Morgunblaðið - 01.12.2007, Page 1
STOFNAÐ 1913 328. TBL. 95. ÁRG. LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
LJÓSBERARNIR
Á AÐVENTUNNI ER HUGGULEGT OG
HLÝLEGT AÐ KVEIKJA Á KERTUM >> 32
FRÉTTASKÝRING
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
DÓMSMÁLARÁÐHERRA und-
irritaði í lok vikunnar reglugerð sem
verður fyrirmynd að lögreglusam-
þykktum sveitarfélaga og kemur í
stað lögreglusamþykktar í sveitar-
félögum þar sem engin slík hefur
verið sett. Þetta er í fyrsta skipti
sem slík samræmd lögreglusam-
þykkt er gefin út hér á landi.
Í lögum um lögreglusamþykktir
sem tóku gildi árið 1988, fyrir tæp-
lega 20 árum, er mælt fyrir um að
þessi reglugerð verði sett. Engin
sérstök skýring er á því hvers vegna
svo langur tími leið frá því lögin voru
sett og þar til reglugerðin leit dags-
ins ljós, samkvæmt upplýsingum frá
dómsmálaráðuneytinu, en þess ber
auðvitað að geta að í lögunum frá
1988 voru dómsmálaráðherra ekki
sett nein sérstök tímamörk, hvorki í
árum né áratugum.
Geta breytt og bætt
Eins og fyrr segir er reglugerð-
inni ætlað að vera fyrirmynd að lög-
reglusamþykktum en það er ekki þar
með sagt að sveitarfélögin þurfi að
hafa sínar samþykktir nákvæmlega
eins. Þannig geta sveitarfélög bætt
við ákvæðum eða breytt, allt eftir að-
stæðum á hverjum stað. Það er því í
sjálfu sér ekkert því til fyrirstöðu að
í lögreglusamþykkt Árborgar verði
áfram ákvæði um að umferð skipa,
báta og annarra vatnafarartækja sé
bönnuð á Ölfusá.
Nýja reglugerðin um lögreglu-
samþykktir tekur gildi eftir sex
mánuði og sex mánuðum síðar munu
hinar eldri samþykktir falla úr gildi,
nema sveitarfélögin hafi áður breytt
sínum samþykktum.
Í ljósi þess að lögregluembætti
hafa stækkað mjög og ná yfir mun
fleiri sveitarfélög en áður má ætla að
þessi samræming sé tímabær. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lögreglunni
á höfuðborgarsvæðinu hafa hinar
mismunandi lögreglusamþykktir
sveitarfélaganna sjö á svæðinu þó
ekki valdið neinum sérstökum vand-
ræðum við löggæslu.
Morgunblaðið/Eyþór
Bannað Í nýju samþykktinni er
bannað að henda rusli.
Sam-
þykkt
fyrir alla
Ný lögreglusamþykkt
verði fyrirmynd
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
STÓRIR hluthafar í FL Group,
með Jón Ásgeir Jóhannesson
stjórnarformann í fararbroddi, hafa
tekið ákvörðun um að fram fari
hlutafjáraukning í félaginu, sem
verði á bilinu 60 til 70 milljarðar
króna. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins kemur aukningin
nánast öll frá Baugi, sem mun
renna stórum hluta af fasteigna-
safni sínu inn í FL Group. Þannig
fer eignarhlutur Baugs í FL Group
úr 17,7% í 38-39%, þannig að ekki
myndast yfirtökuskylda hjá Baugi.
Meðeigendur Baugs í FL Group
eru, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins, flestir mjög
ánægðir með að Baugur skuli
ákveða að auka hlut sinn með ofan-
greindum hætti og að Jón Ásgeir
Jóhannesson taki ótvíræða forystu í
félaginu.
Flestir stórir hluthafar hafa af-
salað sér rétti til þátttöku í hluta-
fjáraukningunni. Ekki er talið að
Hannes Smárason hafi fjárhagslega
burði til þátttöku í aukningunni og
mun eignarhlutur hans því þynnast
úr rúmum 20% í um 10% hlut.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að líklegt sé að Hannes Smárason
muni hætta sem forstjóri FL Group
á næstunni. Ekki liggi fyrir hver
taki við af honum.
