Morgunblaðið - 29.12.2007, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 29.12.2007, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2007 29 MINNINGAR ✝ Kári Her-mannsson fædd- ist í Keldudal í Skagafirði 24. jan- úar 1923. Hann lést á heimili sínu, Smáragrund 14 á Sauðárkróki, 24. desember síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Hermann Sig- urjónsson, f. 8.1. 1901, og Rósa Júl- íusdóttir, f. 15.5. 1897. Systkini Kára eru Njáll, f. 30.9. 1927, d. 18.6. 1975, Konkordía, f. 10.3. 1930, d. 11.8. 1930, Agnar f. 3.9. 1933, María, f. 1.6. 1936, d. 31.5. 1985, og Friðrika, f. 14.6. 1941. Kári kvæntist Sigurlínu Árnadóttur, f. 26.4. 1922. Fyrstu hjúskaparár sín bjuggu þau í Reykjavík en fluttu síðan til Sauð- árkróks og hafa búið þar síðan. Sonur þeirra er Reynir, f. 17.9. 1953, kvæntur Helgu Rósu Guð- jónsdóttur, f. 21.2. 1953. Börn þeirra eru, Björgvin, f. 15.11. 1973, sam- býliskona Elín Ás- geirsdóttir, Árni Hermann, f. 25.7. 1984, sambýliskona Kolbrún Ragnars- dóttir og María, f. 31.3. 1986. Kári ólst upp í föðurhúsum í Skagafirði, lauk prófi frá Héraðsskólanum að Laugarvatni, iðnréttindi múrara 1951. Kári vann við iðn sína til 1969 og sem verslunarmaður til 1983. Útför Kára verður gerð frá Sauðárkrókskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Ég var að undirbúa jólahaldið heima hjá mér í Espilundi 20 hinn 24. des. 2007. Bækur og pappírar lágu í óreiðu á skrifborði og skáp- um. Allt var fært í viðunandi horf og sett á sína staði, síðast handlék ég litla bók í svörtu bandi – „Ákvæðisvinnuverðskrá múrara“ stóð letrað gylltum stöfum á for- spjald bókarinnar. Undarleg til- viljun. Þessari bók hafði ég ekki flett nokkuð lengi, þótt ég hafi oft notað hana vegna atvinnu minnar og hún verið ásamt öðru drjúgur stuðningur fyrir mig í lífsbarátt- unni. Mágur minn, Kári Her- mannsson, kynnti mig fyrir þess- ari bók og kenndi mér að nota hana. Mér varð hugsað til hans um leið og ég lokaði bókinni og kom henni á sinn stað í bóka- skápnum. Um leið hringdi síminn og mér var tilkynnt að mágur minn hefði látist fyrir skammri stundu. Hann hafði nýlokið við að fara í jólabaðið og lagt sig á eftir. Þá kom kallið sem allir verða ein- hvern tíma að svara. Ég veit að við Kári hefðum ver- ið sammála um, að viðkunnan- legra væri, að koma sæmilega snyrtur á fund þeirra, sem bíða gestkomunnar hinumegin. Kári gat vel fléttað saman al- vöru og kímni og þrátt fyrir veik- indi af og til fyrr á árum og stöðug seinni árin, var alltaf stutt í gásk- ann og skemmtilegar athuga- semdir. Kári var múrari að mennt og meistari í þeirri grein. Prófi lauk hann frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1951 og vann við iðn sína næstu ár. Einnig var hann mæl- ingafulltrúi fyrir múrara í Skaga- firði um árabil. Seinni starfsárin vann hann við verslunarstörf, en slæm liðagigt gerði honum lífið leitt er líða tók á ævina og svipti hann starfsgetu að nokkru og síð- ast alveg. Þorsteinn Valdimarsson, skáld, segir í ljóði; „Sumir kveðja og síð- an ekki söguna meir.