Morgunblaðið - 04.12.2007, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
● HLUTABRÉF lækkuðu í verði í
Kauphöll OMX á Íslandi í gær. Úrvals-
vísitalan lækkaði um 1,9% og fór í
6.853 stig. Mest lækkun varð á
verði hlutabréfa í FL Group, um
7,9%, bréf í Föroya Banka lækkuðu
um 3,4% og bréf í 365 um 3,3%.
Mest hækkuðu hlutabréf í Spron,
um 3,3%, og í Alfesca, um 0,9%.
Mest viðskipti voru með bréf í Spron,
fyrir tæpan 1,1 milljarð króna.
Enn lækkun í kauphöll
● TIFFANY & Co
hefur tilkynnt
samstarf við
úraframleiðand-
ann Swatch
Group um þró-
un og dreifingu
úra sem merkt
eru Tiffany. Nýtt
félag verður
stofnað um
framleiðsluna og verður það í eigu
Swatch en Tiffany fær hlutdeild í
hagnaði þess og eitt stjórnarsæti.
Félagið fær heimild til að reka
verslanir undir nafni Tiffany og selja
þar aðra skartgripi frá Tiffany. Skart-
gripaframleiðandinn mun hætta með
nokkur annarra úra sinna en kostn-
aður tengdur því er talinn vera um
1,2 milljarðar króna.
Tiffany í samstarf
við Swatch Group
● HÁIR skattar, reglubyrði, ósveigj-
anlegur vinnumarkaður og skortur á
hæfu starfsfólki eru þættir sem
koma í veg fyrir að fyrirtæki vaxi og
dafni. Þetta er meðal þess sem
rannsókn KPMG í Þýskalandi meðal
800 fyrirtækja í löndum Evrópusam-
bandsins leiddi í ljós. Þar segir að
þetta komi niður á samkeppn-
ishæfni Evrópu og verði ekki brugðist
við muni Evrópubúar dragast aftur úr
í alþjóðlegri samkeppni. Kom þetta
fram á ráðstefnu Evrópusamtaka at-
vinnulífsins en skýrsluna er að finna
á vef Samtaka atvinnulífsins, sem
er aðili að samtökunum.
Skattar, reglur og
ósveigjanleiki
LÁNAÞURRÐ er farin að gera vart
við sig á markaðnum með evrópsk
ríkisskuldabréf og eru evrópskir rík-
issjóðir því farnir að finna fyrir hrolli
þeim er hrjáð hefur lánsfjármarkaði
heimsins allt frá því á hundadögum í
sumar. Ástandið er að sögn Financi-
al Times orðið þannig að einhver ríki
Evrópu gætu lent í fjármögnunar-
vandræðum á næstu mánuðum.
Ríkisskuldabréf eru almennt talin
öruggustu fjárfestingar sem hægt er
að leggja í og því er af þessu greini-
legt hversu mikil áhrif kreppunnar
sem kom upp á bandarískum fast-
eignamarkaði í sumar eru orðin.
Áhættuálag á skuldabréf margra
aðildarríkja Myntbandalags Evrópu
hefur hækkað á undanförnum vik-
um, líkt og reyndar hjá ríkjum utan
bandalagsins, en það er einungis
þýska ríkið sem býr við sömu láns-
kjör og áður.
Álag Íslands lækkaði um 20
Að sögn Björgvins Sighvatssonar,
hagfræðings hjá Seðlabanka Ís-
lands, hefur þróunin ekki bitnað á ís-
lenska ríkinu þar sem það hefur ekki
fjármagnað sig á alþjóðlegum mark-
aði um nokkurt skeið. Trygginga-
álagið á þegar útgefin skuldabréf
ríkisins hefur á liðinni viku lækkað
um 20 punkta og er nú 60 punktar.
Hrollurinn
nær til Evrópu
kaup Kaupþings banka til þessa.
Hagfellt umhverfi hefur nú
breyst, sem fyrr segir, og segir
Hreiðar Már að nú sé mál að beina
sjónum enn frekar að því hvort hin
öra þensla fyrirtækisins hefur að
fullu skilað sér í rekstri sem verður
varanlegur. Nú reyni á hvort tekist
hafi að skapa raunverulegan virðis-
auka eða ekki.
„Hefur maður bara verið að fara
út og kaupa banka en ekki verið að
búa til varanlegan rekstur með raun-
verulegri virðisaukningu?“ spyr
Hreiðar Már.
Fimm ára útrás
Kaupþings lokið í bili
Ekki fýsilegt að eiga í Kaupþingi að mati Morgan Stanley
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Gott í bili Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri segir að eftir kaupin á hinum
hollenska NIBC verði áherslan lögð á samþættingu fyrirtækjanna.
