins og allir alvöru knattspyrnu-
áhugamenn vita hefst enska úrvals-
deildin á morgun rétt fyrir hádegi.
Sýn 2 sýnir beint frá öllum leikjum
dagsins sem eru sjö talsins. Á
sunnudag verða svo sýndir þrír leik-
ir þar sem þrjú af stóru liðunum
koma við sögu, Arsenal, meistarar
Manchester United og bikarmeist-
arar Chelsea.
Nánari upplýsingar má finna á
www.syn.visir.is
Enski boltinn á Sýn 2
Reuters
Sundur, saman Þeir Cech og Ronaldo áttust við um síðustu helgi þegar
Chelsea og Man Utd kepptu um góðgerðarskjöldinn. Þá sigraði Man Utd.
Sagt var frá
því í Morgun-
blaðinu í gær að
brösuglega gengi
að hefja tökur á
kvikmynd Dags
Kára, The Good
Heart. Framleiðslufyrirtækið Zik
Zak og leikstjórinn eru sagðir vera
byrjaðir að leita að nýjum leikurum
í stað þeirra Ryan Gosling og Tom
Waits og líklega duga engin smá-
stirni til. Mun annar tveggja stjórn-
enda Zik Zak, Skúli Malmquist,
vera á leið til New York með fjöl-
skyldu þar sem eiginkona hans, Að-
alheiður Þorsteinsdóttir, hefur ráð-
ið sig til UNIFEM og mun nálægðin
við stjörnurnar í Stóra eplinu ef-
laust hjálpa til við þá leit.
Stjórnendur Zik Zak í
millilandasambandi
Sigurvegari fyrstu X-Factors
keppninnar á Íslandi, Jógvan
Hanson, fær ekki gæfulega ein-
kunn í færeyska dagblaðinu Dim-
malætting fyrir tónleika sem
Jógvan hélt á Sumarfestivalurin í
Færeyjum og fram fór á dög-
unum í ofsaveðri. Gagnrýnandi
hrósar að vísu hljómsveitinni sem
tróð upp með Jógvani en segir að
X-Factor stjarnan hefði boðið
áhorfendum upp á karakterlaust
lúxus-karókí.
Karakterlaust karókí
Von er á nýrri plötu frá hljóm-
sveitinni múm hinn 24. þessa mán-
aðar. Reikna má með sérstökum út-
gáfutónleikum fimm dögum síðar
en ekkert hefur enn verið gefið upp
um tónleikastað.
Liðsmenn múm hafa hins vegar
yfir öðru óskyldu að fagna um þess-
ar mundir því aðalsprauta sveit-
arinnar, Örvar Þóreyjarson Smára-
son, hyggst ganga að eiga Birgittu
Birgisdóttur leikkonu og mun at-
höfnin fara fram í Súðavíkurkirkju
á morgun.
Gleðitímar framundan
hjá liðsmönnum múm
Eftir Sverri Norland
sverrirn@mbl.is
Íslenska stórmyndin Astrópía verður frumsýnd
hinn 22. ágúst næstkomandi. Óhætt er að fullyrða
að íslensk bíó-,,buff“ sem og aðrir kvikmyndaunn-
endur bíði hennar með talsverðri óþreyju – mynd-
in er líka fyrir margra hluta sakir forvitnileg,
meðal annars hlaðin tæknibrellum, gríni, glensi
og hasar. Gunnar B. Guðmundsson leikstýrir
Astrópíu, en hann kveður hana hafa verið um það
bil sex ár í bígerð. Margir muna eflaust eftir glet-
tilegu, súrrealísku örverki sem hann gerði um ár-
ið, Karamellumyndinni rómuðu, en hún hlaut
Edduna árið 2003, og var auk þess tilnefnd fyrir
besta handrit, leikstjórn, brellur og leikmynd, svo
dæmi séu nefnd. En hver er maðurinn á bakvið
leikstjórann, lesendum til frekari glöggvunar?
Gunnar hlær dillandi hlátri; hann er bersýni-
lega galvaskur maður og hláturmildur. „Und-
anfarin ár hef ég unnið í leikhúsi, gert auglýs-
ingar, músíkvídeó, heimildardótarí og þannig
lagað. Ég er í raun ekkert lærður, fór í Kvik-
myndaskólann 1992, fyrsta árið sem hann var
starfræktur; það var bara ein önn eða svo; síðan
var ég í Listaháskólanum í fræðum og fram-
kvæmd í leiklistardeild, en þurfti að fresta því
námi vegna gerðar Astrópíu.“
Gunnar rekur svo enn upp hlátur; segir að nú sé
fresturinn raunar orðinn svo langur að hann
þyrfti sennilega að þreyja inntökuprófið að nýju,
hygðist hann halda áfram.
Nördar drýgja „hetjudáðir“
„Handritshöfundar Astrópíu, Ottó Geir Borg og
Jóhann Ævar Grímsson, komu til mín fyrir svona
fjórum, fimm árum. Mín aðkoma að þessu var í
raun þannig að ég var nýbúinn með Karamellu-
myndina, og hafði eytt miklum tíma í hana, og var
því ekki með mikið í höndunum á þeim tíma þegar
ég kynntist þessu handriti – sem var mjög í stíl við
það sem ég ætlaði og vildi fara að gera.“
Gunnar kveðst mjög ánægður með myndina, og
þykir greinilega gaman að spjalla um hana.
„Þetta er tveggja heima mynd; hún gerist bæði í
köldum raunveruleika og spennandi ævintýrum –
það er í rauninni brandarinn í þessu: nördar sem
breytast í ofurhetjur, en eru samt áfram nördar
þó svo að þeir séu komnir í ofurhetjubúninginn.“
Svo menn hafi eitthvað fyrir stafni…
En hvernig mynd er þetta; gamanmynd,
spennumynd, hreinræktuð ævintýramynd? „Þetta
er grínmynd – ævintýrin eru grín. Hún lítur alveg
eins út og Lord of the Rings og allar þessar æv-
intýramyndir, eða eins nálægt því og komist verð-
ur, en þetta er samt allt í gríni, þó svo að skilin
verði oft óljós í hasarnum.“
Gunnar kveður leikarana fara á kostum. „Þetta
er eiginlega mynd senuþjófanna; allir eiga sín mó-
ment – litlir hlutir verða stórir, og hlutir sem voru
kannski ekki einusinni í handritinu eru allt í einu
orðnir vel sýnilegir.“
Að lokum segir Gunnar nóg af verkefnum lúra í
pípunum, en klykkir út með lýsingu á Astrópíu:
„Þetta er ekta „bíómynd“, bara góð skemmtun,
hasar, mikið grín; þetta er poppkornsmynd, svona
til að menn geti fundið eitthvað að gera á meðan
þeir borða poppið.“
Ekta poppkornsmynd
Gunnar B. Guðmundsson leikstjóri Astrópíu spjallar um myndina, lífið og listina
Sögur úr ævintýraheimi lúðanna Astrópía fjallar um stelpu sem þarf að standa á eigin fótum þegar kærasti hennar, og fyrirvinna, er handtekinn.