Morgunblaðið - 16.10.2007, Side 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
WWW.SAMBIO.ISVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
/ ÁLFABAKKA
THE BRAVE ONE kl. 5:30 - 8D - 10:30D B.i.16.ára DIGITAL
THE BRAVE ONE kl. 8 - 10:30 LÚXUS VIP
STARDUST kl. 5:30D - 8 - 10:30 B.i.10.ára DIGITAL
STARDUST kl. 5:30 LÚXUS VIP
NO RESERVATIONS kl. 8 - 10:30 LEYFÐ
SUPERBAD kl. 8 - 10:30 B.i.12.ára
CHUCK AND LARRY kl. 8 B.i.12.ára
MR. BROOKS kl. 10.30 B.i.16.ára
BRATZ kl. 5:30 LEYFÐ
ASTRÓPÍA kl. 6 LEYFÐ
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 5:30 LEYFÐ
ER RÉTTLÆTANLEGT
AÐ TAKA LÖGIN Í
SÍNAR HENDUR
ÞEGAR LÖGREGLAN
STENDUR
RÁÐÞROTA?
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
FRÁ FRAMLEIÐANDANUM
MICHAEL MANN
OG LEIKSTJÓRANUM
PETER BERG
eeee
“MARGNÞRUNGI
SPENNUMYND
MEÐ ÞRUMUENDI„
EMPIRE
HVERNIG STÖÐVAR ÞÚ
ÓVIN SEM ER ÓHRÆDDUR
VIÐ AÐ DEYJA?
SÝND Í KRINGLUNNI
- J.I.S., FILM.IS
ÍHUGA margra renna lönd ogþjóðir Afríku eflaust saman íeina óljósa mynd sem einkenn-
ist af sveitaþorpum.“ Svo skrifar
Magnfríður Júlíusdóttir í bókinni Af-
ríka sunnan Sahara: Í brennidepli,
sem er nýútkomin hjá Háskólaútgáf-
unni og Afríku 20:20 – félagi áhuga-
fólks um Afríku sunnan Sahara.
„Afríka er ekki eitt land eins og
stundum má ráða af því hvernig
rætt er um álfuna á Vesturlöndum,
heldur eru þar 53 ríki og mörg
hundruð menningarhefðir,“ skrifar
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir í
formála og bætir við að menning
Afríku felist „ekki eingöngu í
trumbuslætti og leirkofum“.
Í bókina ritar fjöldi fræðafólks og
er henni ætlað að miðla þekkingu
um margbreytileika álfunnar, sögu
hennar, stöðu í alþjóðakerfinu – og
vinna gegn þrautseigum stað-
almyndum af Afríku.
Þegar allt kemur til alls er Afríkaönnur stærsta heimsálfan og
þar býr tæpur milljarður fólks. Eins
og Jón Geir Pétursson bendir á í
bókinni er álfan svo stór að ef
Bandaríkin væru lögð yfir hana
næðu þau einungis yfir svæði sem
svarar til Sahara-eyðimerkurinnar.
Hann skrifar að bæta þyrfti við
Kína, Indlandi, Argentínu og Evr-
ópu til að jafna flatarmál Afríku.
Ritstjórarnir Jónína Einarsdóttir
og Þórdís Sigurðardóttir benda á að
Afríku sé oftar en ekki lýst ann-
aðhvort sem „undralandi hins fram-
andlega og frumstæða“ eða sem
stóru einsleitu landi þar sem búi
hjálparvana, hungrað og stríðshrjáð
fólk. Í öðrum kafla bendir Jónína
Einarsdóttir á að um og eftir miðja
síðustu öld hafi afrísk saga ekki ver-
ið til sem sérstakt fræðasvið innan
sagnfræðinnar. „Þannig var horft
fram hjá sögu stórs hluta mannkyns
og mikilsverð málefni voru útilokuð
sem verðug rannsóknarefni,“ skrif-
ar hún.
Auðvitað eru þurrkar, stríð,hungur og hörmungar í mörg-
um ríkjum í Afríku. En þar er líka
margt annað. Hörmungarnar taka
þó auðveldlega yfir fréttaflutning
frá álfunni og hugmyndir fólks um
hana.
