Morgunblaðið - 04.12.2007, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2007 31
Atvinnuauglýsingar
Ritari
/fulltrúi forstjóra
Hafrannsóknastofnunin óskar eftir að ráða
ritara/fulltrúa forstjóra. Auk almennra starfa
ritara forstjóra hefur ritari/fulltrúi umsjón með
skjalasafni aðalskrifstofu stofnunarinnar.
Leitað er eftir áhugasömum starfsmanni sem
getur unnið sjálfstætt, hefur lokið háskólaprófi
og býr yfir haldgóðri reynslu og góðri kunnáttu
í íslensku, ensku og norðurlandamáli.
Umsækjendur þurfa að hafa góða tölvukunn-
áttu og nokkra reynslu af skjalavörslu.
Laun samkvæmt kjarasamningi fjármálaráð-
herra og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun,
aldur og fyrri störf sendist Hafrannsókna-
stofnuninni fyrir 10. desember nk.
Hafrannsóknastofnunin er stærsta rannsókna-
stofnun landsins á sviði haf- og fiskirannsókna
og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki varðandi
skynsamlega nýtingu og verndun auðlinda
hafsins. Mikill hluti starfseminnar tengist
alþjóðlegu samstarfi við erlendar hafrann-
sóknastofnanir og háskóla. Stofnunin rekur 5
útibú, tilraunaeldisstöð í eldi sjávarlífvera, tvö
rannsóknaskip og hefur að jafnaði 160 starfs-
menn í þjónustu sinni.
Hafrannsóknastofnunin,
Skúlagötu 4,
101 Reykjavík.
S. 575 2000
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Uppboð mun byrja á skrifstofu embættisins í Hafnarstræti
107, Akureyri, sem hér segir, á eftirfarandi eign:
Skessugil 9, 02-0202, Akureyri (225-4579), þingl. eig. Lilja Hannes-
dóttir, gerðarbeiðandi Glitnir banki hf, föstudaginn 7. desember 2007
kl. 10:00.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
3. desember 2007.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
skrifstofu embættisins að Bæjarhrauni 18, Hafnarfirði,
sem hér segir:
M.b. Strókur HF-167, skipaskr.nr. 2024, Hafnarfirði, þingl. eig. Þ.A.G.
ehf, gerðarbeiðandi Kaupþing banki hf, miðvikudaginn 12. desember
2007 kl. 14:00.
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði,
3. desember 2007.
Tilboð/Útboð
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
Reykjavíkurborg
Innkaupaskrifstofa
Ráðhúsi Reykjavíkur, Tjarnargötu 11,
101 Reykjavík
Sími 411 1042/411 1043
Bréfsími 411 1048
Netfang: utbod@reykjavik.is
ÚTBOÐ
F.h. Framkvæmdasviðs
Reykjavíkurborgar,
mannvirkjaskrifstofu:
Sæmundarskóli - jarðvinna.
Útboðsgögn fást afhent, hjá síma- og upplýsingaþjónustu
Ráðhúss Reykjavíkur.
Opnun tilboða: 14. desember 2007 kl. 14:00
í Ráðhúsi Reykjavíkur.
12056
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum
Ákvörðun Skipulagsstofnunar um mats-
skyldu framkvæmda
Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að
eftirtaldar framkvæmdir skuli ekki háðar mati á
umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat á
umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.b.
Rannsóknaborun við Gráuhnúka.
Sveitarfélagið Ölfus.
Go-kart kappakstursbraut Iceland Moto-
park. Reykjanesbær
Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulags-
stofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þær er
einnig að finna á heimasíðu Skipulagsstofn-
unar: www.skipulag.is.
Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til um-
hverfisráðherra og er kærufrestur til 2. janúar
2007.
Skipulagsstofnun.
Félagslíf
Jóhannes Hinriksson predikar á
samkomu í kvöld kl. 20.00. HLÍN 6007120419 VI
I.O.O.F. Rb. 4 1561248-8 ½ III*
HAMAR 6007120419 I
FJÖLNIR 6007120419 I
EDDA 6007120419 III
FULLVELDISDAGINN laugar-
daginn 1. desember sl. var haldið
sjötta minningarmót Ottós Árnason-
ar. Á næsta ári verður heil öld liðin
síðan Ottó fæddist en hann var um
nokkurra áratuga skeið potturinn og
pannan í félagslífi Ólafsvíkinga.
Hann var formaður verkalýðsfélags,
var bíóstjóri og sá um félagsheimilið.
Taflfélag Ólafsvíkur, nú Taflfélag
Snæfellsbæjar, stofnaði hann árið
1962. Það er án efa vel til fundið að
halda alþjóðlegt mót árið 2008 í
Ólafsvík til að heiðra minningu þessa
mikla frumkvöðuls á Vesturlandi
eins og forseti Skáksambands Ís-
lands, Guðfríður Lilja, stakk upp á í
setningarræðu sinni á Ottómótinu í
ár. Þess má geta að eitt slíkt mót
hefur verið haldið í Ólafsvík árið
1987.
Sem fyrr var Ottómótið vel skipað
en í ár tóku þátt tveir stórmeistarar
og tveir alþjóðlegir meistarar. Jón
Viktor Gunnarsson var fremstur í
flokki framan af og þegar sex um-
ferðir voru búnar hafði hann fullt
hús vinninga en næstir á eftir honum
voru Henrik Danielsen, Sigurbjörn
Björnsson, Bragi Þorfinnsson og
Sigurður Daði Sigfússon með fimm
vinninga.
