Morgunblaðið - 24.12.2007, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2007 25
Grundarfjörður | Bæjarstjórn Grundar-
fjarðar kallar eftir tafarlausum aðgerð-
um ríkisstjórnarinnar til að bæta fjár-
hagsstöðu bæjarins sem sér fram á
tekjumissi vegna ákvörðunar um að
skerða þorskveiðar um þriðjung. Kemur
þetta fram í ályktun bæjarstjórnarinnar.
Vísað er til þess að í mörg ár hafi
fulltrúar sveitarfélaga rætt um að þau
þyrftu meira fé til að framfylgja skyldum
og verkefnum sínum. Allra síðustu ár
hafi komið enn skýrar í ljós mikill að-
stöðumunur sveitarfélaga á landsbyggð-
inni samanborið við höfuðborgarsvæðið.
Sérstök framlög úr Jöfnunarsjóði dugi
skammt til að leiðrétta hann. Ríkið standi
ekki við sínar skuldbindingar, t.d. um að
greiða 60% í uppbyggingu framhalds-
skóla, og umframkostnaður lendi á sveit-
arfélögum.
„Við þessar fjárhagslegu aðstæður
koma áhrif 30% skerðingar þorskaflans
mjög harkalega fram hjá Grundarfjarð-
arbæ og sveitarfélögum sem byggja á
sjósókn og vinnslu sjávarafurða,“ segir í
ályktun bæjarstjórnar. Minnt er á að rík-
isstjórnin hafi ekki greint frá því hvernig
sveitarfélögum verði bætt tekjutap
vegna niðurskurðarins og hingað til hafi
mótvægisaðgerðir ríkisstjórnar siglt
stóran sveig framhjá Grundarfirði.
Kalla eftir
aðgerðum
ríkisvaldsins
úr því var að hann sendi frá sér
ályktun sem mér finnst felast nokk-
uð stór sannleikur í, en málið geng-
ur út á það að ekki sé hægt að áfell-
ast ráðuneytið fyrir mína höfnun,
því þó að það hafi ekki unnið faglega
í málefnum annarra þá geti ég ekki
átt sjálfkrafa rétt á því sem lögin
leyfa ekki. Þannig hafi ráðuneytið
vissulega ekki farið eftir lögum þeg-
ar það afgreiddi aðra í minni stöðu
jákvætt.“
Guðmundur segir aðalástæðuna
fyrir þessari baráttu vera spurningu
um starfsöryggi og betri laun. „Ég
hef einu sinni þurft að flytja vegna
þess að ég missti vinnuna, kennari
með réttindi sótti um starf í skól-
anum sem ég kenndi í og því varð ég
að víkja. Ennfremur er það forsenda
fyrir ráðningu að hafa þessi réttindi
og t.d. algjörlega nauðsynlegt ef
menn sækja um skólastjórastöðu.“
Þrátt fyrir að hafa ekki starfs-
heitið starfaði Guðmundur í fimm ár
í stjórn Kennarafélags Vesturlands.
„Mér fannst oft pínlegt að sitja und-
ir árásum ýmissa kennara, þar sem
þeir tala niður til leiðbeinenda, sem
þó geta haft miklu meiri menntun
en þeir sjálfir. Þetta sárnaði mér
mest, því ég hef litið á sjálfan mig
sem kennara frá því ég lauk
kennsluréttindanáminu og borga
mín gjöld í KÍ.“ Guðmundur segist
þó ekki hafa beitt sér í sínu máli inn-
an Kennarafélagsins því í rauninni
snúi þetta að því, þar sem verið sé
að sía inn í stéttina, að varna ófag-
lærðum inngöngu og verja starfs-
réttindi. „Mér datt í hug í öllu þessu
ferli að þetta væri kannski birting-
armynd kynjamisréttis, hvort svona
hefði verið komið fram við konu.
Ennfremur varð ég hissa á því að
Meistarafélag kjötiðnaðarmanna
skyldi ekki beita sér því ég tel það
niðurlægjandi fyrir greinina að vera
ekki virt meira.“
Á eftir að halda
upp á starfsleyfið
Í haust tók Guðmundur upp þráð-
inn að nýju og nú í ljósi starfs-
reynslu. „Þetta er 10. starfsárið mitt
og núna fékk ég starfsleyfið
umyrðalaust. Ég varð mjög hissa og
átti alveg eins von á að þurfa gera
eitthvað meira. Ég sendi að vísu
með bréf frá tveimur skólastjórum,
og kannski hefur það haft eitthvað
að segja.“
Guðmundur bindur vonir við að
nýtt frumvarp taki á þessum málum
svo að kennarar geti flætt meira á
milli skólastiga. Hann segist enn-
fremur þeirrar skoðunar að fleiri
karlmenn vanti inn í skólana en þar
fæli fyrst og fremst lág laun frá.
Hann segist hafa gaman af kennsl-
unni og nýtur samskiptanna við
krakkana. „Ég er ekki búinn að
halda sérstaklega upp á nýfengið
starfsleyfi enda ekki hægt að halda
mikið upp á fyrir mann með svona
laun,“ segir Guðmundur og bætir
við að jólagjöfin frá ráðaneytinu í ár
sé ein besta jólagjöf sem hann hafi
getað hugsað sér.
Morgunblaðið/Guðrún Vala
sex ára baráttu við „kerfið“.
METÞÁTTAKA var í árlegri frið-
argöngu á Ísafirði í gær. Segir Jóna
Benediktsdóttir, skipuleggjandi
göngunnar, fjöldann aukast frá ári
til árs og er þetta tólfta árið sem
gangan er farin. „Veðrið var ynd-
islegt, næstum logn og smá snjó-
drífa. Þetta var akkúrat rétta
stemningin til að skapa jólafriðinn í
hjartanu,“ segir Jóna.
Anna Sigríður Ólafsdóttir fór
með fallega hugvekju um þýðingu
orðsins „friður“ í tilefni göng-
unnar, Skúli Þórðarson trúbador
spilaði og söng og tvær ungar
stúlkur sungu jólasálm í lokin.
Fjölmenn friðarganga
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
LANDIÐ