Morgunblaðið - 29.12.2007, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 29.12.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2007 33 Mig langar til þess að minnast tengdaföð- ur míns sem lést hinn 5. ágúst sl. Hann hefði orðið 76 ára 28. desember 2007. Hann háði langa og stranga sjúkdómsbar- áttu og dvaldist á dvalarheimilinu á Egilsstöðum. Þar var vel um hann hugsað, þar leið honum eins vel og hægt var miðað við hans heilsu. Ég er svo þakklát að hafa farið austur á Egilsstaði 27. maí síðastlið- inn í fermingarveisluna hans Sigga. Við komum öllum á óvart, fórum svo á dvalarheimilið og sóttum Ármann og var hann með okkur seinnipartinn í veislunni og voru teknar margar skemmtilegar myndir. Það eru margar minningar sem Ármann Guðmundsson ✝ Ármann Guð-mundsson fædd- ist í Reykjavík 28. desember 1931. Hann lést á sjúkra- húsinu á Egils- stöðum 5. ágúst 2007 og var jarð- sunginn frá Egils- staðakirkju 10. ágúst. skjótast upp í huga minn þegar ég lít til baka. Hestamennsk- una fékk ég að upplifa með Ármanni og allt það sem því fylgir. Bæði langir og stuttir útreiðartúrar. Ég man þegar fjölskyldan fór í útreiðatúr meðfram Eyvindaránni þegar tengdapabbi kenndi mér að hleypa klárn- um og hvernig ég átti að sitja hann, svo þeg- ar við komum í hús var alltaf þakkað fyrir, hesturinn kembd- ur og strokinn. Elsku Ármann, nú er kominn tími til að kveðja, þín verður sárt saknað. Hvíl í friði. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt. Nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem.) Þín tengdadóttir Valgerður. ✝ Óskar AlbertSigurðsson fæddist á Litlahóli við Dalvík hinn 20. maí 1918. Hann lést á Heilbrigðis- stofnun Siglu- fjarðar hinn 15. des- ember síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Sigurður Jón Guðjónsson, sjó- maður og formaður í Mói, Dalvík, f. 9. desember 1885, d. 7. janúar 1943, og Anna Sigurðardóttir, húsmóðir, f. 17. október 1883, d. 7. júní 1971. Albert var 8. í röð ellefu systkina en hin eru: Guðjón Sigurvin, f. 1908, d. 1988, Rósa, f. 1909, d. 1995, Kristján Jón Helgi, f. 1909, d. 1934, Jóhann Sævaldur, f. 1912, d. 2001, Hallgrímur Friðrik, f. 1913, d. 1967, Jón Kristinn, f. 1915, d. 1992, Sigrún, f. 1916, d. 1996, Laufey, f 1920, d. 1998, Sig- urður Marinó, f. 1922, og Lilja, f. 1925. Albert kvæntist hinn 29. desem- ber 1945 Guðborgu Franklíns- dóttur frá Litla-Fjarðarhorni í Strandasýslu, f. 5. maí 1924. For- eldrar hennar voru hjónin Frank- á Siglufirði árið 1945 og bjuggu þar alla tíð, eða í 62 ár. Albert var sjómaður og verkamaður og byrj- aði ungur að sækja sjóinn frá Dal- vík, Siglufirði og víðar. Á Siglu- firði starfaði hann m.a. hjá Síldar- verksmiðjum ríkisins og víðar en fór jafnframt á vorvertíð á Suður- nesjum í marga áratugi, einkum í Sandgerði, síðast 1973. Eftir það starfaði hann í nokkur ár hjá Hús- einingaverksmiðjunni á Siglufirði en síðast hjá Siglufjarðarkaup- stað, m.a. við lagningu hitaveitu í bænum. Albert var duglegur verk- maður, ósérhlífinn og úthalds- góður og hann vildi helst ekki ganga frá verki fyrr en það var fullklárað og búið var að ganga vel og snyrtilega frá öllu. Albert hafði yndi af ferðalögum, heima og erlendis, en eftir að hann fór á eftirlaun dvaldi hann á hverju sumri í Flatey á Breiðafirði í sumarhúsi Sigurmars og Álfheið- ar. Í Flatey undi hann sér vel við fiskveiðar, við aðgerð og frágang á afla, við að dytta að húsum og bátum og fleira sem til féll en hann átti erfitt með að vera iðju- laus. Hann var alla tíð vel á sig kominn líkamlega; byrjaði snemma að vinna erfiðisvinnu en hann stundaði líka íþróttir á sínum yngri árum, einkum knattspyrnu. Útför Alberts verður gerð frá Siglufjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. lín Þórðarson, bóndi í Litla-Fjarðarhorni, f. 1879, d. 1940, og Andrea Jónsdóttir, húsmóðir, f. 1881, d. 1979. Börn Alberts og Guðborgar eru: 1) Sigurmar Kristján, f. 7. maí 1946, fyrri kona hans var Mar- grét Elíasdóttir, þau skildu. Seinni kona Sigurmars er Álf- heiður Ingadóttir, sonur þeirra er Ingi Kristján, f. 1991. 