Morgunblaðið - 04.12.2007, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
STARFSMENN Vélsmiðju Orms
og Víglundar (VOOV) í Hafnarfirði
unnu í gær að tiltekt, málningu og
lokafrágangi á þeim verkþáttum
sem vélsmiðjan tók að sér. Verið var
að taka bakborðsakkerið um borð og
rann akkeriskeðjan með skruðn-
ingum yfir nýja perustefnið.
Guðmundur Víglundsson, fram-
kvæmdastjóri VOOV, sagði að skipið
hefði verið endurnýjað nánast frá
kili og upp í mastur auk þess sem
gerðar voru á því verulegar breyt-
ingar. Á skrokkinn var sett peru-
stefni sem auka á sjóhæfni skipsins,
byggð vöruflutningalest á þilfar og
settar vökvaknúnar hurðir og lúgur
á lestar. Þá var settur vökvaknúinn
rampur á skut skipsins svo hægt
verður að aka tækjum og bílum að
og frá borði. Vélbúnaður allur og
skrúfubúnaður var tekinn upp og
endurnýjaður, að undanskildum gír-
um aðalvéla. Um borð í skipinu eru
alls sjö vélar, tvær aðalvélar og
fimm ljósa- og hjálparvélar.
Aðstaða fyrir farþega verður í
tveimur sölum. Í farþegasal á efra
þilfari er gert ráð fyrir 57 stólum og
þar verða sjónvarpsskjáir til afþrey-
ingar auk þess sem farþegar geta
notið útsýnis um stóra glugga sem
eru á þrjá vegu. Á neðra þilfari verð-
ur veitingasalur og eldhús. Þar er
líka svonefndur sjúkraklefi, það er
klefi með einni koju og tveimur legu-
bekkjum. Gert er ráð fyrir því að
áhöfnin geti gist um borð í skipinu ef
þörf krefur, t.d. ef það tefst vegna
veðurs. Neðan þilja eru fjórir klefar
fyrir áhöfn og klefi fyrir skipstjór-
ann í brú.
Guðmundur taldi mikilvægt að
hafa fengið þetta verkefni unnið hér
innanlands. Það stuðlaði að varð-
veislu mikilvægrar verkþekkingar á
skipasmíðum og skipaviðgerðum.
Hann taldi gagnrýni á tafir og
hækkun kostnaðar vera óréttmæta,
því verkið væri unnið eftir föstu ein-
ingaverði. Umfang verksins hefði
hins vegar orðið miklu meira en upp-
haflega var gert ráð fyrir.
Nokkur atriði eftir
Eftir er að útbúa farþegainngang
á stjórnborðshlið sem fær verður
hreyfihömluðum og samsvarandi
neyðarútgang bakborðsmegin.
Einnig er eftir að setja borð og stóla
í farþegarými. G. Pétur Matthías-
son, upplýsingafulltrúi Vegagerð-
arinnar, taldi að verkþættir sem eft-
ir væru tækju ekki langan tíma.
Stefnt er að því að ferjan hefji áætl-
unarsiglingar eftir næstu áramót.
Grímseyjar-
ferjan afhent
á morgun
Vélsmiðja Orms og Víglundar er að ljúka þeim
verkþáttum við nýju ferjuna sem fyrirtækið tók
að sér. Nokkrum atriðum er ólokið áður en ferjan
hefur áætlunarsiglingar. M.a. er eftir að setja
húsgögn í farþegarými og útbúa nýjan farþega-
inngang og samsvarandi neyðarútgang.
Morgunblaðið/RAX
Fjölnota ferja Guðmundur Víglundsson í vörulest á þilfari en þar er yfirbyggt rými til vöruflutninga og einnig
stór lest neðan þilja. Fullkominn vökvaknúinn búnaður opnar og lokar lúgum og hlerum á lestunum.
Farþegasalur Gert er ráð fyrir 57 stólum fyrir farþega
í sal á efra þilfari. Þar verða sjónvörp til afþreyingar.
Veitingasalur Á neðra þilfari verður eldhús og veit-
ingaaðstaða fyrir farþega.
SKRIFSTOFUR Grímseyjarhrepps
voru enn innsiglaðar í gærkvöldi og
ákvörðun hefur ekki verið tekin um
það hvenær innsiglið verður rofið.
Líkt og fram kom í Morgunblaðinu í
gær, innsiglaði fulltrúi sýslumanns
skrifstofurnar fyrir helgi. Rök-
studdur grunur liggur fyrir um að
sveitarstjórinn hafi dregið að sér fé
og framið önnur bókhaldsbrot.
Garðar Ólason, einn þriggja
sveitarstjórnarmanna, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að ekki
hefði verið tekin ákvörðun um
hvort lögregla rannsakaði málið.
Fundað var með sýslumanninum á
Akureyri í gær og komist að þeirri
niðurstöðu að umfang málsins yrði
fundið áður en frekari ákvarðanir
verði teknar. Líklegt er þó að lög-
regla verði kölluð til rannsóknar.
Málið þykir afar viðkvæmt en
oddviti Grímseyjarhrepps var fyrir
skömmu dæmdur í þriggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir þjófn-
að á olíu.