“ Kári kvaddi ekki með söng, þótt söngrödd hefði hann fallega og tónlistarsmekk góðan, en eftir hann standa ýmis verk, sem bera vitni listfengi og vandvirkni. Við horfum á fallega múrhúðun og múrverk á húsum, snúin, hand- unnin stigahandrið, mótuð úr deiglu með högum höndum, lista- verk sem gera enga kröfu til þess nafns í lítilræði sínu, en gleðja augu þeirra, sem fram hjá fara. Ég var svo lánsamur að fá að læra múraraiðn hjá Kára og vinna svo með honum af og til í mörg sumur. Á heimili þeirra hjóna, Sigur- línu og hans, var ég alltaf velkom- inn og naut hjá þeim fyrir- greiðslu, sem kom sér vel fyrir mig á námsárum mínum. Við Kári unnum oft saman tveir og féll aldrei skuggi á þá samvinnu. Á meðan ég er að skrifa þessar línur, hljómar fyrir eyrum mér tvísöngur. Við Kári vorum að byggja fyrsta söluskálann að Brú í Hrútafirði og tókum lagið í sumarþeynum. Fyrir valinu varð í þetta skipti: „Við brunninn bak við hliðið.“ Nú er rúmlega hálf öld síðan. Litli skálinn er orðinn að dágóðu húsi, sem ef til vill hverfur fljótlega, og það er vetur í Hrúta- firði núna. En nú fer daginn að lengja og minn gamli vinur og félagi fylgir birtunni í síðustu ferðina, ferðina okkar allra, sem við vonum að ljúki við opið hlið, þar sem gestum er boðið í bæinn. Sigurlínu og afkomendum þeirra Kára votta ég samúð mína. Trausti Helgi Árnason. Kári Hermannsson ✝ Gerður Ingi-björg Stef- ánsdóttir fæddist á Ekru í Hjalta- staðaþinghá 8. júlí 1927. Hún lést 14. desember síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Stefán Jónsson frá Heyskálum í Hjaltastaðahreppi, bóndi á Ekru, f. 12. febrúar 1893, d. 1. janúar 1968, og Sigurborg Sigurðardóttir frá Litlasteins- vaði í Tunguhreppi, f. 9. ágúst 1890, d. 4. október 1969. Gerður átti fjögur systkini, þau eru; Ástdís, f. 4. júlí 1920, d. 1. jan. 2006, sambýlismaður var Jón Kjartan Sigurjónsson, d. 1949, síðar gift Páli Pálssyni, d. 2005, búsett lengst af í Smiðsgerði í Skagafirði, Sig- rún, f. 13. desem- ber 1921, d. 16. júlí 1987, búsett lengst af í Reykja- vík, Jóna Sig- þrúður, f. 19. des- ember 1925, gift Guðmundi S. Guð- mundssyni, búsett á Fossum í A-Hún. og Gunnsteinn, f. 23. júní 1930, d. 10. janúar 1986, kvæntur Huldu Jóns- dóttur, d. 2004, búsettur á Egilsstöðum. Útför Gerðar verður gerð frá Egilsstaðakirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Það er dimmt skammdegið, en sigurganga ljóssins er samt hafin enn eitt árið. Það er sorg í hjarta, en sorgin er gríma gleðinnar og gleðin í þessu tilfelli er fólgin í hlýjum minningum. Elskuleg frænka okkar hún Gerða hefur kvatt þennan heim. Við vissum að hverju stefndi er við fengum þær fregnir að heilsu hennar færi hrakandi núna í byrjun desember. Hún fékk svo hvíldina föstu- daginn 14. desember. Hún hafði átt við visst heilsuleysi að stríða sl. misseri og lifði mikið í þeim heimi sem er okkur sem göngum heil til skógar nokkuð ókunnug- ur. En kannski er sá heimur ekki eins ókunnugur og við höldum. Þetta er heimur minninga, heim- ur liðinna stunda. Í öllum erli nú- tímans getur verið gott að leita í þann heim. Hennar heimur var mikið bund- inn við æskustöðvarnar út á Ekru, en þar átti hún sterkar rætur sem aldrei slitnuðu þrátt fyrir að hún væri búsett nokkra áratugi á Egilsstöðum. Heim var ætíð út að Ekru. Hún var nátt- úrubarn eins og svo margir af hennar ættingjum. Margur myndi segja að þetta væri í blóðinu. Hún hafði gaman af ferðalögum og tók þá gjarnan mikið af myndum og átti orðið einstakt safn mynda af kirkjum víðsvegar af landinu. Hún hló oft að þessari ástríðu sinni að taka kirkjumyndir. Það var oft svo stutt í hláturinn henn- ar frænku, og hún gat oft spaug- að mikið við mann. „Ert þetta þú, gæskurinn (eða gæskan)?