Morgunblaðið - 27.11.2007, Síða 38

Morgunblaðið - 27.11.2007, Síða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ 24.11.2007 2 3 4 25 33 5 7 7 2 2 0 6 6 7 2 11 21.11.2007 4 10 15 26 42 43 25 7 Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir Dan in Real Life kl. 3:40 - 5:45 - 8 - 10:15 Dan in Real Life kl. 3:40 - 5:45 - 10:15 LÚXUS Wedding Daze kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 10 ára Balls of Fury kl. 4 - 6 - 8 B.i. 7 ára Heartbreak Kid kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára Lions For Lambs kl. 10 B.i. 12 ára Ævintýraeyja Ibba m/ísl. tali kl. 4 - 6 Dan in Real Life kl. 8 - 10 Rendition kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára Wedding Daze kl. 6 B.i. 10 ára Rogue Assassin kl. 6 B.i. 16 ára Sími 564 0000Sími 462 3500 Dan in Real Life kl. 5:45 - 8 - 10:15 La Vie en Rose kl. 5:20 - 8 - 10:40 B.i. 12 ára Lions For Lambs kl. 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára This is England kl. 6 - 8 - 10 * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu 450 KRÓNUR Í BÍÓ * Sími 551 9000 Ve rð a ðeins 600 kr . Með íslensku tali - Kauptu bíómiðann á netinu - THIS IS ENGLAND FRÁBÆR GRÍNMYND FRÁ LEIKSTJÓRUM "THERE´S SOMETHING ABOUT MARY" ÁSTARSORG Gríðarstór gamanmynd með litlum kúlum! BORÐTENNISBULL Vönduð frönsk stórmynd, sem er að fara sigurför um heiminn, um litskrúðuga ævi Edith Piaf. LÍF RÓSARINNAR: SAGA EDITH PIAF Stórskemmtileg rómantísk gamanmynd um ungan mann sem er sannfærður um að hann muni aldrei verða ástfanginn aftur! Sannkölluð stórmynd með mögnuðum leikurum. LJÓN FYRIR LÖMB eeee - V.J.V., Topp5.is eeee - EmpireDAN Í RAUN OG VERU Frábær róman tísk ga man- mynd e ftir ha ndrith öfund About a Boy Eitthvað hefur komið fyrir Dan. Það er flókið. Það er óvenjulegt. Það er fjölskylduvandamál. Steve Carell úr 40 year Old Virgin og Evan Almighty leikur ekkill sem verður ástfanginn af kærastu bróður síns! S T E V E C A R E L L Hvað ef sá sem þú elskar... Hverfur sporlaust? eeee - H.J. Mbl. eeee - T.S.K., 24 Stundir eee - Ó.H.T., Rás 2 “Grípandi!” eee - H.J., MBL “Töfrandi” EKKILLINN Dan (Carell) er kom- inn í árlegt frí til foreldra sinna með dæturnar þrjár í eftirdragi. Það er löng hefð fyrir þessum heimsóknum, þar sem stórfjölskyldan kemur sam- an á æskuheimilinu, glæsivillu á Rhode Island. Dan er dálkahöf- undur sem gefur lesendum heilræði í skrifum sínum, og bókaormur sem lítur inn í bókabúð á leiðinni, og sá krókur á eftir að draga dilk á eftir sér. Dan hefur verið ekkill í fjögur ár og verið lítið við konur kenndur síð- an, en í bókabúðinni hittir hann Marie (Binoche), undurfagra konu sem tekur hann fyrir afgreiðslu- mann og þau kynnast lítils háttar. Dan vill hitta Marie aftur en á því eru meinbugir nokkrir, konan segist vera nýbyrjuð í föstu sambandi. Ættarmótið hefst og þegar Mitch (Cook), piparsveinninn og hjarta- knúsarinn í fjölskyldunni, birtist kemur hann á óvart, með kærustu sér við hlið. Þar er komin Marie úr bókabúðinni og Dan veit ekki í hvorn fótinn hann á að stíga. Í staðinn fyrir að þau Dan og Mar- ie greini fólkinu frá kynnum sínum yfir Tolstoy og Dickinson fær hand- ritshöfundurinn