Morgunblaðið - 17.10.2007, Síða 33

Morgunblaðið - 17.10.2007, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2007 33 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Aflagrandi 40 | Vinnustofan er opin kl. 9- 16.30. Leikfimi kl. 8.30, postulínsmálun kl. 9 og 13, gönguhópur kl. 11. Árskógar 4 | Bað kl. 9-16.30, handav. kl. 9- 16.30, smíði/útskurður kl. 9-16.30, heilsu- gæsla kl. 10-11.30. Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, fóta- aðgerð, morgunkaffi/dagblöð, almenn handa- vinna, glerlist/opið verkstæði, hádegisverður, spiladagur. Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í handmennt op- in. Leikfimi kl. 10. Félag eldri borgara í Kópavogi | Félagsvist í Gullsmára á mánudögum kl. 20.30, en í Gjá- bakka á miðvikudögum kl. 13 og á föstudögum kl. 20.30. Félag eldri borgara, Reykjavík | Færeyjafarar hittast föstud. 19. október kl. 13. Göngu- Hrólfar ganga frá Ásgarði, Stangarhyl 4, kl. 10. Söngvaka kl. 14, umsjón Sigurður Jónsson og Helgi Seljan. Söngfélag FEB, æfing kl. 17. Námskeið í framsögn hefst 23. október, leið- beinandi Bjarni Ingvarsson, skráning á skrif- stofu FEB, s. 588-2111. Félagsheimilið Gjábakki | Boccia kl. 9.30, glerlist kl. 9.30 og 13, handavinna kl. 10, leið- beinandi við til kl. 17, félagsvist kl. 13, söngur kl. 15.15, Guðrún Lilja mætir með gítarinn. Við- talstími FEBK kl. 15-16, bobb kl. 16.30, línu- dans kl. 18, samkvæmisdans kl. 19, Sigvaldi kennir. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Myndlist kl. 9.05, ganga og KB banki kl. 10, hádegisverður kl. 11.40, postulínsmálning og kvennabrids kl. 13. Upplestri á Egilssögu verður frestað um sinn. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Kvennaleikfimi kl. 9, 9.45 og 10.30, brids og bútasaumshópur í Jónshúsi kl. 13. Leik- húsmiðar skulu sóttir í Jónshús. Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur opnar kl. 9-16.30, m.a. fjölbreytt handavinna og tréútskurður. Sund og leikfimiæfingar í Breið- holtslaug kl. 9, dansæfing kl. 10, umsj. Soffía Stefánsd. íþróttakennari. Frá hádegi spilasalur opinn. Lagt af stað í heimsókn í Gerðarsafn kl. 13. Vetrardagskráin er komin. S. 575-7720. Furugerði 1, félagsstarf | Aðst. við böðun kl. 9, bókband. Kl. 13.15 létt leikfimi og kl. 14 framhaldssagan. Kaffiveitingar kl. 15. Hraunbær 105 | Handavinna, útskurður kl. 9, ganga kl. 11, hádegismatur kl. 12, brids kl. 13, kaffi kl. 15. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9, hand- mennt kl. 10, línudans kl. 11, saumar kl. 13, pílukast kl. 13.30, handmennt kl. 13, Gafl- arakórinn kl. 16.15. Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl. 9-16 hjá Sigrúnu, jólasokkar, taumálun, glermálun o.fl. Jóga kl. 9-12, Sóley Erla. Samverustund kl. 10.30 lestur og spjall. Böðun fyrir hádegi. Hársnyrting. Hæðargarður 31 | Listasmiðjan er opin. Nýtt námskeið í borð- og blómaskreytingum. Nokkrir miðar til á Vínarhljómleika Sinfó í Há- skólabíó 5. jan. 2008. S. 568-3132. Korpúlfar, Grafarvogi | Pútt á Korpúlfs- stöðum á morgun kl. 10. Listasmiðjan opin á Korpúlfsstöðum opin á morgun kl. 13-16. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 | Hjúkr- unarfræðingur frá Heilsugæslunni kl. 10.30, leikfimi kl. 11, Bónus kl. 12, handverks og bóka- stofa kl. 13, kaffiveitingar kl. 14.30. Norðurbrún 1 | Smíðastofan og vinnustofan í handmennt opin. Félagsvist kl. 14. Sjálfsbjörg, félag fatlaðra á höfuðborg- arsvæðinu | Félagsvist í kvöld í félagsheim- ilinu, Hátúni 12. Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla, fótaað- gerðir. Kl. 9-12 aðstoð v/böðun. Kl. 9.15-16 handavinna, kl. 10-12 sund, kl. 11.45 hádeg- isverður, kl. 12.15 verslunarferð í Bónus, kl. 13 tréskurður, kl. 14.30 kaffiveitingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30, handavinnustofan opin kl. 9-16.30, morg- unstund og söngur kl. 10-11, verslunarferð kl. 12.30, upplestur kl.,12.30, bókband kl. 13, söngur og dans við undirleik Vitatorgsbands- ins kl. 14. Uppl. í síma 411-9450. Þórðarsveigur 3 | Handavinna kl. 9, kl 13 op- inn salur, dans kl 14, gönguferð kl. 14 og boccia kl. 15. Kirkjustarf Árbæjarkirkja. | Starf með 10-12 ára börnum kl. 14-15. Starf með 9-12 ára börnum kl. 15-16. Áskirkja | Hreyfing og bæn í neðri safn- aðarsal kl. 11 í dag. Bessastaðasókn | Foreldramorgunn í Holta- koti kl. 10-12. Opið hús eldri borgara í Litlakoti kl. 13-16. Kaffi og meðlæti. Bæna/kyrrð- arstund í leikskólanum Holtakoti kl. 20. Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Tónlist, hugvekja, fyrirbænir, málsverður í safn- aðarheimili eftir stundina. Starf meðal eldri borgara kl. 13.30. Kirkjuprakkarar 7-9 ára kl. 16. TTT 10-12 ára kl. 17. Æskulýðsfélag KFUM&K og kirkjunnar kl. 20. Bústaðakirkja | Starf eldri borgara er kl. 13- 16.30, spilað, föndrað og handavinna. Gestur kemur í heimsókn. Dómkirkjan | Hádegisbænir alla miðvikudaga kl. 12.10-12.30. Hádegisverður á kirkjuloftinu á eftir. Bænarefnum má koma á framfæri í síma 520-9700 eða með tölvupósti til domkirkj- an@domkirkjan.is. Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund kl. 12, alt- arisganga og fyrirbænir. Boðið upp á hádeg- isverð að lokinni stundinni. Prestar safnaðar- ins annast stundina, organisti: Hörður Bragason. TTT fyrir börn 10-12 ára kl. 17-18 í Rimaskóla. TTT fyrir börn 10-12 ára kl. 17-18 í Korpuskóla. Grensáskirkja | Samverustundir aldraðra kl. 12, matur og spjall, helgistund kl. 14. Hallgrímskirkja | Morgunmessa kl. 8, hugleið- ing, altarisganga. Morgunverður í safnaðarsal eftir messuna. Háteigskirkja | Kvöldbænir og fyrirbænir kl. 18. Hjallakirkja | Kynningarfundur um tólf spora námskeið í kvöld kl. 20. Hjálpræðisherinn á Akureyri | Bænastund kl. 12, máltíð í lok stundarinnar. Kristilegur kvennafundur kl. 20, hjálp- arflokkur. Nánari uppl. í s. 462-4406/896- 6891. Hveragerðiskirkja | Mömmumorgnar á þriðju- dögum kl. 10, TTT-starf á fimmtudögum kl. 18, unglingastarf KFUM/KFUK á fimmtudögum kl. 20. Kristniboðssalurinn | Samkoma verður kl. 20. „Fyllist þekkingu á vilja Guðs.“ Ræðumað- ur er Haraldur Ólafsson. Kaffi eftir samkom- una. Langholtskirkja | Hádegisbænagjörð með orgelleik og sálmasöng kl. 12.10, máltíð kl. 12.30 (300 kr.). Opið hús fyrir eldri borgara kl. 13-16, sungið, tekið í spil, föndur, spjall og kaffisopi. Laugarneskirkja | Foreldramorgunn í umsjá sr. Hildar Eirar Bolladóttir kl. 10. Gönguhóp- urinn Sólarmegin kl. 10.30. Kirkjuprakkarar (1.-4. bekkur) kl. 14.30, umsjón hafa prestar og kirkjuvörður. Fermingarfræðsla kl. 19.30, Unglingakvöld kl. 20.30. Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15, prestur sr. Sigurður Árni Þórðarson. Opið hús kl. 15. Óttar Einarsson fyrrum skólastjóri og menntaskólakennari segir frá Ágústi Pálssyni arkitekt, sem teiknaði Neskirkju, og rabbar um fleira. Kaffiveitingar á Torginu. Selfosskirkja | Bænastund kl. 10 þriðjudaga til föstudaga, kaffisopi á eftir. Foreldramorg- unn í safnaðarheimilinu kl. 10.30, opið hús, kaffisopi og spjall. Vídalínskirkja, Garðasókn | Foreldramorgnar kl. 10-12.30. Mánaðarlegir fyrirlestrar kynntir sérstaklega. Heitt á könnunni. 