Morgunblaðið - 24.12.2007, Page 36
36 MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
SVEITARFÉLÖGIN hafa flest
aðgang að flugvelli sem nýta mætti
mun betur en nú er gert í þágu þeirra
sem þar búa. Nýsköpun í atvinnu og
þjónustu með eflingu flugsamgangna
í hverju sveitarfélagi myndi virka
sem vítamínsprauta fyrir marga
þætti atvinnulífsins á viðkomandi
stað. Oft finnst mér undarlegt að aka
um sveitir landsins og
sjá hvernig litlir flug-
vellir sem standa við
blómleg byggðarlög
eru í raun vannýtt við-
skiptatækifæri.
Hér áður fyrr …
Flugið hélt mörgum
sveitum í byggð hér á
árum áður og flogið var
til margra staða sem
höfðu ekki einu sinni
flugbrautir. Slétt gras,
sandur eða möl var lát-
ið duga svo hægt væri
að flytja fólk, varning og dýr milli
staða. Sú frumkvöðlastarfsemi sem
þá átti sér stað hefur skilað þjóðinni
vel inn í hraðar og traustar flug-
samgöngur og það er fréttnæmt í dag
ef fella þarf niður flug og er það þá
oftast vegna veðurs. En þó má gera
enn betur. Hvar er þessi gamli góði
drifkraftur nú?
Flugsamgöngur eiga að vera
sjálfsögð gæði
Sveitarfélögin hafa á silfurfati
flugvelli sem bíða eftir því að verða
nýttir enn betur í þágu íbúanna af
framsýnu fólki sem vill byggja upp
öflugt atvinnulíf og fjölbreytt sam-
félag með framúrskarandi sam-
göngur og þjónustu. Eins og allir vita
gegnir flugið nú þegar stóru og mik-
ilvægu hlutverki í helstu þéttbýlis-
kjörnunum eins og Reykjavík, Ísa-
firði, Akureyri, Egilsstöðum,
Vestmannaeyjum og Reykjanesbæ.
Ættu smærri byggðakjarnar ekki
sömuleiðis að njóta góðs af öflugri
flugstarfsemi? Bíllinn er ekki heilög
kýr sem hefur unnið alla samkeppni í
samgöngum enda er mikill eðl-
ismunur á bílum og flugvélum þegar
kemur að þeim verkum sem þarf að
vinna og verkefnum sem þarf að
leysa.
Miklir möguleikar
Eftirfarandi þættir
heyra allir undir starf-
semi sem gæti þrifist
vel á mörgum flug-
völlum landsins og er þá
sama hvort um sérhæf-
ingu eða fjölbreyttan
flugrekstur eins aðila er
að ræða og á bæði við
þyrlur og flugvélar:
1. Mikilvægast er lík-
lega sjúkraflugið, leit og
björgun og aðstoð við
hjálparsveitir.
2. Flugkennsla.
3. Flug með fólk í viðskiptaer-
indum.
4. Flug milli sveitarfélaga með fólk
og vörur.
5. Ýmis þjónusta við ferðamenn
eins og ljósmyndaflug, kvikmynda-
flug eða útsýnisflug.
6. Sérverkefni fyrir ýmis fyrirtæki,
ríkisstofnanir og háskóla eins og t.d.
línuflug til að fylgjast með ástandi
raflína, veiðieftirlit, dýratalningar,
umhverfisrannsóknir,
krókavinna og aðstoð við smölun.
Allt ofantalið hefur jákvæð áhrif á
ýmsa þætti í daglegu lífi sveitarfélag-
anna. Þeir sem nýta sér flugið þurfa á
annarri staðbundinni þjónustu að
halda eins og t.d. hótelgistingu, bíla-
leigubílum, veitingum, fararstjórn,
fólki til aðstoðar við ákveðin tíma-
bundin verkefni, fólki með sérþekk-
ingu á svæðinu í kring og margt
fleira. Ekki má heldur gleyma þeirri
þjónustu og aðföngum sem flugrekst-
urinn sjálfur þarfnast á hverjum
stað. Það færist sífellt í aukana að
íbúar höfuðborgarsvæðisins leiti út
fyrir borgina til að losna við streitu
og öðlast hvíld um leið og þeir end-
urnýja kynnin af náttúrunni. Eru
möguleikar þar fyrir aukinn flug-
rekstur í smærri byggðarlögum?
