Morgunblaðið - 24.12.2007, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2007 51
UMRÆÐAN
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
Samkvæmt lögum VR auglýsir kjörstjórn eftir framboðum í stjórn og
trúnaðarráð félagsins.
Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn skriflegt erindi
til kjörstjórnar á skrifstofu VR.
Skrifleg meðmæli 10 félagsmanna þarf vegna framboðs til setu í stjórn.
Framboð til setu í trúnaðarráði er hægt að senda rafrænt á
kjorstjorn@vr.is
Framboðsfrestur er til 8. janúar 2008
Kjörstjórn
Hefur þú áhuga á að starfa
í forystu VR?
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
HEILSUVERND í margvíslegri
mynd hefur verið stunduð af hjúkr-
unarfræðingum og ljósmæðrum alla
þeirra tíð. Ljósmæður hafa um aldir
sinnt fæðandi konum, sængurkonum
og fjölskyldum þeirra inni á heim-
ilunum, leiðbeint varðandi hreinlæti,
næringu og umönnun ungbarna og
sængurkvenna og gera enn. Skipu-
lögð ungbarnavernd hefur verið
stunduð hérlendis af vel menntuðum
og færum hjúkrunarfræðingum allt
frá því snemma á síðustu öld. Hjúkr-
unarfræðingar í ungbarnavernd
sinna öllum börnum og fjölskyldum
þeirra, á upptökusvæði heilsugæslu-
stöðvanna, erlendum sem inn-
lendum, óháð því hvort barnið og
fjölskylda þess er skráð með heim-
ilislækni á viðkomandi stöð eða með
heimilislækni yfirhöfuð. Hjúkr-
unarfræðingar fara í vitjanir heim til
flestallra nýfæddra barna, veita ráð
og styðja móðurina/fjölskylduna í
nýju hlutverki. Hjúkrunarfræðingar
sinna heilsuvernd skólabarna; bólu-
setningum, skimunum og skoðunum.
Þeir veita fræðslu, styrkja og styðja
heilbrigði og heilsueflingu í skól-
unum. Hjúkrunarfræðingar sinna
mun fleiri og fjölbreyttari störfum á
heilsugæslustöðvum en hér er rætt
um.
Vel menntaðar ljósmæður sinna
flestum konum og fjölskyldum
þeirra á meðgöngu. Þær sinna öllum
konum sem búa á upptökusvæði
heilsugæslustöðvanna, án tillits til
hvort konan eða fjölskylda hennar
hafi heimilislækni á viðkomandi
stöð. Ljósmæður veita faglega
umönnun, stuðning og ráðgjöf. Þær
greina áhættuþætti á meðgöngu og
bregðast við þeim ásamt því að veita
fræðslu um meðgöngu og fæðingu.
Þessi heilsuvernd sem ljósmæður og
hjúkrunarfræðingar stunda, oft við
bágbornar aðstæður og lélegan að-
búnað, skiptir þjóðfélagið okkar
miklu máli. Markmið heilsuverndar
er m.a. að stuðla að heilbrigði.
Hjúkrunarfræðingar og ljósmæður
sinna starfi sínu af miklum metnaði
og leitast við að tileinka sér nýjustu
þekkingu sem til er. Vissulega eru
háar fjárhæðir sem fara í rekstur
heilsugæslunnar. En hvað fáum við
fyrir þennan kostnað? Við getum
m.a. státað af lágri tíðni ung-
barnadauða, burðarmálsdauða og
mæðradauða, svo nefnd séu vel
þekkt viðmið um árangur heilsu-
verndar. Viljum við ekki viðhalda
þessum góða árangri og gera enn
betur ef hægt er? Viljum við ekki
stuðla að heilbrigði? Við erum til-
tölulega heilsuhraust þjóð og langlíf,
og það er að miklu leyti þátttöku
okkar hjúkrunarfræðinga og ljós-
mæðra í heilsuvernd að þakka. Við
erum í samstarfi við aðrar stéttir
eins og fæðingarlækna, barnalækna,
heilsugæslulækna, næring-
arráðgjafa og sálfræðinga. Ég er
ekki að gera lítið úr aðkomu þeirra
að heilsuvernd en af gefnu tilefni tel
ég rétt að benda á okkar hlut.
Með von um áframhaldandi gott
samstarf innan heilsugæslunnar, því
eins og komið hefur fram er árangur
starfsins góður en betur má ef duga
skal og næg verkefni framundan.
RAGNHEIÐUR BACHMANN,
hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir.
Merkilegt starf
Frá Ragnheiði Bachmann
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn