Morgunblaðið - 24.12.2007, Page 32
gæludýr
32 MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Fyrst og fremst þurfum viðað vara okkur á því að veraekki að gefa gæludýrunumokkar reyktan, kryddaðan
og saltan mat því það endar bara yf-
irleitt með magapínu og uppköstum
og ekkert sérlega gleðilegum jólum
hjá þeim,“ segir Katrín Harðardóttir,
dýralæknir á Dýralæknaspítalanum í
Víðidal.
Þrátt fyrir að dýraeigendur leiti
gjarnan leiða til þess að gera dýr-
unum sínum dagamun yfir hátíð-
arnar, þola bæði hundar og kisur
reyktan og kryddaðan mat mjög illa
þar sem meltingarfæri þeirra eru alla
jafna mjög viðkvæm. Því er ekki ráð-
legt að bera í þau jólamat mannanna
á borð við hamborgarhrygg eða
hangiket.
Ókryddað fuglakjöt og lambakjöt
ætti þó ekki að koma að sök, en rétt
þykir að sneiða algjörlega hjá sósum,
sem eru bara fitandi og kalla á maga-
verk og niðurgang, að sögn Katrínar.
Það er oft ansi fjörugt að gera hjá
okkur við að svara í síma og taka á
móti dýrum, sem þarf að rétta af eftir
magakveisur jólanna. Venjulega er
þá byrjað á því að gefa þeim soðin
hvít hrísgrjón og AB-mjólk til þess að
freista þess að koma heilsufarinu í lag
á ný.
„Ég skil vel að fólk vilji gleðja dýr-
in sín með einhverju góðgæti á jólum,
en þá þarf helst að sneiða hjá allri
þeirri óhollustu, sem mannfólkið læt-
ur ofan í sig yfir hátíðarnar. Séu
hundar og kettir ekki vanir öðru en
þurrmat og vatni mæli ég með því að
menn sleppi því að gefa þeim fram-
andi fæði, en kaupi þess í stað gott
blautfóður, svona til hátíðabrigða.
Það eru nefnilega mun meiri líkur á
því að blautmaturinn fari betur í
meltingarkerfi þessarra ferfættu fjöl-
skyldumeðlima heldur en hangikjöt-
ið,“ segir Katrín.
Skrautböndin eru
stórhættuleg
Gæludýraeigendur þurfa sér-
staklega að passa upp á pakka-
skrautsböndin. Hvolpum og kisum
finnast krulluböndin sérstaklega
ómótstæðilegt og spennandi jóla-
skraut, sem í mörgum tilfellum endar
í maga dýranna.
„Í reynd eru bönd þessi stór-
hættuleg í meltingarveginum. Þarm-
arnir þræðast upp á böndin og oft
lendum við í því að þurfa að skera kis-
ur upp til að sækja jólaskraut í maga
eða garnir. Uppköst og lystarleysi
eru merki um að skrautband hafi ver-
ið borðað, sem aftur getur leitt til
dauða ef ekkert er aðhafst,“ segir
Katrín.
Hún bætir að lokum við að góð leið
til að sýna dýrunum sínum vænt-
umþykju og umhyggju sé að hafa
fæðuvalið sem líkast því sem þau séu
vön. Hinsvegar myndu þau örugglega
fagna nýju dóti í jólagjöf auk þess
sem góðir göngutúrar með eigendum
væru kærkomnir í þokkabót. Þá gerði
maður sjálfum sér greiða í leiðinni
með smá hreyfingu á milli veislu-
máltíða.
join@mbl.is
Dýrajól Þeir, sem elda sérstakan jólamat fyrir gæludýrin sín, skulu forðast eins og heitan eldinn
reyktan, kryddaðan og saltan mat því það kallar aðeins á magapínur og miður gleðileg jól.
Morgunblaðið/RAX
Dýralæknirinn Gleðja má gæludýrin með útiveru og nýju dóti í jólapakka
fremur en að bregða mjög mikið út af venjubundnu dýrafæði, segir Katrín
Harðardóttir.
Hundar og kisur þola illa reykt og kryddað
Hangiket og hamborgarhryggur kalla aðeins á
tóm vandræði, niðurgang og uppsölur og því ætti
slíkur matarforði alls ekki að sjást á jólaborði fer-
fætlinga. Jóhanna Ingvarsdóttir spurði Katrínu
Harðardóttur, dýralækni, hvernig best væri að
gleðja gæludýrin á jólum.
Morgunblaðið/Ómar
Fæðuval Séu hundar og kettir ekki vanir öðru en þurrmat og vatni borgar sig að gefa
þeim ekki framandi fæði, en kaupa þess í stað gott blautfóður, til hátíðarbrigða.
Ég skil vel að fólk
vilji gleðja dýrin sín
með einhverju góð-
gæti á jólum, en þá
þarf helst að sneiða
hjá allri þeirri óholl-
ustu.
Óskum aðildarfélögum okkar,
viðskiptavinum og landsmönnum öllum
gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.
Þökkum samstarfið á árinu sem er að líða.
Staðlaráð Íslands
ÞAU eru óneitanlega jólaleg ásýndar stjörnulaga ljósin sem þessi kaupmaður
í Manila á Filippseyjum er með á boðstólum. Litríku perurnar sem hann var
önnum kafinn við að koma fyrir í ljósunum í gær áttu líka sinn þátt í að skapa
litfagra jólastemningu.
Reuters
Stjörnur sem skína