Morgunblaðið - 24.12.2007, Side 61
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 2007 61
Krossgáta
Lárétt | 1 sundfuglar, 8
innt eftir, 9 kyrra, 10
dveljast, 11 mannsnafn,
13 eru ólatir við, 15
vatnagangs, 18 gæði, 21
guð, 22 gana, 23 vesæl-
um, 24 örlagagyðja.
Lóðrétt | 2 Ásynja, 3 skip-
ar fyrir, 4 reiðan, 5 ilmur,
6 æsa, 7 bera illan hug til,
12 hagnað, 14 bókstafur,
15 bjálfi, 16 markleysa,
17 trébala, 18 alda, 19
snákur, 20 nokkur hluti.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 fenna, 4 þarft, 7 jötna, 8 álfar, 9 nær, 11 taut, 13
bali, 14 rykki, 15 edrú, 17 koll, 20 hné, 22 dafna, 23 túðan,
24 runan, 25 ræður.
Lóðrétt: 1 fljót, 2 nýttu, 3 aðan, 4 þrár, 5 rifta, 6 torgi, 10
æskan, 12 trú, 13 bik, 15 eldur, 16 rifan, 18 orðað, 19 lin-
ur, 20 hann, 21 étur.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Er það ímyndun eða ertu alltaf að
rekast á vissa manneskju? Þetta er of
mikil tilviljun til að hafa enga þýðingu. Já,
það er einhver skotinn í þér.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú trúir á sköpunarkraft einhvers
annars og hvetur þann hinn sama til dáða.
Þú átt skilið sama stuðning. Leitaðu til
vina sem trúa á þig.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Margt í sambandi vina er of
djúpt til að skilgreina það. Sannir vinir
ýta hver öðrum áfram til afreka. Það ger-
ir mann sterkari að vita að maður getur
treyst öðrum.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Hugmyndirnar flæða og þú tjáir
þig án nokkurra hafta. Einhvern tímann í
dag leyfir þú ástvinum að finnast þeir
merkilegasta fólk í heimi.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Allir hafa skoðanir sem best er að
halda leyndum vegna eldfimi þeirra. Samt
koma einhverjar þeirra fram í dagsljósið í
dag – og þá verður ekki aftur snúið.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú þarft ekki að hafa áhyggjur af
hvað þú eigir að gefa vinum og fjölskyld-
unni. Bréf sem skrifað er af öllu hjarta er
alltaf frábær gjöf – og stærðin er líka
hentug.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú öðlast meiri trú á sjálfan þig. Það
er vegna þess að þú ert að þroska hæfi-
leika þína. Ástin blómstrar þegar þú gerir
það sem þú ert bestur í.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú getur framkvæmt heilan
helling ef þú hefur drifkraftinn. Það sem
er á tossalistanum þínum er bara ekki
sérlega áhugavert. Ögraðu þér.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Hversdagslegt daður gæti
margfaldast í mikilvægi yfir hátíðarnar.
Hjarta þitt bráðnar eins og snjókarl við
arineld.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þegar þú leyfir hugmyndaflug-
inu að ráða för finnst þér næstum fyndið
hversu fljótt vandamálin leysast. Þú verð-
ur mest skapandi í kringum fiska.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þegar þú gerir plön fyrir há-
tíðarnar skaltu ekki gleyma að huga að
sjálfum þér. Þú átt það skilið að vera
ánægður. Vog og ljón skilja það.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Djarfar ákvarðanir eru góðar fyrir
hjartað. Brjóttu niður múrana sem halda
þér frá sjálfstæði. Syngdu upphátt, talaðu
við ókunnuga og verðu aðra.
stjörnuspá
Holiday Mathis
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e5 7. Rb3 Be7 8. f3
Be6 9. Dd2 Rbd7 10. g4 0-0 11. 0-0-0
Dc7 12. Kb1 b5 13. g5 Rh5 14. f4 exf4
15. Bxf4 Rxf4 16. Dxf4 Hac8 17. Rd4
Rb6 18. Bd3 Dc5 19. Rf5 Hce8 20.
Rxe7+ Hxe7 21. e5 d5 22. h4 Rc4 23.
h5 d4 24. h6 g6
Staðan kom upp á heimsbikarmótinu
í skák sem er nýlokið í Khanty–
Mansiysk í Rússlandi. Sergey Karjak-
in (2.694) frá Úkraínu hafði hvítt í at-
skák gegn Rússanum Evgeny Alek-
seev (2.716). 25. Rd5! nú hótar hvítur
Df4-f6 og því getur svartur ekki tekið
riddarann með biskup. Framhaldið
varð: 25. … Dxd5 26. Bxc4 Dxc4 27.
Df6 og svartur gafst upp. Umsjón-
armaður skákhornsins óskar öllum
skákáhugamönnum gleðilegra jóla.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Teikniæfing.
Norður
♠76
♥865
♦Á87432
♣52
Vestur Austur
♠1043 ♠G982
♥D107432 ♥K9
♦G ♦D1065
♣1086 ♣ÁD9
Suður
♠ÁKD5
♥ÁG
♦K9
♣KG743
Suður spilar 3G.
