Morgunblaðið - 29.12.2007, Side 2
2 LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„HANN var fjölmennur og langur,
menn töluðu mikið og hægt er að
segja að töluvert gagn hafi hlotist
af,“ sagði Óskar Sigurpálsson, for-
maður Lögreglufélags Reykjavíkur,
spurður út í fund félagsins sem hald-
inn var í BSRB-húsinu síðdegis í
gær. Tilefnið var fjölmiðlaumfjöllun
um óánægju lögreglumanna með
vinnuálag og flótta úr stéttinni og
svör yfirstjórnar embættis lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu við um-
fjölluninni. Engin niðurstaða fékkst
á fundinum.
Talið er að yfir tvö hundruð manns
hafi sótt fundinn og þrátt fyrir að
engin ein niðurstaða hafi fengist
voru fundarmenn sammála um að
takast á við vandann í sameiningu.
Til þess þyrfti þó fjármagn. „Ég held
að menn hafi ekki séð neina aðra
raunhæfa lausn en að reyna fá fram
meira fjármagn. Meira fé þarf að
renna til löggæslumála,“ segir Óskar
og bendir á að embættið sé rekið
með halla og að ekki væri hægt að
ráða lögreglumenn þótt þeir væru í
boði. Minna fór fyrir umræðu um
kaup og kjör lögreglumanna, enda
kjarasamningar við lögreglumenn
ekki lausir fyrr en næsta haust.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á
höfuðborgarsvæðinu, sagði fundinn
gagnlegan og góðan. „Ég held að það
sé alltaf gagnlegt að ræða um mál
sem tengjast starfsemi embættisins
og fara yfir stöðuna frá sjónarhóli
starfsmanna.“
Hvað það varðar að kalla eftir
auknum fjárveitingum til löggæslu-
mála segir Stefán það ekki raunhæft
þar sem búið sé að samþykkja fjár-
lög fyrir næsta ár. „En hins vegar
erum við að fara að vinna í fjárlaga-
tillögum fyrir komandi ár og þá
koma menn sjónarmiðum sínum á
framfæri, geri ég fastlega ráð fyrir.“
En hvað telur lögreglustjórinn að
hafi áunnist með félagsfundinum?
„Menn komu sínum sjónarmiðum á
framfæri og ég held að þetta sé upp-
hafið að því að menn fari að vinna
betur saman að því að efla og styrkja
þetta embætti, innan þess ramma
sem okkur er úthlutað hverju sinni.“
Einnig var kallað eftir því að starfs-
menn tækju mun meiri þátt í því en
áður að bæta starfsumhverfið eins
og kostur er.
Starfsmenn taki meiri þátt
í að bæta starfsumhverfið
Lögreglumenn
ósáttir við mikið
vinnuálag
Morgunblaðið/RAX
Fjölmennt Yfir 200 lögreglumenn mættu á félagsfund Lögreglufélags
Reykjavíkur. Mönnum var heitt í hamsi og kvörtuðu undan miklu álagi.
FISKVERÐ á mörkuðum hefur
hækkað mikið að undanförnu. Það
eru bæði hátíðahöld og rysjótt veð-
urfar sem valda, en margir frídagar
eru samliggjandi um þessi jól og fá
skip og bátar á miðunum.
Lúða og skötuselur um áramót
Að sögn fisksala sem rætt var við í
gær náði verð á óslægðri ýsu hæstu
hæðum í fyrradag þegar hún seldist
á 374 krónur á markaði. Þá voru um
40 tonn af fiski á markaði í heild, en
oft og tíðum er margfalt meira magn
í boði af einstökum tegundum. Al-
gengt verð á ýsunni í haust var 200-
250 krónur á kílóið, svo ætla má að
hún hafi hækkað um allt að 87% nú
um jólin. Í gær var verðið hins vegar
farið að lækka og ýsan komin niður í
um 300 krónur.
Þá hefur spurn eftir hágæðasjáv-
arfangi á borð við lax, lúðu, skötusel
og humar aukist, enda margir að
undirbúa fiskmáltíðir í kringum ára-
mótin. Ágætlega hefur gengið að
anna eftirspurninni en verð hefur
einnig hækkað nokkuð á þessum teg-
undum. Í gær seldist heil lúða á um
1.300 krónur á kílóið á markaði.
Fisksalar gera þó lítið úr hækk-
unum í smásölu. Þeir taka að sögn
flestir á sig hækkunina að hluta eða í
heild enda stendur hún ekki lengi yf-
ir, og takmörk eru fyrir því hversu
dýrt er hægt að selja fiskinn, sem
hefur almennt verið dýr alveg frá því
í sumar. Kílóverð á ýsuflökum út úr
búð, með og án roðs, er á bilinu 980-
1.290 krónur.
