Morgunblaðið - 16.10.2007, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2007 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
● ÚRVALSVÍSITALAN hækkaði um
0,17% í Kauphöll OMX á Íslandi í
gær og var lokagildi hennar
8.531,98 stig við lokun markaða.
Eik hækkaði um 2,15% og Össur um
1,44%, en Century Aluminum lækk-
aði um 2,38%.
Krónan veiktist um 0,88% í við-
skiptum gærdagsins, samkvæmt
upplýsingum frá Glitni. Í upphafi við-
skipta var gengisvísitalan 113,85
en í lok dags var hún 114,80. Velta á
millibankamarkaði nam 18,5 millj-
örðum króna. Gengi dollarans var
60,30 krónur við lokun markaða og
evrunnar 85,70 krónur.
Lítilsháttar hækkun
í kauphöllinni
● FORSVARSMENN
breska bankans
Northern Rock stað-
festu í gær að þeir
væru í viðræðum við
mögulega kaupendur
bankans en gáfu eng-
ar upplýsingar um
hverjir væru mögulegir kaupendur og
hversu hátt þeir hygðust bjóða í
bankann. Gengi hlutabréfa Northern
Rock lækkaði hratt í gær og við lok
viðskipta nam lækkunin um 21%.
Northern Rock er einn stærsti
fasteignalánabanki Bretlands og er
einn þeirra banka sem hafa lent í erf-
iðleikum vegna vanskila á fast-
eignalánum.
Í síðasta mánuði þurfti bankinn að
leita til Englandsbanka um neyð-
arlán og varaði á sama tíma við
versnandi afkomu bankans.
Viðræður um kaup
á Northern Rock
● FJÁRMÁLAFYRIRTÆKIÐ SEB hefur
gerst aðili að hlutabréfamarkaði
kauphallar OMX á Íslandi. Fyrirtækið
hafði verið í kauphöllum OMX Nordic
Exchange í Kaupmannahöfn, Stokk-
hólmi og Helsinki. Þórður Frið-
jónsson, forstjóri OMX á Íslandi, seg-
ir að aðild SEB beri vott um þann
aukna áhuga sem íslenski mark-
aðurinn njóti í kjölfar sameining-
arinnar við OMX. Sýnileikinn hafi
aukist og erlendir aðilar sjái tækifær-
in sem felist í þátttöku á íslenska
markaðnum. SEB þjónar um 400
þúsund fyrirtækjum og stofnunum,
auk fimm milljóna einstaklinga.
SEB er stærsti hlutabréfamiðl-
arinn út frá markaðshlutdeild í Nord-
ic Exchange.
SEB aðili að kauphöll
OMX á Íslandi
● HAGNAÐUR Citigroup dróst sam-
an um 57% á þriðja ársfjórðungi og
nam hagnaður bankans 2,38 millj-
örðum dala eða 47 sentum á hlut
samanborið við 5,51 milljarð dala
eða 1,10 dölum á hlut, á sama tíma-
bili í fyrra. Nýverið gaf Citigroup út af-
komuviðvörun um að bankinn hafi
þurft að afskrifa rúma þrjá milljarða
dala.
Tekjur Citigroup jukust um 6% á
tímabilinu júlí til september og námu
22,66 milljörðum dala samanborið
við 21,42 milljarða dala á sama
tímabili í fyrra.
Í afkomuviðvörun Citigroup frá 1.
október kom fram að afkoma þriðja
ársfjórðungs yrði 60% lakari en í
fyrra. Þó sé aðeins um tímabundið
frávik að ræða og að á næsta árs-
fjórðungi verði arðsemin orðin eðli-
leg, eins og það er orðað.
Tekjur Citigroup
dragast saman
ÞÓ að tækifæri séu á hverju strái
fyrir íslensk fyrirtæki í Kína er að
mörgu að hyggja áður en viðskipta-
samband eða samningar komast á
við þarlend fyrirtæki. Viðskipta-
samningar við kínversk fyrirtæki
geta verið flóknir og erfiðir og sýna
þarf þolinmæði við gerð þeirra.
Þetta er meðal þess sem kom
fram á ráðstefnu sem haldin var í
Listasafni Kópavogs í gær á vegum
Glitnis og íslensk-kínverska við-
skiptaráðsins, í samstarfi við Sam-
tök íslenskra fyrirtækja í Kína. Er-
indi fluttu Andrew Halper frá
lögmannsstofunni Eversheds, Lars
Elliström frá ráðgjafarfyrirtækinu
SkyEast International, Magnús
Bjarnason, framkvæmdastjóri al-
þjóðasviðs Glitnis, og Örn Svav-
arsson, formaður íslensk-kínverska
viðskiptaráðsins. Á fundinum kom
einnig fram að íslensk fyrirtæki
yrðu að skapa sér góð tengsl við
Kínverja með þátttöku og kunnáttu
heimamanna, til að ná árangri.
Tækifærin í Kína
á hverju strái
Morgunblaðið/RAX
Kína Örn Svavarsson, formaður íslensk-kínverska viðskiptaráðsins, sagði í
opnunarræðu sinni að gríðarleg tækifæri biðu íslenskra fyrirtækja í Kína.
