Morgunblaðið - 16.10.2007, Síða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
STERK sveit TR með Hannes
Hlífar Stefánsson á 1. borði hefur
örugga forysta eftir fyrri hluta
Skákkeppni taflfélaga sem fram
fór í íþróttasal Rimaskóla um síð-
ustu helgi. Sveitin hefur 3½ vinn-
ing fram yfir Helli og Hauka og er
almennt búist við því að TR-ingar
endurheimti Íslandsmeistaratitil-
inn. Uppgjör stóru taflfélaganna
Hellis og TR bíður seinni hluta
keppninnar. Tveir erlendir stór-
meistarar tefldu með TR um
helgina, Frakkinn Igor Nataf og
Portúgalinn Louis Galego en þeir
voru báðir með sveit TV á síðasta
keppnistímabili.
Seinni hluti keppninnar fer fram
fyrstu helgina í mars á næsta ári.
Eyjamenn sem urðu í 2. sæti í vor
stilla ekki lengur upp jafn öflugri
sveit. Baklandið er hinsvegar gott
hjá Eyjamönnum og margir ungir
skákmenn sem munu láta að sér
kveða á næstu árum ef að líkum
lætur.
Skákkeppni taflfélaga er stærsti
reglulegi viðburður í skáklífi Ís-
lendinga og fór keppnin vel fram
enda aðstæður í Rimaskóla eins og
best verður á kosið. Áður en mótið
hófst heiðraði forseti SÍ, Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir, nýbakaðan Ís-
landsmeistara kvenna Guðlaugu
Þorsteinsdóttur og einnig nýjasta
stórmeistara Íslands, Héðin Stein-
grímsson.
Fyrri stjórnarmaður hjá SÍ,
Guðbjartur Guðmundsson sem féll
frá á dögunum, var helsti hvata-
maður að taflfélögin í landinu
héldu mót af þessu tagi og er óhætt
að segja að vel hafi ræst úr hug-
mynd Guðbjarts. Á bilinu 300-400
manns tefla á mótinu ár hvert. SÍ
tók að þessu sinni upp nýtt tíma-
fyrirkomulag 90 30, sem þýðir að
hver keppandi hefur 90 mínútur á
alla skákina og svo bætast 30 sek-
úndur við eftir hvern leik.
Þetta gamla FIDE-tímafyrir-
komulag hefur nú verið aflagt af
Alþjóðaskáksambandinu enda
þóttu skákirnar oft vera meira í
ætt við at-skákir heldur en kapp-
skákir. Áður höfðu menn 2 klst. á
40 leiki og síðan ½ klst. til að ljúka
skák.
Það vakti athygli að Friðrik
Ólafsson tefldi eina skák fyrir Tafl-
félag Reykjavíkur. Friðrik gerði
stutt jafntefli við Davíð Kjartans-
son.
Hann tefldi síðast í fyrstu
keppninni sem fram fór á Akureyri
haustið 1974. Þá áttust við TR og
Skákfélag Akureyrar. Í þeirri við-
ureign tók einnig þátt Gylfi Þór-
hallsson sem varla hefur misst út
viðureign fyrir Akureyringa allan
þennan tíma.
Þrátt fyrir góða stöðu TR í hálf-
eik voru það Haukar sem byrjuðu
best og höfðu forystu eftir tvær
fyrstu umferðirnar með 12½ vinn-
ing. En í 3. umferð vann TR TV
7½:½ og Hellir vann Hauka 5:3.
Við það komst TR í efsta sætið.
Hvað varðar keppnina i öðrum
deildum þá er athyglisvert hversu
sterkir Bolvíkingar eru í annarri
og fjórðu
Staðan í 1. deild:
1. TR 25 v.
2.-3. Hellir og
Haukar 21½ v.
4. Fjölnir 20 v.
5. Hellir B-sveit 12½
6. SA- B sveit 11½ v.
7. SA-A sveit 10 v.
8. TV 6 v.
Staðan í 2. deild:
1. Bolungarvík 20 v.
2.-4. Haukar B-sveit,
Reykjanesbær,
TR B-sveit 13 v.
