Morgunblaðið - 17.10.2007, Side 1
STOFNAÐ 1913 283. TBL. 95. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
Lengi lifi
leikhúsið! >> 37
Leikhúsin í landinu
VEISLAN HEFST
DRAUMAR OG ÁLÖG Á ICELAND AIRWAVES:
Á HVAÐA TÓNLEIKA ÆTLAR ÞÚ? >> 40, 41
FRÉTTASKÝRING
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
GENGIÐ á bréfum í Enex hefur
hækkað töluvert undanfarið og mið-
að við verðið sem greitt var í síðustu
viðskiptum nemur heildarverðmæti
þess 4,1 milljarði króna. Eftir lokað
hlutafjárútboð í september var
markaðsverð þess hins vegar 3,4
milljarðar en þá ber að geta þess að
mikil umframeftirspurn var eftir
hlutafé.
Meðal þeirra eigna sem Orkuveita
Reykjavíkur lagði inn í sameinað fé-
lag Reykjavík Energy Invest og
Geysir Green Energy var 24,35%
hlutur Enex. Auk þess rann 33%
hlutur í Enex Kína inn í hið samein-
aða félag. Hluturinn í Enex var met-
inn á 320 milljónir og hluturinn í
Enex Kína á 257 milljónir. Við þetta
bættist 13 milljóna hlutur í slóv-
ensku orkufyrirtæki, samtals 590
milljónir.
Landsvirkjun seldi seinna
Frá þessu var gengið á eigenda-
fundi og stjórnarfundi Orkuveitunn-
ar 3. október sl. Aðeins níu dögum
síðar var tilkynnt að Geysir Green
Energy hefði keypt hlut Landsvirkj-
unar í Enex á 996 milljónir og þar
með eignast um 70% í félaginu. Hlut-
ur Landsvirkjunar og Orkuveitunn-
ar var jafnstór en við fyrstu sýn virð-
ist sem verðmatið hafi verið
gjörólíkt.
Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri
Orkuveitunnar, segir hins vegar að
verðmatið sé mjög sambærilegt.
Hann bendir á að þegar Orkuveitan
lagði hlutinn sinn í Enex inn í REI
hafi hún gert það á genginu 1,0. Nú
sé hins vegar miðað við að gengið á
hlut í REI sé 2,77. Á því gengi sé
verðmæti hlutarins í Enex ekki 320
milljónir heldur 885 milljónir (320
margfaldað með 2,77). Þetta sé ekki
ósvipað verðinu sem fékkst fyrir hlut
Landsvirkjunar og munurinn geti
skýrst með því að Landsvirkjun var
seinni til að selja.
Morgunblaðið/Sverrir
Kína Enex byggði hitaveitu í Xian
Yang í Kína, en þar voru notuð kol.
Enex
hækkar
í verði
Metið á 4,1 milljarð
í síðustu viðskiptum
VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson af-
henti Degi B. Eggertssyni lykla-
völdin að ráðhúsi Reykjavíkur síð-
degis í gær. Við þetta tækifæri
óskaði Vilhjálmur Degi góðs gengis
í starfi. Dagur sagði að mikilvægt
væri að koma á stöðugleika og friði
í starfi borgarinnar og að hann von-
aði að Vilhjálmur myndi hjálpa til
við það starf.
Dagur B. Eggertsson er 18. borg-
arstjóri Reykvíkinga. Hann er 35
ára gamall en var fyrst kjörinn í
borgarstjórn árið 2002 sem óháður
fulltrúi á R-listanum. Hann er
menntaður læknir frá Háskóla Ís-
lands en jafnframt hefur hann
stundað meistaranám í mannrétt-
indum og alþjóðalögum í Háskól-
anum í Lundi. Dagur var virkur í
stjórnmálum nemenda Háskóla Ís-
lands er hann var þar við nám, sat í
stúdentaráði fyrir Röskvu og var
formaður stúdentaráðs. Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Nýr borg-
arstjóri í
ráðhúsið
KVÖRTUN vegna málefna Orkuveitu Reykjavíkur barst til Eftirlitsstofn-
unar EFTA fyrir um 10 dögum. Þetta fékkst staðfest hjá stofnuninni í
gær.
