Morgunblaðið - 16.10.2007, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 16.10.2007, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2007 33 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofan opin kl. 9-16.30, jóga kl. 9, postulínsmálun kl. 13, leshópur kl. 13.30, jóga kl. 19. Árskógar 4 | Bað kl. 9.30, handav. kl. 8-16, smíði/útskurður kl. 9-16.30, leikfimi kl. 9, botsía kl. 9.45. Bókasafn Kópavogs | Næsti fundur í Kórnum á morgun kl. 19.30. Haldið áfram þar sem frá var horfið með Vilhjálm frá Skáholti, Jón Björnsson og Auði Jóns. Gestir velkomnir. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handavinna, hár- greiðsla, böðun, fótaaðgerð, morgunkaffi/ dagblöð, vefnaður, kaffi. Línudans fellur niður í dag. Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í handmennt opin. Framsögn. Félagsvist kl. 10. Félag eldri borgara í Reykjavík | Skák kl. 13, félagsvist kl. 20. Menningarhátíð FEB í Borg- arleikhúsinu í dag kl. 14. Námskeið í framsögn hefst 23. október, leiðbeinandi Bjarni Ingvars- son, skráning á skrifstofu FEB, s. 588-2111. Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og 9.55, gler- og postulínsmálun 9.30, handa- vinna kl. 10, jóga kl. 10.50, tréskurður og ró- leg leikfimi kl. 13, alkort 13.30, stólajóga kl. 17, jóga á dýnum kl. 17.50. Fræðsluerindi Glóðar um heyrnarskerðingu og heyrnartæki kl. 20, fyrirlestur er í umsjón Önnu Lindu Guðmundsd. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Vefnaður kl. 9, jóga og myndlist kl. 9.30, ganga kl. 10, leik- fimi kl. 11, hádegisverður kl. 11.40 og búta- saumur kl. 13. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Línu- dans kl. 12, kyrrðarstund í kirkjunni kl. 12 og spilað kl. 13, karlaleikfimi kl. 13, botsía kl. 14, trésmíði/skurður kl. 13.30, vatnsleikfimi kl. 14. Leikhúsmiðar skulu sóttir í Jónshús. Hraunbær 105 | Handavinna, glerskurður, hjúkrunarfræðingur kl. 9, botsía kl. 10, leikfimi kl. 11, hádegismatur kl. 12, bónusbíllinn kl. 12.15 og kaffi kl. 15. Hraunsel | Moggi rabb og kaffi kl. 9, mynd- mennt kl. 10, leikfimi kl. 11.30, glerskurður kl. 10-16, brids kl. 13. Hvassaleiti 56-58 | Bútasaumur kl. 9-13, jóga kl. 9-11, Björg F. Helgistund kl. 14 í um- sjón séra Ólafs Jóhannssonar, námskeið í myndlist kl. 13.30-16.30 hjá Ágústu. Böðun fyrir hádegi. Hársnyrting. Hæðargarður 31 | Listasmiðjan opin. Nýtt námskeið í borð- og blómaskreytingum. Nokkrir miðar til á Vínarhljómleika Sinfó í Há- skólabíó 5. jan. 2008. S. 568-3132. Korpúlfar Grafarvogi | Bingó á Korpúlfs- stöðum, á morgun kl. 13.30. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Morgunkaffi- vísnaklúbbur kl. 9, botsía kvennahópur kl. 10.15, handverksstofa kl. 13, opið hús, spilað á spil kl. 13, kaffiveitingar kl. 14.30. Norðurbrún 1 | Smíða- og vinnustofan í hand- mennt opin. Myndlistarnámskeið, þrykk og postulín, leikfimi kl. 10. Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborgarsv. | Bingó í kvöld í félagsheimilinu Hátúni 12. Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaaðgerðir og myndmennt kl. 9-16. Enska kl. 10.15, há- degisverður kl. 11.45, leshópur kl. 13.30, spurt og spjallað /myndbandasýning, bútasamur og frjáls spil kl. 13, kaffiveitingar kl. 14.30. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, handavinnustofan opin með leiðsögn kl. 9- 16.30, morgunstund kl. 9.30, leikfimi kl. 10, hárgreiðslu- og fótaaðgerðarstofur opnar alla daga, upplestur kl. 12.30, félagsvist kl. 14. uppl. um starfið í síma 411-9450. Þórðarsveigur 3 | Hjúkrunarfræðingur kl. 9. Bænastund kl. 10, bónusbíllinn kl. 12 og bóka- bíll kl. 16.45. Kirkjustarf Árbæjarkirkja. | Foreldramorgunn kl. 10-12. Samvera foreldra með ung börn. Spjall, fræðsla og samvera. STN (starf með 6-9 ára börnum) kl. 15. TTT (starf með 10-12 ára börnum) kl. 16. Áskirkja | Opið hús kl. 10-14, föndur, spjall og tekið í spil. Bænastund í umsjá sóknarprests kl. 12, hádegisverður eftir bænastundina. Breiðholtskirkja | Bænaguðsþjónusta kl. 17.30. Fundur í Kvenfélagi Breiðholtssóknar kl. 20. Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11, kirkjustarf aldraðra kl. 11.45, málsverður. Helgistund og samvera. Gestir Arnfríður Einarsdóttir og Svana Helen Björnsdóttir. KFUM&K fyrir 10-12 ára kl. 17-18.15. Æskulýðsstarf Meme fyrir 9- 10 bekk kl. 19.30-21.30. (www.digra- neskirkja.is) Fella- og Hólakirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleik annast Guðný Einarsdóttir, umsjón Ragnhildur Ásgeirsd. djákni. Súpa og brauð í safnaðarheimili á eftir. Kirkjustarf eldri borg- ara kl. 13-16. ,,Lokkar og greiðsla“, kaffi og meðlæti. Helgistund í kirkju. Grafarvogskirkja | Opið hús fyrir eldri borg- ara, kl. 13.30-16. Helgistund, handavinna, spil- að og spjallað, kaffi og veitingar. TTT fyrir börn 10-12 ára kl. 16, í Grafarvogskirkju. TTT fyrir börn 10-12 ára kl. 17, í Borgarholtsskóla. Grensáskirkja | Kyrrðarstund kl. 12, veitingar gegn vægu gjaldi kl. 12.30 í safnaðarheimili. Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 10.30, beðið fyrir sjúkum. Hallgrímskirkja | Starf fyrir eldri borgara alla þriðjudaga og föstudaga kl. 11-14, leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Hjallakirkja | Prédikunarklúbbur presta í um- sjón sr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar kl. 9.15- 10.30. KFUM og KFUK | Holtavegi 28. Fundur í AD KFUK verður kl. 20. Lofgjörðar og bæna- samvera í umsjá Þórdísar Klöru Ágústsdóttur. Kaffi eftir fundinn. Laugarneskirkja | „Veraldleg list og andlegt líf.“ Ólöf I. Davíðsdóttir guðfræðinemi fræðir kl. 19. Kvöldsöngur kl. 20, Þorvaldur Hall- dórsson leiðir sönginn. Kl. 20.30 ganga 12 sporahópar til verka um leið og trúfræðsla sr. Bjarna hefst: „Gæði náinna tengsla – grunn- gildi kristinnar siðfræði“. Njarðvíkurkirkja | Spilakvöld í safnaðarheim- ili kirkjunnar kl. 20. Húsið opnað kl. 19.30. Óháði söfnuðurinn | Alfanámskeið 1 kl. 19-22. Selfosskirkja | Kirkjuskóli í Félagsmiðstöðinni við Tryggvagötu kl. 14. Samkoma ætluð 10-12 ára börnum í kirkjunni kl. 15. Morgunbænir þriðjudaga til föstudaga kl. 10 í Selfosskirkju. Vídalínskirkja, Garðasókn | Kyrrðarstund í Vídalínskirkju kl. 12 alla þriðjudaga. Tónlist leikin og ritningartextar lesnir frá kl. 12.10. Súpa og brauð kl. 12.30, kr. 400. Allir vel- komnir. Vídalínskirkja, Garðasókn | Opið hús hefst með kyrrðastund kl. 12, súpa og brauð kl. 12.30, opið fyrir alla. Spilað kl. 13-16, vist, bridge og lomber og púttgræjur á staðnum. Kaffi kl. 14.45. Akstur fyrir þá sem vilja, upp- lýssími: 895-0169. Ytri-Njarðvíkurkirkja | Foreldramorgunn kl. 10.30. Umsjón hefur Þorbjörg Þorgrímsdóttir. 