Morgunblaðið - 29.12.2007, Qupperneq 8
8 LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VEIÐIMÁLASTOFNUN, í sam-
vinnu við Veiðifélag Borgarfjarðar,
hóf í haust rannsóknir á bleikju í
Hvítá í Borgarfirði. Bleikja í Hvítá
hefur verið verðmæt auðlind og
veidd bæði í net og á stöng. Veiði-
skýrslur sýna að veiði á bleikju hef-
ur snarminnkað. Vegna rannsókn-
anna hefur í haust verið starf-
ræktur fiskateljari í Lambeyrar-
kvísl í Hvítársíðu, auk þess sem
fiskur hefur verið fangaður þar og
merktur. Verkefnisstjóri er Ingi
Rúnar Jónsson hjá Veiðimálastofn-
un. Sem dæmi um verðmæti
bleikjuveiða má nefna að í fyrra
voru skráðar tæplega 30 þúsund
stangveiddar bleikjur. Nánar á vef
Veiðimálastofnunar.
Bleikjan í Hvítá
VODAFONE hef-
ur gefið út í
bæklingi leið-
beiningar og góð
ráð til foreldra
vegna farsíma-
notkunar barna
og unglinga.
Bæklingurinn er
unninn í sam-
vinnu við SAFT – Samfélag, fjöl-
skyldu og tækni – og með útgáfunni
vill Vodafone stuðla að ábyrgri far-
símanotkun ungs fólks. Bæklingur-
inn liggur frammi í verslunum
Vodafone, hjá umboðsmönnum og á
slóðinni http://www.vodafone.is.
Ábyrgari
farsímanotkun
UM 8% aukning erlendra ferða-
manna er á hótelum og gistiheim-
ilum í Reykjavík um áramótin sem
verða nær öll opin, alls um 3.600
ferðamenn. Um jólin voru 1.000-
1.200 ferðamenn á hótelum í
Reykjavík og er það svipað og það
var á síðasta ári.
Fjölmargir erlendir ferðamenn
dvöldu hér milli jóla og nýárs án
þess að dvelja yfir hátíðisdagana
sjálfa. Fjölmennastir eru Bretar,
sérstaklega um jól, en síðan koma
Bandaríkjamenn, Rússar, Japanir,
Þjóðverjar og Norðurlandabúar.
Boðið er upp á dagsferðir alla
hátíðisdagana og ýmsa afþrey-
ingu.
Fleiri ferðamenn
ÚRVINNSLUGJALD á rúlluplasti
lækkar úr 25 kr./kg í 3 kr./kg frá
og með 1. janúar. Verð á rúllu-
plasti á því að
lækka sem því
nemur, að
öðru óbreyttu.
Úrvinnslu-
gjaldið leggst
á vöruna við
innflutning
þannig að það
hefur verið
greitt af þeim
birgðum sem til eru í landinu. Að
sögn innflutningsaðila eru fyrir-
sjáanlegar einhverjar hækkanir í
erlendri mynt á plastverði en
þessi lækkun ætti að geta vegið
alveg upp á móti þeim hækkun-
um, að því er kemur fram á
heimasíðu Landssambands kúa-
bænda.
Úrvinnslu-
gjald lækkar
STUTT
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
„EF EITT fyrirtæki beinir vöruviðskiptum sínum til
Múlalundar, getur það skilað einum einstaklingi vinnu í
heilt ár,“ segir Helgi Kristófersson, framkvæmdastjóri
Múlalundar. „Fólk gerir sér ekki grein fyrir því hvað við-
skiptin hafa mikið að segja fyrir okkur.“
Múlalundur er verndaður vinnustaður fyrir fólk sem
hefur orðið fyrir áföllum eða stríðir við veikindi. „Mark-
miðið með starfseminni er að koma sem flestum aftur út
á vinnumarkaðinn,“ segir Helgi. Mjög einstaklings-
bundið sé hversu langan tíma það taki.
Vantar hvatningu
Á Múlalundi starfa 34 starfsmenn í 20 stöðugildum.