„Afríka er ekki risastór samastað-
ur örbirgðar og ofbeldis eins og
gjarnan má álykta af fréttum og
framtaki tónlistarmanna á borð við
Bob Geldof, sem hafa rokkað fyrir
hungruðu börnin í Afríku,“ skrifar
Sigríður Dúna. Hún bendir á að ríki
Afríku eigi vissulega við mörg og
miserfið vandamál að stríða, en víð-
ast hvar sé gróandi þjóðlíf og vilji til
að skapa, hvort sem er á sviði stjórn-
mála, efnahagsmála eða menningar
og lista. Hungur- og ofbeldismyndin
– stundum nefnt „Bob-Geldof-
heilkennið“ – leiði hins vegar meðal
annars til þess að vestræn fyrirtæki
fjárfesti ekki í álfunni.
Þegar ég sjálf sneri til Íslands eft-
ir að hafa dvalið í Austur-Afríku ár-
ið 2005 hafði ég verið tvisvar í álf-
unni í samtals í sex mánuði og
einungis komið til níu landa af 53.
„Jæja, hvernig er svo Afríka?“ var
ég hins vegar spurð á rölti niður
Laugaveginn, í saumaklúbbi og fjöl-
skylduboðum. „Hvað get ég sagt?
Löndin sem ég hef verið í eru ólík,“
skrifaði ég ráðvillt í viðhorfi í Morg-
unblaðinu. „Hvernig er Afríka? Það
veit ég ekki. Hvernig er Evrópa?“
Ég vissi hreinlega ekki hvernig ég
gat lýst „Afríku“ - þar sem bjó 3.200
sinnum fleira fólk en á Íslandi. Bókin
Afríka sunnan Sahara minnir ein-
mitt á hvað álfan er fjölbreytt - og er
athyglisverður lestur.
Trumbusláttur og leirkofar?
AF LISTUM
Sigríður Víðis Jónsdóttir
» „Í huga margrarenna lönd og þjóðir
Afríku eflaust saman í
eina óljósa mynd sem
einkennist af sveita-
þorpum …“
Reuters
Nairobi Ys og þys á götuhorni í höfuðborg Kenýa, Nairobi. Nærri helmingur íbúa í Afríku býr í borgum.
sigridurv@mbl.is
Tinni í Kongó Tinni er látinn hafa mikla vitsmunalega yfirburði yfir íbúa í
Kongó sem eru teiknaðir allir með sama andlitið, bendir Kristín Loftsdóttir
á í nýju bókinni. Hundurinn Tobbi slær þeim meira að segja við.
BRESKU leikararnir Sienna Miller
og Rhys Ifans hafa staðfest að þau
eru par eftir að þau sáust kyssast í
almenningsgarði. Hingað til hafa
þau neitað því að vera að slá sér
upp með hvort öðru þrátt fyrir að
oft hafi náðst myndir af þeim sam-
an.
Á laugardaginn sást til þeirra úti
að ganga með hunda Miller, Porgy
og Bess. Í miðjum göngutúr stopp-
uðu þau allt í einu og kysstust.
Vitni að atburðinum segir: „Þau
litu út fyrir að vera mjög ástfangin
þar sem þau gengu í gegnum garð-
inn. Þau héldust í hendur og deildu
rómantískum kossi. Sienna ljómaði
á eftir. Rhys setti svo aðra höndina
á afturendann á Siennu og henni
virtist vera alveg sama.“
Ifans, 39 ára, og Miller, 25 ára,
hafa alltaf haldið því fram að þau
væru bara vinir.
Miller sleit sambandi við með-
leikara sinn í The Edge of Love,
Matthew Rhys, í síðasta mánuði.
Ifans hefur ekki verið í alvarlegu
sambandi síðan hann hætti með
Jess Morris árið 2004. Hann var þó
orðaður við Kate Moss fyrr á þessu
ári þegar hún hætti með Pete Do-
herty.
Saman í
göngutúr
LEIKKONAN
Rose McGowan
og leikstjórinn
Robert Ro-
dridguez eru trú-
lofuð.
McGowan hitti
Rodriguez í fyrra
þegar hann leik-
stýrði henni í
myndinni Planet Terror.
Orðrómur um trúlofunina var
kominn af stað en í síðasta mánuði
var sagt frá því í New York Post að
McGowan væri komin með stóran
demantshring á giftingarfingurinn.
McGowan var einu sinni trúlofuð
rokkaranum Marilyn Manson en
Rodriguez var eitt sinn giftur Eliza-
beth Avellan, sem hann á með fimm
börn.
Á leið í
hnappheldu