Suður opnar á 2G og norður lyftir í
þrjú í þeirri von að tígullinn nýtist. En
því fer víðs fjarri að hægt sé að gera
sér mat úr tíglinum. Og það sem verra
er: vestur kemur út með hjarta
sprengir þann lit í fyrsta höggi.
Þetta spil er í rauninni „teikniæfing“
– sagnhafi þarf að teikna upp einu leg-
una sem dugir til vinnings. Laufið
verður að fría án þess að vörnin geti
tekið of marga hjartaslagi og þá þarf
að gera ráð fyrir að austur sé með ♣Á–
D–x og bara tvílit í hjarta.
Sagnhafi dúkkar ♥K í byrjun og fær
slag númer tvö á ♥Á. Hann spilar nú
♣G. Austur drepur og skiptir vænt-
anlega yfir í spaða. Sagnhafi á þann
slag, fer inn í borð á ♦Á og spilar laufi
að kóng. Þannig verður laufliturinn
góður án þess að vestur komist inn til
að taka á fríhjörtun. Og vinningslíkur?
Hverfandi litlar.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1 Argentínski landsliðsmaðurinn Carlos Teves þykirhafa staðið sig best allra leikmanna í ensku úrvals-
deildinni. Með hvað liði leikur hann?
2 Reykjavíkurborg hefur látið ganga frá nýjum leigubíla-stæðum í miðborginni. Hvar?
3 Nýr héraðsdómari hefur verið skipaður við Hér-aðsdóm Norðausturlands og Austurlands að hluta.
Hver er hann?
4 Landsliðsþjálfari þýsku heimsmeistaranna í hand-knattleik er tilbúinn með lið sitt. Hver er hann?
Svör við
spurningum
gærdagsins:
1. Stjórnarformaður
Eimskipafélagsins
hefur látið af störf-
um. Hver er hann?
Svar: Magnús Þor-
steinsson. 2. Ráð-
inn hefur verið nýr
skrifstofustjóri
borgarstjóra. Hver
er það? Svar: Regína Ástvaldsdóttir. 3. Ísbjörn hefur vakið mikla
lukku á Barnaspítala Hringsins með tíðum heimsóknum. Hvað
heitir hann? Svar: Hringur. 4. Íslenska karlalandsliðið í knatt-
spyrnu hefur tryggt sér vináttulandsleik á Laugardalsvelli í maí nk.
Við hverja? Svar: Wales.
Spurter… ritstjorn@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
dagbók|dægradvöl
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
FRÉTTIR
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
UM það bil 120 skákmenn á
aldrinum 6-16 ára tóku þátt
í Jólapakkaskákmóti Tafl-
félagsins Hellis laust eftir
hádegið á laugardag. Mikil
og góð stemning var á
mótinu, sem fram fór í Ráð-
húsi Reykjavíkur, en borg-
arstjórinn, Dagur B. Egg-
ertsson setti mótið og lék
opnunarleik fyrstu skákar-
innar. Fórst honum það að
sögn vel úr hendi.
Nóg af verðlaunum
Keppt var í fjórum ald-
ursflokkum og hlutu fjórir
efstu strákar og stelpur í
hvorum flokki verðlaun, auk
þess sem happdrætti var í
hverjum flokki. Í lok móts-
ins var svo happdrætti þar
sem stærstu vinningarnir
voru dregnir út, þar á meðal
skáktölvur frá Bókabúð
Pennans.
Verðlaunahafar í flokki 8
ára keppenda og yngri voru
Hildur Berglind Jóhanns-
dóttir og Daníel Bjarki Sig-
urðsson. Í flokki 9-10 ára
urðu Sonia María og Dagur
Ragnarsson hlutskörpust.
Þau Hrund Hauksdóttir og
Friðrik Þjálfi Stefánsson
voru efst í flokki 11-12 ára
og í flokki 13-16 ára þau Jó-
hanna Björg Jóhannsdóttir
og Svanberg Már Pálsson.
Jólapakkamótið hefur
verið árviss atburður hjá
taflfélaginu Helli síðan
1996, og mælist ávallt vel
fyrir. Það er nú stærsta
barna- og unglingaskákmót
landsins og sækja það ung-
menni víða að af suðvest-
urlandi. Skákin laðar nú að
sér unga þátttakendur sem
aldrei fyrr, enda mót sem
þetta kjörið tækifæri til að
sýna hvað í manni býr og
eiga um leið möguleika á
einni jólagjöf til viðbótar.
Ekki skemmdi heldur fyrir
að allir þáttakendur fengu
nammipoka í lok mótsins að
launum fyrir góða frammi-
stöðu.
Hellir var stofnaður árið
1991 og hefur aðsetur í
Mjóddinni. Þetta reykvíska
félag er sitjandi Íslands-
meistari í unglingaskák og
keppni taflfélaga.
Fjölmargir krakkar
styttu biðina eftir
jólunum með skák
Morgunblaðið/Golli