5. Selfoss 12½ v.
6. TG 11 v.
7. Akranes 10½ v.
8. Kátu biskuparnir 3 v.
Staðan í 3. deild:
1. KR 17½ v.
2.-3. Hellir – C-sveit og
TR – C-sveit 16 v.
4.-5. TG – B-sveit og
Dalvík 12 v.
6. TR – D-sveit.
7. TV-B-sveit 7 v.
8. Reykjanesbær 6½ v.
Staða efstu liða í 4. deild:
1. Bolungarvík B-sveit 17½ v.
2. Fjölnir – B-sveit 16½ v.
3. Víkingasveitin 16 v.
4. SA – C-sveit 15½ v.
5.-8. Austurland,
KR – B-sveit
Snæfellsbær og
Austurland 15 v.
5.-7. Haukar – C-sveit,
SA – C-sveit og
Snæfellsbær 15 v.
9. Hellir – F-sveit 14½ v.
10. Selfoss – B-sveit 14 v.
TR með góða forystu í hálfleik
SKÁK
Íslandsmót taflfélaga fyrri hluti
12.-14. október
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Golli
Langt hlé Friðrik Ólafsson tefldi fyrst í deildarkeppninni 1974. Hann sett-
ist aftur að tafli í Rimaskóla um helgina er hann mætti Davíð Kjartanssyni.
✝
Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og langamma,
HELGA SIGRÍÐUR PÁLSDÓTTIR
frá Nýjabæ í Kelduhverfi,
Dalbraut 27,
verður jarðsungin frá Fossvogskapellu,
miðvikudaginn 17. október kl. 13.00.
Gunnlaug Ólafsdóttir, Sigurður Sveinsson,
Selma Helga Einarsdóttir, Eggert Kristjánsson,
Elín Arndís Sigurðardóttir
Einar Sævar Eggertsson,
Jóhann Sævar Eggertsson,
Sindri Sævar Eggertsson.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
JÓNA FANNEY GUNNARSDÓTTIR
kjólameistari,
Bólstaðarhlíð 41,
lést á Droplaugarstöðum, þriðjudaginn 9. október.
Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju, fimmtu-
daginn 18. október kl. 13.00.
Jón Helgason, Salóme H. Magnúsdóttir,
Gunnar Helgason, Inga Arndís Ólafsdóttir,
Sigríður Halldórsdóttir, Þorbjörn Gíslason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför eiginmanns míns, föður,
tengdaföður og afa,
KRISTJÁNS EBENEZERSSONAR,
Borgarholtsbraut 29,
Kópavogi.
Guð blessi ykkur öll.
Halldóra Gísladóttir,
Aðalheiður Kristjánsdóttir, Haukur Bergmann,
Halldóra Rún, Þóra Lilja og Hekla Lind.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
JÓNASAR GUÐMUNDSSONAR,
Langholti 20,
Akureyri.
Jenný Ólöf Valsteinsdóttir,
Sigurður Valur Jónasson,
Birna Friðrika Jónasdóttir, Ómar Valgarðsson,
Valgarður Óli Jónasson, Kathleen Jenssen,
afabörn og langafabörn.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför
SIGRÚNAR HJARTARDÓTTUR
frá Sunndal.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á
Heilbrigðisstofnun Hólmavíkur fyrir góða umönnun og hlýju.
Börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SVEINBJÖRN EIRÍKSSON,
Kirkjuvegi 10,
Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
laugardaginn 13. október síðastliðinn.
Útförin auglýst síðar.
Berglind Ósk Sigurðardóttir,
Björn Axelsson,
tengdabörn og barnabörn.
Leiðir okkar Þor-
móðs Pálssonar lágu
fyrst saman fyrir
rúmlega hálfri öld. Þá var mikil
gerjun í íslensku þjóðfélagi.
Bandarískur her tók sér bólfestu á
Keflavíkurflugvelli 1951 þvert ofan
í yfirlýsingar íslenskra stjórn-
valda. Pólitíkin var svarthvít, ann-
aðhvort voru menn á bandi Banda-
ríkjanna eða fylgjandi Sovétríkj-
unum.