Í lokaumferðunum tveim urðu
lyktir þær að Henrik, Jón Viktor og
Sigurbjörn urðu jafnir og efstir með
sjö vinninga af átta mögulegum.
Stórmeistarinn Henrik hafði and-
stæðingana sína tvo undir í úrslita-
skákum og varð meistari eftir harða
og jafna baráttu.
Henrik varð þar með fjórði stór-
meistarinn sem vinnur þetta mót en
Hannes Hlífar vann fyrsta mótið,
Þröstur Þórhallsson það annað og
Helgi Ólafsson hefur unnið mótið
tvisvar. Alþjóðlegi meistarinn Stef-
án Kristjánsson vann það svo í eitt
skipti.
Alls tóku 54 skákmenn þátt í
mótinu í ár en úrslit efstu manna
varð þessi:
1.-3. Henrik Danielsen, Jón Vikt-
or Gunnarsson og Sigurbjörn
Björnsson 7 v. af 8 mögulegum.
4. Bragi Þorfinnsson 6 v.
5.-9. Ingvar Þ. Jóhannesson, Sig-
urður Daði Sigfússon, Björn Þor-
finnsson, Omar Salama og Jóhann
Ingvason 5½
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
varð hlutskörpust kvenna, Eiríkur
Örn Brynjarsson í unglingaflokki,
Daði Ómarsson í flokki skákmanna
með minna en 2000 skákstig og Sig-
urður Örn Scheving í flokki heima-
manna. Allir verðlaunahafar fengu
vegleg verðlaun sem voru m.a. í boði
Snæfellsbæjar, Hraðfrystihúss
Hellissands ehf., Fiskmarkaðs Ís-
lands, Olís, Deloitte, Söluskálans
ÓK í Ólafsvík og fleiri öflugra fyr-
irtækja. Eins og venjulega var að
loknum fjórum umferðum boðið upp
veglegt kökuhald og svo í lokin
glæsilega kvöldmáltíð, eða eins og
einn skákmaðurinn kallaði það,
fermingarveisla í hléinu og brúð-
kaupsveisla í kvöldmat.
Þar sem útlit var fyrir válynd veð-
ur fóru keppendur snemma heim á
leið en ef marka mátti símasamtal
greinarhöfundar við einn farþega
rútunnar mátti ætla að stemningin á
meðal skákmanna væri góð þrátt
fyrir fjarveru Helga Ólafssonar í að
stýra spurningakeppninni í rútunni.
Afmælisbarnið, Sigurbjörn Björns-
son leysti hann af hólmi og var
fyrsta spurningin: „Hvaða lið léku
til úrslita í NBA-körfuboltadeildinni
í Bandaríkjunum árið 1987?“ Spurn-
ingin sem skákmenn gætu spurt á
móti er þessi: „Hvaða skákmeistar-
ar tefla á alþjóðlega mótinu í Ólafs-
vík árið 2008?“
Henrik meistari eftir jafna baráttu
Morgunblaðið/Gunnar Björnsson
Sigurvegarinn Henrik Danielsen varð efstur á 6. Ottósmótinu.
SKÁK
Taflfélag Snæfellsbæjar
6. MINNINGARMÓT OTTÓS ÁRNASONAR
1. desember 2007
Helgi Áss Grétarsson
daggi@internet.is
Í minningargrein um Bergþór Guð-
jónsson í laugardagsblaðinu 1. des
sl. féllu niður síðustu línurnar í grein
eftir Guðjón Rögnvaldsson. Við birt-
um hér síðustu línurnar úr greininni
ásamt lokalínunum sem féllu niður:
Beggi sótti konuefnið sitt, hana
Gundu, til Færeyja og bjuggu þau
heiðurshjón ásamt dætrunum tveim-
ur á Hásteinsvegi 51 sem Beggi
hafði byggt. Alltaf var ljúft að koma
til þeirra í kaffispjall og nokkrar
sögur við eldhúsborðið.
Að leiðarlokum viljum við Ragnheið-
ur og fjölskylda okkar þakka fyrir að
hafa átt hann Begga að í öll þessi ár.
Hugur okkar er hjá Gundu, dætr-
unum Sollu og Guðrúnu og fjöl-
skyldum þeirra. Megi almættið
styrkja ykkur og styðja.
Guðjón Rögnvaldsson.
Rangt bankanúmer
Misritun varð þegar bankanúmer
söfnunarreiknings vegna minn-
isvarða um Jón Ósmann var tilgreint
í frétt í Morgunblaðinu í gær, mánu-
dag. Rétt eru númerin á reikningi
„Ferjumannsins“ þannig: Lands-
banki: 0161-26-1914 og Kaupþing:
0310-13-1862. Kennitala er í báðum
tilvikum 030822-4719.
Röng
mynd
Með frétt í Morg-
unblaðinu þar
sem sagt var frá
frumsýningu á
Vatnalífi á Sel-
fossi birtist röng
mynd. Rétt
mynd af Gunnari
Sigurgeirssyni
birtist hér um leið og beðist er vel-
virðingar á mistökunum.
LEIÐRÉTT
Niðurlag í minningar-
grein féll niður
Gunnar
Sigurgeirsson