Morgunblaðið - 17.10.2007, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2007 17
LANDIÐ
Eftir Björn Björnsson
Sauðárkrókur | Hjá Leikfélagi
Sauðárkróks er þessa dagana unnið
hörðum höndum að lokaæfingum á
leikverkinu Alina, eftir Stefán
Sturlu Sigurjónsson, en hann leik-
stýrir verkinu sem frumsýnt verð-
ur í félagsheimilinu Bifröst næst-
komandi laugardag. Þann sama
dag mun skáldsaga með sama nafni
einnig koma út hjá bókaútgáfunni
Fjölva.
Stefán segist hafa sett saman
drög að leikverki fyrir alllöngu.
Þau hafi orðið hugmynd að skáld-
sögu en áður en hún var frágengin
tók hann aftur til við leikverkið
sem nú birtist í endanlegri útgáfu á
fjölum Bifrastar, þann sama dag og
skáldsagan kemur svo út hjá
Fjölva.
Ævintýraverk
Stefán segir um að ræða fjöl-
skylduverk fyrir alla aldurshópa,
með tónlist eftir Valgeir Skagfjörð.
Í verkinu eru frumflutt sex lög og
segist Stefán sannfærður um að
þau muni njóta verulegra vinsælda.
Um leikverkið hefur höfundurinn
það að segja að hér sé á ferðinni
ævintýraverk byggt á gamalli ís-
lenskri frásagnarhefð, meðal ann-
ars um tröll og óvætti og samskipti
þeirra við mennska menn, og fjalli
um illmenni sem ræðst inn á heim-
ili og nemur á brott stúlkubarn og
síðan um leiðangur sem ráðist er í
til að finna barnið aftur og frelsa
það. Hann segir að undirtónn
verksins sé samskipti kynþátta
annars vegar og á hvern hátt allir
megi komast af á þessari jörð sem
okkur er úthlutað. Grundvallar-
spurningin í verkinu sé raunveru-
lega sú hvort við þurfum endalaust
að stríða, eða getum lifað saman í
sátt og samlyndi og hins vegar
dæmigert dægurmál eins og brott-
nám lítillar stúlku, sem ofarlega
var á baugi í heimsfréttunum á síð-
astliðnu sumri.
Í leikverkinu Alina eru 32 leik-
arar á sviðinu þegar mest er, og
þar af þrennir tvíburar, og segir
Stefán að hópurinn sé mjög bland-
aður, gamlir máttarstólpar í bland
við mjög efnilega nýliða, og svo hafi
framboðið af þátttakendum verið
mikið að margir reyndustu með-
limir félagsins hafi hreinlega ekki
komist að.
Hann segir líka að það hafi verið
sér mikið ánægjuefni þegar hann
var beðinn að koma til liðs við sitt
gamla leikfélag og gat mætt með
glænýtt verk í farteskinu, en með
Leikfélagi Sauðárkróks hóf hann
ferilinn í leikhúsi.
Hóf ferilinn hjá leikfélaginu
Stefán segir að sín fyrstu spor á
leiksviði hafi verið í verkinu Týnda
teskeiðin, sem Leikfélag Sauðár-
króks fór síðan með í leikför til
Finnlands, en síðar og í annarri
leikför til sama lands kynntist hann
eiginkonu sinni sem síðar varð, og
nú eru þau hjón búsett í Finnlandi
og heimleiðis þangað heldur Stefán
að loknu verki á Króknum.
Í Finnlandi bíður Stefáns verk-
efni, því þá þegar hefjast æfingar
undir hans leikstjórn á Ofviðrinu
eftir Shakespeare í borgarleikhús-
inu í Vasa, en þangað kemur líka,
til liðs við Stefán, Hilmar Örn
Hilmarsson sem semur nýja tónlist
við það verk, sem frumsýnt verður
2. febrúar á komandi ári.
Heimsfrumsýning og
sagan á bók sama daginn
Leikhópurinn Margir ungir leikarar taka þátt í uppfærslu á Alinu eftir
Stefán Sturlu Sigurjónsson. Þar á meðal eru þrennir tvíburar.
Í HNOTSKURN
»Leikfélag Sauðárkróks ereitt elsta leikfélag á land-
inu. Það var stofnað 1888,
þrátt fyrir óáran til sjós og
lands. Félagið stóð fyrir leik-
sýningum um árabil og þá
helst í Sýslufundavikunni.
»Leikfélagið var endurreist1941. Það hefur oftast sett
upp tvær leiksýningar á ári,
aðra í Sæluviku Skagfirðinga,
og utan þess ráðist í ýmis önn-
ur verkefni.
Grímsey | Eftir ljúfa veðurdaga
með hlýindum og sól, fór hann að
snjóa í Grímsey. Það voru brosandi
börn í grunnskólanum sem fögnuðu
fyrstu snjókomunni og notuðu
löngu frímínúturnar til að hnoða
stórar sjókúlur, nú skyldi snjókarl
rísa við skólann.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Snjór á heimskautsbaug
Eftir Sigurð Sigmundsson
Biskupstungur | Tveir ráð-
herrar opnuðu nýja vefsíðu
fyrir Skálholtsstað,
www.skalholt.is, við athöfn
á staðnum í fyrradag. Þor-
gerður Katrín Gunnars-
dóttir menntamálaráðherra
og Björgvin Sigurðsson
viðskiptaráðherra opnuðu
vefinn sem Brynjólfur Óla-
son hannaði.
Við það tækifæri sagði
Kristinn Ólason rektor að
mikil þörf væri fyrir að
koma á framfæri marg-
víslegum upplýsingum um
starfsemina í Skálholti sem er sífellt
að aukast.
Þá var afhent glæsilegt olíu-
málverk eftir listakonuna Kristínu
Guðrúnu Gunnlaugsdóttur og Kaup-
þing í London hefur gefið staðnum.
Við þetta tækifæri söng Björg Þór-
hallsdóttir tvö lög við undirleik
Hilmars Arnar Agnarssonar org-
anista í Skálholti. Mjöll Snæsdóttir
fornleifafræðingur leiddi gesti að
fornminjum staðarins og skýrði
rannsóknir síðustu ára. Stjórn Skál-
holts hefur farið fram á það við fjár-
laganefnd Alþingis að veita framlag
til að gera fornminjarnar aðgengi-
legar fyrir þá sem sækja Skálholt
heim.
Koma upplýsingum
betur á framfæri
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
SUÐURNES
Helguvík | Öll sveitarfélögin á Suð-
urnesjum hafa lýst sig tilbúin til
viðræðna um breytingu á félags-
formi Sorpeyðingarstöðvar Suður-
nesja hf. Unnið hefur verið að mál-
inu að frumkvæði Reykjanesbæjar
sem óskaði eftir að athugað yrði um
að breyta félaginu í hlutafélag.
Bæjarstjórn Grindavíkur telur þó
rétt að kanna áður með samvinnu
eða sameiningu við önnur fyrirtæki
í sama rekstri.
Guðjón Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sorpeyðingarstöðvar
Suðurnesja, segir að starfshópur
hafi unnið að málinu á undanförn-
um mánuðum. Nú sé verið að fara
yfir þá hluti sem þurfi að gera sam-
hliða slíkri formbreytingu og ferli
málsins almennt. Segir hann að
málið verði rætt á komandi aðal-
fundi sambandsins.
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja
rekur móttöku-, flokkunar- og
sorpbrennslustöðina Kölku í Helgu-
vík. Þetta er tiltölulega ný stöð,
tekin í notkun á árinu 2004, og
rekstur hennar hefur verið erfiður
frá upphafi. Guðjón segir að stöðin
hafi verið byggð upp með lánum og
eigið fé hennar sé lítið. „Við erum
þó á réttri leið. Erum að ná betri
tökum á rekstri stöðvarinnar. Hún
stoppar minna en verið hefur og
reksturinn er farinn að skila ein-
hverju upp í fjármagnskostnað þótt
það mætti vera meira,“ segir Guð-
jón Guðmundsson.
Rætt um breyt-
ingar á rekstrar-
formi Kölku
Reykjanesbær | Flugstöð Leifs
Eiríkssonar ohf., Fríhöfnin ehf. og
Golfklúbbur Suðurnesja öfluðu
320.000 kr. á golfmóti FLE og Frí-
hafnarinnar í ágúst. Ákveðið var að
nota fjárhæðina til að styrkja Björg
– athvarf fyrir geðfatlaða á Suður-
nesjum. Það var gert við athöfn
sem efnt var til á dögunum.
Upphæðin safnaðist á holu 6 og
holu 18 í golfmótinu, en á þeim hol-
um höfðu þátttakendur tækifæri til
þess að kaupa högg af atvinnukylf-
ingi sér til framdráttar. Þátttak-
endur tóku þessu fagnandi og nýttu
flestallir tækifærið til að styðja gott
málefni.
Golfklúbbur Suðurnesja lagði til
kylfinga og Flugstöð Leifs Eiríks-
sonar og Fríhöfnin tvöfölduðu þá
upphæð sem safnaðist. Því er styrk-
ur til Bjargar – athvarfs fyrir geð-
fatlaða á Suðurnesjum, 320.000
krónur.
Styrkur Fulltrúar fyrirtækjanna og Bjargarinnar við afhendingu styrks,
Gylfi Sigurðsson, GS, Elín Árnadóttir, FLE, Ragnheiður Sif Gunnarsdóttir,
Björginni, Hlynur Sigurðsson, Fríhöfninni, og Sóley Ragnarsdóttir, FLE.
Styrkja athvarf
fyrir geðfatlaða
Reykjanesbær | Íbúar Reykjanes-
bæjar voru 13.057 um síðustu mán-
aðamót, samkvæmt áætlun Hag-
stofu Íslands. Hafði íbúum bæjarins
fjölgað um liðlega 1.100 frá áramót-
um. Inni í þeirri tölu eru íbúar á há-
skólasvæðinu Vallarheiði (Keflavík-
urflugvelli) þar sem nokkuð á fjórða
hundrað manns hafði skráð sig til
heimils í lok september.
Íbúum fjölgaði á árinu í öllum
sveitarfélögunum á Suðurnesjum
nema Garði, þar sem nokkur fækkun
varð vegna fjölda brottfluttra íbúa
umfram aðflutta til bæjarins. Áætlað
er að 2.759 íbúar hafi verið í Grinda-
vík, 1.724 í Sandgerði 1.464 í Garði
og 1.180 í Vogum. Íbúar Suðurnesja
voru þá orðnir samtals 20.184 sem er
1.272 fleiri en um áramót.
13 þúsund í Reykjanesbæ