Morgunblaðið - 24.12.2007, Qupperneq 50
50 MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Fasteignasala
Ármúla 21 - Reykjavík - Sími 533 4040 - Fax 533 4041 - Netfang: kjoreign@kjoreign.is - Heimasíða: www.kjoreign.is
Starfsfólk Kjöreignar
óskar
viðskiptavinum
sínum og
landsmönnum
öllum
gleðilegra jóla.
Við þökkum fyrir
viðskiptin á
liðnum árum.
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
JAFNRÉTTISMÁLARÁÐHERR-
ANN frú Jóhanna Sigurðardóttir
fer mikinn í því að jafna að-
stöðumun karla og kvenna um þess-
ar mundir. Ráðherrann hengir
verðlaunapeninga á þann ráð-
herrann sem fremstur fer í því að
jafna stöðu dætra og sona Íslands í
skólum Íslands. Þar ber þó skökku
við því stefnubundið ójafnræðið er
hvergi grimmara en hjá háttvirtum
menntamálaráðherra Íslands.
Næstur í röðinni fyrir grimmt
ójafnræði dætra og sona Íslands er
að finna hjá háttvirtum utanrík-
isráðherra Íslands en þar er
ástandið slæmt og fer versnandi.
Það má rekja þessa stefnu um kerf-
isbundið misræmi um ójafna stöðu
karla og kvenna hjá ríkisstjórn Ís-
lands til fyrsta embættismanna-
verks jafnréttismálaráðherrans í
skipan í Jafnréttisráð, þar sem sitja
9 einstaklingar. Jóhanna ráðherra
fer þá leið að skipa 6 dætur og 3
syni í Jafnréttisráð. Út á þetta
embættismannaverk verður Jafn-
réttisráð með öllu ómarktækt þar
sem 6 dætur kúga skoðanir og at-
kvæði 3 sona. Allar úrlausnir ráðs-
ins verða því innantóm markleysa.
Þetta nýja Jafnréttisráð Jóhönnu
ráðherra á mikið og erfitt verk fyrir
höndum í því að jafna stöðu dætra
og sona Íslands í ráðuneytum rík-
isstjórnar Íslands. Eins og áður
sagði er ástandið verst í mennta-
málaráðuneytinu en þar eru dætur
skráðar 50 en synir 27 á launum hjá
því ráðuneyti. Næst kemur utanrík-
isráðuneytið en þar eru dætur 61
en synir 48. Svo er það jafnrétt-
ismálaráðuneytið með 24 dætur en
bara 14 syni. Hér á eftir kemur
þversnið að jafnrétti dætra og sona
hjá ráðuneytum ríkisstjórnar Ís-
lands, sjálft framkvæmdavaldið.
Hjá dómsmálaráðuneyti eru dætur
27 en synir bara 12. Hjá forsæt-
isráðuneyti eru dætur 17 en synir
14. Hjá Hagstofu Íslands eru dætur
67 en synir 39 sem framkallar
slæma stöðu fyrir forsætisráð-
herrann því alls verða dætur hér 84
en bara 53 synir. Hjá heilbrigðis-
og tryggingarmálaráðuneyti eru
dætur 37 en synir 22. Iðnaðarráðu-
neytið með 13 dætur en synir eru 8.
Landbúnaðarráðuneytið hefur 14
dætur en 12 syni. Samgöngu-
ráðuneytið hefur 13 dætur en 11
syni. Sjávarútvegsmálaráðuneytið
hefur 12 dætur en 9 syni Umhverf-
isráðuneytið hefur 20 dætur en 11
syni. Viðskiptaráðuneytið síðan með
dætur 12 en bara 5 syni. Síðast en
ekki síst kemur svo fjármálaráðu-
neytið sem sker sig allverulega úr
þessum ójöfnuði enda fer rík-
isstjórn Íslands þá leið að skipa
dýralækni sem ráðherra í þessu
dýra ríki en hjörðin telur bara 28
dætur en 44 syni og er þetta mjög
slæmt. Þegar reikningsdæmið dæt-
ur og synir er gert upp þá eru dæt-
ur alls 407 en synir alls 276. Er
þetta jöfn staða hjá konum og körl-
um í þjónustu ríkisstjórnar Íslands
á vef stjr.is? Allt þetta lið er í því
alla daga með meiru að semja laga-
texta fyrir peðin í Alþingishúsinu.