Þeir voru þó margir sem ekki
sættu sig við þennan dilkadrátt og
vildu taka afstöðu út frá íslenskum
aðstæðum og þörfum. Þetta voru
einstaklingar sem voru eindregið á
móti hersetu Bandaríkjanna á Ís-
landi og stofnuðu Þjóðvarnarflokk
Íslands 1953 og fékk flokkurinn
tvo menn kjörna á Alþingi þá um
vorið.
Við Þormóður skipuðum okkur í
þá fylkingu, ég nánast unglingur
Þormóður Ísfeld
Pálsson
✝ Þormóður Ís-feld Pálsson
fæddist 12. apríl
1914 á Njálsstöðum
í Vindhælishreppi,
Austur- Húnavatns-
sýslu.
Þormóður lést
hinn 18. ágúst sl. og
var útför hans gerð
í kyrrþey, að hans
ósk, 29. ágúst sl.
en hann reynslumikill
af ábyrgðarstörfum
og félagsmálum.
Þjóðvarnarflokkurinn
varð ekki langlífur en
hafði mikil áhrif á ís-
lensk þjóðmál.
Á þessum árum
var Þormóður virkur
í sveitarstjórnarmál-
um Kópavogs og
hann tók sæti í fyrstu
bæjarstjórn Kópa-
vogs 1955 þegar
Kópavogur var gerð-
ur að kaupstað. Sú
gjörð var samþykkt á Alþingi
gagngert til að bola frá völdum
hinni sterku fylkingu sem hafði
meirihluta í hreppsnefnd þáver-
andi Kópavogshrepps undir for-
ystu Finnboga Rúts Valdimarsson-
ar. Sú aðför mistókst gjörsamlega.
Ákveðnir forystumenn í Þjóðvarn-
arflokknum töldu sig eiga Finn-
boga Rút grátt að gjalda vegna
samstarfs hans við Sósíalistaflokk-
inn, en hann var þá þingmaður
þess flokks. Mér er minnisstæður
fundur á skrifstofu Þjóðavarnar-
flokksins þar sem við Þormóður
mættum úr Kópavogi. Fast var
lagt að okkur að efna til sérfram-
boðs Þjóðavarnarflokksins við
fyrstu bæjarstjórnarkosningarnar
1955 en við tókum það ekki í mál
og þar með rann það út í sandinn.
Við Þormóður vorum á fram-
boðslista Félags óháðra kjósenda
1962 við sveitarstjórnarkosning-
arnar í Kópavogi. Þormóður náði
kjöri og varð forseti bæjarstjórnar
meirihlutann af kjörtímabilinu
1962-1966. Að því kjörtímabili
loknu ákvað hann að draga sig í
hlé en lagði að mér að fara í fram-
boð sem og varð, það má því segja
að ég hafi orðið arftaki hans í
bæjarstjórn Kópavogs.
Á síðari árum hittumst við Þor-
móður ekki oft en ef svo var þá
urðu ætíð fagnaðarfundir. Þormóð-
ur var góður samstarfsmaður, góð-
ur ræðumaður og pennafær enda
skrifaði hann margar greinar um
stjórnmál og vandamál líðandi
stundar. En í aðra röndina var
hann dulur og það er ekki ýkja
langt síðan ég komst að því að
hann var skáld gott en þeirri gáfu
sinni flíkaði hann aldrei. Þó mun
liggja eftir hann talsverður skáld-
skapur í bundnu máli.
Síðast hitti ég Þormóð fyrir
skömmu, við útför sonar hans
Gunnars sem féll frá langt um ald-
ur fram. Þá sagði Þormóður að
þetta væri lítið réttlæti að hann
fjörgamall þyrfti að sjá á eftir syni
sínum, hann ætti frekar að vera í
hlutverki hins látna.
En Þormóður fékk að lifa það að
sjá erlendan her hverfa af landinu,
þó fyrst þegar heimsveldinu þókn-
aðist
Ég þakka Þormóði ánægjulega
samfylgd og samstarf fyrr á árum
og sendi afkomendum hans sam-
úðarkveðjur.
Sigurður Grétar
Guðmundsson.