Morgunblaðið - 10.08.2007, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 41
Sýningar haustsins komnar í sölu á netinu!
Miðasala á netinu!
www.leikhusid.is
w w w. k i r k j u l i s t a h a t i d . i s
KIRKJULISTAHÁTÍÐ
2 0 0 7
11.−19. ágúst
FESTIVAL OF SACRED ARTS
„É
g
v
il
lo
fs
y
n
g
ja
D
ro
tt
n
i“
Styrkt af
Reykjavíkurborg
REYKJAVÍKURPRÓFASTSDÆMI EYSTRA OG VESTRA
MINNINGARSJÓÐUR MARGRÉTAR BJÖRGÓLFSD.
KRISTNISJÓÐUR • HOLLENSK A SENDIRÁÐIÐ
ÞÝSK A SENDIRÁÐIÐ
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ DÓMS- OG KIRKJUMÁLARÁÐUNEYTIÐ
T R YG G Ð U Þ É R M I Ð A !
MESSA Í H-MOLL
eftir J. S. BACH
Stórkostlegir einsöngvarar
Einstakur viðburður í
íslensku tónlistarlífi
ÍSRAEL Í
EGYPTALANDI
eftir G. F. HANDEL
Barokk í hæsta gæðaflokki
Frumflutningur á Íslandi
LAUGARDAGUR 11. ÁGÚST
17.00 MESSA Í H-MOLL eftir J.S BACH:
FLYTJENDUR: Monika Frimmer sópran, Robin Blaze kontratenór,
Peter Kooij bassi og Gerd Turk tenór.
Alþjóðlega barokksveitin í Haag og Mótettukór
Hallgrímskirkju. Stjórnandi Hörður Áskelsson
Kr. 4.900/3.600
19.30 JAKOBSSTIGINN
myndlistarsýning Svövu Björnsdóttur
21.00 – 01.00 LISTVAKA UNGA FÓLKSINS:
Gjörningur, tónlist, dans og myndlist.
FRAM KOMA: Helgi Hrafn Jónsson, Nico Muhly, Borgar
Magnason, Elfa Rún Kristinsdóttir, Pétur Ben,
Guðmundur Vignir Karlsson, Djasstríóið Babar,
Dansflokkurinn Good Company ofl.
SUNNUDAGUR 12. ÁGÚST
11.00 HÁTÍÐARMESSA
19.00 MESSA Í H-MOLL eftir J.S. BACH:
FLYTJENDUR: Monika Frimmer sópran, Robin Blaze kontratenór,
Peter Kooij bassi og Gerd Turk tenór.
Alþjóðlega barokksveiting í Haag og Mótettukór
Hallgrímskirkju. Stjórnandi Hörður Áskelsson
Kr. 4.900/3.600
Sjá nánari dagskrá á kirkjulistahatid.is
HÁTÍÐARKORT
Veitir aðgang að öllum viðburðum hátíðarinnar 8.000 kr.
Allir dagskrárliðir fara fram í Hallgrímskirkju nema annað sé tekið fram
Kaffihús Kirkjulistahátíðar er opið í Hallgrímskirkju á meðan á hátíðinni stendur
Miðasala við innganginn og í Hallgrímskirkju frá kl. 11.00 – 19.00,
á midi.is og í 12 tónum Skólavörðustíg 15.
KIRKJULISTAHÁTÍÐ HALLGRÍMSKIRKJU
Skólavörðuholti 101 Reykjavík – Sími: 510 1000 – Fax: 510 1010
Skálholtsdómkirkju 17. ágúst
Hallgrímskirkju 19. ágúst
Einnig flutt í Skálholtsdómkirkju 13. ágúst
U P P S E LT
Einnig flutt í Skálholtsdómkirkju 13. ágúst
MR. SKALLAGRIMSSON
- höf. og leikari Benedikt Erlingsson
Sjá sýningadagatal á www.landnamssetur.is
Miðapantanir í síma: 437-1600
Ein vinsælasta bók ársinsvestan hafs og austan, ogsem á eflaust eftir að njóta
mikillar hylli hér á landi, er „Þús-
und bjartar sólir“ eftir Khaled Hos-
seini, en síðasta bók hans, „Flug-
drekahlauparinn“, varð gríðarlega
vinsæl og það að verðleikum.
Þúsund bjartar sólir segir frátveimur konum ólíkra kyn-
slóða sem stríð og hörmungar
hnýta svo saman að það hefur úr-
slitaáhrif á örlög þeirra og örlög af-
komenda þeirra. Öðrum þræði
snýst bókin líka um ást, og þá ekki
bara ást milli ólíkra kynja, heldur
líka agape, skilyrðislausa ást sem
krefst einskis, ást til annarra án
þess að ætlast til nokkurs á móti.
Þeir sem lesa bókina vita vit-anlega um hvað hún er og geta
væntanlega lýst henni fyrir öðrum,
en hvernig á að flokka slíka bók? Er
hún ástarsaga? Söguleg skáldsaga?