Þegar til kastanna kemur eru flest-
ir með lagafrumvarpi, margir sitja
hjá en hinir mæta ekki í vinnuna.
Þetta lið Jóhönnu, þingmanns Sam-
fylkingarinnar og ríkisstjórnin öll,
er að leggja grunninn að því sem
kalla mætti embættismannalýðveldi
Íslands, sannkallað dætraríki. Hvað
er til ráða þið synir Íslands? Mis-
rétti kynjanna er mest í þeim ráðu-
neytum þar sem konur eru ráð-
herrar með einni undantekningu.
Er það tilviljun? Jóhanna Sigurð-
ardóttir, háttvirtur félagsmálaráð-
herra, og ríkisstjórn Íslands ætti að
hefja tiltektina í heimahaga áður en
farið er útfyrir og yfir í haga ann-
arra og byrja á fjármálaráðherr-
anum og dýralækninum.
GUÐBRANDUR JÓNSSON,
Logafold 90, Reykjavík.
Hafa dætur og synir
Íslands jöfn tækifæri?
Frá Guðbrandi Jónssyni
NÚ fyrir skemmstu var haldið upp
á fæðingardag Jónasar Hallgríms-
sonar, 16. nóvember, sem dag ís-
lenskrar tungu. Þessi árvissi við-
burður gefur óneitanlega tilefni til
að hugleiða stöðu tungunnar í
landinu.
Ekki verður betur séð en að í
menntakerfinu sé lögð alúð við ís-
lenskukennslu í skólum og einnig
er kappkostað að bjóða nýbúum
upp á íslenskunámskeið. Íslensku-
færni þjóðarinnar virðist þó hafa
hrakað nokkuð, einkum að því er
lýtur að beygingum tungunnar, en
íslenska er allflókið beygingamál.
Fjölmiðlafólk, sem ætti að ganga
hér á undan með góðu fordæmi,
flaskar oft á réttum beygingum.
Þjóðtunga vor á í allharðri sam-
keppni við alþjóðaviðskiptamálið
ensku, sem stöðugt sækir harðar á
eftir því sem hnattvæðingin yf-
irgengur heimsbyggðina. Ensku-
slettur og slettur úr fleiri málum
einkenna tungutak sumra lands-
manna og varð slíkt háttalag
mörgum góðum málverndarsinn-
anum til hinnar mestu skapraunar
og ásteytingar á árum áður, en
þær gagnrýnisraddir virðast nú að
mestu þagnaðar.
Sjálfur er ég ekki meiri mál-
verndarsinni en svo, að ég get vel
séð í gegnum fingur við rétta og
slétta almúgamenn þó þeir sletti
erlendum orðum í ræðu sinni, svo
lengi sem þeir beygja rétt. Hitt
finnst mér gersamlega forkast-
anlegt að forráðamönnum ís-
lenskra stórfyrirtækja skuli hald-
ast það uppi að klína á þau
einvörðungu enskum nöfnum eða –
sem er jafnvel enn smekklausara –
hræra saman íslenskum og ensk-
um orðum í nafngiftum. Dæmi um
slíkt eru mýmörg og vel þekkt:
Baugur Group, Geysir Green
Energy, Reykjavík Energy Invest,
Office 1, FISK-Seafood. Það er þó
skömminni skárra, ef haldið er úti
tveimur aðgreindum nöfnum á
einu og sama fyrirtækinu, öðru al-
íslensku, hinu alensku, svo sem Ís-
lensk erfðagreining og DeCode
Genetics.