2) Andrea Guðrún, f. 12. nóvember 1947, d. 17. ágúst, 1951. 3) Guð- mundur Jón, f. 13. október 1951, var kvæntur Þórdísi Þórðar- dóttur, þau skildu, sonur þeirra er Þórður Albert, f. 1978. Fyrir átti Þórdís dæturnar Ragnhildi Sig- urðardóttur, f. 1969 og Guðrúnu Helgu Magnúsdóttur, f. 1974. Son- ur Guðrúnar og Steinars Þórs Þorfinnssonar er Þór Jökull, f. 2007. 4) Óskar Helgi, f. 8. júlí 1954, kvæntur Aðalheiði Erlu Jónsdóttur, f. 1957. Börn þeirra eru Kári Páll, f. 1981, Björk, f. 1986, Ásdís Helga, f. 1991 og Stef- án Andri, f. 2001. Albert og Guðborg hófu búskap Nú bíða menn eftir því að komast á eftirlaun og hætta að vinna. Það átti hins vegar ekki við tengdaföður minn að vera allt í einu án atvinnu þegar hann stóð á sjötugu. Hann fór ungur að vinna við bústörf og út- ræði með föður sínum og bræðrum. Vinnuharkan var mikil, við myndum hreinlega kalla það barnaþrælkun að láta sjö ára dreng vinna við beitningu. En við þetta bjó alþýða manna til sjávar og sveita á Íslandi í byrjun 20. aldar. Í kreppunni tók við óttinn við atvinnuleysið. Menn töld- ust hólpnir svo lengi sem þeir höfðu vinnu og tengdafaðir minn dvaldi á hverju ári langdvölum frá konu og börnum við sjósókn í öðrum fjórð- ungi. Eftir 1973 vann hann heima í Siglufirði. Þar til einn góðan veð- urdag 1988 að vinnunni var lokið. Hann var sjötugur en fullur starfs- orku og hraustur með afbrigðum þótt heyrnin væri farin að gefa sig. Fæstir gátu uppá réttum aldri Al- berts þegar hann fjórum árum síðar kom fyrst með okkur í Flatey til sumardvalar. Hann leit út fyrir að vera a.m.k. 10 árum yngri enda létt- ur á fæti og vel á sig kominn. Í Flat- ey eru endalaus verkefni fyrir vinnufúsar hendur og þar undi hann sér vel. Fyrstu árin var dyttað að kofanum okkar, Vegamótum, innan húss og utan en 1995 sjósettu þeir langfeðgar Tröllafoss, tæplega 4ra metra langa fleytu, og eftir það mið- aðist hvert verk Alberts í landi við að búa svo í haginn að allt væri klárt ef gæfi á sjó. Og þá mátti ekki á milli sjá hvor var ákafari, sá áttræði eða hinn sem var átta ára. Albert féll vel inn í samfélagið í Flatey og það tók honum vel. Hon- um lynti vel við alla, hann var hjálp- fús og verklaginn. Enginn í þorpinu flakaði betur eða hraðar, færin hans voru einstök og svo kunni hann að splæsa tóg í rólur og víra í legufæri. Og til allra verka gekk hann af sömu vinnugleði. Það eina sem hann vildi helst ekki gera var að drepa lund- ann, þótt honum fyndist hann herra- mannsmatur. Reyndar þótti honum allur matur góður. Þetta er alls ekki vont! var viðkvæðið þegar hann var spurður um matargerð húsmóður- innar. Þó vinnusemin væri mikil, naut Albert líka lífsins í Flatey og var hrókur alls fagnaðar í veislum og á böllum í Samkomuhúsinu. Þá dró hann fram dansskóna og sýndi til- þrif sem synir hans höfðu aldrei orðið vitni að. Eitt sinn dró Albert lúðu, sem honum þótti reyndar skammarlega lítil. En fögnuður þorparanna var mikill því þó bænd- ur dragi stórlúður úr Breiðafirði hafði ekki veiðst lúða í þorpinu í langan tíma. Það var slegið upp veislu, lúðan hans Alberts endaði sem forréttur í fjórum húsum og var snædd úti á hlaði á salatbeði úr kál- garðinum. Og