50ára afmæli. GuðniGíslason ritstjóri Fjarðarpóstsins og innanhúss- arkitekt er fimmtugur í dag, 16. október. Hann verður með opið hús fyrir skemmtilegt fólk á heimili fjölskyldunnar að Klukkubergi 16 í Hafn- arfirði á laugardaginn frá kl. 17 og fram eftir kvöldi. dagbók Í dag er þriðjudagur 16. október, 289. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Guð sé oss náðugur og blessi oss, hann láti ásjónu sína lýsa meðal vor. (Sálm. 67, 2.) Árlegt málþing KHÍ verðurhaldið dagana 18. og 19.október, undir yfirskriftinniMaður brýnir mann – Sam- skipti Umhyggja Samábyrgð. Á dag- skrá málþingsins er fjöldi fyrirlestra og málstofa um flestar hliðar skólastarfs. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, pró- fessor við Háskólann á Akureyri, flytur opnunarfyrirlestur málþingsins: „Um- hyggjan á heima í öllum skólum: hlut- verk, viðfangsefni og sjálfsmynd kenn- ara á 21. öld“. Umhyggja og menningararfur „Í erindinu mun ég leiða út frá hug- myndum bandaríska heimspekingsins Jane Roland Martin, sem fjallað hefur um hugtökin care, concern og connec- tion sem á íslensku má þýða sem um- hyggju, áhuga og tengsl, og fjallar um umhyggjuna sem hluta af menningar- arfinum,“ útskýrir Ingólfur Ásgeir. „Í þessum anda má tala um tvenns konar umhyggju, þá sem fengið hefur heitið móðurleg umhyggja og snýst ekki síst um að sinna margvíslegum þörfum á líðandi stund, og hina sem kölluð er prestleg umhyggja þar sem hugað er að velferð í framtíðinni,“ segir Ingólfur Ásgeir og undirstrikar að móðurlega umhyggjan snúist þó ekki bara um að láta nemendum á öllum aldri líða vel heldur skapa þeim gott námsumhverfi og fylgjast með því að þeir læri og þroskist. Mýkri þættir tormældir Ingólfur Ásgeir fjallar um mikilvægi umhyggju á öllum skólastigum: „Ég skoða einnig mismunandi kröfur sem virðast gerðar til karla og kvenna, en tilhneiging virðist vera til að ætla körl- um frekar að sinna aga en konum að veita umhyggju,“ segir hann. „Um leið vakna spurningar um mikilvægi upp- eldishlutverks kennara, en vandasamt er að skilgreina og mæla hversu hæfir kennarar eru í mýkri þáttum skóla- starfsins, á meðan t.d. þekking í sögu og eðlisfræði er frekar mæld. Við erum svo vön því að prófa þekkingu en óvön að skoða allt skólastarfið út frá þáttum eins og umhyggju.“ Finna má nánari upplýsingar á www.khi.is undir „Málþing 2007“. Menntun | 70 erindi á árlegu málþingi Kennaraháskólans 18. og 19. október Samskipti og umhyggja  Ingólfur Ásgeir Jóhannesson fædd- ist 1954 og ólst upp í Mývatnssveit. Hann lauk stúd- entsprófi frá MA 1975, BA 1979 og kandídatsprófi 1983 í sagnfræði frá HÍ, kenn- araprófi frá sama skóla 1980 og dokt- orsprófi í menntunarfræðum frá Wis- consin-háskóla í Madison 1991. Ingólfur hefur starfað sem kennari í grunn- og framhaldsskóla, landvörður og deildarstjóri ökunáms hjá Umferð- arráði. Hann hefur frá 1995 kennt við HA, þar sem hann er nú prófessor. Fyrirlestrar og fundir Félagsráðgjafafélag Íslands | Opin morgunverð- arfundur