Morgunblaðið - 17.10.2007, Síða 21
hitastig, t.d. í ísskápnum. Konum á
meðgöngu er ráðlagt að forðast að
borða hrátt kjöt, hrá egg, ógeril-
sneydda mjólk og afurðir úr ógeril-
sneyddri mjólk. Í fiski og öðru sjáv-
arfangi eru mikilvæg næringarefni,
sem barnshafandi konur, rétt eins og
allir aðrir, eiga að borða oft í viku, en
forðast skal allan hráan fisk, sushi,
grafinn og kaldreyktan fisk og einnig
harðfisk. Ef vafi leikur á því hvort
matvæli séu hrá er betra að neyta
þeirra ekki,“ segir Zulema.
Lifrarafurðir óæskilegar
Önnur matvæli, sem eru ekki
ákjósanleg fyrir konur á meðgöngu,
er lifur, vegna mikils magns A-
vítamíns. Ástæðan er sú að A-
vítamínið getur hugsanlega skaðað
fóstur ef þess er neytt í miklu magni.
Því er lifur, bæði úr land- og sjávar-
dýrum, svo og matvæli unnin úr lifur,
svo sem lifrarpylsa, lifrarkæfa og
lifrarpaté, ekki ráðlögð á meðgöngu,
að sögn Zulemu.
Vatnið besti valkosturinn
„Nægilegt magn vökva er nauð-
synlegt fyrir eðlilega líkams-
starfsemi. Vökvaþörf er breytileg
meðal manna, en einn og hálfur lítri
af vökva úr drykkjum á dag ættu að
duga, einnig ófrískum konum. Vatn
er besti valkosturinn og því er það
talið besti svaladrykkurinn. Á með-
göngunni eru kóladrykkir, kaffi og
allir drykkir, sem innihalda koffín,
varasamir. Koffín í stórum skömmt-
um er talið auka líkur á fósturláti.
Þess vegna er æskilegt að stilla
neyslu koffínríkra drykkja í hóf,“
segir næringarfræðingurinn Zulema
S. Porta að lokum.
Þetta er ellefta greinin af nokkr-
um í greinaflokki, sem er sam-
starfsverkefni matvælasviðs Um-
hverfisstofnunar og Morgun-
blaðsins.
www.ust.is
LÉLEG bein eru ástæða
beinbrota hjá 1.200 Íslend-
ingum á ári hverju. Í flest-
um tilvikum má koma í veg
fyrir beinþynningu og bein-
brot af völdum hennar með
fyrirbyggjandi aðgerðum.
Alþjóðlegi Bein-
verndardagurinn
er næstkomandi
laugardag. Mark-
mið dagsins er að vekja athygli á
þeim þáttum sem geta stuðlað að
beinþynningu og um leið að undir-
strika þá þætti sem geta komið í
veg fyrir sjúkdóminn síðar á æv-
inni, því bein gisna með aldrinum,
bæði hjá konum og körlum
Áhættuþættir
Beinþynning gengur í erfðir. Það
er staðreynd að þriðja hver kona og
áttundi hver karlmaður eru haldin
sjúkdóminum. Ef móðir eða faðir
hafa fengið beinþynningu eru mikl-
ar líkur á því að afkomendur fái
sjúkdóminn.
Meðal annarra þátta sem stuðla
að beinþynningu má nefna:
Líkamsþyngd – smábeinóttar
konur eru í meiri hættu en
aðrir
Hreyfingarleysi
Reykingar
Neysla áfengis
Að auki má nefna að aðrir
sjúkdómar og lyf geta haft
áhrif á kalkbúskap líkamans
og haft áhrif á þynningu
beina.
Forvarnir
Mikilvægt er að
huga að beinheilsu strax á unga
aldri og þar skiptir hollt mataræði
miklu máli. Mælt er með kalkríku
fæði og nægjanlegu D-vítamíni.
Flestar mjólkurvörur innihalda
mikið kalk og D-vítamín fæst meðal
annars úr lýsi og hvers konar fisk-
meti auk þess sem húðin myndar D-
vítamín fyrir tilstuðlan sólarljóss.
Regluleg hreyfing stuðlar að
sterkum beinum og best er að forð-
ast reykingar og neyta áfengis í
hófi.
Koma má í veg
fyrir beinþynningu
Morgunblaðið/Kristinn
Forvarnir Regluleg hreyfing stuðlar að sterkum beinum
Á Beinverndardeginum verður
gestum Smáralindar boðið upp á
fræðslu og kalkríkar veitingar milli
klukkan 13 og 15.