Mannanafnanefnd, sem starf-
rækt er hérlendis, hefur það hlut-
verk að veita aðhald á nafngiftum
manna með málverndarsjónarmið
að leiðarljósi, en engri viðlíka
stofnun er mér vitanlega haldið úti
til að sporna við því að gróðap-
ungar haugi saman ónefnum á fyr-
irtæki sín. Alþingi ætti að sjá sóma
sinn í því að taka á þessu máli með
lagasetningu og veita þannig ís-
lenskum fyrirtækjum þarft og
tímabært aðhald. Hnattvæðingin
og gróðakapphlaupið mega aldrei
verða á kostnað íslenskrar tungu
og þjóðmenningar.
GUÐMUNDUR SIGURÐUR
JÓHANNSSON,
Hólavegi 10, Sauðárkróki.
Hugleiðing á degi
íslenskrar tungu
Frá Guðmundi Sigurði Jóhannssyni
UNGIR sjálfstæðismenn hafa
lengi barist fyrir afnámi einkasölu
ríkisins á áfengi.
Það vöknuðu því
vonir innan raða
okkar um að
með nýju rík-
isstjórnarsam-
starfi Sjálfstæð-
isflokks og
Samfylkingar
mætti ná sam-
stöðu um fram-
faramál í frjálslyndisátt. Ungir
jafnaðarmenn höfðu lýst því yfir í
málefnaáherslum sínum fyrir al-
þingiskosningarnar í maí, að UJ
vildi „afnema einokun á áfeng-
issölu og færa bjórinn í búðirnar“
ásamt því að „lækka áfeng-
iskaupaaldur í 18 ár“. Þessar
áherslur voru svo ítrekaðar í
stjórnmálaályktun landsþings
Ungra jafnaðarmanna í október
þar sem UJ segjast „telja að ein-
okun ríkisins á sölu áfengis tíma-
skekkju og að eðlilegt sé að færa
sölu þess í hendur einkaaðila, eins
og tíðkast víðsvegar í nágranna-
löndum okkar“.
Þessar áherslur eru í fullu sam-
ræmi við hugmyndir ungra sjálf-
stæðismanna. Því hefur komið á
óvart hve lítið hefur heyrst frá
fulltrúum frjálslyndis í Samfylk-
ingunni. Við ungir sjálfstæð-
ismenn höfum stutt dyggilega við
bak Sigurðar Kára Kristjánssonar
flutningsmanns áfengisfrumvarps-
ins svokallaða. Við höfum krafið
okkar fulltrúa svara um afstöðu
þeirra til frumvarpsins, flestir
þeirra hafa svarað og flestir styðja
það. Jafnframt höfum við látið í
okkur heyra í fjölmiðlum og mun-
um halda áfram okkar baráttu.
Ég skora því á þá ungliða og
aðra frjálslynda jafnaðarmenn í
Samfylkingunni að liðsinna okkur
í baráttunni fyrir frjálslyndari
áfengislöggjöf með því að beita
þingmenn sína þrýstingi í op-
inberri umræðu sem og öðrum
samskiptum. Nú ríður á að koma
þessu máli í gegn, nú duga engar
afsakanir.
SÆVAR GUÐMUNDSSON,
varaformaður Heimdallar, fé-
lags ungra sjálfstæðismanna í
Reykjavík.
Hvar eru frjálslyndu
jafnaðarmennirnir?
Frá Sævari Guðmundssyni
„Ágæti“ menntamálaráðherra!