Hvar er hvatningin?
Hvaða gulrætur geta sveitar- og
bæjarfélög úti á landsbyggðinni boð-
ið núverandi flugrekstraraðilum í
landinu til að efla og bæta sam-
göngur sínar og möguleika til frekari
atvinnuþróunar? Hvað gætu þau gert
til að fá nýja aðila til að hefja flug-
rekstur á svæðinu? Í fyrsta lagi þurfa
sveitar- og bæjarfélögin að VILJA
þessa starfsemi til sín og kanna
áhuga flugrekenda á aukinni þjón-
ustu á sínu svæði. Ef það verður nið-
urstaðan þá eru þessar spurningar
hér með lagðar fram til sveitar- og
bæjarstjórna í landinu. Ég vil hvetja
þær til að finna svör við þeim og
marka skýra stefnu til eflingar góð-
um flugsamgöngum og uppbygg-
ingar í ferðaþjónustu í öllum lands-
fjórðungum.
Flugvellir lands-
byggðarinnar eru van-
nýtt viðskiptatækifæri
Nýta þarf flugvelli landsins bet-
ur segir Matthías Ragnars Arn-
grímsson
» Sveitarfélögin hafa ásilfurfati flugvelli
sem bíða eftir því að
verða nýttir enn betur í
þágu íbúanna af fram-
sýnu fólki
Matthías Arngrímsson
Höfundur er atvinnuflugmaður, flug-
kennari og einkaflugmaður.
ÞAÐ er uppskerutímabil í ís-
lensku samfélagi að margra mati, en
á nýútgefnum lista Þróunarstofn-
unar Sameinuðu þjóðanna um lífs-
kjör í heiminum er Ísland í efsta
sæti. Í ræðum hefur Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir utanríkisráðherra
leitt getum að því að
það séu þrír lyklar að
velgengni íslensks
samfélags. Það eru
skynsamleg nýting
auðlinda hafsins, nýt-
ing orkuauðlinda og
svo kvenorkan sem
hefur leyst úr læðingi
í kjölfar aukinna rétt-
inda kvenna og áhrifa
í íslensku samfélagi.
Það gleymist oft að
minnast á þetta þriðja
atriði. Auðlindanýting
og aukið jafnrétti
kynjanna eru meginástæður „ís-
lenska (efnahags)undursins“ sem
margir tala um.
Á uppskerutímum vill maður ekki
bara þakka meðgjöf og meðbyr
heldur líka axla ábyrgð og miðla ein-
hverju til annarra. Miklar vonir eru
bundnar við útrás með þekkingu.
Nú ber hæst að við viljum miðla af
þeim þekkingarforða sem hér hefur
safnast upp á undanförnum árum á
sviði rannsókna og nýtingar jarðhit-
ans. Iðnaðarráðherra sagði nýlega
að Jarðhitaskóli SÞ hér á landi væri
einhver besta fjárfesting og merk-
asta framlag Íslendinga til þróun-
armála. Jarðhitaskólinn hefur á
undanförnum áratugum menntað
fjölda nemenda frá þróunarlöndum
og átt þátt í að gera þekkingu Ís-
lendinga á þessum málum eftirsótta
víða um heim. Til að bæta um betur
var í síðustu viku settur á stofn al-
þjóðlegur orkuskóli sem Orkuveita
Reykjavíkur, Háskóli Íslands og
Háskólinn í Reykjavík standa að, en
þar á að bjóða upp á meistara- og
doktorsnám og námskeið fyrir fólk í
orkugeiranum. Forseti Íslands
sagði í opnunarávarpi
sínu að nám í umhverf-
is- og auðlindamálum
væri hvorki meira né
minna en liður í því
verkefni „að bjarga
heiminum“.
Við eigum aðra auð-
lind sem færri tala um í
tengslum við útrás
þekkingar. Það er sú
merka hefð í jafnrétt-
ismálum sem við búum
að og sú þekking á þeim
sem við höfum aflað
okkur. Það er sóst eftir
þeirri þekkingu víða um heim. Sam-
kvæmt könnun Alþjóða efnahags-
stofnunarinnar er Ísland í fjórða
sæti yfir þau lönd þar sem jafnrétti
kynjanna þykir hvað best. Nú er vit-
að að kynjamisrétti stendur fram-
förum í þróunarlöndum einna mest
fyrir þrifum. Efling jafnréttis er
þess vegna ein helsta forsenda þess
að styrkja lýðræði og auka velsæld í
löndum sem við viljum styðja á veg
þróunar. Ef okkar framlag til að
„bjarga heiminum“ felst í að hjálpa
öðrum þjóðum að nýta jarðhitann þá
ættum við einnig að skapa for-
sendur fyrir þeirri björgun. Við
gætum gert það með að setja á stofn
rannsóknasetur í jafnréttismálum
og jafnréttisskóla.
Hið norræna líkan í jafnrétt-
ismálum er ekki eina viðmiðið í jafn-
réttismálum, eins og kom fram í fyr-
irlestri Drude Dahlerup á
nýafstöðnu þingi Rannsóknastofu í
kvenna- og kynjafræðum við Há-
skóla Íslands. Eigi að síður er nor-
ræn jafnréttishefð sú hefð sem hef-
ur skilað mestum árangri og dylst
engum að velgengni norrænna
landa og áhersla á jafnrétti
kynjanna er samofin. Svíar tala
stundum um að glæsilegasta út-
flutningsvara þeirra séu mannrétt-
indi, en þar búa þeir að forsögu og
þekkingu, sem þeir reyna að koma
sem víðast á framfæri. Væri ekki
ráð fyrir okkur Íslendinga að gera
með svipuðum hætti út á jafnrétt-
ismál og setja í þeim tilgangi á stofn
jafnréttisskóla og rannsóknasetur í
jafnréttismálum? Á þann hátt get-
um við sýnt í verki að við stöndum
undir þeim væntingum sem má gera
til þjóða sem búa við hvað best lífs-
kjör í heiminum, jafnframt því sem
það myndi styrkja jafnréttisrann-
sóknir hér á landi.
Í útrás með jafnréttið
Það er sóst er eftir þekkingu
okkar og hefð í jafnrétt-
ismálum segir Sigríður Þor-
geirsdóttir
» Við eigum aðra auð-lind sem færri tala
um í tengslum við útrás
þekkingar. Það er sú
merka hefð í jafnrétt-
ismálum og sú þekking
sem við höfum á þeim.
Sigríður Þorgeirsdóttir
Höfundur er dósent
í heimspeki við Háskóla Íslands.
HLJÓÐLÁT bylting á sér stað í
grunnskólum landsins þessa dag-
ana. Á grundvelli nýrra laga um
námsgögn er menntamálaráðu-
neytið í fyrsta sinn að
færa til grunnskóla
landsins fjármagn til
námsgagnakaupa sem
skólarnir velja sér
sjálfir. Nú fær hver og
einn grunnskóli, til við-
bótar við sinn kvóta,
hjá Námsgagnastofnun
fé til innkaupa á náms-
gögnum út frá þörfum
skólans og hug-
myndafræðilegri
stefnu.
Breyting í kjölfar
nýrra laga
Ný lög um náms-
gögn voru samþykkt á
vorþingi 2007. Mark-
mið laganna er að
tryggja framboð og
fjölbreytileika náms-
gagna í samræmi við
þarfir nemenda og
skóla. Lögin gera ráð
fyrir að starfsemi
Námsgagnastofnunar
haldist svo til óbreytt.