85ára afmæli. SigrúnJakobsdóttir fyrrver- andi húsfreyja á Þorbrands- stöðum í Vopnafirði er áttatíu og fimm ára í dag. Hlutavelta | Þessar ungu dömur styrktu Rauða kross Íslands með ágóða af tombólu sem þær héldu að Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit. Þær eru: María Rós Magnúsdóttir og Sólveig Lilja Einarsdóttir. dagbók Í dag er miðvikudagur 17. október, 290. dagur ársins 2007 Orð dagsins: Því hungraður var ég, en þér gáfuð mér ekki að eta, þyrstur var ég, en þér gáfuð mér ekki að drekka. (Mt. 25, 42.) Verkefnið 50+, til styrktarstöðu miðaldra og eldrafólks á vinnumarkaði,stendur fyrir fundaröð á Grand hóteli, dagana 19. október, 2. nóvember og 15. nóvember, kl. 8.30 til 10. Gunnar Kristjánsson er formaður verkefnisstjórnar 50+: „Fundaröðin skoðar markmið og möguleika sveigj- anlegra starfsloka á eldri árum,“ seg- ir Gunnar. „Um síðustu áramót voru gerðar breytingar á reglum almanna- trygginga, sem veita eldri borgurum möguleika á að afla tekna upp að vissu marki eftir 70 ára aldur, án þess að komi til skerðingar á lífeyri. Laga- breytingarnar bjóða vissulega upp á aukinn sveigjanleika hjá þessum ald- urshópi, og þarft að skoða vandlega málefni þeirra sem færast nær starfs- lokum við þetta tækifæri.“ Á fundinum 19. október verður einkum fjallað um starfslokamál frá sjónarhorni einstaklingsins með sam- félagslegri skírskotun. Að loknu ávarpi félagsmálaráðherra mun Sig- urður Jóhannesson, hagfræðingur við Hagfræðistofnun HÍ, fjalla um sam- verkan launa- og lífeyristekna og hvort þjóðhagslegur ávinningur sé af atvinnuþátttöku eldra fólks. Því næst mun Sigríður Lillý Baldursdóttir, framkvæmdastjóri þróunarsviðs TR, fjalla um kostnað samfélagsins af því að missa fólk fyrr af vinnumarkaði, bæði út frá heilsufarslegum og fé- lagslegum forsendum. Loks ætlar Hannes G. Sigurðsson, aðstoð- arframkvæmdastjóri SA, að fjalla um breytingar í mannfjöldaþróun næstu áratuga og áhrif þessara breytinga á íslenskan vinnumarkað. „Meðal þess sem skoða þarf er sá mannauður sem fyrirtæki eiga í eldri starfsmönnum, og hvort tilhneiging sé til að vanmeta þá möguleika sem felast í rosknum starfsmönnum,“ seg- ir Gunnar. „Eins er þarft að ræða um útfærslu sveigjanlegra starfsloka, og huga sem best að aðlögun ein- staklingsins fyrir þau umskipti sem felast í því að fara af vinnumarkaði.“ Aðgangur er ókeypis og öllum opin en æskilegt er að þátttakendur skrái þátttöku á netfangið: margret.gunn- arsdottir@vmst.is Morgunverður verður framreiddur frá kl. 8, verð 1.400 kr. Sjá nánar á vinnumalastofnun.is Atvinna | Morgunverðafundaröð á vegum verkefnisins 50+ í okt. og nóv. Sveigjanleg starfslok  Gunnar Krist- jánsson fæddist í Stykkishólmi 1950. Hann lauk kenn- araprófi frá KÍ 1971 og var kenn- ari og síðar skóla- stjóri í 25 ár, í Grundarfirði og Selfossi. Hann hef- ur frá árinu 1997 rekið ásamt eig- inkonu sinni verslunina Hrannarbúðin sf. í Grundarfirði: Hann varð formað- ur verkefnastjórnar 50+ í byrjun árs. Eiginkona Gunnars er Jóhanna Hall- gerður Halldórsdóttir og eiga þau þrjár dætur og fimm barnabörn. Tónlist Dómkirkjan | „Soli Deo Gloria – Guði ein- um dýrð“ eru einkunnarorð tónlistardaga Dómkirkjunnar sem nú eru haldnir í 26. sinn. Gestur tónlistardaganna í ár er Matthias Grunert, kantor við Frauenk- irche í Dresden í Þýskalandi. Hann leikur á orgel Dómkirkjunnar á tónleikum kl. 22. Norræna húsið | Á háskólatónleikum kl. 12.30 flytja Tríó Tómasar R. og söng- konan Ragnheiður Gröndal lög eftir Tóm- as. Flest laganna eru frumflutt. Tríóið skipa auk Tómasar þeir Ómar Guð- jónsson, gítar, og Matthías M. D. Hem- stock, slagverk. Skálholt | Tónleikar í Skálholti kl. 17 „Leyfið börnunum að koma til mín.