Morgunblaðið - 16.10.2007, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 2007 41
THE KINGDOM kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
THE BRAVE ONE kl. 5:40D - 8D - 10:20D B.i. 16 ára DIGITAL
STARDUST kl. 5:30D B.i. 10 ára DIGITAL
NO RESERVATIONS kl. 10 LEYFÐ
ASTRÓPÍA kl. 8 LEYFÐ
/ KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI,
AKUREYRI OG KEFLAVÍK
Vinsælasta kvikmyndin á Íslandi í dag
eee
„...HIN BESTA
SKEMMTUN.“
A.S.
SÝND Í ÁLFABAKKA,
OG AKUREYRI
SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDI WWW.SAMBIO.IS
eeee
-J.I.S., FILM.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA
Frá gaurnum sem færði okkur
The 40 Year Old Virgin og Knocked Up
- Dóri DNA, DV- J.I.S., FILM.IS
FRÁBÆR RÓMANTÍSK GAMANMYND MEÐ
CATHERINE ZETA JONES OG AARON ECKHART.
SÝND Í ÁLFABAKKA,
OG KRINGLUNNI
STÆRSTA MYND
ÁRSINS Á ÍSLANDI
eeee
- jis, film.is
eeee
- A.S, MBL
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA
/ AKUREYRI
THE BRAVE ONE kl. 8 - 10:20 B.i. 16 ára
STARDUST kl. 8 - 10:20 B.i. 10 ára
/ KEFLAVÍK
GOOD LUCK CHUCK kl. 8 - 10 B.i. 14 ára
STARDUST kl. 8 B.i. 10 ára
HAIRSPRAY kl. 10:20 LEYFÐ
3:10 TO YUMA kl. 10:20 B.i. 16 ára
CHUCK AND LARRY kl. 10:20 B.i. 12 ára
HAIRSPRAY kl. 8 LEYFÐ
BRATZ kl. 8 LEYFÐ
/ SELFOSSI
13.10.2007
2 5 23 25 37
1 6 6 5 5
0 3 4 0 4
36
10.10.2007
3 7 17 18 26 30
122 19
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
RÁÐSTEFNAN Neytandinn og netbylt-
ingin verður haldin á morgun, en á henni
verður skoðað það nýjasta sem er að gerast í
dreifingu og markaðssetningu á netinu, net-
samfélög, farsímamarkaðssetning og vöru-
merkjasamvinna. Ráðstefnan er fyrir selj-
endur og neytendur, listamenn, hönnuði,
auglýsendur, markaðsfólk og alla þá sem vilja
fá yfirsýn yfir hvers netið er megnugt og
hvaða nýjungar eru í gangi og í vændum, en
höfuðáhersla er lögð á dreifingu á afþreying-
arefni, tónlist, kvikmyndum og öðru áþekku
efni.
Hröð þróun
Anna Hildur Hildibrandsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Útflutningsskrifstofu íslenskr-
ar tónlistar, ÚTÓN, skipulagði ráðstefnuna.
Hún segir að ráðstefnan sé liður í að fræða
fólk um breytt viðskiptaumhverfi í sölu og
dreifingu á tónlist og afþreyingarefni á net-
inu, en jafnframt sé verið að skoða þá mögu-
leika sem hafi opnast með netinu og ný-
breytni í markaðssetningu. „Það er
nauðsynlegt til að ná árangri í útflutningi að
Íslendingar fylgist vel með því sem er að ger-
ast og þeirri hröðu þróun sem er í gangi á
netinu og ég er þakklát stjórn ÚTÓN,“ segir
Anna Hildur og bætir við að þegar útflutn-
ingsskrifstofan hafi verið stofnuð á síðasta ári
hafi hún lagt til að ráðstefna sem þessi yrði
eitt af aðalverkefnum ársins.
Tuttugu þátttakendur í ráðstefnunni koma
að utan, enda segist Anna Hildur hafa talið
mikilvægt að Íslendingar fengju að heyra í
þeim sem búa yfir mestri þekkingu á þessu
sviði. „Breiddin í hópnum er töluverð og
þannig munu menn skýra frá dæmum um vel
heppnað markaðsstarf á þessu sviði og eins
fara yfir hvaða breytingar eru að eiga sér stað
í markaðssetningu og almannatengslavinnu.
Neytandinn stjórnar ferðinni núna fremur en
stórfyrirtækin sem basla við að aðlagast bylt-
ingunni sem netið hefur haft í för með sér.“
Anna Hildur segir að meðal viðfangsefna
ráðstefnunnar verði netsamfélög, viðskipta-
hugmyndir og módel sem byggi á farsíma-
tækninni, hvernig neytendur kaupi tónlist og
aðra afþreyingu, hvað dugi til að ná athygli og
svo megi lengi telja.