Bókhaldið verður rannsakað
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
SAMKEPPNI um lögfræðinga fer
harðnandi og seilast fjármálafyrir-
tæki, fasteignafélög, lögmannsstofur
og fleiri einkafyrirtæki í auknum
mæli eftir sérfræðingum ráðuneyta.
Ráðuneytin eru vart samkeppnishæf
er kemur að launum, enda laun ráðu-
neytisstjóra og skrifstofustjóra (þar
til sl. sumar) bundin af ákvörðun
kjararáðs. Þótt aðrir starfsmenn séu
ekki á launum samkvæmt því setja
ákvarðanir ráðsins ákveðin viðmið.
Samkeppnin er þó ekki síður á
milli einkafyrirtækjanna sjálfra og
einnig eru dæmi um það að ráðuneyt-
in nái til sín starfsfólki úr einkageir-
anum. Fleiri lögfræðingar útskrifast
nú en áður en það virðist ekki duga
til. „Mér sýnist að markaðurinn fyrir
lögfræðinga sé frekar eftirspurnar-
en framboðsmarkaður,“ segir m.a.
einn ráðuneytisstjóri sem Morgun-
blaðið ræddi við. Einn viðmælandi
sagði að erfitt væri nú að fá lögfræð-
inga til starfa í ráðuneytunum en
annar sagði það ekki stórt vandamál.
Hreyfing á fólki
Starfsmannavelta bæði í opinbera
og einkageiranum hefur almennt
aukist sem m.a. skýrist af fjölgun at-
vinnutækifæra og því að starfsfólk er
nú hreyfanlegra en áður, vill afla sér
sem víðtækastrar reynslu og þekk-
ingar. Hollusta við ákveðinn vinnu-
veitanda fyrir lífstíð er því á miklu
undanhaldi. „Það er liðin tíð að menn
séu á sama vinnustað í 25 ár,“ segir
einn lögfræðingur sem starfaði hjá
ráðuneyti í nokkur ár en hefur nú
söðlað um og fært sig yfir í einkageir-
ann. Hann segir launin vissulega
hærri en ákvörðunin hafi fyrst og
fremst byggst á því að afla sér auk-
innar reynslu á öðrum sviðum lög-
fræðinnar.
Agi og reynsla
En hvers vegna ásælast einkafyr-
irtækin sérfræðinga ráðuneytanna?
Margt kemur til. Þar lærast fólki
ákveðin vinnubrögð og agi, þar fær
það einnig þjálfun í alþjóðasamskipt-
um og stjórnsýslurétti sem hefur víða
skírskotun í lögfræðinni. „Að starfa
hjá ráðuneyti er rosalega góður
skóli,“ segir fyrrverandi ráðuneytis-
starfsmaður. Kostir þess að starfa í
ráðuneytum eru m.a. þeir að þar
býðst meira starfsöryggi en í einka-
geiranum, lífeyrisréttindi eru betri
og starfsfólki er falin mikil ábyrgð
sem færir því mikla reynslu. „Í ráðu-
neytunum bjóðast spennandi verk-
efni sem áhrif hafa á þjóðfélagið í
heild, ekki eingöngu eitt fyrirtæki,“
segir ráðuneytisstjóri sem rætt var
við.
Álagið svipað
Lengi vel var skaplegur vinnutími
einn af fýsilegustu kostum þess að
starfa hjá ráðuneytum. Það á hins
vegar ekki endilega við í dag, að mati
viðmælenda Morgunblaðsins. Vinnu-
álag er vaxandi, því ekki fækkar
verkefnum nema síður sé. „Flækju-
stigið og álagið er ekki mjög ólíkt,“
segir fyrrverandi ráðuneytisstarfs-
maður sem nú starfar í einkageiran-
um. „Hagsmunirnir eru hins vegar
aðrir. Í einkageiranum er þetta ein-
göngu spurningin um afkomu.“
Annar viðmælandi, sem starfar hjá
ráðuneyti, orðar muninn á störfum
hjá hinu opinbera og einkafyrirtækj-
um á þennan veg: „Eftir sem áður
eru flestir á því að störf innan ráðu-
neytanna og hinu opinbera almennt
séu gefandi enda fólk þar að ákveðnu
leyti að vinna í almannaþágu. Það er
hins vegar ekki alveg metið til fjár.“
Bitist um lögfræðinga
Samkeppni um lögfræðinga fer harðnandi og einkafyrirtæki
seilast í auknum mæli eftir „reynsluboltum“ ráðuneytanna
Morgunblaðið/Jim Smart
Samkeppni Starfsmenn stjórnarráðsins eru eftirsóttir starfskraftar.
Enn betra golf 3
Enn betra golf
Eftir
Arnar Má Ólafsson
landsliðsþjálfara og
Úlfar Jónsson
margfaldan
Íslandsmeistara
og golfkennara
Eftir Arnar Má Ólafsson
landsliðsþjálfara og
Úlfar Jónsson
margfaldan Íslandsmeistar
a
GOLF
ENN BETRABETRA
G
O
LF
A
rnar M
ár Ó
lafsson og Ú
lfar Jónsson
11/20/07 11:46:42 PM
Jólabók golfarans!
Borgartúni 23 · 105 Reykjavík · Sími: 512 7575 - www.heimur.is
eftir Arnar Má Ólafsson og Úlfar Jónsson