Morgunblaðið - 04.12.2007, Blaðsíða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÞAÐ LÍTUR ÚT FYRIR AÐ ÖLL
VINNAN HAFI SKILAÐ SÉR
ÞÉR HEFUR ALDREI
GENGIÐ SVONA VEL Í
MEGRUN ÁÐUR!
TAKK
FYRIR
ÉG ÞYNGDIST
BARA UM KÍLÓ
ÉG TRÚI EKKI AÐ EINHVER
HAFI BROTIST INN!
ÉG
HRINGI Í
112!
HVAR
ER
HOBBES?
SJÁÐU HVAÐ
ÞEIR GERÐU
VIÐ ÞETTA
HERBERGI!
HOBBES!
ÉG VISSI
AÐ VIÐ
HEFÐUM
EKKI ÁTT
AÐ SKIL-
JA HANN
EFTIR
MAMMA!
ÉG FINN EKKI
HOBBES!
HVAÐ EF ÞEIR
TÓKU HANN?
KOMDU,
HANN
HLÝTUR AÐ
VERA HÉRNA
EINHVERS
STAÐAR
ÉG EFAST UM AÐ ÞEIR
HAFI STOLIÐ TUSKUDÝRI
EN
HOBBES
TREYSTIR
ÖLLUM
ÉG VILDI AÐ HELGA
VÆRI HÉRNA MEÐ MÉR NÚ?
HANA LANGAÐI
ALLTAF TIL AÐ BÚA
VIÐ SJÓINN
ÞAÐ STENDUR HÉRNA AÐ
FLESTIR SNILLINGAR ÞURFI
LÍTINN SEM ENGAN
INNBLÁSTUR
ÆTLI ÞEIR
ÞURFI LÍKA LÍTINN
SEM ENGAN
ÚTBLÁSTUR
VONANDI FINNST KALLA
GAMAN Í SUMARBÚÐUNUM
HANN VERÐUR
BARA Í TVÆR VIKUR
TVÆR VIKUR ÁN MÖMMU
SINNAR OG PABBA. FASTUR
ÚTI Í SKÓGI MEÐ NOKKRUM
UNGLINGUM OG HELLING
AF KRÖKKUM SEM HANN
ÞEKKIR EKKI NEITT
HVAÐ ER SLÆMT VIÐ ÞAÐ?
ÉG VONA AÐ
ÞETTA SÉ GÓÐ
HUGMYND
MÉR
LÍÐUR
EKKI
VEL...
ÉG SKIL ÞAÐ... FYRST VAR
ÞAÐ SLYSIÐ OG SÍÐAN VAR
BÚIÐ AÐ SKEMMA SKILTIÐ
ÉG ÆTLA AÐ
FARA AÐ SOFA,
EN ÞÚ?
ÉG HEF
EKKI
TÍMA...
ÉG ÞARF AÐ VINNA
dagbók|velvakandi
Ólögleg vottorð?
ÉG get ekki orða bundist um þær
reglur sem gilda fyrir útlendinga í
Reykjanesbæ er þeir þurfa að endur-
nýja atvinnuleyfi sitt þar.
Farið er fram á búsetuvottorð um
að þeir þiggi ekki styrk af ríki né
borg. Vottorðið kostar 1 þús. kr. og
verður að endurnýja á hverju ári.
Þessar reglur eru settar af félags-
málastjóra í Reykjanesbæ. T.d. gilda
ekki sömu reglur í Grindavík eða á
Vestfjörðum og er því verið að mis-
muna útlendingum eftir búsetu.
Margsinnis hefur verið kvartað til fé-
lagsmálaráðuneytisins en ekkert
breytist.
Mér finnst þessi gjaldtaka svipuð
og með öryrkjana á sínum tíma – það
átti að gera allt fyrir þá og rétta hlut
þeirra og öllu fögru lofað fyrir kosn-
ingar en raunveruleikinn er að ekki
er staðið við neitt.
Kristján Pétursson,
Djúpavogi 12, Reykjanesbæ.
Hvers vegna?
JÁ, hvers vegna þarf saklaust lítið
barn að láta lífið svo farið verði að
hlusta á okkur og framkvæma sann-
gjarna beiðni okkar um að settar
verði hraðahindranir á Vesturgötu
neðan Hringbrautar. Við vorum tvær
af Birkiteignum og tveir af Vestur-
götu að ítreka þessar beiðnir á síð-
asta hverfafundi bæjarstjóra. Árni
Sigfússon, farðu að hlusta á okkur og
framkvæma sanngjarnar beiðnir!
Gott yrði að fá ljós á gatnamót Hring-
brautar og Vesturgötu. Við viljum
bæjarstjóra sem hlustar á okkur.
Kristín Gestsdóttir, 261023-3779.