Viðskiptasamningar við Kínverja geta
verið flóknir, erfiðir og tímafrekir
Uppkaup af hálfu Landsbanka
Íslands mögulega í sjónmáli
FRÉTTASKÝRING
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
arnorg@mbl.is
SÉRFRÆÐINGAR á fjármálamarkaði telja lík-
legt að útgáfa Landsbankans á víkjandi skuldabréf-
um fyrir 400 milljónir dala eða um 24 milljarða
króna tengist fyrirhuguðu tilboði í eða kaupum
Landsbankans á öðrum banka eða fjármálafyrir-
tæki. Að minnsta kosti má fullyrða að staða Lands-
bankans með tilliti til hugsanlegra kaupa er sterk-
ari eftir en fyrir þessa útgáfu þar sem hún er gerð
til þess að styrkja A eiginfjárhlutfall bankans sem
var raunar nokkuð sterkt fyrir eða 11,1% í lok júní
en heildareiginfjárhlutfall var þá 12,5%; má ætla að
A-hlutfall hefði þá að óbreyttu hækkað um 1,3% í
12,4%. Þess fyrir utan er bankinn væntanlega held-
ur alls ekki í brýnni fjárþörf enda hafa peningar
streymt inn í gegnum innlánsreikninginn Icesave.
Sem sagt, rökin eru þá þau að eina skynsamlega
skýringin á því hvers vegna Landsbankinn gefur út
bréfin núna sé sú að hann hyggi á kaup eða vilji vera
tilbúinn að stökkva til ef kauptækifæri bjóðist.
Hvað varðar möguleg kaup hafa flestir horft til
írska fjármálafyrirtækisins Irish Nationwide en
Landsbankinn hefur um nokkra hríð verið nefndur
sem hugsanlegur kaupandi að fyrirtækinu. Þannig
var haft eftir ónefndum heimildarmönnum í frétt
Reuters í síðustu viku að Landsbankinn ætlaði að
bjóða um einn milljarð evra eða um 85 milljarða
króna í Irish Nationwide (IN), líklega fyrir lok
október. Reyndar hafa tölur frá einum milljarði
evra og allt upp í 1,5 milljarða evra verið nefndar en
óvissan um söluverðmæti IN tengist umrótinu sem
verið hefur á fjármálamörkuðum. Í fréttinni var
sagt að Landsbankinn hefði farið fram á frekari
upplýsingar um IN en samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins skorti bankann þá í raun engar
upplýsingar um rekstur IN, sem hann mun hafa
kynnt sér í þaula, heldur snerist málið miklu frekar
um verðmæti IN.
Mjög viðunandi kjör
Skuldabréfaútgáfa Landbankans er án loka-
gjalddaga og er innkallanleg af hálfu bankans eftir
10 ár. Skuldabréfin bera 7,43% fasta vexti sem eru
kjör sem jafngilda 2,13% yfir þriggja mánaða milli-
bankavöxtum í Bandaríkjadölum (LIBOR) og telja
Landsbankamenn þau kjör mjög viðunandi í ljósi
aðstæðna á lánsfjármörkuðum. Kaupþing banki gaf
einnig út víkjandi skuldabréf á dögunum á kjörum
sem jafngiltu 2,75% yfir LIBOR en samanburður á
kjörum bankanna er hæpinn þar sem ekki er um
nákvæmlega eins bréf að ræða og innköllunar-
ákvæði ekki hin sömu.
urnesjamenn undir forystu Eiríks
Tómassonar og fleiri fjárfesta á
Suðurnesjum með 8,5% hlut og fjár-
festingarfélagið Bergið undir for-
ystu Steinþórs Jónssonar með 7,7%
hlut. Þá eignast Finnur Svein-
björnsson, bankastjóri, ásamt
nokkrum framkvæmdastjórum
bankans samanlagt 8,5% hlut.
Boðað verður til hluthafafundar
á næstunni þar sem nýtt bankaráð
verður kjörið, en Icebank kynnti á
síðasta ári þá framtíðarsýn að opn-
að yrði fyrir eignarhald bankans og
skrá hlutabréf hans í Kauphöll.
TVEIR stærstu hluthafarnir í Ice-
bank, Byr og SPRON, seldu stóran
hlut í bankanum á föstudag halda
eftir 4% hlut hvort fyrirtækið um
sig. Eftir breytingarnar munu þeir
sparisjóðir, sem hingað til hafa ver-
ið einu eigendur bankans, áfram
eiga meirihluta í Icebank, eða
57,3% hlutafjár.
Meðal kaupenda eru nokkrir
sparisjóðir sem annaðhvort eru að
auka hlut sinn í Icebank, eða að
kaupa hlut í bankanum í fyrsta
sinn. Meðal annarra nýrra hluthafa
má nefna fjárfestingafélagið Suð-
Breytt eignarhald
! "#$%& '()*+,,-
)*+
,
*
$
$ $
$
$
$
$
$
;
. 3(
! < 2&,&
!=
"
3
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
-
5
. 3(
-
-
-
-
-
-
:
!
( . .
-.
/ 0/
(&
>&3?#
@
.5>&3?#
1A (
?#
+>&3?#
> ( 2
?#
;#1 3
#B
!
CD
>&3?#
"
30 !2
?#
+
2
?#
*&
D
? & ?#
(
-@
//#2?#
<
E ?#
F?#
2 . 3 4*
?#
#
D
?#
(
( DG
(&
G
1 @
!
>&3?#
H&E
@
CD
D>&3?#
*
?#
94?
?#
<E!! !
(5 ?#
I (5 ?#
- 5 3 6
J
(E J&
;@>
?#
;
3
?#
8*K 8*K %$
%$
L
L
8*K :@K
%$
&$
L
L
:&M6&
9
N
%$
%$
L
L
: K
%$
%$
L
L
8*K;
8*K5
&$
%$
L
L