mágur hans, Ben Frank, fékk hausinn. Svona gerast ævintýrin í Flatey. Það var líka eftir Albert spurt og hans saknað þegar við komum vestur án hans sumarið 2006 og aftur í sumar er leið. Og beðið fyrir góðar kveðjur úr hverju húsi. Það var mikil gæfa fyrir okkur öll og ekki síst fyrir Inga Kristján að fá tækifæri til að kynnast afa sínum svona vel. Þegar Ingi var hálfs ann- ars árs smíðaði afi sandkassa fyrir stráksa með háum veggjum og set- bekk. Sá er enn í notkun, heilsar nýjum börnum á torfunni á hverju sumri og vitnar um verkin hans Alla. Ef ég hefði verið spurð hvort ég treysti mér til að búa ásamt fjöl- skyldunni með mér óskyldum manni á 35 fermetrum allt að fimm vikur á hverju sumri í tólf ár hefði ég sagt nei. Það væri útilokað. En það var aldrei spurning með Albert, enda var hann einstaklega jafnlyndur og mikill snyrtipinni. Þolinmóður var hann líka við mig alla tíð og góður og fyrir það skal þakkað hér. Síð- ustu árin átti sjórinn hug hans allan í Flatey. Það var eins og hann væri kominn aftur heim til Dalvíkur. Líf- ið hafði farið sinn hring. Álfheiður Ingadóttir. Albert Sigurðsson Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 ✝ Alúðar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför JÓNS KR. GÍSLASONAR, Hvannavöllum 6, Akureyri. Guð blessi ykkur öll. Jónína Helgadóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar ástkærs föður okkar, tengdaföður og afa, KRISTJÁNS J. ÞORKELSSONAR vélstjóra. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar 3B á Hrafnistu Hafnarfirði. Kristján E. Kristjánsson, Áslaug Gísladóttir, Brynhildur Kristjánsdóttir, Stefán Sigurðsson, Auður Kristjánsdóttir, Roger Olofsson, Alfa Kristjánsdóttir, Sigmar Þormar, Bárður Halldórsson, Grétar Sveinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, sonur, faðir, tengda- faðir og afi, VALUR GRÉTAR ÞORGEIRSSON, lést að morgni aðfangadags þann 24. desember. Útför hans verður gerð frá Ytri-Njarðvíkurkirkju miðvikudaginn 2. janúar kl. 14.00. Ólöf Karlsdóttir, Ragnheiður Valdimarsdóttir, Karl Halldór Valsson, Kolbrún Lind Karlsdóttir, Þorgeir Ragnar Valsson, Aseneth Luna Martinez, Súsanna Valsdóttir, Ásdís Ósk Valsdóttir, Guðmundur Ástþór Jóhannsson, og barnabörn. ✝ Elskulegur sonur, bróðir, mágur, faðir og afi, SNORRI SNORRASON frá Húsavík, lést miðvikudaginn 19. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Inga Filippía Sigurðardóttir, Inga Lilja Snorradóttir, Herdís Snorradóttir, Heimir Aðalsteinsson, Bergljót Snorradóttir, Hermann Sigurður Jónsson, Örn Snorrason, Snorri Snorrason, Sindri Snær Snorrason. ✝ Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför ástkærrar eiginkonu, móður, ömmu, dóttur og systur, MARGRÉTAR HALLDÓRSDÓTTUR frá Hnífsdal, búsettrar í Fuglafirði í Færeyjum, sem lést 12. desember síðastliðinn á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn. Jarðarförin fór fram frá Hnífsdalskapellu 22. desember. Fyrir hönd aðstandenda, Páll Jakob Breiðaskarð. ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og lang- amma, ÞÓRA JENNÝ PÉTURSDÓTTIR, Safamýri 42, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum miðvikudaginn 26. desember. Ólína Ágústsdóttir, Gunnar H. Stefánsson, Þóra Jenný Gunnarsdóttir, Stefán Sveinn Gunnarsson, Álfhildur Íris Arnbjörnsdóttir, Hekla Ólína Stefánsdóttir. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bil- um - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Myndir | Ef mynd hefur birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á mynda- móttöku: pix@mbl.is og láta um- sjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.