Morgunblaðið - 24.12.2007, Síða 22

Morgunblaðið - 24.12.2007, Síða 22
22 MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING SÝNINGIN Undra- börn sem stendur yfir í Þjóðminjasafni hefur vakið mikla athygli og hefur þegar verið fjallað um hana í gagnrýni hjá blaðinu. Ljósmyndir Mary Ellen eru nú komnar út á bók og ritar Einar Falur Ingólfs- son ljósmyndari inngang að henni þar sem saman koma fróðleikur um Öskjuhlíðarskóla og Safamýr- arskóla og viðtöl við aðstandendur. Heimildarmynd Martins Bell, Alexander, er síðan hluti af sýn- ingunni Undrabörn en þar segir frá daglegu lífi Alexanders, nem- anda í Öskjuhlíðarskóla. Mary Ellen Mark nálgast mynd- efni sitt af virðingu og varfærni með möguleika ljósmynd- arinnar í huga. Bókin er í stóru broti, myndirnar allar í svarthvítu, og áhersl- an á myndbyggingu, áferð, ljós og skugga skilar sér vel. Hún dregur fram augna- blik í lífi barnanna, góð og slæm og birtir tengsl barnanna við þá sem þau eiga sam- skipti við. Afstaða hennar er hlutlaus en samúð hennar fer ekki á milli mála. Þó veitir hún áhorfandanum ávallt ráðrúm til að lifa sig á sinn hátt inn í þann oft á tíðum erfiða veruleika sem þarna birtist. Tæknilegir og listrænir þættir ljósmyndanna forða þeim frá því að verða tilfinningalegum rússíbana áhorfandans að bráð, þær yfirþyrmandi tilfinningar sem koma upp verða bærilegri því í sömu andrá grípa mann sjónrænir þættir myndarinnar og þannig verður til samspil myndefnis og umhverfis, samspil sem er rauði þráður myndanna. Ljósmyndir Ív- ars Brynjólfsonar sem eru aftast í bókinni, af innviðum skólanna, eru síðan áhrifamiklar í einfaldleika sínum. Heimildarmynd Martins Bell um Alexander, nemanda í Öskjuhlíð- arskóla, er sömu kostum búin. Það er erfitt að horfa á þessa mynd en um leið gaman að fá að kynnast Alexander sem birtist sem sterk- ur, blíður og glaður persónuleiki. Engin leið er að skilja í raun þann veruleika sem hann býr við eða þau sem standa honum næst en hér tekst afburða vel að varpa ljósi á hið ósagða. Myndin segir frá erfiðu ferli sem er í sífelldri þróun og umbreytingu, auk þess að varpa ljósi á báða skólana og starfsemi þeirra. Hér kemur einstaklega vel fram hvers listin er megnug en bæði bók og kvikmynd miðla af full- komnu listrænu innsæi veruleika sem margir þekkja ef eigin raun en er mestan part ósýnilegur í samfélaginu frá degi til dags. BÆKUR Ljósmyndabók Undrabörn, ljósmyndir eft- ir Mary Ellen Mark og Ívar Brynjólfsson, texti eftir Mary Ellen Mark og Einar Fal Ingólfsson, Þjóðminja- safnið 2007. Alexander, heimildarmynd eftir Martin Bell, 2007. Undrabörn, Alexander Ragna Sigurðardóttir Mary Ellen Mark Að birta hið ósegjanlega Í skáldsögunni Hundshaus eftir Norðmanninn Morten Rams- land er sögð ætt- arsaga þriggja ættliða í Noregi og í Danmörku og nær sögutíminn frá millistríðs- árunum fram í nú- tímann. Sagan er sögð af ungum list- málara af þriðja ættliðnum sem snýr til Danmerkur frá Amsterdam til að kveðja ömmu sína á dánarbeði. Fjöl- skyldan er í upplausn; faðirinn er fyr- ir löngu stunginn af með annarri konu og er talinn hafa farist við fjalla- klifur, móðirin annast munaðarlaus börn einhvers staðar í þriðja heim- inum og heima hjá systur sinni reynir hinn ungi listmálari að henda reiður á flókinni og átakanlegri fjölskyldusög- unni með því að mála hana á striga. Þannig rifjar hann upp ýmsar sögur af fjölskyldumeðlimum; sorglegar, fyndnar, ljótar og fallegar. Hann seg- ir meðal annars sögur af afa sínum sem lenti í fangabúðum nasista og varð síðan drykkfelldur frístund- armálari