Morgunblaðið - 04.12.2007, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 04.12.2007, Qupperneq 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 4. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING BÓKAÚTGÁFAN Salka býð- ur til bókakvölds á kaffihúsinu Súfistanum, Laugavegi 18, í kvöld kl. 20. Þar lesa höfundar upp úr verkum sínum, gestum til yndisauka. Auður A. Ólafsdóttir les upp úr skáldsögu sinni Afleggj- aranum og Lóa Pind Aldís- ardóttir úr fyrstu skáldsögu sinni, Sautjándanum. Þá lesa tvö ljóðskáld upp úr verkum sínum, þær Guðrún Hannesdóttir úr ljóðabók sinni Fléttum og Stefanía G. Gísladóttir upp úr bókinni Án spora. Guðrún hlaut fyrr á árinu Ljóð- staf Jóns úr Vör fyrir ljóðið Offors. Bókakvöld Höfundar lesa upp úr verkum sínum Lóa Pind Aldísardóttir HAUSTHEFTI 22. árgangs tímaritsins Börn og menning er komið út. Katrín Jak- obsdóttir, Erna Erlingsdóttir og Guðrún Lára Pétursdóttir skrifa greinar um bækur Ast- rid Lindgren í tilefni af 100 ára fæðingarafmæli hennar í nóv- ember sl. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra fjallar um barnabókahöfundinn Nonna og einnig er fjallað um barnabæk- ur, barnaleikhús o.fl. Blaðið er gefið út af samtök- unum IBBY á Íslandi tvisvar á ári, en þau hafa það að markmiði að stuðla að eflingu barna- bókmennta og annarrar barnamenningar. Tímarit Astrid, Nonni og barnamenning Hausthefti Barna og menningar KVENNAKÓRINN Léttsveit Reykjavíkur heldur árlega jólatónleika sína í Bústaða- kirkju í kvöld og á fimmtudag- inn kl. 20. Flutt verða íslensk og erlend jólalög, m.a. Gloria eftir Michael Bojesen og jóla- lög eftir Ingibjörgu Þorbergs. Einsöngvari með kórnum er Hlín Pétursdóttir og píanó- leikari Aðalheiður Þorsteins- dóttur. Stjórnandi kórsins er Jóhanna V. Þórhallsdóttir. Stína Bongó leikur á trommur og Tómas R. Einarsson á bassa. Léttsveitin er 100 kvenna kór sem hefur starfað í Reykjavík í 12 ár. Kórtónleikar Jólasveifla Létt- sveitar Reykjavíkur Tómas R. Einarsson Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is ÉG BYRJAÐI í bókaútgáfu því mig langaði að gefa út ljóðaþýðingar og það var einfaldast að gera það sjálf- ur. Eftir því sem árin hafa liðið hefur orðið einfaldara að gefa einnig út annars konar efni. Núna treysti ég engum útgefanda betur en mér.“ Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson, ljóð- skáld og tónlistarmaður, hefur í nokkur ár starfrækt forlagið Dimmu og gefur í senn út bækur og geisla- diska; hljóðbækur og tónlist. Í ár gefur hann út 17 titla, sem er jafn- mikið og í fyrra. „Ég reyni að hafa þetta í föstum skorðum,“ segir hann. „Þetta er blönduð útgáfa og ég þarf að vera með ákveðinn fjölda titla svo útgáfan verði sýnilegri. En það má ekki vera meira.“ Meðal útgefinna titla Dimmu í ár er Hjartaborg, ný ljóðabók Að- alsteins Ásbergs sjálfs. Er það hans sjöunda ljóðabók. „Ég segi stundum að ljóðyrkjan sé aðalstarfið mitt, útgáfan auka- starfið, en þetta fer ágætlega sam- an,“ segir Aðalsteinn Ásberg. Er með fáa höfunda Síðustu árin hefur Dimma gefið út vandaða tónskreytta diska með upp- lestri skálda, sem um leið eru fal- legar ljóðabækur. Tveir diskar bæt- ast nú í þann hóp, með ljóðum eftir Sigurð Pálsson og Óskar Árna Ósk- arsson, tónskreyttir af Jóel Pálssyni og Sunnu Gunnlaugsdóttur. „Þessir diskar eru nú orðnir sjö og verða níu. Öll röðin verður komin út á næsta ári.