fræðslunefndar Félagsráðgjafafélags Ís- lands verður á Grand hóteli 17. okt. kl. 8.15-10. – Rödd barna við skilnað – veruleiki og þróun úr- ræða. Þrír fyrirlestrar og umræður í lokin. Dag- skráin og morgunverður kostar kr. 2.500. Skráning á oktavia@fef.is ITC-Fífa | Kynningarfundur hjá Power talk deildinni Fífu 17. október kl. 20.15, í safnaðarheimili Hjalla- kirkju, Álfaheiði 17, Kópavogi. Dagskrá: Innsetning félaga, sýnishorn af þjálfunardagskrá o.fl. Uppl. sími 698-0144, heimasíða: www.simnet.is/itc Net- fang: itcfifa@isl.is Power talk deildin Íris | Power talk deildin Íris býð- ur gesti velkomna á fund kl 20.15, í Vonarhöfn safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkju. Boðið er upp á þjálfun til að auka starfshæfni, öðlast meira sjálfs- traust og efla forustuhæfileika. ÞESSI moldóvska stúlka klæddi sig upp í þjóðbúning til þess að fagna opnun Vínhátíð- arinnar sem fram fer í Chisinau, höfuðborg landsins. Dagar víns og laufblaða í Chisinau Fyrri umferðin í deildakeppn- inni fór fram um helgina. Átta sveitir spila í fyrstu umferð og hefur sveit Eyktar tyllt sér kunn- uglega á toppinn, er með 129 stig. Sveit Karls Sigurhjartarsonar fylgir þeim fast eftir með 127 stig, Tryggingamiðstöðin er í þriðja sæti með 117 stig og sveit Grant Thornton er fjórða með 106 stig. Spiluð verður tvöföld umferð. Í annarri deild eru 17 sveitir og er spilað eftir Monrad-fyrir- komulagi. Sveit Málningar hefur spilað best og er með 132 stig. Sveit Sparisjóðsins í Keflavík er með 125, Úlfurinn með 120 sem og sveit Guðlaugs Sveinssonar með sama skor. Í fimmta sæti er svo sveit Örva með 112 stig. Í svokölluðum Butler-útreikn- ingi hefur Birgir Örn Steingríms- son hæstu skorina í fyrstu deild- inni en félagarnir Guðmundur Páll Arnarson og Ásmundur Pálsson eru í öðru og þriðja sæti. Í annarri deild eru Gísli Stein- grímsson og Sveinn Þorvaldsson efstir í Butlernum og Hermann Lárusson og Friðjón Þórhallsson í 3.-4. sæti. Seinni umferðin fer fram 17.- 18. nóvember. Tvær efstu sveit- irnar í annarri deild spila í fyrstu deild að ári og tvær neðstu sveitir fyrstu deildar falla í aðra deild. Keppnisstjóri er Björgvin Már Kristinsson. Sveit Eyktar leiðir deildakeppnina Morgunblaðið/Arnór Ragnarsson. Deildakeppni Um helgina var spiluð fyrri umferð deilda- keppninnar í brids. Hér er svipmynd úr fyrstu deild. Ásmundur Pálsson og Guðmundur Páll Arnarson spila gegn Sveini R. Eiríks- syni og Steinari Jónssyni. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is FRÉTTIR FRÆÐSLUNEFND Félagsráðgjafafélags Íslands stendur fyrir opnum fundi á Grand hótel miðvikudaginn 17. okt. kl. 8.15-10. Erindi flytja Rannveig Guðmundsdóttir, félagsráðgjafi MSW, fjölskylduráðgjafi og sáttamaður, Hera Ósk Einarsdóttir, fé- lagsráðgjafi við Fjölskyldu- og félagsþjónustu Reykjanesbæjar, og Ingibjörg Bjarnardóttir, lögmaður, sáttamaður og formaður Sáttar – Félags um sáttamiðlun. Á eftir erindunum verða umræður og fyrirspurnir. Fundarstjóri er Erla Þórðardóttir, félagsráðgjafi og forstöðumaður Fjölskyldu- miðstöðvarinnar. Skráning á fundinn er á oktavia@fef.is. Félagsráðgjafar með opinn fund

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.