og slæmur eiginmaður og faðir, af braskaranum föður sínum sem forðaðist alla tíð að enda eins og sinn eigin faðir og sögumaðurinn af- hjúpar jafnframt ýmis viðkvæm fjöl- skylduleyndarmál. Og í ljósi ætt- arsögunnar allrar gerir hann upp eigin sögu sem inniheldur meðal ann- ars ótímabæran dauða þroskaheftrar frænku og óhugnanlegan hundshaus. Þegar komið er áleiðis í söguna þá er ljóst að Hundshaus er ekki ein af þeim bókum sem einblína á fegurðina í lífinu. Þó svo að það sé heilmikill húmor í frásögninni þá fer meira fyrir óhamingju en hamingju í bókinni en persónurnar verða fyrir eilífum áföll- um og vonbrigðum. Ástin er vissulega til staðar en hún kólnar yfirleitt fljótt og verður yfirleitt sem eins konar tál- sýn eða goðsögn sem á ekkert skylt við raunveruleikann. Þó blundar ein- hver angurvær fegurð undir þessu öllu saman. Persónuflóran í bókinni er heil- mikil og með henni hefur höfundur unnið stórkostlegt verk. Persónurnar eru allar mannlegar og óútreikn- anlegar, hafa sínar björtu og myrku hliðar og þrátt fyrir að fæstar þeirra séu sérlega viðkunnanlegar þá eru þær heillandi á sinn sérstaka hátt og erfitt annað en að finna til sam- kenndar með þeim. Hundshaus er hrífandi bók; rík af fyndnum, sorglegum, fallegum, óþægilegum og átakanlegum sögum. Þó er eins og eitthvað vanti í endann og lokauppgjörið í samræmi við und- irbúning og aðdraganda. Textinn er lifandi og skemmtilegur og Kristín Eiríksdóttir á hrós skilið fyrir íslensku þýðinguna. Ættarfjötrar BÆKUR Skáldsaga Eftir Morten Ramsland. Kristín Eiríks- dóttir þýddi. 366 bls. Forlagið, Mál og menning 2007. Hundshaus Þormóður Dagsson Morten Ramsland BÆKUR Unglingabók Ef þú bara vissir... Eftir Mörtu Maríu Jónasdóttur og Þóru Sigurðardóttur, 242 bls. Salka, 2007. ÞAÐ má telja víst að skáldsagan Ef þú bara vissir... verður vinsæl hjá unglingunum. Sagan er nefnilega prýðilega skrifuð og furðu heildstæð ef haft er í huga að höfundarnir eru tveir. Hún er raunsæisleg lýsing á því mikilvægasta í lífi unglingsstelpna; ástamálum, útliti, hvernig best er að koma fyrir, net- og sms heiminum og síðast en ekki síst samskiptum við fjölskylduna. Aðalpersóna bókarinnar er Klara, fimmtán ára þroskuð og klár stelpa í Reykjavík samtímans, sem býr við allsnægtir hjá stressuðum en um- hyggjusömum foreldrum. Klara er mjög jákvæð að eðlisfari og trúverðug persóna þó að nokkuð vanti upp á við- brögð hennar við þeim dramatísku at- burðum sem breyta lífi hennar. Hún er hreinlega of þægt og hlýðið barn. Höfundar sýna fram á að í flestum fjölskyldum er eitthvað að, stundum mikið og stundum lítið, að mennirnir eru eins ólíkir og þeir eru margir og að vinátta, trúnaður og traust skiptir mestu máli. Höfundum tekst líka vel að sýna málfar unglinga þar sem ensk orð eru skrifuð upp á íslensku og að- löguð beygingarkerfinu. Einn af helstu kostum bókarinnar er þó hvernig vinkonur styðja og styrkja hver aðra, burtséð frá aldri. Dýpkar það söguna meira en almennt gerist um afþreyingarbókmenntir. Hrund Ólafsdóttir Beint í mark STÆRSTA fíkni- efnamál í sögu ís- lensku lögregl- unnar og reyndar þjóðarinnar allrar sprakk út með hvelli síðla sept- embermánaðar og var með sanni hægt að segja að lögregluyfirvöld hafi mátt hrósa sigri í enn einni orrustu þess harðvítuga stríðs sem geisar linnulaust gegn fíkni- efnavánni. Um fullnaðarsigur er þó ekki að ræða því mál það sem hér um ræðir, Fáskrúðsfjarð- armálið, er ekki einu sinni búið að fá meðferð ríkissaksóknara. Engu að síður náðust sönnunargögn, tugir kílóa af fíkniefnum sem ætla má