87% verðhækkun á ýsu
í kringum jólahátíðina
Fiskur Margir kjósa að borða fisk
eftir allt kjötátið um jólahátíðina.
ENGAN sakaði þegar eins hreyfils
flugvél af gerðinni TF-RLR hlekktist
á á Úlfsvatni á Arnarvatnsheiði um
miðjan dag í gær. Flugmaðurinn,
sem var einn í flugvélinni, hafði lent
vélinni á ísilögðu vatninu. Þegar
hann reyndi flugtak að nýju hamlaði
snjór því að hægt væri að ná flug-
takshraða og hætti hann því við flug-
tak. Samkvæmt upplýsingum frá
Rannsóknarnefnd flugslysa (RNF)
ók flugmaðurinn flugvélinni fram og
til baka á ísnum til að troða slóða til
flugtaks. Í akstrinum við enda slóð-
ans gaf íslag sig undan þunga vél-
arinnar og fór nefhjól vélarinnar nið-
ur um ísinn.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landhelgisgæslunni náði flugmaður-
inn talstöðvarsambandi við farþega-
flugvél, sem var á flugi yfir hálend-
inu. TF-Líf, þyrla Landhelgis-
gæslunnar, sem búin er nætursjón-
auka, sótti manninn og flutti hann til
Reykjavíkur síðdegis í gær, en þá var
verulega farið að skyggja.
Samkvæmt upplýsingum frá RNF
er á þessu stigi ekki vitað hversu
miklar skemmdirnar eru á vélinni
þar sem ekki reyndist unnt að lenda á
slysstað sökum myrkurs. Unnið er að
því að bjarga verðmætum og skipu-
leggja björgunarleiðangur á staðinn.
Nefhjólið
fór niður
um ísinn
Flugvél hlekktist á
á Arnarvatnsheiði
LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð-
inu rannsakar tvær líkamsárásir í
miðborginni í fyrrinótt. Í öðru tilvik-
inu var notaður hnífur. Í hinu málinu
hlaut fórnarlambið nef- og kinn-
beinsbrot. Fyrra málið kom upp á
Bergstaðastræti klukkan tvö í fyrri-
nótt þar sem ráðist var á mann með
hnífi. Hann hlaut ekki alvarleg sár,
en nokkra grunna skurði. Hann var
fluttur á sjúkrahús en fékk fljótlega
að fara þaðan. Ekki er vitað hverjir
réðust á hann og þekkti maðurinn
ekki árásarmennina.
Skömmu síðar kom til átaka milli
manna á horni Bankastrætis og Ing-
ólfsstrætis. Einn var fluttur á
sjúkrahús og kom þá í ljós að hann
var með brotið nef og kinnbein og
nokkrar lausar tennur. Enginn hafði
verið handtekinn í gær vegna þess-
ara mála.
Beittu hnífi
gegn manni
♦♦♦
SAMSTAÐA, samtök um slysalaust
Ísland, stóð fyrir stuttri athöfn við
Kögunarhól við Suðurlandsveginn í
gær þar sem settir voru upp sex ný-
ir krossar til minningar um þá sem
látist hafa í umferðarslysum á
vegakaflanum milli Reykjavíkur og
Selfoss frá því í nóvember 2006.
Fyrir voru 52 krossar til minn-
ingar um þá sem hafa látist á vega-
kaflanum frá 1972, en þeir voru
reistir fyrir um ári. Við athöfnina
heiðruðu Samstaða og Vinir Hellis-
heiðar lögregluna á Selfossi,
sjúkraflutningamenn í Árnessýslu,
lögregluna í Reykjavík, slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins, þyrlusveit
Landhelgisgæslunnar, starfsfólk
bráðamóttöku Landspítalans í
Fossvogi og slökkvilið Hveragerðis
fyrir störf þeirra á veginum í gegn-
um árin.
Ákveðið hefur verið að tvöfalda
Suðurlandsveg og standa vonir
manna til að verkið verði boðið út á
nýju ári.
Athöfn við Kögunarhól vegna þeirra er látist hafa á Suðurlandsvegi
Sex krossar
bætast við
Morgunblaðið/Kristinn
Fleiri krossar Steinþór Jónsson og Hannes Kristmundsson frá Samstöðu, Sigurður Jónsson frá Vinum Hellisheið-
ar, Kristján L. Möller samgönguráðherra, Stefán Eiríksson, lögreglustjóri í Reykjavík, og Ólafur Helgi Kjartans-
son, lögreglustjóri í Árnessýslu, tóku þátt í athöfninni við Kögunarhól í gær þar sem sex krossum var bætt við.