Morgunblaðið - 27.11.2007, Page 41

Morgunblaðið - 27.11.2007, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 27. NÓVEMBER 2007 41 sjónarsömum stellingum. Mér var sagt að lestur á manga hefði dregist töluvert saman frá miðjum 10. ára- tug síðustu aldar þegar manga bók- staflega tröllreið japanskri lestrar- menningu. Sala á fjölda titla hefur síðan dregist mikið saman og al- mennt er eins og stemningin fyrir forminu sé takmarkaðri en hún var áður. Töluverðu af manga-verslun- um hefur þurft að loka. Ekki er vitað hvað veldur þessari lægð en hún byggir væntanlega á flóknu samspili markaðs og menningarþátta. Þessa hnignun var þó ekki að sjá í áður- nefndum verslunarkjarna, Nakano Broadway, þar sem heil hæð er undirlögð öllu því sem hugur myndasögunörds kann að girnast, þar var allt frá endalausu úrvali lít- illa vínylfígúra til búninga úr manga og anime (japönskum teiknimynd- um) í fullri stærð. Manga-búðir eru erfiðir staðir. Áreitið er fullkomið. Hávaðinn, lit- irnir og lyktin blandast saman í kok- teil sem erfitt er að lýsa. Skynfærin hafa ekki undan. Þúsundir manga- titla þekja hillurnar frá parketi til loftflísa og í boði eru endalausar sög- ur á þessu fallega, óskiljanlega máli. Í raun eru fyrstu viðbrögð áhuga- mannsins að hlaupa fram og aftur, reyna að finna efni sem maður þekk- ir úr vestrænum þýðingum og vinna sig þaðan inn á við. Snemma í ferlinu áttar maður sig þó á að slíkt er hæg- ara sagt en gert. Í fyrsta lagi eru all- ar merkingar með japönsku letri og flestar forsíður eru frábrugðnar því sem maður á að venjast. Maður þarf því helst að fletta í bókunum til að komast að innihaldinu, en þá rekur maður sig á að flestar eru þær í plasti, þannig að erfitt getur verið að átta sig á hvort um sojo- eða ju hachi kin-manga (bannað innan 18 ára) er að ræða og slík mistök geta verið dýrkeypt. Manga-verslanir voru líka einu staðirnir sem við komum á þar sem þjónustan var slök. Afgreiðslu- fólkið skeytti varla um fyrirspurnir og benti bara eitthvað út og suður eins og til að losna við mann sem fyrst. Mér var einmitt sagt seinna að það væri talið mikið vandamál hve margir sem vinna við sölu manga eru síst mannblendnir, og finnst því nýjum kúnnum þeir oft vera óvel- komnir. Einnig reyndi ég ítrekað að spyrja hvort ég mætti taka ljósmynd af dýrðinni en þá hlupu menn upp til handa og fóta með boð og bönn. Það var rétt að ég næði að stelast til að smella af nokkrum myndum í slök- um gæðum til að geta sýnt þegar heim var komið. Fyrir áhugamann um myndasög- ur er heimsókn til Tókýó ómissandi. Eftir að heim var komið og ég fór að fletta manga-blöðum fann ég að sá takmarkaði skilningur sem ég hafði þó fengið á japanskri menningu á þessum stutta tíma stórbætti skiln- ing minn á frásagnarmáta og um- fjöllunarefni japanskra mynda- sagna. Það var eins og hulunni hefði verið svipt af leyndardómnum. Tók- ýó er í alla staði fyrirtaksstaður til heimsóknar. Þrátt fyrir mann- mergðina gerir hið japanska skipu- lag manni auðvelt fyrir og ég þreyt- ist seint á að hrósa japönum fyrir kurteisi og hjálpsemi. Snorri okkar skemmti sér líka vel þótt hann hafi oft þurft að sýna aðdáunarverða þolinmæði í kerrunni sinni meðan foreldrarnir stóðu týndir á götu- hornum. Borgin býður upp á ótelj- andi möguleika sem vert er að skoða betur. Við hlökkum mikið til að kom- ast þangað aftur. Takk Tókýó. Sojo- eða ju hachi kin Þúsundir manga-titla þekja hillurnar. Höfundur skrifar um myndasögur í Morgunblaðið. Upp með Vestfirði! Pantanir: 456-8181- jons@snerpa.is Vestfirska forlagið Hver var Jón Sigurðsson? Allir Íslendingar ættu að kunna skil á nokkrum grund- vallaratriðum úr ævi Jóns Sigurðssonar. Ekki þó hans vegna, sem löngu er fallinn frá, heldur okkar sjálfra vegna sem lifum á undarlegum tím- um. Minnumst þess, að ef við gleymum sögu okkar, er hætta á að við týnumst í eigin landi. Látum það ekki henda okkur, að þeir sem eiga að erfa landið, viti ekki hvers vegna 17. júní var valinn þjóð- hátíðardagur á Íslandi. Á nokkrum stöðum eru kaflar sem nefnast Til áherslu. Þá