Morgunblaðið - 17.10.2007, Page 40
40 MIÐVIKUDAGUR 17. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
WWW.SAMBIO.ISVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á
/ ÁLFABAKKA
THE BRAVE ONE kl. 5:30 - 8D - 10:30D B.i.16.ára DIGITAL
THE BRAVE ONE kl. 8 - 10:30 LÚXUS VIP
STARDUST kl. 5:30D - 8 - 10:30 B.i.10.ára DIGITAL
STARDUST kl. 5:30 LÚXUS VIP
NO RESERVATIONS kl. 8 - 10:30 LEYFÐ
SUPERBAD kl. 8 - 10:30 B.i.12.ára
CHUCK AND LARRY kl. 8 B.i.12.ára
MR. BROOKS kl. 10.30 B.i.16.ára
BRATZ kl. 5:30 LEYFÐ
ASTRÓPÍA kl. 6 LEYFÐ
RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 5:30 LEYFÐ
ER RÉTTLÆTANLEGT
AÐ TAKA LÖGIN Í
SÍNAR HENDUR
ÞEGAR LÖGREGLAN
STENDUR
RÁÐÞROTA?
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
FRÁ FRAMLEIÐANDANUM
MICHAEL MANN
OG LEIKSTJÓRANUM
PETER BERG
eeee
“MARGNÞRUNGI
SPENNUMYND
MEÐ ÞRUMUENDI„
EMPIRE
HVERNIG STÖÐVAR ÞÚ
ÓVIN SEM ER ÓHRÆDDUR
VIÐ AÐ DEYJA?
SÝND Í KRINGLUNNI
- J.I.S., FILM.IS
TÓNLEIKASTAÐIR Iceland Airwaves 2007 eru þessir: Listasafn Reykja-
víkur – Hafnarhús, Gaukurinn, Nasa, Lídó, Iðnó, Organ, Grand rokk, Bar-
inn og Fríkirkjan í Reykjavík. Auk þess mun dagskrá fara fram í Norræna
húsinu alla helgina, þar sem aðgangseyrir er enginn og ekki þörf á Airwa-
ves-miða eða -armbandi. Smærri viðburðir og tónleikar fara fram í plötu-
verslunum, kaffihúsum og annars staðar í miðbænum – ásamt hinu árlega
Airwaves-partíi í Bláa Lóninu.
Dagskrá hátíðarinnar má finna á icelandairwaves.is.
!
" # $
%
Tónleikastaðir og viðburðir
Iceland Airwaves
For a Minor Reflection
Grand rokk kl. 20.15
Sveitin spilar tilraunakennt rokk,
lög sem byrja smátt en enda sem há-
timbraðar hljómahallir.
Poetrix
Gaukurinn 20.45
Það hefur verið til siðs undanfarin ár
að opna Airwaves á hipphoppi og svo
verður einnig að þessu sinni. Poetrix
er með snúnar og vandaðar rímur.
Kannski Bubbi taki lagið með hon-
um.
Sesar A
Gaukurinn 21.20
Sesar A átti sinn þátt í að koma ís-
lensku hipphoppi á koppinn, en flutt-
ist síðan úr landi um hríð. Hann snýr
nú aftur með nýtt efni í farteskinu.
Smoosh
NASA, 21.45
Stelpurnar í Smoosh vöktu gríð-
arlega athygli fyrir frábæra músík
barnungar. Síðan eru liðin nokkur
ár, en þær eru enn bráðungar og enn
skemmtilegar.
Soundspell
NASA 22.30
Hljómsveitin Soundspell kom
skemmtilega á óvart með óhemju
vandaðri og metnaðarfullri breið-
skífu fyrir skemmstu. Hún fær pláss
á besta stað til að sýna sig og sanna.
The Zuchakis Mondeyano Project
Organ 23.15
Hljómsveitin með sérkennilega
nafnið spilar líka sérkennilega tón-
list, einskonar sveiflu-electro-
hipphoppbræðing með súrum text-
um.