FJÁRMÁLAKREPPAN í heimin-
um hefur sett punktinn aftan við
fimm ára langa útrás Kaupþings
banka. „Þetta er orðið gott í bili. Nú
verður áherslan lögð á samruna við
fyrirtæki sem keypt voru síðast.“
Þetta hefur Dow Jones fréttaveitan
eftir Hreiðari Má Sigurðssyni, for-
stjóra Kaupþings.
„Skilyrði á heimsmarkaði hafa
verið afar hagstæð og það höfum við
nýtt okkur vel. En nú hefur það snú-
ist við,“ segir Hreiðar Már.
Per Lofgren, sérfræðingur sem
hefur með greiningar á Kaupþingi að
gera hjá Morgan Stanley, mælir í
sömu frétt gegn eign í bankanum.
„Í þessu umhverfi þar sem lána-
möguleikar hafa verið að þrengjast
og fjármagnsmarkaðir hafa verið að
hrynja, sjáum við enga ástæðu til að
eiga banka sem einblínir á skuldsett-
ar yfirtökur og hefur fjórðung tekna
sinna af miðlun,“ segir Lofgren og
vísar til þess hversu sveiflukenndar
þær tekjur geta verið.
Hefur ör þenslan skilað sér?
Kaupþing hefur gleypt nokkra
stóra bita á síðustu árum. Þeirra á
meðal voru kaupin á hinum danska
FIH Erhvervsbank árið 2004 og
kaupin á Singer & Friedlander í
Bretlandi árið 2005. Þetta er ásamt
annarri uppbyggingu Kaupþings á
erlendri grundu. Síðastliðið sumar
festi bankinn kaup á hollenska bank-
anum NIBC og eru það stærstu
Í HNOTSKURN
» Hagnaður Kaupþings ellefufaldaðist frá árinu
2003 til ársins 2006.
»Síðustu bankakaup Kaupþings erlendis voru
kaup á litlum belgískum
banka, Robeco Bank, í október
síðastliðnum.
»Hollenski bankinn NIBCkostaði um 260 milljarða
íslenskra króna.
VELTA með skuldabréf í kauphöll
OMX á Íslandi nam 322 milljörðum
króna í nóvembermánuði og hefur
hún aldrei verið meiri í einum mán-
uði hér á landi. Það sem af er ári
nemur velta í viðskiptum með
skuldabréf samtals 2.193 milljörðum
króna. Það er 5,4% aukning frá sama
tímabili árið áður.
Skuldabréf eru almennt álitin
töluvert áhættuminni fjárfesting en
hlutabréf og þegar að kreppir á
hlutabréfamarkaði leita fjárfestar
gjarnan inn á skuldabréfamarkað.
Sérstaklega þeir sem teljast áhættu-
fælnir. Þessa miklu veltuaukningu
má því að hluta rekja til niðursveiflu
á hlutabréfamarkaði en fjárfestar
hafa í auknum mæli snúið sér að
skuldabréfaviðskiptum vegna þess
óróa og verðlækkunarhrinu sem ein-
kennt hefur hlutabréfamarkaðinn að
undanförnu.
Ávöxtunarkrafa 10 ára verð-
tryggðu vísitölunnar sveiflaðist
nokkuð í mánuðinum og tók dýfu um
miðbik mánaðarins en náði loks
sömu hæðum aftur í lok mánaðar.
Velta með hlutabréf var 232 millj-
arðar króna í síðasta mánuði og er
það um helmingi meira en var í nóv-
ember í fyrra.
Metmánuður hjá Nordic
Nóvembermánuður er sá þriðji
veltumesti hjá kauphöllinni á Íslandi
frá upphafi en heildarveltan nam 561
milljarði króna.
Nóvember var metmánuður í
fjölda viðskipta hjá kauphöllinni á
Norðurlöndum og Eystrasaltsríkj-
unum, Nordic Exchange. Alls voru
viðskiptin hvern dag í mánuðinum
rúmlega 234 þúsund talsins. Fyrra
metið var sett í ágúst í sumar og var
það rúm 214 þúsund viðskipti á dag.
„Þennan fyrsta mánuð eftir að Mi-
Fid tilskipunin gekk í gegn, hefur
fjöldi viðskipta aldrei verið meiri,“
segir Jukka Ruuska, forstjóri Nor-
dic Market Places í OMX, í tilkynn-
ingu. Hann býst við að velta í við-
skiptum muni aukast enn meira í
framtíðinni.
