Morgunblaðið - 10.08.2007, Page 44
44 FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 2007 MORGUNBLAÐIÐ
/ KRINGLUNNI
Evan hjálpi
okkur
NANCY
DREW
YNGSTI OG KLÁRASTI EINKASPÆJARI HEIMS ER NÚ MÆTT Á HVÍTA TJALDIÐ
BYGGT Á HINUM FRÁBÆRU
NANCY DREW BÓKUM
ÓVÆNTASTA
STELPUMYND ÁRSINS!
eee
H.J. - MBL
VERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á WWW.SAMBIO.IS
/ ÁLFABAKKA
THE TRANSFORMERS kl. 2 - 5 - 8 - 11 B.i.10.ára DIGITAL
THE TRANSFORMERS kl. 2 - 5 - 8 - 11 B.i.10.ára LÚXUS VIP
NANCY DREW kl. 6 - 8:10 -10:20 B.i.7.ára
GEORGIA RULE kl. 5.30 - 8 -10:30 B.i.7.ára
HARRY POTTER 5 kl. 2 - 5 - 8 - 11 B.i.10.ára
EVAN ALMIGHTY kl. 2 LEYFÐ
BLIND DATING kl. 4 B.i.10.ára
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ
SHREK 3 m/ensku tali kl. 8 LEYFÐ
OCEAN´S 13 kl. 10:10 B.i.7.ára
ROBINSON FJÖLSK... m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ
THE TRANSFORMERS kl. 4 - 7 - 10 B.i. 10 ára DIGITAL
NANCY DREW kl. 5:50 - 8 B.i. 7 ára
GEORGIA RULE kl. 10:10 B.i. 7 ára
HARRY POTTER 5 kl. 4 - 7 B.i. 10 ára DIGITAL
SHREK 3 m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
ÞEIRRA STRÍÐ. OKKAR HEIMUR
FRÁ MICHAEL BAY OG STEVEN SPIELBERG
DIG
ITAL
hljó
ð og
my
ndg
æði
í SA
Mbí
óun
um
Álfa
bakk
a og
Krin
glun
ni
NÝJA
STA T
ÆKN
IBYLT
ING K
VIKM
YNDA
HÚSA
Í DAG
.
SAMB
ÍÓIN
ALLTA
F FYR
STIR
OG FR
EMST
IR
V.I.J. – Blaðið
Lýstu eigin útliti Ég er dæmigerður ljóshærður, miðaldra,
íslenskur kall en vona að eitthvert sólskin sé eftir í augna-
ráðinu.
Hvaðan ertu? Frá Ísafirði.
Hvað varstu í fyrra lífi? (Spurt af síðasta aðalsmanni,
Snorra Engilbertssyni)? Ég vona að ég hafi verið köttur á
góðu heimili hjá samkynhneigðum manni eða góðri ömmu
sem sáu ekki sólina fyrir mér.
Hvaða leikari fer mest í taugarnar á þér? Ég man ekki
eftir neinum íslenskum leikara sem fer í taugarnar á mér
en þeir eru nokkrir frá útlöndum og sá sem ég man eftir
núna er yngsti Baldwin-bróðirinn. Það bregst ekki að
mynd sem hann er í ætti aldrei að hafa verið framleidd.
Hvaða bók lastu síðast? Ég er að lesa tvær bækur, His
Holiness eftir Carl Bernstein og Marco Politi og nýju
Harry Potter-bókina, The Deathly Hallows.
Á hvaða plötu hlustar þú mest þessa dagana? Ég hlusta
mest á nýja pride-lagið hans Páls Óskars, „International“,
og svo það sem maðurinn minn kýs að spila hverju sinni,
sem er oftast eitthvað íslenskt frá fjórða og fimmta ára-
tugnum.
Hvað uppgötvaðir þú síðast um sjálfan þig? Að ég er á
fimmtugsaldri en ekki rúmlega tvítugur.
Besta lag allra tíma? Þau er mörg, en ef ég má bara
velja eitt væri það „Working Class Hero“ með John Len-
non.
Hefurðu þóst vera veikur til að sleppa við vinnu eða
skóla? Já, en ekki upp á síðkastið, en í menntaskóla fékk
ég geðveikisvottorð til að sleppa við leikfimi.
Geturðu farið með ljóð? Já, nokkur: Ef allt þetta fólk fær
í gullsölum himnanna gist / sem gerir sér mat úr að
nudda sér utan í Krist / þá hlýtur sú spurning að vakna
hvort mikils sé misst / þótt maður að síðustu hafnaði í
annarri vist. (Jón Helgason, vonandi rétt munað.)
Átrúnaðargoð? John Lennon.
Hefurðu einhverja listræna hæfileika? Það veit ég ekki,
en ég hef gefið út fjögur ljóðasöfn og barið saman eitt-
hvað af dægurlagatextum.
Hvað er það besta sem gæti gerst í Gleðigöngunni á
morgun? Að Kristur láti loksins verða af því að koma aft-
ur, birtist í göngunni og taki þátt í gleðinni.
Uppáhaldssöngleikur? Ég þoli yfirleitt ekki söngleiki, en
Springtime for Hitler í The Producers eftir Mel Brooks
lofaði góðu.
Hver er ólíklegasti Íslendingurinn til að koma út úr
skápnum? Jónsi í Svörtum fötum.
Helstu áhugamál? Að vera einn með góðri bók eða mynd
í tækinu.
Hvaða kvikmynd eða sjónvarpsefni hefur haft mest áhrif
á þig? The Kid eftir Charlie Chaplin.
Hvers viltu spyrja næsta viðmælanda? Ef það er líf eftir
dauðann, myndir þú nenna því?
HEIMIR MÁR PÉTURSSON
AÐALSMAÐUR VIKUNNAR HEFUR STAÐIÐ Í STRÖNGU AÐ UNDANFÖRNU VIÐ
SKIPULAGNINGU HINSEGIN DAGA SEM HÓFUST FORMLEGA Í GÆR EN ÞAR
SKIPAR HANN STÖÐU FRAMKVÆMDASTJÓRA. HANN SINNIR SVO AÐ SJÁLF-
SÖGÐU FRÉTTAMANNSSTARFINU Á STÖÐ 2 … ÞEGAR TÍMI GEFST TIL.
Aðalsmaður Heimir varð fyrir miklum áhrifum frá kvikmyndinni
klassísku, The Kid eftir Charlie Chaplin.
Morgunblaðið/ÞÖK