Alræði öreiganna
Grand rokk 0.00
Alræði öreiganna sendi frá sér eina
skemmtilegustu plötu síðustu ára
þar sem þeir skældu og skekktu æv-
intýrið um Pétur og úlfinn – fyrsta
flokks progg.
Sequences
Art:21 (Art in the 21st Century)
Safn (Laugavegi 37) 18.00
Forsýning á fjórðu seríu af viðtals-
þáttaröðinni Art:21 (Art in the 21st
Century), þar sem fremstu myndlist-
armenn heims eru teknir tali og verk
þeirra kynnt.
Himnaríki og Helvíti
Dead (Laugavegi 29) 18.00
Sýning Jóns Sæmundar og Haf-
steins Michael.
reykjavíkreykjavíkmælir með …
Sesar A Eyjólfur Eyvindarson.
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ANNUALS eru frá Norður-
Karólínu sem er kannski ekki
þekktasta gróðrarstöð framsæk-
innar rokktónlistar. En engu að síð-
ur var það þar, í Chapel Hill og Ra-
leigh, sem Adam Baker og vinir
hófu að sulla saman í tónlist, þá rétt
skriðnir yfir tíu ára aldurinn. Eftir
að hafa moðast saman í hinum og
þessum hljómsveitum var Annuals
set á fót árið 2003. Fyrsta breið-
skífan, Be He Me (2006), kom henni
síðan rækilega á nýbylgjukortið,
þar sem sjónvarpsmenn á borð við
Conan O’Brien og miðlar eins og
Pitchfork tóku Baker og co. fagn-
andi. Samlíkingar við Arcade Fire
og Sufjan Stevens hafa þá ekki
spillt fyrir.
Hinn tvítugi Baker er í banastuði
í símanum, vel til í að spjalla við
blaðamanninn með harða hreiminn.
„Ég elska þennan íslenska hreim.“
Það blæs skemmtilegum anda í
gegnum símtólið og blaðamaður
spyr, nett kaldhæðinn, hvort Baker
hlakki nú ekki alveg örugglega til
að koma til Íslands. Baker slær hins
vegar vopnin úr höndum blaða-
manns með blátt áfram, 100%
hreinskilnu svari: „Alveg rosalega.
Við getum ekki beðið! Við verðum í
þrjá daga á Íslandi sem er lengri
stopptími en við tökum okkur vana-
lega. Ég hef heyrt að Ísland sé
langskemmtilegasta landið í Skand-
inavíu en Danmörk og Svíþjóð séu
hins vegar hryllingur!“
Annað komið á daginn
Baker segir í framhaldinu að lítið
hafi breyst hvað innviði sveit-
arinnar varðar, eftir að Be He Me
sló í gegn hjá neðanjarðarelítunni.
„Breytingin er sú að það er fleira
fólk komið að bandinu. Fólk sem
sér um útgáfumál, tónleikaferðir
og slíkt. En við í sveitinni erum jafn
náin og alltaf. Ekkert hefur breyst
þar. Þetta eru bestu vinir mínir.“
Aðspurður hvort það sé erfitt að
gæta listrænna heilinda þegar
menn verða skyndilega skotspónn
athygli segir hann svo ekki vera.
„Nei, en ég skil hvað þú ert að
fara. Maður hugsar kannski meira
um það sem maður er að fara út í en
ég gef ekki tommu eftir hvað laga-
smíðarnar varðar. Á Be He Me eru
lög sem ég samdi fyrir löngu, þegar
ég hélt að enginn myndi heyra þau
nokkurn tíma nema þessir tugir
manna sem hafa pikkað upp þessar
fyrstu útgáfur okkar. En annað
hefur komið á daginn …“
Draumar rætast
Bandaríska nýbylgjusveitin Annuals er á feiknaflugi um
þessar mundir. Hún spilar í Hafnarhúsi á laugardaginn
Skandinavíu? „Ég hef heyrt að Ísland sé langskemmtilegasta landið í Skandinavíu.“
www.myspace.com/annuals
www.icelandairwaves.is