Morgunblaðið - 10.12.2007, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. DESEMBER 2007 39
Björnssonar hafa og jafnan verið
einfaldir, alþýðlegir og lausir við
illskiljanlegt orðskrúð sem á stund-
um hefur loðað við fyrrnefndar
sveitir. Eftirminnileg eru unglings-
leg yrkisefni Helga, textar á borð
við „Blautar varir“, „Bannað“, „Ég
verð að fá að skjóta þig“, „Halló,
ég elska þig“, „Klikkað“, „Vertu þú
sjálfur“ og fleiri félagsmiðstöðv-
akvæði.
Þótt alþýðleiki Sólarinnar hafi
jafnan verið fölskvalaus voru 20 ára
afmælistónleikar sveitarinnar í
Borgarleikhúsinu ekki alveg lausir
við epísk blæbrigði. Jafnvel einföld-
ustu rokkslagarar voru komnir í
snyrtilegan afmælisbúning, með
Floyd-ískum fetilgítar, fiðlu og
fögrum flygiltónum. Vitanlega er
SEINT á níunda áratug síðustu
aldar hófst glæstur ferill fjögurra
íslenskra hljómsveita sem enn
starfa. Hér er vitanlega átt við Ný
dönsk, Todmobile, Sálina og Síðan
skein sól. Einhverra hluta vegna er
hin síðastnefnda sú eina þeirra sem
enn hefur ekki leikið á tónleikum
með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Ástæða þess er hugsanlega sá al-
þýðlegi einfaldleiki sem einkennir
tónlist Sólarinnar. Textar Helga
viðeigandi að
bregða sér í
spariföt við af-
mæli og önnur
merk tímamót
en fyrir vikið
verður allt svo-
lítið settlegt og á stundum þvingað.
Sólin hefur annars alltaf verið af-
skaplega góð rokksveit og þá í
sinni hráustu og einföldustu mynd.
Rokkið virkar bara ekki í spariföt-
um, ekki frekar en pylsa með öllu á
fimm stjörnu steikhúsi.
Ballöður Sólarinnar eru margar
og góðar. Þær voru og helsta
eyrnakonfekt tónleikanna og hefðu
að skaðlausu mátt vera fleiri. Eink-
um saknaði ég hins gullfallega „Þú
kysstir mína hönd“, sem er eitt af
bestu lögum Sólarinnar. „Ég stend
á skýi“ er annars dæmi um fram-
úrskarandi smíð sem var reglulega
fallega flutt á tónleikunum. Hið
sama má segja um fleiri lágstemmd
og melódísk lög af fyrstu plötum
Sólarinnar, t.d. „Svo marga daga,“
„Geta pabbar ekki grátið?“ og
„Engill“.
Þótt Sólin sé í grunninn rokk-
sveit má segja að hún skíni einatt
skærast í ballöðunum, að minnsta
kosti á tónleikaupptökum þeim sem
hér eru til umfjöllunar. Bassaleikur
Jakobs Smára Magnússonar er sér-
deilis melódískur og söngur Helga
Björnssonar er fyrsta flokks. Sá
mikli sviðsmaður hefur með ár-
unum smám saman komist í hóp
okkar allra bestu söngvara. Eink-
um eru það fraseringar kappans
sem gera hann svo góðan sem raun
ber vitni.
Í Sólinni er annars valinn maður
í hverju rúmi og flutningur þeirra
er allur hinn vandaðasti, sem og
annarra hljóðfæraleikara á tónleik-
unum. Þá eiga Silvía Nótt og KK
skemmtilega innkomu sem gestir
og hrista eilítið upp í snyrti-
mennskunni.
Útgáfa þessi er prýðilegur vitn-
isburður um fínar ballöður og til-
gerðarlausar poppsmíðar af löngum
og merkum ferli hljómsveitarinnar
Síðan skein sól. Því miður kemst
þó engan veginn til skila sá kraftur
og rokkþungi sem í sveitinni býr.
Settleg sól
TÓNLIST
Geisladiskur / DVD
Síðan skein sól – Síðasta vetrardag
20 ára afmælistónleikar í
Borgarleikhúsinu
Orri Harðarson
MÓÐIR söngkonunnar Amy Wine-
house hefur ritað dóttur sinni op-
inbert bréf þar sem hún biður hana
að hafa samband og koma heim.
Auk þess sem hún minnir hana á að
hjálp sé í boði.
„Þetta bréf er mín leið til að láta
þig vita að það eina sem þú þarft að
gera er að koma til okkar og við
munum gera allt til að láta þér
batna,“ skrifar Janis Winehouse í
bréfinu sem var birt í dagblaðinu
News of the World. „Eftir allt ertu
ennþá barnið mitt og verður alltaf.“
Tónlistarferill Winehouse er nú í
bið vegna vandræðagangsins sem
er á henni og eiginmaður hennar,
Blake Fielder-Civil, situr í fangelsi.
Móðir hinnar 24 ára stjörnu ráð-
leggur henni að taka upp síman,
hringja heim og láta vita hvað er að
angra hana. „Hún er ennþá ung og
viðkvæm þó hún sé orðin stór-
stjarna,“ segir mamman.
Winehouse hefur komist ansi oft í
blöðin á árinu vegna fíkniefna- og
áfengismisnotkunar.
„Hvar sem þú ert og hvað sem þú
þarft, erum við hér fyrir þig dag og
nótt. Ég vona að þú vitir það,“ lýk-
ur mamma hennar bréfinu.
Winehouse var tilnefnd til sex
Grammy verðlauna í síðustu viku,
meðal annars fyrir plötu ársins.
Vandræðagemsi Amy Winehouse.
Biðlar til
dóttur
sinnar