Morgunblaðið - 24.12.2007, Síða 76
MÁNUDAGUR 24. DESEMBER 358. DAGUR ÁRSINS 2007
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Ný tök eða vopn?
Árásum á lögreglumenn hefur
fjölgað um 19% á tveimur árum og
telur formaður Landssambands lög-
reglumanna að athugandi sé hvort
taka þurfi upp ný tök, eða jafnvel að
vopna lögreglumenn rafbyssum.
» Forsíða
Ísinn hopar
Bráðnun íss á norðurpólnum hef-
ur verið hraðari en áður var gert ráð
fyrir, að sögn vísindamanna. » 8
Réttindabarátta
Guðmundur Eyþórsson hefur
loks, eftir sex ára baráttu, fengið
heimild til að nota starfsheitið
grunnskólakennari. » 24 og 25
SKOÐANIR»
Staksteinar: Sjöunda greinin
Forystugrein: Jólin geta ekki
mistekist
UMRÆÐAN»
Merkilegt starf
Stanslaust stuð
Einvígið á akbrautinni
Aukið val um námsgögn
Heitast 3°C | Kaldast -9°C
Sunnan- og suðvest-
an 8-13 metrar á sek-
úndu og él. Léttskýjað
norðaustan og austan
til. » 10
Tvær mjög ólíkar
stórmyndir verða
frumsýndar í ís-
lenskum kvik-
myndahúsum annan
í jólum. » 70
KVIKMYNDIR»
Heiminum
bjargað
FÓLK»
Stone vill frekar hunda
en menn. » 66
Bónus og Krónan?
Eggert og Björg-
ólfur? Einar og Arn-
ar? Páll og Kolbrún?
Eða Georg og Ólafur
Ragnar? » 72
FÓLK»
Hver eru
pör ársins?
TÓNLIST»
Bo Hall fær þrjár af
fimm. » 66
FÓLK»
Litla jólaflugan flaug um
bæinn. » 64
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Lögregla lýsir eftir manni
2. Rugluðust á heila og hné
3. Phil Spector gagnrýnir … Turner
4. Ronaldo tryggði United þrjú stig
Jólasveinar | 28
JÓLAFAGNAÐUR Hjálpræðishers-
ins og Verndar verður haldinn í
dag, aðfangadag, í Herkastalanum,
Kirkjustræti 2 í Reykjavík.
Fagnaðurinn hefst að venju með
borðhaldi klukkan 18.
Allir þeir, sem ekki hafa tök á að
dveljast hjá vinum og vandamönn-
um á aðfangdagskvöld, eru hjart-
anlega velkomnir í jólafagnaðinn í
kvöld.
Jólafagnaður
Verndar og
Hjálpræðishersins
MORGUNBLAÐIÐ kemur næst út
fimmtudaginn 27. desember. Vegna
hátíðanna verður hlé á útgáfu Fast-
eignablaðs Morgunblaðsins, og kem-
ur næsta blað út mánudaginn 7. jan-
úar.
Að venju verður fréttaþjónusta á
Fréttavef Morgunblaðsins, mbl.is,
yfir jóladagana. Hægt er að senda
ábendingar um fréttir á netfangið
netfrett@mbl.is.
Áskriftadeild Morgunblaðsins
verður opin í dag, aðfangadag, frá
klukkan 7 til 14. Lokað verður á jóla-
dag og annan í jólum. Auglýsinga-
deild blaðsins verður lokuð yfir jólin
en verður opnuð á ný 27. desember.
Skiptiborð Morgunblaðsins verð-
ur lokað á aðfangadag og jóladag en
opið annan í jólum frá klukkan 13 til
20. Símanúmer Morgunblaðsins er
569-1100. Netfang ritstjórnar er rit-
stjorn@mbl.is.
Fréttavakt á
mbl.is um jólin
MIKIÐ var um að vera á Laugaveginum í gær, eins og
hefð er orðin fyrir á Þorláksmessu. Góð þáttaka var í
hinni árlegu friðargöngu, skipuleggjendur töldu um
4000 manns hafa mætt. Kaupmenn, sem haft var sam-
band við, segja verslun fyrir þessi jól hafa verið með
eindæmum góða, þótt veður undanfarinna vikna hafi
sett eitthvert strik í reikninginn. Ekki var þó hægt að
kvarta undan veðri í gær, enda sannkallað jólaveður.
Jólaveður á Þorláksmessu
Morgunblaðið/Golli
„ÞAÐ er hálf öld síðan ég var gestkomandi hjá bróður mínum suður í
Garði. Mig vantaði eitthvað til að lesa mig í svefn og tók ég fram það
eina sem mér fannst lestrarhæft, en það voru Riddarasögurnar. Ég
valdi stystu söguna, sem reyndist vera Möttulssaga. Þegar ég sofnaði
var ég ákaflega kátur, því þarna þóttist ég hafa fundið efni í óperu,“
segir Jón Ásgeirsson tónskáld, en hann hefur lokið smíði stórrar óp-
eru sem byggð er á Möttulssögu, en einnig á Norna-Gests þætti úr
Fornaldarsögum Norðurlanda. Óperan ber nafn Möttulssögu. Jón
fléttar líka inn í verkið skáldskap Gríms Thomsens um Vémund járn-
smið og sverðið Sköfnung, sem gegnir veigamiklu hlutverki í óperunni,
ásamt möttlinum.
Jón samdi óperutextann sjálfur upp úr sögunum og taldi það ekki
eftir sér. „.... ég er búinn að vera að lesa þessar sögur síðan ég var
smástrákur. Ég var innan við tvítugt þegar ég las Möttulssögu – það
eru hátt í sextíu ár. En þetta er búið að taka langan tíma, því ég
þurfti að yrkja í hann líka,“ segir Jón, en óvíst er hvenær verkið verð-
ur sett á svið. | 20
Vantaði eitthvað til
að lesa sig í svefn
Óperusmíð Jóns Ásgeirssonar REIKISTJARNAN Mars er „jóla-stjarna“ stjörnuáhugamanna í ár, skrýð-
ist appelsínugulu hátt á himni bæði
kvölds og morgna. Venus er hins vegar
morgunstjarnan og þegar líða tekur að
miðnætti sést í Satúrnus sem hækkar á
himni eftir því sem líða tekur á nóttina.
Ýmsir stjörnufræðingar hafa viðrað þá
hugmynd að Betlehemsstjarnan hafi í
raun verið samstaða bjartra reikistjarna
á himninum. Þá hafa verið settar fram
kenningar um að Betlehemsstjarnan hafi
verið hreyfingar Júpíters, stærstu reiki-
stjörnu sólkerfisins, á himninum.
Í hugvekju sr. Sigurðar Ægissonar í
dag er fjallað um ýmsar vangaveltur um
Betlehemsstjörnuna og þar kemur m.a.
fram að elsta tilgátan um fyrirbærið var
færð í letur árið 248 af Órigenesi kirkju-
föður. | 54
Mars jóla-
stjarnan í ár
MIKILL erill hefur verið í sjúkra-
flugi undanfarið og hafa verið farin
16 flug á síðustu sjö dögum. Árið
2007 verður enn eitt metárið í þess-
um efnum, en nú eru sjúkraflug orð-
in 481 talsins með 521 sjúkling.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá Slökkviliði Akureyrar.
Annir í
sjúkraflugi
♦♦♦