og leikstjórinn Hed- ges þá hugmynd að sjóða saman til- finningaþrunginn og hjartnæman há-amerískan söguþráð þar sem ótrúverðug ást skötuhjúanna þróast yfir helgina undir þessum pínlegu kringumstæðum, uns hún verður óbærileg. Áhorfendum líka. Ásta- málin sprengja allt utan af sér, hefð- ir og sambönd og skapa urg og óár- an í hópnum. Bróðirinn tryllist, og fjölskyldan verður æf út í Dan, þó svo hún hafi verið að svekkja mann- greyið með illkvittnislegum at- hugasemdum frá mætingu hans. Dæturnar þrjár láta ekki sitt eftir liggja og nú er sjálfsagt nóg komið af vitneskju um hið mislukkaða fjöl- skylduhóf. Þetta er ákaflega vel meint og elskuleg flétta, svo langt sem hún nær, ef áhorfendur eru tilbúnir að kaupa sápuverksmiðju-strindberg með fáránlegri ástarsögu harðfull- orðins fólks, illþolandi tilgerð- arsamkundu þar sem fjölskyldu- meðlimirnir syngja eins og englar, stunda af fágætri list hópdans í görðum, og spila keilu undir háróm- antískum ljósabúnaði. Myndin er innantóm og ótrúverðug, að- alpersónan er full af sjálfsmeð- aumkvun og enn meiri sjálfsásök- unum, hver einasta persóna er klisjukennd. Engin lífsins leið er að ná teng- ingu við yfirborðskenndar aðal- persónurnar, utan yngstu dótturina. Álíka vonlítið er að taka mark á end- inum; Dan er í rauninni umvafinn ótrúlegum óraunveruleika frá upp- hafi til enda. Dan í botnlausu óraunsæi KVIKMYNDIR Smárabíó, Regnboginn, Borgarbíó Akureyri Leikstjóri: Peter Hedges. Aðalleikarar: Steve Carell, Juliette Binoche, Dane Co- ok, Dianne Wiest, John Mahoney. 95 mín. Bandaríkin 2007. Dan í raun og veru - Dan in Real Life  Óraunveruleg „Myndin er innantóm og ótrúverðug, aðalpersónan er full af sjálfsmeðaumkvun [...].“ Sæbjörn Valdimarsson EINBÝLISHÚS sem var í eigu Flea, bassaleikara bandarísku rokk- sveitarinnar Red Hot Chili Peppers, brann til kaldra kola í skógareld- unum sem geisað hafa í Kaliforníu. Húsið, sem var metið á 2,6 milljónir dollara, rúmlega 160 milljónir ís- lenskra króna, var í Malibu og er tal- ið ónýtt eftir að hafa orðið eldinum að bráð um helgina. Flea var ekki heima þegar kviknaði í húsinu. Fjölmargar þekktar stjörnur sem búa á svæðinu hafa þurft að yfirgefa heimili sín, en á meðal þeirra eru Minnie Driver, Matthew McConaug- hey, Britney Spears, Jim Carrey, Sting, Pierce Brosnan, Courteney Cox og Bill Murray. Óheppinn Bassaleikarinn Flea. Flea missti húsið í eldi FREGNIR herma að bandaríska leikkonan Rosanna Arquette sé nýj- asta kærasta Bítilsins Pauls McCartneys. Arquette, sem er 48 ára, hefur ítrekað sést með hinum 65 ára McCartney undir fremur rómantískum kringumstæðum. Þau kynntust fyrst í veislu í New York í júní, og skömmu síðar sást til þeirra á tónleikum. Á mánudaginn fyrir viku sáust þau svo leiðast í Kentwood House-garðinum í Lund- únum sem þykir benda til að sam- bandið sé orðið alvarlegt, en þau höfðu einnig sést saman kvöldið áð- ur. Parið hefur reynt að fara leynt með sambandið, án árangurs. Arquette hefur leikið í fjölda kvikmynda en hún er trúlega þekktust fyrir hlutverk sitt í Pulp Fiction. Paul McCartney Rosanna Arquette McCartney með Arquette?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.