“ Svona var manni oft heilsað þegar maður kom óvænt í heimsókn til hennar að Selási. Alltaf yndislegar móttökur og helst vildi hún leysa yngri kyn- slóðina út með gjöfum. Jólapakkarnir frá henni frænku voru alltaf óskaplega spennandi hjá okkur systkinunum á æskuár- unum. Hvort heldur þeir voru mjúkir eða harðir. Og þeir eru ófáir bangsarnir og dúkkurnar sem börn okkar eiga sem er handgert af henni. Já, hún var listamaður í hönd- unum, hún frænka. Og nú á jóla- dögunum kvikna þessar minning- ar. Það er gott að ljúka upp kistli liðinna stunda, og muna hana Gerðu frænku. Þessa smávöxnu nettu og kviku konu með sitt hlýja bros. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Guð blessi minninguna um ynd- islega frænku okkar, hana Gerði Ingibjörgu, sem við fylgjum nú í hinsta sinn. Við vitum að okkar ástkæru ættingjar sem farnir eru áður og voru henni hjartfólgnir taka vel á móti henni í enn öðrum ókunnug- um heimi. Og megi almáttugur guð styrkja hana mömmu okkar sem nú kveður sitt síðasta systk- ini í dag. Vertu blessuð, gæskan, og hafðu hjartans þökk fyrir allt. Systkinin frá Fossum, makar og börn. Gerður Ingibjörg Stefánsdóttir ✝ Min beste venn og ektefelle, verdens beste pappa, svigerfar og bestefar, ERIK HERMAN WILHELMSEN f. 27. februar 1933 døde stille på Rikishospitalet etter et kort sykeleie, den 20. desember. Begravelse fra Drammen krematorium fredag 4. januar kl. 14.00. Like kjært som blomster er en gave til Frelsesarmeen. Ditt liv du alltid bygget på kjærlighetens grunn. Du tenkte først på andre helt til siste stund. Sigríður, Hildur Kristin, Unnur Astrid, Kolbeinn Jón, Martin, Lasse. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓNAS KRISTINN GUÐBRANDSSON, Fjallalind 23, Kópavogi áður Glaðheimum 8, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut, deild 11E, miðvikudaginn 26. desember. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 8. janúar kl. 13.00. Dóra Steinunn Jónasdóttir, Bragi Sigurðsson, Guðbrandur Kristinn Jónasson, Guðný Halldórsdóttir, Jóhanna Guðrún Jónasdóttir, Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson, Þuríður Helga Jónasdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginkona mín, tengdamóðir, amma og langamma, AUÐUR H. JÓNSDÓTTIR, lést á Dvalarheimilinu Hlíð þann 27. desember síðastliðinn. Sverrir Hermannsson, Jón Ásmundsson, Auður Elva Jónsdóttir, Guðrún Lilja Jónsdóttir, Sverrir Már Jónsson, Birkir Már, Katrín og Nói. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, amma og langamma, SIGURLAUG SVEINSDÓTTIR, Krossalind 8, Kópavogi, lést fimmtudaginn 27. desember á Landspítalanum í Fossvogi. Útför hennar fer fram frá Kópavogskirkju föstudaginn 4. janúar kl. 15.00. Snorri Sigurðsson, Sigurður Sveinn Snorrason, Hrefna Sigurjónsdóttir, Arnór Snorrason, Kristín Hallgrímsdóttir, Steinunn Snorradóttir, Jóhann Ísfeld Reynisson, Guðrún Margrét Snorradóttir, Þórarinn Alvar Þórarinsson og aðrir aðstandendur. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, GUÐRÚN FLOSADÓTTIR, Dúna, lést á jóladag. Jarðarförin auglýst síðar. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Maðurinn minn ALAN VINER GOLDINGAY, andaðist á heimili okkar í Englandi 8. desember sl. Bálför hefur farið fram. Jóna Guðleif Sigurjónsdóttir Goldingay Börn Alans: Már Viner Bryndís Ragnheiður Robert Gunnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.