Nánari upplýsingar má finna á
www.beinvernd.is
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2007 21
að fleyta þeim beint
áfram, en skyndilega
breytist hún í beygjuak-
rein inn á Lækjargöt-
una. Til þess að sleppa
út af henni verður öku-
maðurinn að hafa sig
allan við og þá tekur
ekki betra við því að í
einu vetfangi breytist
vegurinn í nálarauga og
verður aðeins ein ak-
rein. Og hvernig er
þetta merkt? Jú, það
eru túður og merki, en
þau birtast nánast eftir
að þær breytingar, sem
þau boða, hafa átt sér
stað.
x x x
Sums staðar er sá háttur hafður áað boða þrengingar á götum með
blikkandi ljósum þannig að ökumenn
átti sig á hvað er í vændum. Það get-
ur verið sérlega hentugt í myrkri,
sem er nokkuð algengt á Íslandi að
vetrarlagi. Þessi þjónusta er ekki fyr-
ir hendi á Geirsgötunni. Sennilega er
gert ráð fyrir því að sama fólkið sé
alltaf á ferðinni og það læri strax á
breytingarnar. Víkverji er hins vegar
nokkuð viss um að þetta er ekki alls
kostar rétt. Endrum og sinnum eigi
fólk þarna leið um í fyrsta skipti og
sleppi með skrekkinn.
Umferðarmál íReykjavík eru
Víkverja hugleikin og
sennilega er óþolandi að
vera nálægt honum
vegna stöðugs kvabbs
út af skipulagsslysum
og hönnunarrugli. Vík-
verji verður hins vegar
þá fyrst pirraður þegar
hann þarf að aka í gegn-
um framkvæmdasvæði
þar sem merkingar eru
í lágmarki og ætlast til
þess að ökumenn sýni
árvekni og búi yfir ein-
beittum vilja til að svína
og smeygja sér ætli þeir
að komast leiðar sinnar.
Iðulega líður Víkverja eins og hann sé
lentur í tölvuleik þar sem reynt er á
þolrif ökumanna með ýmsum hindr-
unum og tálmum. En þar gildir sú
heppilega regla að byrja má upp á
nýtt eins og ekkert hafi í skorist þegar
eitthvað fer úrskeiðis. Það var ekki
hægt í alvöru umferð síðast þegar Vík-
verji vissi.
x x x
Um þessar mundir ríkir mjögundarlegt ástand á Geirsgöt-
unni þar sem nú standa yfir fram-
kvæmdir vegna væntanlegs tónlist-
arhúss. Ökumenn eru eina stundina
staddir á akrein, sem allajafna ætti
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Hallmundur Kristinsson fylgdistmeð nýjum meirihluta verða
að veruleika í Reykjavík:
Stöður og embætti stefna þau á.
Stjórnsöm gætu þau virst.
Auðvitað mynda þau málefnaskrá.
Máta þó stólana fyrst.
Hálfdan Ármann Björnsson bætti
við:
Byrjað var réttum enda á,
þ.e. ólíkri sköpun rassa,
því til hvers að möndla málefnaskrá,
ef mönnum ei stólar passa?
Magnús frá Sveinsstöðum las
viðtal við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson í
sunnudagsblaðinu og datt í hug að
lestri loknum:
Villi engan lista leit
langtímasamning aldrei séð.
Enda núna alþjóð veit
engu kappinn fylgdist með.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir frá
Sandi í Aðaldal bætir við:
Ef menn stunda eitthvert plott
og undir mönnum gerist heitt
reynist alltaf rétt og gott
ráð að vita ekki neitt.
Davíð Hjálmar Haraldsson yrkir
norður á Akureyri:
Nú er Villi farinn frá
og Flokkurinn í sárum.
Gneypur horfir Geiri á
og grætur bláum tárum.
Sama vísnahornið birtist tvo
daga í röð í liðinni viku.
Hallmundur yrkir í tilefni þess:
Vandaðar gera menn vísurnar flestar,
þótt vinnslulínan sé hröð.
Og þær sem Pétri Blöndal finnst bestar
birtir hann tvo daga í röð!
VÍSNAHORNIÐ
Af stólum og
borgarstjórn
pebl@mbl.is
Skyndibitakeðjur
með hreinlætis-
vandamál
Borgin hyggst
selja hlut sinn í
REI
Innbrotum fækkar
ár frá ári
Morð íVesturbænum
Ein af hverjum sex
konum missir fóstur
DV særir Dorrit
- kemur þér við
Milljarðar í útrás
en fjársvelt borhola
á Súðavík
Lúxusbílar fyrir tugi
milljóna
Heilbrigðisþjónustu
fyrir unglinga lokað
Óánægðir bæjarstarfs-
menn í Kópavogi
Stefnir í verðstríð á
leikfangamarkaði
Ellý heimsækir Elízu
Hvað ætlar þú
að lesa í dag?