„Við gætum bætt við 7 stöðugildum í viðbót, það var gerð
úttekt á vegum félagsmálaráðuneytisins árið 2002, þar
sem mælt var með fjölgun stöðugilda til að auka hag-
kvæmni í rekstri, en því hefur ekki verið sinnt,“ segir
Helgi. Honum þykir ekki nægileg hvatning vera til stað-
ar frá hendi ríkisvaldsins til fólks sem glímir við ein-
hverskonar fötlun, en vill fara út á vinnumarkaðinn. „Það
eru alltaf biðlistar eftir að komast í vinnu til okkar og við
höfum verkefni sem bíða eftir að verða unnin, ástandið
er því í raun grátlegt,“ segir Helgi. Hann bendir jafn-
framt á að í nágrannalöndunum séu vinnustaðir sem
þessir undanþegnir fasteignasköttum, því sé ekki svo
háttað hérlendis.
Nýjungar bætast við
Mikil aukning hefur verið á sölu músamotta með per-
sónulegum myndum frá Múlalundi og segir Helgi að það
hafi verið vinsæl jólagjöf í ár. Múlalundur framleiðir
mikið af allskyns skrifstofuvörum og má þar helst telja
plastvörur eins og möppur og umslög. Vöruþróun er
nokkur og iðulega bætast nýjungar við framboðið.
„Fólk er mjög ánægt hér og mætir fyrr á morgnana en
það þarf. Það skapar reglu í líf fólks að hafa eitthvað fyr-
ir stafni og þurfa að mæta til vinnu,“ segir Helgi. Hann
segir að vissar vinnureglur verði að gilda á vernduðum
vinnustöðum og ekki þýði að reka á eftir fólki þegar mik-
ið sé að gera. Umsjónarfólk verði þá bara að taka auka-
álagið á sig.
Viðskiptin skipta Múla-
lund gríðarlegu máli
Morgunblaðið/Frikki
Stjórnandinn Helgi Kristófersson með nokkrar af framleiðsluvörum Múlalundar á borðinu.
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist og
Ferðafélag Íslands standa fyrir sam-
eiginlegri blysför í Öskjuhlíð í dag,
laugardaginn 29. desember. Lagt
verður af stað úr Nauthólsvík kl.
17.15 og gengið í gegnum skóginn í
Öskjuhlíðinni að Perlunni þar sem
flugeldasýning Landsbjargar hefst
kl. 18. Jólasveinar heimsækja hópinn
í skóginum, bregða á leik og taka
lagið. Ferðin er tilvalin fyrir alla fjöl-
skylduna, segir í tilkynningu. Kyndl-
um verður úthlutað til þátttakenda
fyrir brottför. Þátttaka er ókeypis og
allir velkomnir.
Blysför í
Öskjuhlíð
NÝR kjarasamningur Landssam-
bands smábátaeigenda og Sjó-
mannasambands Íslands var tekinn
til afgreiðslu á aðalfundi Sjómanna-
deildar Verkalýðsfélags Húsavíkur
og nágrennis í fyrrakvöld og sam-
þykktur samhljóða.
Fram kemur á heimasíðu stéttar-
félaganna í Þingeyjarsýslum, að
fundarmenn hafi fagnað samningn-
um enda ekki verið til kjarasamn-
ingur fyrir smábátasjómenn fram að
þessu.
Smábátaútgerð hefur verið mjög
vaxandi á félagssvæðinu og því töldu
fundarmenn mikilvægt að í gildi
væri samningur um kjör og réttindi
smábátasjómanna, segir í fréttinni.
Samþykktu
samning
samhljóða
♦♦♦
♦♦♦
FIMMTA Friðriksmótið í hraðskák
fer fram í dag, laugardag, og hefst
klukkan 13. Að venju er teflt í
Landsbankanum í Austurstræti.
Mótið er kennt við Friðrik Ólafsson,
fyrsta stórmeistara Íslendinga.
Margir þekktir skákmenn eru
skráðir til leiks. Í þeim hópi eru
nokkrir af stórmeisturum þjóðarinn-
ar og einnig nokkrir alþjóðlegir
meistarar.
Friðriksmótið
fer fram í dag