“ – Vilja ekki öll ljóðskáld landsins komast í þennan öndvegisbúning? „Jú, sjálfsagt, en þetta var hugsað sem verkefni sem tæki enda. En það getur vel verið að ég fari í eitthvað annað í framhaldinu, með öðru sniði. Fyrir fjórum árum ákvað ég að gefa líka út hljóðbækur, mér fannst skorta á í þeirri útgáfu og langaði til að einbeita mér að barnaefni. Þar er ég með fáa höfunda og þeir lesa sitt efni sjálfir. Í ár er ég með tvo titla eftir Kristínu Steinsdóttur, Fransk- brauð með sultu og Vestur í bláinn, Dvergastein eftir sjálfan mig, æv- intýri og ljóð eftir Jónas Hall- grímsson, sem ég valdi og las, þriðju bókina um Fíusól eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur, Ævar á grænni grein eftir Iðunni Steins- dóttur og Söguna af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason. Þessi verk eru vel þegin af þeim sem kunna að meta hljóðbækur.“ Bæti ekki við fleirum Loks er Aðalsteinn Ásberg í tón- listarútgáfu, einkum á djassi og þjóðlögum. „Ég er svo heppinn að vinna með mjög skemmtilegu fólki og útgáfan byggist á því. Þar nefni ég fyrst Sigurð Flosason. Í ár koma tveir diskar úr hans smiðju, Bláir skuggar og Dívan og jazzmaðurinn, þar sem hann er með Sólrúnu Bragadóttur söngkonu. Með Agnari Má Magnússyni gef ég út diskinn Láð, sem hefur fengið lofsamlega dóma, og fyrsta geisladisk djass- sveitarinnar BonSom. Hjá Dimmu er svo líka þjóðlaga- skotna hljómsveitin Hraun, sem á örugglega eftir að gera það gott.“ Hann segir listamenn oft leita til sín en hann bæti ekki við fleirum. „Ég ræð einfaldlega ekki við meira. Ég ætla að hafa þetta litla út- gáfu sem veitir ljóðskáldinu hæfi- lega samkeppni.“ Dimma, forlag Aðalsteins Ásbergs, gefur út hljóðbækur, ljóð og tónlist Treysti engum betur „MÍN útgáfa er ekki þess eðlis að ég þurfi að taka þátt í allri vitleysunni mánuðinn fyrir jól,“ segir Aðalsteinn Ásberg. „Það skiptir mig meira máli að verkin séu vel út garði gerð. Mér finnst það hafa tekist.“ Morgunblaðið/Sverrir Áherslan á vönduð verk KAREN Holt, einn blaðamann- anna sem komu fyrir rúmri viku að kynna sér Ís- land og sögusvið bókarinnar Þriðja táknið eft- ir Yrsu Sigurð- ardóttur, segir frá ferðinni í grein í Publish- ers Weekly sem birt var í gær. Hún segir ferðina hafa byrjað með dæmi- gerðum hætti, blaðamenn skoðað víkingaskip og farið í Bláa lónið. Á öðrum degi hafi Sigurður Atlason, forstöðumaður Galdrasafnsins, skellt sér í sauðskinnsskó, kyrtil, hengt á sig hrútspungsskjóðu og lagt ástargaldur á blaðakonu Rom- antic Times, Liz French. Blaðamenn hafi kynnt sér álfa- og draugatrú og snætt humar með Yrsu og eig- inmanni hennar. Á fjórða degi hittu blaðamenn for- seta Íslands sem gaf þeim kampavín og makkarónukökur og ræddi um afrek íslenskra glæpasagnaritara. Holt segir að Yrsa hafi rætt um hversu stoltir Íslendingar væru af landi sínu og að það skipti hana miklu að hasla sér völl á Bandaríkja- markaði. Yrsa hafi fylgt hópnum hluta ferðarinnar og lítið reynt að þröngva bókinni upp á blaðamenn. Kampavín og makka- rónukökur „Yrsu-ferð“ í Publishers Weekly Sigurður Atlason í galdrastuði. SKÁLDIÐ Hjört- ur Pálsson hlaut heiðursvið- urkenningu Rit- listarhóps Kópa- vogs í ár, Steininn, en einu sinni á ári er við- urkenningin veitt skáldi „sem sinnt hefur ljóðlist af kostgæfni og alúð“, eins og segir í tilkynningu. Viðurkenningin var afhent í Gerð- arsafni 17. nóvember sl. Skafti Þ. Halldórsson bókmennta- fræðingur gerði grein fyrir skáldinu og verkum þess og því næst afhenti Sigurrós Þorgrímsdóttir, formaður