Morgunblaðið - 24.12.2007, Qupperneq 64
...og hef jafnvel hug-
leitt að gerast lesbía í
von um betri veiði… 66
»
reykjavíkreykjavík
Flugu sýndist Jesú Kristi bregðafyrir á Klapparstígnum í aðvent-umyrkrinu eitt kvöldið í vikunnien um það leyti sem englakórinn
hóf upp raust sína kom í ljós að þetta var
bara hann Krummi karlinn Björgvinsson í
stuttum, hippalegum pels. Ekki seinna
vænna að klæðast dauðum dýrum þegar
maður er u.þ.b. að verða Súperstar. Og stíf-
bónaðri rennireið forseta lýðveldisins var
lagt ólöglega upp á gangstéttina á Vest-
urgötunni fyrir framan antíkbúlluna Fríðu
frænku en fyrirfólkið okkar hefur einstakt
lag á að redda sér alltaf stæðum í miðborg-
inni. Langaði pínulítið til að prakkarast og
hringja á dráttarbíl frá Vöku en ákvað að
halda jólaskapið í heiðri og vona bara að
Dorrit hafi fundið persónulega og fallega
gjöf hjá frænkunni handa forseta vorum.
Kannski var hún ekkert að spara og versl-
aði í Kirsuberjatrénu sem er önnur af uppá-
halds verslunum frúarinnar fögru. Stuð-
stemning var hjá lestrarhestum og öðrum
dýrum í bókabúðunum; Í anddyri Eymunds-
son var Kolbrún Bergþórsdóttir bók-
menntarýnir á góðlátlegu spjalli við Hrafn
Jökulsson rithöfund, sem kominn var um
langan veg, búsettur í Krummaskuði þessa
dagana. Tónlistarmaðurinn og síðhærði síð-
hippa-afinn Daníel Ágúst var þar einnig að
grúska. Fólk stóð í löngum röðum við af-
greiðslukassana með Harðskaufa undir
hendinni sem eflaust verður vinsælasta jóla-
ritið í ár en fast á hæla þeirrar metsölu-
bókar koma líklega Þúsund bjartar sálir og
Rimlarokkið.
Fluga tók danska kúrinn föstum tökum í
desember en hann samanstendur af bjór,
smurbrauði, dönskum jólahlaðborðum og
spægipylsu. Og ákavíti, nema hvað? Hlaup-
in upp og niður Laugaveginn í gjafakaupum
hafa svo gert sitt til þess að vinna með
heilsubótinni þeirri arna og þar voru í
fyrrakvöld, á meðal annarra jólasveina og
álfa, þeir Egill Helgason sjónvarpsstjarna
og Magnús Scheving íþróttafrömuður. Og
Kjartan Gunnarsson, fyrrverandi fram-
kvæmdarstjóri Sjálfstæðisflokksins leit á
vegfarendur út um gluggann á glansandi
bónuðum jeppanum sínum sem hann ók nið-
ur ljósum prýddan Laugaveginn á meðan
grínarinn Pétur Jóhann Sigfússon var á
vappi í höfuðstöðvum Kaupþings í Austur-
stræti, líklega í þeim tilgangi að þefa uppi
gott hlutverk í auglýsingaherferð bankans.
En slíkt mun vera aukabúgrein helstu gam-
anleikara landsins. Hann gæti sem best
leikið Kertastubb, sem er einmitt uppáhalds
jólasveinn flugu – fyrir utan Hurðarsleiki.
Til hamingju með jólin!
Morgunblaðið/Golli
Baldvin Oddsson, Steindór Arn-
steinsson og Jón Oddur Jónsson.
Rakel Leifsdóttir, Rakel Unnur Thorla-
cius og Eva Margrét Sigmundsdóttir.Sara Dís Hjaltested og Egill Rafnsson.Íris Dögg Einarsdóttir og Harpa Björnsdóttir.
Jóhann Ingi Ottósson, Júlían Jóhann Karl Jó-
hannsson og Friðrik Þórðarson.
Þórdís Sif Sigurðardóttir og Gunn-
laugur Grétarsson. Bjarni Grímsson og Samúel J. Samúelsson.
Thorsten Henn, Jökull Hrafn og
Lovísa Lóa Sigurðardóttir.
Flugan
... Kristur á Klappar-
stígnum og Hrafn
í krummaskuði ...
... Kertastubbur og Hurðarsleikir...
Alma Rún Hreggviðsdóttir, Hreggviður Jónsson og
Leifur Hreggviðsson.
Einar Logi Vignisson og Linda Sigurðardóttir.
» Árlegir jólatónleikar útvarpsstöðvarinnar X-ins 97,7 fóru fram á Gauki á Stöng á fimmtudagskvöldið.
» Fjöldi fólkslagði leið sína
í miðborg
Reykjavíkur, og
voru flestir á
höttunum eftir
fallegum jóla-
gjöfum.
Andre Bachman og Birgir J. Birgisson.
Morgunblaðið/Golli