að hefðu getað selst á hátt í milljarð króna á íslensk- um fíkniefnamarkaði. Um rannsókn þessa máls hefur nú Ragnhild- ur Sverrisdóttir lög- fræðingur skrifað ágæta bók. Efnistök hennar hæfa umfjöllunarefninu vel, hér er knappur stíll, lúmskur húmor inn á milli og nokkuð hröð frásögn, með hæfilega mörgum útúrdúrum þar sem varpað er fróðlegu ljósi á vinnubrögð lög- reglunnar og ýmislegt sem gengur á í undir- heimunum. Þótt vel- þóknun höfundar á lög- reglunni sé til staðar, fær hún eigi að síður svolitlar sneiðar t.d. þeg- ar Ragnhildur ræðir um samskipti fjölmiðla og lögreglu. „Vangavelt- ur fjölmiðla um verðmæti [fíkni- efna] fara alltaf jafn mikið í taug- arnar á lögreglunni, sem segir þær til þess eins fallnar að hvetja aðra til að taka mikla áhættu í fíkniefnainnflutningi.“ (139). Ragnhildur er ekki sammála lög- reglunni hér og segir að nauðsyn- legt sé að almenningur fái tæki- færi til að átta sig á hversu gríðarlega umfangsmikill fíkni- efnainnflutningur er orðinn og hversu miklir fjármunir eru í spilinu, eigi hann að eiga ein- hverja möguleika á að taka upp- lýsta ákvörðun um hvernig beri að taka á vandanum. Ýmislega forvitnilega þætti rek- ur Ragnhildur síðan í tengslum við rannsóknina og þar eru eft- irminnilegir þættir dönsku her- skipsmannanna af Triton og ís- lensku varðskipsmannanna sem fylgdu smyglskútunni á leiðinni milli Færeyja og Íslands á loka- kafla smyglsins sem síðan fór út um þúfur. Ragnhildur segist hafa skrifað bókina á nokkrum vikum í haust eftir bestu fáanlegu heim- ildum á þeim tíma. Þarna hefði mátt geta einhverra heimilda en að öðru leyti nær bókin tilgangi höfundar, sem er að varpa ljósi á vinnubrögð lögreglu og leyfa les- endum að skyggnast inn í heim fíkniefnanna. Lögreglan kemst í feitt BÆKUR Sakamál Ragnhildur Sverr- isdóttir: Aðgerð Pól- stjarna. Rannsókn skútumálsins á Fá- skrúðsfirði. Skuggi for- lag, Reykjavík 2007. Aðgerð Pólstjarna Örlygur Steinn Sigurjónsson Ragnhildur Sverrisdóttir Í titli þessarar fyrstu ljóðabókar Höllu Gunn- arsdóttur felst skemmtilegur leikur; hér er vís- að til eins fræg- asta útilegu- manns á Íslandi og um leið – þar sem nafn höf- undar er það sama – til Höllu sem fylgdi honum í útlegðina. Fjalla- Eyvindur og Halla eru að sjálfsögðu eitt frægasta par Íslandssögunnar og sá grunur vaknar strax að höfundur sé hér að lýsa leitinni að sínum „Fjalla-Eyvindi“; þær grunsemdir fást staðfestar við lestur ljóðanna. Um leið er lýst ferðalagi um heiminn, ljóðmælandi er sjálfur n.k. úti- legumaður – eða útilegukona – sem ferðast víða um heim eins og yf- irskriftir margra ljóðanna bera með sér. Ljóðin hafa öll staðarheiti að yf- irskrift; hér er ferðast á milli Mos- fellsbæjar, Kúbu og Kuala Lumpur og Singapúr, Sahara og Sóleyjargötu, svo dæmi séu tekin. Ljóðin fjalla allflest um það sem kalla mætti tilraun til sambands, eða bara einfaldlega leitina að ástinni. En þránni virðist erfitt að svala og um miðbik bókarinnar má lesa þetta: „Ég sit ein í Singapúr og velti því / fyrir mér hvort ég sé ef til vill / að leita langt yfir skammt“. Í ljóðinu Áttavillt er svipuð hugsun á ferðinni: „Á hroll- köldum haustmorgni blæs / norðan- áttin úr austri og vestri. // Ég hita mér te og hugsa suður, / til þín.