Fjölmiðlafulltrúi Eftirlitsstofnunarinnar vildi í gær engar upplýsingar
veita um tilefni kvörtunarinnar og ekki tókst að hafa uppi á þeim embætt-
ismanni sem fer með rannsókn á henni. Eftir því sem næst verður komist
er hún til meðferðar á því sviði sem fer með málefni sem tengjast sam-
keppni og opinberum styrkjum. Fjölmiðlafulltrúinn, Inge Hausken Thyge-
sen, vildi í gær eingöngu segja að kvörtunin, eins og allar aðrar kvartanir,
yrði tekin til gaumgæfilegrar athugunar.
Samruni Reykjavík Energy Invest og Geysir Green Energy var sam-
þykkt á eigendafundi og stjórnarfundi í Orkuveitu Reykjavíkur sem fór
fram 3. október sl.
Málefni Orkuveit-
unnar á borð EFTA
DAGUR B. Eggertsson, borgarstjóri
Reykjavíkur, óttast ekki að fjárhagur
borgarinnar standi ekki undir þeim
verkefnum sem nýr meirihluti muni
ráðast í, jafnvel þótt staðið verði við
fasteignaskattslækkanir fyrri meiri-
hluta. Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins sökuðu meirihlutann um
heigulshátt á borgarstjórnarfundi.
Borgarfulltrúarnir gagnrýndu
harðlega að spurningum þeirra um
málefni OR og stefnu hins nýja meiri-
hluta væri ekki svarað. Hver á fætur
öðrum stigu borgarfulltrúarnir sjö
upp í ræðustól og beindu spjótum sín-
um að Birni Inga Hrafnssyni.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, fráfar-
andi borgarstjóri, lýsti eftir stefnu
meirihlutans í skipulags- og lóðamál-
um og vakti athygli á því að flokkarnir
hefðu mismunandi stefnu varðandi
framtíð Reykjavíkurflugvallar. Hann
spurði hvernig meirihlutinn ætlaði að
finna fjármagn til þeirra verkefna
sem flokkar hans hefðu lofað. Vísaði
hann til orða um gjaldfrjálsan leik-
skóla og þeirra umræðna sem farið
hefðu fram um laun á leikskólum og
frístundaheimilum. Einnig spurði
hann hvort staðið yrði við þær lækk-
anir á fasteignaskatti sem sjálfstæð-
ismenn hefðu boðað.
Spurður um þetta í gærkvöldi sagði
Dagur B. Eggertsson að hann myndi í
dag kynna sér stöðu umönnunarþjón-
ustu borgarinnar. „Hins vegar höfum
við sagt varðandi allt þetta að fyrst
þurfum við að glöggva okkur á fjár-
hagsstöðunni.“ Vissulega muni kostn-
aður fylgja þeim verkefnum sem nýr
meirihluti boði en alls ekki verði farið
fram úr fjárhagsgetu borgarinnar.
Varðandi fasteignaskattslækkanir
fyrri meirihluta segir borgarstjóri
þau skref hafa einungis verið í takt við
lækkanir R-listans á sínum tíma.
Meirihluti borgarstjórnar
sakaður um heigulshátt
Í HNOTSKURN
»Borgarfulltrúar Sjálfstæð-isflokks lögðu til að borg-
arstjórn tæki undir bókun
Svandísar Svavarsdóttur frá
eigendafundi í OR hinn 3. okó-
ber. Meirihlutinn samþykkti
að vísa tillögunni til borgar-
ráðs.
»Nær eingöngu borgar-stjórnarfulltrúar Sjálf-
stæðisflokksins tóku til máls á
fundinum í gær og gagnrýndu
þeir Björn Inga harðlega.
Borgarstjóri ætlar að kynna sér stöðu umönnunarmála borgarinnar í dag
Kallað eftir | Miðopna