Að auki er kveðið á
um námsgagnasjóð
sem hefur það hlut-
verk að leggja grunnskólum til fé
til námsgagnakaupa í því augna-
miði að tryggja og auka val þeirra
um námsgögn. Með náms-
gagnasjóði er brotið blað í sögu
námsgagnaútgáfu fyrir grunnskóla
en ríkið hefur eitt séð um útgáfu
námsgagna frá 1936. Framlag til
námsgagnasjóðs er ákveðið í fjár-
lögum ár hvert. Á þessu ári er búið
að greiða samtals 100 milljónir og í
framtíðinni verður greitt úr náms-
gagnasjóði í maí ár hvert. Ráð-
stöfun á þessu fé er til kaupa á
námsgögnum frá lögaðilum og eiga
námsgögnin að samrýmast mark-
miðum aðalnámskrár. Fjármunir úr
námsgagnasjóði mega flytjast milli
ára hjá hverjum og
einum grunnskóla.
Aukið val út frá
sýn kennara
og skóla
Námsgögn grunn-
skóla hafa hingað til
verið einsleit enda
hefur Náms-
gagnastofnun ekki
haft mikið svigrúm
miðað við fjárframlög
síðustu ára. Í raun
hafa stjórnendur
Námsgagnastofnunar
unnið þrekvirki í út-
gáfu námsgagna fyrir
börn þrátt fyrir miklar
breytingar á nám-
skrám og sinnt þörfum
skóla á hagkvæman
hátt. Það er hins veg-
ar löngu tímabært í
ljósi stefnumarkandi
ákvarðana skóla, sveit-
arfélaga og löggjafa að
skólar fái meira svig-
rúm til að kaupa inn
þau námsgögn sem
þeim henta og geti
valið úr fjölbreyttu
efni frá ólíkum lögaðilum, þ.m.t.
Námsgagnastofnun. Nú er vonin að
hinir ýmsu lögaðilar, útgefendur
skólaefnis og jafnvel fyrirtæki
kennara kynni vinnu sína fyrir
skólum landsins og auki þannig val
og ábyrgð kennara sjálfra á því
kennsluefni sem notað er.
Aukið val um
námsgögn
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir
fjallar um ný lög um námsgögn
Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir
»Með náms-gagnasjóði
er brotið blað í
sögu náms-
gagnaútgáfu
fyrir grunnskóla
en ríkið hefur
eitt séð um út-
gáfu námsgagna
frá 1936.
Höfundur er formaður stjórnar náms-
gagnasjóðs.
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
!"#$%!!&'
! ()%)'%*!+*,- )%%)"!.%/!0#!%
# *+"1#)! ,!%0.
' $ )'%*!+ &*!) !%%2) !
3
,- )%!04*!+#522+$26!)!*!-#
7'0+"#4 8!)6!)+!%(02!+),!%%
2!+" 09 $)2:) (()2) $#46!;
0+!%%' $"%"9 $(<-<&)%2!
<! )%(&' !
;=$2
=>
$(<-<&)%2!
<! )%(&' .0%#))
*,- )%)# *+"1#)8)%%? (!"!.6!
?
@.":4%))+ "7 0*,- )%%)$2#70# *+"1#)9 $(<
-<&)%2!
<! )%(&' ! #%6)%&' A :0")%(A=33
!5:)*, B"%2*!2%)#70*,- )%%)# *+"1#)*!+06#
? (!"!.6!? B"%2)%)$27%%0272%"!.*#%)+!
# , 8!.!&C2#)+%9 2)"#&:9 !"#$%!!&' A0+0 )%("6)0#
=A=;!5:)*,$29&!.)",+0 !"#$%!!&' DDD . !"#$%! "
').# $)()2"*,- )%%)
!5:)*,A> (!"!.6!?
#%6)%&'