Lista- og menningarráðs, Steininn. Að lokinni afhendingu las Hjörtur úr verkum sínum fyrir viðstadda. Að athöfn lokinni bauð lista- og menningarráð Kópavogs upp á veit- ingar. Hjörtur hlaut Steininn Hjörtur Pálsson Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is ÓPERUKÓRINN í Reykjavík, ein- söngvarar og hljómsveit undir stjórn Garðars Cortes munu upp úr mið- nætti í kvöld eða klukkan 00.30 halda tónleika í Langholtskirkju og flytja Reqiem Mozarts, á dán- arstundu tónskáldsins. Verður þetta í þriðja sinn sem Óperukórinn flytur verkið á þessum tíma. Tónleikarnir eru helgaðir minn- ingu tónlistarmanna sem störfuðu með kórnum í áranna rás og létust allir á þessu ári. Söngvaranna Guð- mundar Jónssonar, Kristins Halls- sonar og Hjálmars Kjartanssonar, Jóns Sigurðssonar bassaleikara og Richard Talkowsky bassaleikara. „Ég vil gjarnan að þetta verði að hefð,“ segir Garðar Cortes. „Við hefjum tónleikana hálf eitt. Sagan segir að Mozart hafi látist 5. desem- ber 1791, klukkustund eftir miðnótt. Þá erum við komin að þessum tíma- punkti þar sem hann skrifar sinn síðasta takt. Það er hið fallega „lacrimosa“, þar sem hann samdi sjálfur fyrstu átta taktana og sagt er að þar hafi hann gefist upp. Hann gekk frá fyrstu tveimur töktunum fyrir hljómsveitina og næstu sex töktum fyrir kórinn og skrifaði bassalínuna með. Þannig flytjum við það. Hljómsveitin hefur verkið, síðan syngur kórinn og einn bassaleikari leikur með; þegar kemur að þessum punkti þá stoppum við, ljósin ganga niður og ég slekk táknrænt á kerti.“ Tónleikagestir, sem hafa verið við- staddir á síðustu árum, segja það af- ar fallega stund þegar tónskáldsins er minnst á þennan hátt og Garðar segir gestina almennt hafa haft orð á því. Stuttir en fallegir tónleikar „Eftir smáumhugsun byrjum við þennan kafla aftur og leikum þá hluta sem Mozart kom að, sem hann og aðstoðarmaður hans Syßmayr gerðu, en látum alveg vera þá kafla sem Syßmayr skrifaði einn. Þetta verða stuttir en fallegir tónleikar,“ segir Garðar. Einsöngvarar í sálumessunni í kvöld eru Auður Gunnarsdóttir, Nanna María Cortes, Björn I. Jóns- son og Davíð Ólafsson. Þegar Garðar er spurður um gildi Mozarts segist hann nefna W. A. Mozart þegar spurt er um mesta tónskáld allra tíma. „Þetta er auðvitað afstætt en fyrir mér kemst enginn nær fullkomnun en Mozart. Ég held mikið upp á fleiri tónskáld en það má taka undir það, að Mozart sé tákn háleitustu feg- urðar sem býr í tónlist.“ Óperukórinn flytur Sálumessu Mozarts í Langholtskirkju á dánarstundu tónskáldsins eftir miðnætti Enginn kemst nær fullkomnun Morgunblaðið/Brynjar Gauti Miðnæturtónleikar Óperukórinn æfir Requiem Mozarts undir stjórn Garðars Cortes í gærkvöldi. Tónleikarnir hefjast eftir miðnætti. Í HNOTSKURN » Dimma gefur út 17 titla íár, ljóð, hljóðbækur, djass og þjóðlagaskotna tónlist. » Meðal hljóðbókanna erudiskar með upplestri skáld- anna Sigurðar Pálssonar og Óskars Árna Óskarssonar, tón- skreyttir af Jóel Pálssyni og Sunnu Gunnlaugsdóttur. » Aðalsteinn Ásberg legguráherslu á hljóðbækur með barnaefni. Í ár gefur hann meðal annars út bók um Fíusól eftir Kristínu Helgu Gunn- arsdóttur, Franskbrauð með sultu eftir Kristínu Steins- dóttur og Söguna af bláa hnett- inum eftir Andra Snæ Magna- son. » Meðal útgefinna verka í árer Hjartaborg, sjöunda ljóðabók Aðalsteins Ásbergs. » Aðalsteinn segir ljóð-yrkjuna vera aðalstarfið. ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.