Fjölmenningarkjaftæði
ÉG þoli ekki þetta fjölmenningar-
kjaftæði. Ég hef árum saman unnið
náið með erlendu fólki og þekki því
vel hvað flestir útlendingar eru að
pæla.
Þeir hafa sáralitla löngun eða
áhuga á því sem Íslendingar eru að
hugsa eða gera! Þess vegna segi ég:
Hafið svínakjöt á matseðli grunn-
skólabarna. Ekkert barn, hverrar
þjóðar sem það er, hefur vont af því
að þekkja Jesú læra bænir og að
elska náungann eins og sjálfan sig.
Íslensk þjóð og þjóðhættir eru fyrir
þá sem hafa hugsað sér að bera bein-
in á Íslandi.
Ég segi eins og kollegi minn sagði
forðum þegar ég skipti um vinnustað:
„Í Róm gerum við eins og Róm-
verjar“.
Unnur Guðmundsdóttir,
kt. 120440-2769.
Góð hugmynd
RAGNHEIÐUR Elín Árnadóttir
viðraði áhugaverða hugmynd í grein í
Morgunblaðinu 1. desember sl. Ragn-
heiður velti því upp hvort ekki ætti að
gera nöfn kynhlutlausari. Ég hef
lengi velt þessu sama fyrir mér. Það
er eitthvað meira en lítið furðulegt
við að á Íslandi sé mannanafnanefnd
sem ákveður hvaða nöfn fólk má
bera.
Persónulega finnst mér að ég ætti
að geta borið hvaða nafn sem mér lík-
ar við, og að ríkisvaldið ætti ekki að
vera með nefið ofan í hvers manns
koppi. Ég er á móti svona ríkisfor-
sjárhyggju og finnst bæði eðlilegt og
sjálfsagt að við afnemum manna-
nafnanefnd og setjum það í sjálfsvald
fólks hvað það vill láta kalla sig og
börn sín. Ein sem væri til í að heita
Lovísa Jón.
Góð hugmynd.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
ÞEGAR vetur er og kalt í veðri er gott að koma út í volga laugina, eftir
kuldann úti. Þessir frísku strákar eru ekkert að læðast út í laugina, heldur
stökkva út í með meiriháttar tilþrifum.
Morgunblaðið/Golli
Frost í laugardalslauginni
FRÉTTIR
FRAMTÍÐARLANDIÐ efnir til op-
ins morgunfundar miðvikudaginn 5.
desember frá klukkan níu til tíu í
fundarsal Norræna hússins. Umfjöll-
unarefni fundarins er staða lýðræðis-,
skipulags- og umhverfismála með
hliðsjón af Árósasamningnum, sem
fjallar um aðgang að upplýsingum,
þátttöku almennings í ákvarðanatöku
og aðgang að réttlátri málsmeðferð í
umhverfismálum. Á fjórða tug ríkja í
Evrópu er aðili að samningnum og
hafa öll Norðurlöndin fullgilt hann
nema Ísland.
Þar sem samningurinn tryggir að
almenningur og félagasamtök sem
starfa að umhverfismálum eigi lög-
varða hagsmuni þegar teknar eru
ákvarðanir sem hafa áhrif á umhverf-
ið má telja að fullgilding hans myndi
breyta miklu fyrir frjáls félagasam-
tök, segir í fréttatilkynningu.
Þórunn Sveinbjarnardóttir um-
hverfisráðherra verður sérstakur
gestur fundarins en að lokinni tölu
hennar verða pallborðsumræður.
Í pallborði sitja eftirtaldir, auk um-
hverfisráðherra: Friðrik Sophusson,
forstjóri Landsvirkjunar, og
Salvör Jónsdóttir skipulagsfræð-
ingur. Fundarstjóri er Ólafur Páll
Jónsson, heimspekingur og meðlimur
í sérfræðingaráði Framtíðarlandsins.
„Fyrir alþingiskosningar í vor lýsti
Samfylkingin yfir vilja til að staðfesta
Árósasáttmálann og því er forvitni-
legt að vita hvort umhverfisráðherra
muni beita sér fyrir því innan ríkis-
stjórnarinnar að hann verði fullgiltur.
Að sama skapi er áhugavert að ræða
hvaða áhrif fullgilding hans muni
hafa, t.d. á umhverfi orkufyrirtækja
og umhverfismála almennt á Íslandi.
Staða frjálsra félagasamtaka á Ís-
landi myndi að líkindum taka stakka-
skiptum t.a.m. hvað varðar gjafsóknir
og hverjir geta kallast lögaðilar að
málum en einnig hvað varðar fjár-
stuðning til þess að kanna og kynna
mál – t.d. andstöðu við fyrirhuguð ál-
ver og virkjanaáform,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Árósasamningur
ræddur á morgunfundi
Framtíðarlandsins