“ Ein- söngvari Hrólfur Sæmundsson, stj. Sig- urlaug Knutsen og Hilmar Örn Agn- arsson, Skálholtskórinn ásamt kór Miðdalskirkju flytja Kantötu eftir Jón Ás- geirsson. Barna- og kammerkór Bisk- upstungna. Versalir, Ráðhús Þorlákshafnar | Tón- leikar Sigrúnar og Selmu kl. 20. Á efnis- skrá eru m.a. sónötur eftir Edward Grieg og Franz Schubert og Slavneskir dansar eftir Dvorak-Kreisler. Þær Sigrún og Selma hafa starfað lengi saman, gefið út tvo geisladiska og haldið fjölda tónleika. Aðgangur er ókeypis fyrir nemendur í tónlistarnámi. Frístundir og námskeið Hótel Saga | Vinahópur (áður Vinahjálp) verður með brids kl. 13. Fyrirlestrar og fundir HÍ, aðalbygging, stofa 225 | Russel Ald- erson, táknmálstúlkur og kennari, flytur fyrirlestur kl. 16, um samanburðarrann- sóknir á dönsku og íslensku táknmáli, en íslenskt táknmál er talið rekja rætur sín- ar að miklu leyti til Danmerkur. Rætt verður hvort íslenskt táknmál sé sjálf- stætt tungumál eða mállýska úr dönsku. OA-samtökin | Opin deild kl. 20.15, í Gula húsið, Tjarnargötu 20, Reykjavík. Tekið er á móti nýliðum kl. 19.45. Mat- arfíkn getur verið mikið vandamál í lífi fólks. OA-samtökin byggja á 12 spora- kerfi AA-samtakanna. Orkugarður | Í dag kl. 13-14 fjallar Krist- inn Einarsson um olíuleitarmál framtíðar, nýtt hlutverk Orkustofnunar skv. breytt- um lögum um leit, rannsóknir og vinnslu kolvetnis. Einnig er fjallað um áætlanir um útboð rannsóknar- og vinnsluleyfa á Drekasvæðinu við Jan Mayen-hrygg. Nánar á www.os.is Fréttir og tilkynningar Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður við KFC, Krossmóa, kl. 10-17. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar- og fataúthlutun kl. 14-17 í Hátúni 12b. Tekið við hreinum fatnaði og öðrum varningi á þriðjudögum kl 10-15. Sími 551-4349, netfang maedur@simnet.is Stuðningsmenn stjórnarandstöð- unnar í Pakistan sjást hér í mót- mælagöngu í Mansehra. Í kjöl- farið fóru margir þeirra til Karachi þar sem þeir ætl- uðu að fagna endurkomu Be- nazir Bhutto, fyrrverandi for- sætisráðherra landsins, en hún snýr aftur til Pakistans á morgun eftir átta ára sjálfskipaða útlegð. Mótmæli á undan fögnuði ÞEGAR viðburður er skráður í Stað og stund birtist tilkynningin á netinu um leið og ýtt hefur verið á hnappinn „staðfesta“. Skrásetjari getur nýtt sér þann mögu- leika að nota leiðréttingaforritið Púkann til að lesa textann yfir og gera nauðsyn- legar breytingar sé þess þörf. Hver tilkynning er aðeins birt einu sinni í Morg- unblaðinu. Bent er á að hægt er að skrá atburði í liðina félagsstarf og kirkjustarf tvo mánuði fram í tímann. Allur texti sem birtist í Morgunblaðinu er prófarkalesinn. Skráning í Stað og stund Söfnun | Þessir ungu menn á Akureyri söfnuðu flöskum sem þeir síðan seldu og af- hentu Rauða krossinum af- raksturinn, 4.500 kr. Þeir eru: Hákon Þór Tómasson og Bjarki Reyr Tryggvason.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.