Eignarhlutur annarra hluthafa
mun að sama skapi þynnast. Þannig
minnkar eignarhlutur Gnúps, fjár-
festingarfélags í eigu Kristins
Björnssonar, Magnúsar Kristins-
sonar og Þórðar Más Jóhannesson-
ar umtalsvert, sömuleiðis hlutur
Materia Invest, sem er í eigu Þor-
steins Jónssonar, Magnúsar Ár-
mann og Kevin Stanford, eignar-
hlutur FS37 ehf. og Solomons ehf.
Óljóst er hvort eignarhlutur Sunds
minnkar.
Ákveðið hefur verið að gengi
bréfa í hlutafjáraukningunni verði
19, sem er um 1,9 undir lokagengi
FL Group í Kauphöllinni í gær,
sem var 20,9, en það er tæplega
10% undir markaðsgengi.
Búist er við að eigendur FL
kynni Landsbankanum og öðrum
lánardrottnum sínum þessi áform
nú um helgina. Jafnframt er ráð-
gert að óháðir matsaðilar meti þær
eignir sem Baugur vill renna inn í
FL Group, áður en endanlega verð-
ur gengið frá hversu mikil hluta-
fjáraukning verður í raun og veru.
Þá mun ráðgert að kalla fljótlega
saman hluthafafund, þar sem ný
stjórn verður kjörin og gengið frá
ráðningu nýs forstjóra.
Baugur í 38-39% í FL
Í HNOTSKURN
»FL á 31% í Glitni og tengd-ir aðilar eiga önnur 8%.
Eftir hlutafjáraukningu verð-
ur Baugur með ráðandi hlut í
Glitni.
»Eftir hlutafjáraukninguverður markaðsvirði fé-
lagsins nálægt 260 milljörðum
króna.
»Eignarhlutur flestra ann-arra hluthafa en Baugs
minnkar því að hluthafar af-
sala sér rétti til þátttöku í
hlutafjáraukningunni.
Hlutafé aukið í FL Group um allt að 70 milljarða króna Baugur rennir stórum
hluta fasteignasafns síns inn í FL Group Ný stjórn verður kosin fljótlega
„BÍLSTJÓRAR geta átt von á okk-
ur hvar og hvenær sem er,“ segir
Árni Friðleifsson, varðstjóri um-
ferðardeildar lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu, en hún hóf í
gærkvöldi sérstakt átak gegn ölv-
unarakstri sem standa mun til ára-
móta. Átakið hófst á Sæbrautinni
þar sem allir bílar á vesturleið
voru stöðvaðir og bílstjórar beðnir
að blása í blöðru. Ungu stúlkurnar
á myndinni voru auðvitað með allt
sitt á hreinu. Að sögn Árna tóku
ökumenn þessu vel og ljóst var að
þeir voru ánægðir með aukið eft-
irlit. Segir hann markmið átaksins
vera að vekja athygli á þeirri
hættu sem stafar af ölvunarakstri
og að hvetja fólk til almennrar
varkárni í umferðinni í desem-
berösinni.Morgunblaðið/Júlíus
450 bílar
stöðvaðir á
Sæbraut
VIÐBRÖGÐ á markaði eru með allt öðrum hætti hér á
landi en erlendis þegar spár um verðbólgu ganga ekki
eftir. Hér á landi lækka vextir ef verðbólga er yfir
væntingum, en hækka ef verðbólga er minni en spáð
var. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings,
segir að skýringin á þessu sé verðtryggingin. Hún
valdi því að stýrivaxtavopn Seðlabankans virki seint og
illa.
„Ég held að það megi gagnrýna stjórnvöld fyrir eitt.
Íslenska ríkið á tvo banka, Seðlabanka Íslands og íbúða-
banka ríkisins, sem toga hvor í sína áttina. Á und-
anförnum fjórum árum hefur Seðlabankinn hækkað og
hækkað vexti, en íbúðabanki ríkisins hefur reynt með öllum tiltækum ráð-
um að halda vöxtum niðri.“ | Miðopna
Viðbrögð með allt
öðrum hætti hér
Hreiðar Már
Sigurðsson
Leikhúsin í landinu
Töfrar leikhúsins
>> 64