Aldrei meiri skuldabréfavelta
Helmingi meiri velta var með hlutabréf en í nóvembermánuði í fyrra
Morgunblaðið/Kristinn
Met í kauphöll Velta skuldabréfa
með mesta móti í nóvember
MIKILVÆGT er
að seðlabankar
heimsins bíði
ekki of lengi með
að bregðast við
lánaþurrðinni á
fjármálamörk-
uðum heimsins
og lækki vexti of
seint. Slíkt gæti
leitt til enn verra
ástands á mörk-
uðum, sam-
kvæmt nýrri
skýrslu fjárfestingarbankans
Morgan Stanley sem segir seðla-
banka Evrópu vanmeta áhættuna
einna mest af öllum.
Afskriftir og varúðarfærslur
stórbanka heimsins gera það að
verkum að þeir halda að sér hönd-
um hvað útlán varðar, nokkuð sem
virkar sem hemill á hagvöxt. Til
þess að bæta flæði fjármagns þurfa
seðlabankarnir að lækka vexti en
þar sem flestir sjá verðbólguský við
sjóndeildarhringinn eru seðla-
bankar heimsins tregir í taumi við
vaxtalækkanir.
Kreppan sem við búum við í dag
er afleiðing þess að vöxtum var
haldið of lágum of lengi en nú þarf
að gæta þess að halda þeim ekki of
háum of lengi, að mati Morgan
Stanley.
Þess má geta að þrír helstu seðla-
bankar heims, sá bandaríski, sá
evrópski og Englandsbanki kynna
allir stýrivaxtaákvörðun í vikunni.
Lækkið
vexti segir
Morgan
Stanley
Jean-Claude Tric-
het hjá Seðlabanka
Evrópu vanmetur
áhættuna mest.
!"# $%&$ '(()
,- ./
+-
$
$ $
$
$
$ $
$ $ $
$
; 3
4 " </
(
= 8- 2 -" (>
)<
3
$
% # # %$#
$
% $ #%$
% #
% % $ &%
#$ $%
#
%#
# %
& % &&
$
%% # %
%
&%# $$
3
& $
3
&$
3
3
&%
3
3
#
%
%
%
#
#
&
&
%
$
#
#
&
#
$
&
$
$
#
%
&
3
3
%#
3
3
#
$
%
&
$
&
#
$
%
#
#
$
#
#
&
&
$
&
%$
3
%
3
#
6
4 " </
3
#
%
%
&#
%
$
3
#
#
3
&
3
%$
3
3
3
3
(/ (
4 " 4
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
$
# $
& $
$
$
$
012!
3
4+ +3 2
/-" ?-< 9*
@""46 ?-< 9*
AB / 9*
1 ?-< 9*
? / 8" 9*
;* A !" <*:(
CD ?-< 9*
)<7 ( 8" 9*
18" 9*
/!3@5 5* 8 9*
=E! 9*
F 9*
5##
1
6-
# 9*
*D 9*
// D G/-! G'
A " @"
( ?-< 9*
H-E @"
CD D ?-< 9*
9*
I9 9*
GJ =E(( (! /6 9*
K /6 9*
0
7*
8 #
L/E
! ! L-
;@ ? 9*
;!< 9*
M 9
M :
%$
& $
M ;
< @M
& $
&$
-N -
O
& $
& $
M
& $
& $
M =
M 7%
&$
% $
● BANDARÍSKA kauphöllin Nasdaq,
sem gert hefur tilboð í OMX kaup-
höllina, hefur opnað skrifstofu í Pek-
ing í Kína. Tilgangurinn er að fá fleiri
kínversk fyrirtæki til skráningar á
Nasdaq en kauphallir víðs vegar um
heiminn reyna nú að laða kínversk
fyrirtæki til sín.
Á næstunni verður tuttugasta kín-
verska félagið á þessu ári skráð í
Nasdaq-kauphöllina en á öllu árinu
2006 voru níu slík skráð.
Nasdaq kauphöllin
á veiðum í Kína
● STEVE Jobs,
forstjóri Apple, er
voldugasti mað-
ur viðskipta-
heimsins sam-
kvæmt nýjum
lista bandaríska
viðskiptatímarits-
ins Fortune.
Apple hefur, und-
ir stjórn Jobs, risið upp úr ösku-
stónni á undanförnum árum og er
það nú eitt af leiðandi hátæknifyr-
irtækjum heims. Afurðir þess, á
borð við iPod og iPhone, hafa gjör-
bylt markaðnum og treyst stöðu fé-
lagsins til muna.
Næstur á lista Fortune er fjöl-
miðlamógúllinn Rupert Murdoch,
sem meðal annars á Wall Street Jo-
urnal og Sky-sjónvarpsstöðina en
þriðji er Lloyd Blankfein, forstjóri
Goldman Sachs-fjárfestingarbank-
ans sem komið hefur einna best út
úr fjármálakreppu undanfarinna
mánaða.
Jobs voldugastur