Fyrst vil ég óska þér til ham-
ingju með að sýna loksins áhuga á
menntastefnu þjóðarinnar. Það
litla sem við almúginn höfum heyrt
er nokkuð jákvætt. Það er lenging
kennaranáms sem verið hefur í
burðarliðnum í mörg ár. En stund-
um finnst mér að þið, sem stjórnið
skólamálum á Íslandi, horfið ekki
yfir lækinn. Ég sem fyrrverandi
dönskukennari furða mig á því að
danskan skuli njóta minni virð-
ingar en enskan. Þrátt fyrir þá
staðreynd að í dag starfa og eru
við nám u.þ.b. 10 þúsund Íslend-
ingar í Danmörku. Í mörg ár hefur
danska ríkið stutt dyggilega við
bakið á dönskukennslu á Íslandi,
m.a. greitt götu dönskukennara til
frekara náms og boðið til dvalar og
námskeiða í Danmörku. Ég hef oft
heyrt því fleygt að þótt íslensk
börn hafi lært dönsku í 3-5 ár
skilji hvorki þau né Danir þá
dönsku sem hér er kennd. Það tel
ég í lagi svo langt sem það nær.
Ég veit af eigin reynslu að sá
grunnur sem nemendur fá í
dönskukennslu hér á Íslandi nýtist
þeim vel í Danmörku. Algengt er
að Íslendingar sem setjast að eða
koma til náms í Danmörku þurfi
aðeins tvo til þrjá mánuði til að
verða fullfærir í þjóðfélaginu. Ég á
dóttur sem búsett er í Danmörku.
Þegar hún flutti þangað taldi hún
sig ekki nógu góða í tungumálinu
og óskaði eftir því að komast í
dönskunám fyrir útlendinga. Henni
var sagt að taka stöðupróf fyrir út-
lendinga og að því loknu var henni
sagt að hún væri mjög vel ritfær á
dönsku, skildi talað og ritað mál en
hún þyrfti bara að drífa sig út í
samfélagið. Í mínum huga er Ólaf-
ur G. Einarsson eini mennta-
málaráðherrann sem gerði sér
grein fyrir réttmæti dönsku-
kennslu á Íslandi. Hann áttaði sig
á þeim sterku tengslum sem ríkja
á milli þessara landa. Ég endurtek
að danska ríkið hefur stutt veru-
lega við bakið á íslenskum dönsku-
kennurum og mér þykir leitt til
þess að vita að einmitt nú þegar
Íslendingar eru að hasla sér völl í
Danmörku finnist íslenskum
menntamálaráðherra ástæðulaust
að styrkja dönskukennslu á Ís-
landi. Viðbrögð okkar Íslendinga
við ört vaxandi fjölda innflytjenda
er að þeir verði að læra tungu-
málið. Öðruvísi nái þeir ekki að að-
lagast íslensku samfélagi. Danir
eru sömu skoðunar. Mín tillaga er
því að þeir sem koma að íslenskri
menntastefnu athugi sinn gang.
Kennsla í dönsku styður ekki að-
eins við kunnáttu í dönsku heldur
einnig í hinum norrænu tungumál-
unum þ.e. færeysku, norsku og
sænsku.
Með vinsemd.
GUÐNÝ
HELGA ÁRNADÓTTIR,
dönskukennari.
Danska
Frá Guðnýju Helgu Árnadóttur
MORGUNBLAÐIÐ er með í notkun
móttökukerfi fyrir aðsendar greinar.
Formið er að finna ofarlega á forsíðu
fréttavefjarins mbl.is undir liðnum
„Senda inn efni“. Ekki er lengur tek-
ið við greinum sem sendar eru í
tölvupósti.
Í fyrsta skipti sem formið er notað
þarf notandinn að skrá sig inn í kerf-
ið með kennitölu, nafni og netfangi,
sem fyllt er út í þar til gerða reiti.
Næst þegar kerfið er notað er nóg að
slá inn netfang og lykilorð og er þá
notandasvæðið virkt.
Ekki er hægt að senda inn lengri
grein en sem nemur þeirri hámarks-
lengd sem gefin er upp fyrir hvern
efnisþátt.
Þeir, sem hafa hug á að senda
blaðinu greinar í umræðuna eða
minningargreinar, eru vinsamlegast
beðnir að nota þetta kerfi. Nánari
upplýsingar gefur starfsfólk greina-
deildar.
Móttökukerfi
aðsendra greina