Stríðsbókmenntir? Kvennabók-
menntir? Æðri bókmenntir? Það
skiptir nefnilega verulegu máli
hvar bók er skipaður sess í bóka-
búð. Getur skipt höfuðmáli.
Þegar kíkt er á grunnkóða síð-unnar sem Þúsund bjartar sól-
ir á hjá bandarísku bókakeðjunni
Barnes & Noble.com sést að hún er
flokkuð sem „skáldskapur og bók-
menntir“, „kvennaskáldsögur“ og
„bandarísk skáldsaga“. Hjá Ama-
zon er hún flokkuð sem „bandarísk
nútímaskáldsaga“ og „almenn
skáldsaga“, Waterstones setur bara
„skáldsaga“ í meta-tag síðunnar og
Foyles sleppir því alveg að hafa
flokkunartag fyrir einhverjar sak-
ir.
Í bókabúðum í kjötheimum er líkaallur gangur á því hvernig bók-
um er skipað í hillur. Alla jafna eru
menn með nokkuð skýra skiptingu;
glæpasögur eru á sínum stað, ást-
arsögur líka, vísindaskáldsögur,
barnabækur og fræðibækur. Þessi
skilgreining er ekki einhlít, því fjöl-
margar bækur er ekki gott eða
jafnvel ógerningur að flokka, en
fastagestir læra fljótlega að rata
um viðkomandi verslun, og hver
hefur sín sérkenni. Þannig er Foy-
les á Charing Cross Road í Lund-
únum allt öðruvísi búð en Black-
wells sem er hinum megin við
götuna, eða Borders sem er aðeins
ofar, nú eða prýðileg verslun Wa-
terstones sem er handan við hornið,
á Oxford-stræti. Sama má segja um
þær bókabúðir sem helstar eru hér
á landi; Mál og menning á Lauga-
vegi og Eymundsson í Austurstræti
eru býsna ólíkar búðir þó þær séu í
eigu sama aðila, og svo er bókabúð-
in í Iðu allt öðruvísi en þær tvær og
Bóksala stúdenta enn ein gerðin af
bókabúð.
Bækur eru dregnar í dilka til aðauka kaupendum leti, en ekki
síður til að létta bókaverslunum líf-
ið, auðvelda mönnum yfirsýn og
lagerhald og gera starfsfólki kleift
að finna það sem þarf að finna. Slík
flokkun getur líka ráðið úrslitum
hvort tilteknar bækur komast á
áberandi stað og jafnvel hvort þær
komast að í stórmarkaði, en ytra
eru menn tilbúnir til að gera ýmsar
tilslakanir til að svo megi verða;
breyta flokki og kápu og titli (og
endurskrifa jafnvel ef út í það er
farið).
Höfundurinn tekur því vænt-anlega með jafnaðargeði
hvernig bók hans er flokkuð, getur
varla skipt miklu hvort bók er sögð
ástarsaga eða söguleg ástarsaga,
og varla getur nokkur haft eitthvað
á móti því ef bók er færð á milli
flokka ef það eykur sölu, eða hvað?
Flokkunin sjálf getur þó verið til
óþurftar og orðið til þess að maður
missir af bók sem annars hefði ver-
ið skemmtileg, jafnvel stór-
skemmtilegt og mannbætandi að
lesa. Hugsanlega fara margir
„Cryptonomicon“ á mis vegna þess
að þeim dettur ekki í hug að kíkja í
vísindaskáldsagnahilluna, eða þeir
missa af bókunum átta í „Barrokk-
röðinni“, „Quicksilver“, „King of
the Vagabonds“, „Odalisque“,
„Bonanza“, „Juncto“, „Solomon’s
Gold“, „Currency“ og „System of
the World“, vegna þess að þeim er
skipaður sess með sögulegum
skáldsögum, eða þeim yfirsést „In
the Beginning … was the Comm-
and Line“ sem lent hefur með tölvu-
bókum (allar bækurnar eru eftir
sama höfund, Neal Stephenson).
Við þessu er sama svar og gagnast
svo vel í mörgu: Treystu engu.
Til gamans má svo geta þess aðtil er opinber skilgreining á
því hvað kalla megi ástarsögu (skv.
samtökum bandarískra ástarsagna-
höfunda): Saga þar sem ástin er í
aðalhlutverki og sögulok jákvæð og
tilfinningalega fullnægjandi. Það er
semsé ekki ástarsaga ef elskend-
urnir ná ekki saman eða annar eða
báðir láta lífið þó slíkar bókmenntir
geti vissulega verið þrungnar róm-
antík (sjá: mbl.is/go/cfz4v).
Bækur reknar í réttir
AF LISTUM
Árni Matthíasson
»Er Þúsund bjartarsólir ástarsaga?
Söguleg skáldsaga?
Stríðsbókmenntir?
Kvennabókmenntir?
Æðri bókmenntir?
Flokkaðu þetta! Einhvern veginn svona lítur draumaherbergi hvers bókaorms út.
Vinsæll Hvernig bækur skrifar
Khaled Hosseini?