„Meðal gesta ráðstefnunnar eru brautryðj-
endur í markaðssetningu á netinu sem sýna
munu dæmi um vel heppnað markaðsátak,
hugmyndasmiðurinn og framtíðarfræðing-
urinn Gerd Leonhard fjallar um hvernig
breyta þarf hugsunarhættinum frá eign-
arhaldi á efni í aðgang að efni og svo má
áfram telja. Einnig má nefna að Alison Wen-
ham og Federico Bolza hyggjast funda með
helstu ráðamönnum í tónlistargeiranum
ásamt netfyrirtækjum og ræða hversu vel Ís-
land geti þjónað því hlutverki að vera pruf-
umarkaður fyrir nýtt viðskiptamódel. Beiðni
frá þeim um að fá að taka þátt í ráðstefnunni
barst í sumar eftir sögulegt samkomulagt á
milli stórra alþjóðlegra fyrirtækja eins og
Sony/BMG, Universal og EMI um að vinna
með samtökum óháðra plötufyrirtækja. Það
er verið að leita að prufumarkaði fyrir nýtt
viðskiptamódel núna og það væri spennandi
ef Ísland kæmist í hóp þeirra þjóða sem
fremstar eru í stafrænu þróuninni með því að
taka þátt í slíku verkefni,“ segir Anna Hildur,
en nánari upplýsingar um dagskrá ráðstefn-
unnar má finna á vefsetri Útflutnings-
skrifstofu íslenskrar tónlistar, www.icel-
andicmusic.is.
Rýnt í stafræna þróun
Morgunblaðið/Golli
Stafræn Anna Hildur, framkvæmdastjóri Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar.
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„VERKIÐ gengur aðallega út á e-
moll og a-moll sem mér finnst flott-
ustu hljómar í heimi og ég gæti
spilað endalaust,“ segir Ragnar
Kjartansson um verkið Folksong
sem hann sýnir nú í New York.
„Áhorfendur ganga í gegnum
skóg af leikmyndatrjám inn í rým-
ið, þar er gítarmagnari og söng-
kerfi og síðan er ég með rauðan
gítar og spila bara a- og e-moll í
hvítum kokkteiljakka og spangóla
eitthvað með.“
Verk Ragnars var upphaflega
hluti af útskriftaverkefni Markúsar
Þórs Andréssonar í sýning-
arstjórnun úr CCS Bard-skólanum
sem er fyrir utan New York.
„Hann fékk mig og Roni Horn til
að gera verk fyrir útskriftarsýn-
inguna. Þá sýndi ég Folksong fyrst
í Bard-safninu. Yfirmanni CCS
leist svo vel á það að hann vildi
endilega sýna það í New York líka
og er það nú endurtekið í miklu
betra rými,“ segir Ragnar.
Fer í trúnó í Miami
CCS Bard-safnið leigir hálfgert
port í Chelsea-hverfinu í New
York, þar sem er mikið af gall-
eríum, undir verk Ragnars. „Sýn-
ingaraðstaðan er staðsett undir
lestarteinum, inni á milli gallería
og bifreiðaverkstæða. CCS Bard er
að gera eitthvað öðruvísi með því
að leigja þetta pláss, en breski
listamaðurinn Martin Crees sýndi
þarna á undan mér. Ég er eig-
inlega úti og fólk rápar bara inn á
sýninguna af götunni.“
Ragnari hefur verið tekið mjög
vel að eigin sögn og fengið fullt af
áhorfendum.
Folksong var opnuð 11. október
og stendur til þess tuttugasta. Í
þessa tíu daga mætir Ragnar kl. 11
að morgni og er til kl. 17 seinni-
partinn spilandi og syngjandi,
partur af verkinu.
„Ég er í furðulegri aðstöðu í sex
tíma á dag. Ég hef gert nokkur
svona svipuð verk áður og alltaf
fundist það mjög gaman. Þetta er
erfitt en svolítið eins og að stíga út
úr heiminum.“
Þegar Folksong lýkur um næstu
helgi fer Ragnar á menningarhátíð
í Miami þar sem hann framkvæmir
gjörning ásamt Magnúsi Sigurðs-
syni.
„Þetta er gjörningur sem við
framkvæmdum einu sinni í Lista-
safni ASÍ og heitir „Trúnaður,“
það gengur út á að við förum á
trúnó,“ segir Ragnar sem ætlar
sem sagt á eitt trúnó á ensku í
Miami.
Í sex tíma á dag
Ragnar Kjart-
ansson sýnir
Folksong í
New York
Ljósmynd/Karl Rabe
Spangól Ragnar Kjartans spilar fyrir New York-búa.