ættu sem flestir, einkum þeir sem ungir eru, að læra utan að. Það eru eindregin tilmæli til allra hinna eldri að hlýða ungdómnum yfir þá og láta æskulýðinn bara læra þetta utanað. Munið: Ungur nemur gamall temur. Sumt af því sem menn lærðu í æsku, muna margir ævi- langt. Þá þarf ekkert að vera að fletta því upp í tölvu! Auk þess hafa allir gott af að læra eitthvað utanbókar. Verð: 390,-kr. Fæst í bókaverslunum um land allt SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI / AKUREYRI/ KRINGLUNNI BEOWULF kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára WEDDING DAZE kl. 8 LEYFÐ 30 DAYS OF NIGHT kl. 10 B.i. 16 ára / KEFLAVÍK / SELFOSSI SAMBÍÓIN - EINA BÍÓKEÐJAN Á ÍSLANDI WWW.SAMBIO.IS SÝND Í ÁLFABAKKA BEOWULF kl. 6 - 8 - 10:10 B.i. 12 ára AMERICAN GANGSTER kl. 8 B.i. 16 ára ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ BEOWULF kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára 3D-DIGITAL AMERICAN GANGSTER kl. 6D - 9D B.i. 16 ára DIGITAL THE INVASION kl. 10 B.i. 16 ára FORELDRAR kl. 6 - 8 B.i. 7 ára „RIDLEY SCOTT LEIKSTÝRIR RUSSELL CROWE OG DENZEL WASHINGTON Í BESTU MYND ÞESSA ÁRS!“ Ó.E. „Óskarsakademían mun standa á öndinni... toppmynd í alla staði.“ Dóri DNA - DV eeee „American gangster er vönduð og tilþrifamikil“ - S.V., MBL eeee „MÖGNUГ C.P. USA,TODAY eeee HJ. - MBL 600 kr.M iðaverð VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA eeee ,,Virkilega vönduð glæpamynd í anda þeirra sígildu.” - LIB, TOPP5.IS SÝND Í KRINGLUNNI 6 EDDUVERÐLAUN KVIKMYND ÁRSINS HANDRIT ÁRSINS LEIKSTJÓRI ÁRSINS LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI MYNDATAKA OG KLIPPING eeee KVIKMYNDIR.IS SÝND Í KRINGLUNNI SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í KEFLAVÍK SÝND Á SELFOSSI BEOWULF kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára MR. WOODCOCK kl. 8 - 10 LEYFÐ SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI UPPSELT er á jólatónleika sænsku söngkonunnar Carolu sem fara fram í Grafarvogskirkju hinn 20. desember kl. 20, en samið hefur verið um aukatónleika sem fara munu fram kl. 22 það sama kvöld. Carola kemur fram ásamt sænsku tónlistarfólki og flytur efni af nýrri jólaplötu. Carola er hvað þekktust fyrir þátttöku sína í Evr- óvisjón en hún vann þá keppni árið 1991 með laginu „Fångad av en Stormvind.“ Carola þykir hafa bæði kraft- mikla rödd og gott vald á mjúku og hlýju tónunum sem eiga vel við jólalögin, og því verður að teljast líklegt að bæði hátíðleg og hlýleg jólastemning muni umvefja tón- leikagesti í Grafarvogskirkju. Miðasala á aukatónleikana hefst kl. 10 í dag og fer hún fram í Fíla- delfíu, Hátúni 2, í síma 535 4700 og á hljomar.is. Miðaverð er 5.900 kr. Carola heldur aukatónleika Vinsæl Carola á greinilega aðdá- endur hér á landi. BANDARÍSKA söngkonan Brit- ney Spears vinn- ur nú að því að ættleiða kín- verska tvíbura. Spears, sem missti nýverið forræðið yfir sonum sínum tveimur, hefur að undanförnu staðið í samningaviðræðum við stofnun sem sérhæfir sig í ættleið- ingum, en um er að ræða sex ára tvíbura. Ekki er vitað hvert kyn þeirra er. Vinir söngkonunnar segja að hún þurfi eitthvað til þess að fylla í það tómarúm sem myndaðist þegar hún missti forræðið yfir drengjunum tveimur en þá fær hún aðeins að hitta þrisvar í viku. Britney vill ættleiða tvíbura Myndarleg Britney Spears. KEVIN DuBrow, söngvari og for- sprakki bandarísku þungarokks- hljómsveitarinnar Quiet Riot, fannst látinn á heimili sínu í Las Vegas á sunnudaginn. Það var Frankie Banali, trommuleikari sveitarinnar, sem greindi frá þessu á heimasíðu sinni. DuBrow varð 52 ára í síðasta mánuði og var talinn við góða heilsu. Ekki er vitað hvað dró hann til dauða. Quiet Riot naut mikilla vinsælda í upphafi níunda áratugar seinustu aldar, en platan Metal Health sem kom út árið 1983 komst í efsta sæti bandaríska vinsældalistans það ár. Margir þekkja eflaust eitt lag af plötunni, slagarann „Cum on Feel the Noize“. Söngvari Quiet Riot látinn Þögult uppþot Kevin DuBrow.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.