“ Söknuður og glötuð augnablik koma víða fyrir en oftar virðist ljóðmæland- inn láta sér aðskilnaðinn í léttu rúmi liggja: „Ég og þú erum eins og sand- ur og / sandalar […] / virkum engan / veginn saman“. Leitin að Fjalla-Eyvindi inniheldur aðeins 27 ljóð og í flestum þeirra er brugðið upp hnitmiðuðum skyndi- myndum á einföldu máli. Hér er lítið um skáldleg tilþrif, myndmálsnotkun í algjöru lágmarki og undirtexti lítill (vel heppnuð undantekning frá því er ljóðið Fossvogur). Höfundur tekst ekki á við tungumálið sem slíkt held- ur notar það aðeins til að miðla hugs- un sinni. Að því leyti mætti tala um nokkurn byrjendabrag á ljóðunum. Styrkur bókarinnar liggur hins vegar í húmorískri sýn höfundar sem víða bregður fyrir og þeirri heild sem ljóð- in saman ná að kalla fram. BÆKUR Ljóð Eftir Höllu Gunnarsdóttur. Nykur 2007, 58 bls. Leitin að Fjalla-Eyvindi Soffía Auður Birgisdóttir Leitað langt yfir skammt? Halla Gunnarsdóttir VIÐ Íslendingar lítum gjarnan fram hjá næstu nágrönnum okkar, Græn- lendingum og Færeyingum, þegar við berum okkur saman við „nálæg- ar þjóðir“, eða þau lönd „sem við vilj- um bera okkur saman við“, eins og stundum er sagt. Þá horfum við til skandinavísku landanna og eins til Þýskalands, Englands og Bandaríkj- anna. En þegar hugað er að ýmsum þáttum sögulegs og menningarlegs sjálfsskilnings, höfum við fyllstu ástæðu til að skyggnast annars stað- ar og nánar um strandir í nálægum heimspörtum. Á hugann leita þá staðir eins og Nýfundnaland, Írland og Bretanía. Lítt hefur borið á bókmenntum frá Bretaníuskaga í íslenskri gerð, en úr þessu hefur Ólöf Pétursdóttir bætt með tveimur þýddum ljóða- kverum, fyrst í fyrra með Dimmum draumum, þar sem eru ljóð eftir sex bretónsk skáld (sem yrkja ýmist á bretónsku eða frönsku), og svo nú með drjúgu safni ljóða eftir Xavier Grall, Söng regns og grafar. Grall á raunar flest ljóðin í Dimmum draumum og jafnframt þau áleitn- ustu. Þau eru öll endurbirt í Söng regns og grafar og mörgum bætt við. Fyrri bókin geymir fáar upplýs- ingar um skáldin og baksvið þeirra, en í þeirri seinni fjallar Ólöf í inn- gangi og eftirmála um Bretaníu, keltneska menningarsögu, þ. á m. hið bretónska tungumál, og stutt- lega um Xavier Grall (1930-1981), sem var blaðamaður í París en hvarf heim á bretónskar æskustöðvar til að huga að þeim arfi sem honum fannst hann hafa verið rændur. Hann var meðal fjölmargra Bretóna af kynslóð sem fékk ekki að eiga bretónsku sem sitt fyrsta mál. Hann virðist síðar hafa áttað sig á því að honum hafði verið breytt í „miðlæg- an“ Frakka en þá snýr hann líka við blaðinu, eins og sjá má í hinu magn- aða ljóði „Segið þeim það í borginni“, en því lýkur svo: Orðið varð að segli og þara lyngmóa og kapellu Gelískra manna strönd ég uni hjá þér Segið þeim það í borginni Ég kem ekki aftur. Íslensk vitund á hægt með að tengjast bretónskri í ýmsum ljóðum Galls, þar sem maðurinn mátar sig, stundum á tregablandinn hátt, við hrjúfa jörðina og söguna sem hún býr yfir; við ströndina og hafið, og við gamla sjósóknara: „Heima eru öldungar með eyjar í augum“. Og tengslin við Írland eru Grall einnig jafn ofarlega í huga og mörgum Ís- lendingnum. Hver þarf Signu þegar hann hefur ána Aven og hver þarf Ameríku þeg- ar hann hefur Armoríku (eins og Bretaníuskagi er einnig nefndur)? En Grall minnir þó raunar einnig á siglingar Bretóna víða um heim og hann les heimaslóðir sínar reyndar einnig saman við Ameríku í ljóði sem ort er til minningar um beat- höfundinn Jack Kerouac. Með þessum þýðingum hefur Ólöf Pétursdóttir hnikað til íslensku ljóðalandakorti, í áhugaverða átt. Bretónskir söngvar BÆKUR Ljóðaþýðingar Dimmir draumar: Nokkur ljóð frá Bret- aníuskaga, Körtur í pyttum 2006 og Söngur regns og grafar eftir Xavier Grall; GB-útgáfa 2007. Ólöf Pétursdóttir þýddi. Ástráður Eysteinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.