Morgunblaðið - 29.12.2007, Síða 10
10 LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Algengt er að aldraðir búi einir ogþeirra sé ekki vitjað dögum
saman. Í flestum tilfellum kemur
það vitaskuld ekki að sök og fólk fer
ferða sinna eins og það á að sér. Í
tvígang hefur það hins vegar gerst
með stuttu millibili að einstæðingar
hafi fundist látnir í íbúðum sínum í
höfuðborginni og hafði þeirra ekki
verið vitjað í nokkra sólarhringa.
Jón Úlfarsson,sem býr á Eyri
við Fáskrúðsfjörð
og hefur verið
einbúi í aldar-
fjórðung, hefur
velt þessum mál-
um fyrir sér.
Haustið 2002
fékk hann blóð-
tappa í heila og lá
aleinn og bjargarlaus heima hjá sér
um tíma. Eftir þrjá daga gat hann
skreiðst á klósett og í eldhús að ná
sér í næringu. Tveimur mánuðum
síðar fékk hann annað áfall og lá í
þrjá daga.
Í viðtali í Morgunblaðinu í gær seg-ir Jón að sér sé afar hugleikið að
koma á fót tilkynningaskyldu fyrir
gamalmenni og einyrkja með svip-
uðum hætti og tilkynningaskyldu
skipa er háttað: „Tæknin er til stað-
ar, þeir sem eru með skjá uppi á
vegg fyrir skipin og ekkert annað að
gera en setja upp annan skjá við
hliðina fyrir gamla fólkið og einyrkj-
ana. Þá geta þeir séð hvort fólkið
hefur tilkynnt sig inn og látið at-
huga með það ef svo er ekki. Til-
kynningaskyldan er núna laus við
1.400 trillur sem búið er að taka af
veiðileyfið eða menn búnir að selja
kvótann af. Þessar trillur eru allar
komnar upp á gras. Einsetumenn,
karlar og kerlingar, eru bara 400 á
landinu. Starfsmenn Tilkynninga-
skyldunnar eru launaðir af ríkinu og
ættu þess vegna bæði að geta fylgst
með skipum og gömlu fólki.“
Þessi hugmynd er vel þess virði aðathuga hvort þess er kostur að
koma á slíku eftirliti. Mörgum gæti
reynst vel að eiga hjálp vísa í neyð.
STAKSTEINAR
Jón Úlfarsson
Tilkynningaskylda fyrir einbúa
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!
"##$%&& %&
%
!
''
"#
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
" &&'(
'#
''
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
%
%
%
%
%
% %
% %
%
%
%
%
% %
%
*$BC &&
!
"# $ ! #
%#!
*!
$$B *!
) $ * &
&$ &
# +#
<2
<! <2
<! <2
) *' &, (-&.'#/
CD -
%EB
8
&
' "
(
!
)*+,-
.
B
)!
!
&*
"' #
.
(
),-
"
+
*
&
&*
#
" (
! )/!
01''
&'#&&3 #
#&, (
Kristín Snorradóttir | 28. desember
Manngæska og
Götusmiðjan
Ég er hamingjusöm
vegna þess að það er
mikla manngæsku að
finna og málefni For-
eldrahúsa er í öruggri
höfn.
Mínar bestu þakkir til
allra þeirra sem komu að því að leysa
úr húsnæðisvanda Foreldrahúss,
þetta er stór gjöf til okkar sem búum í
samfélaginu.
Það er þörf á starfseminni og verð-
ur þörf í framtíðinni, því miður sér
maður ekki fyrir sér að Ísland verði
fíkniefnalaust en með starfsemi eins
og Foreldrahús rekur verða foreldrar
og fíklar sterkari í barráttunni við fíkni-
efnafjötrana.
http://ruv.is/heim/frettir/frett/
store64/item184188/
Þessi linkur lýsir þeirri manngæsku
sem til er og finnst mér eigandi húss-
ins mögnuð manneskja og vill óska
honum/henni alls hins besta um
ókomna tíð.
Ég er reyndar sannfærð um að eig-
andinn á eitthvað gott framundan því í
hvert skipti sem við gerum eitthvað
gott þá fáum við það margfalt til baka.
Meira: daudansalvara.blog.is
Heimir L. Fjeldsted | 28. desember
Kolbrún er sætust
Núna kl. 10.38 las ég á
mbl.is að Kolbrún Hall-
dórsdóttir alþingis-
maður m.m. væri neðst
í kjörinu um sætasta
femínistann.
Þar sem ég hef ekki
komist á blað – mér til undrunar –
ætla ég að einhenda mér yfir á vefinn
hans Ómars R. Valdimarssonar og
greiða Kolbrúnu Halldórsdóttur al-
þingismanni m.m. atkvæði mitt.
Meira: hlf.blog.is
Guðríður Haraldsdóttir | 28. desember
Æsilegt næturlíf
himnaríkis
Daginn sem ég flutti í
himnaríki, 10. febrúar
2006, ríkti mikil
hræðsla og ógurlegt
óöryggi hjá Kubbi og
Tomma. Steingerður
flutti mig, expressóvél-
ina og kettina í hundabúri upp á
Skaga og köttunum var komið fyrir
inni á stóru baðherberginu við komu.
Kubbur fann sér samstundis örugg-
ari stað inni í tómum baðskáp. Hún
þrýsti trýninu fast upp að veggnum
svo sá á henni í nokkra daga á eftir.
Þetta voru vel uppaldir kettir sem
sváfu ekki í rúminu hjá âžmömmu-
sínâœ, heldur í eigin rúmum annars
staðar í íbúðinni við Hringbraut. Þegar
flutningamennirnir höfðu borið upp
búslóðina og höfðu kvatt með kossi
(minnir mig) þurfti að sinna elskunum
hræddu. Ég bjó um mig í meyj-
arskemmunni og hvatti kettina til að
lúlla hjá mér.
Bara í þetta eina sinn …
Meira: gurrihar.blog.is
Björn Bjarnason | 27. desember 2007
Fimmtud., 27.12.07.
Benazir Bhutto var myrt í
Rawalpindi í Pakistan í
dag, þegar hún var á leið
af kosningafundi. Hún
var skotin í hálsinn af
launmorðinga, sem síð-
an sprengdi sig í loft
upp. Aðferðin þótti minna á al Kaida
hryðjuverkasamtökin. Jón Ormur Hall-
dórsson sagði hins vegar í fjölmiðla-
viðtali frá Berlín, að hann teldi öryggis-
lögreglu Pakistan-stjórnar eiga hlut að
morðinu.
Benazir Bhutto var tvisvar forsætis-
ráðherra Pakistans 1988 til 1990, og
1993 til 1996, en varð í bæði skiptin
að láta af völdum vegna ásakana um
spillingu. Hún var í útlegð í Dubai síðan
1999 með þremur börnum sínum en
sneri til Pakistans í október sl. Her-
stjórn Pakistans veitti henni sakarupp-
gjöf. Maður hennar sat í fangelsi í átta
ár fyrir að draga sér opinbert fé í stjórn-
artíð konu sinnar. Hann var látinn laus
2004. Faðir hennar, forsætisráðherra
Pakistans, var hengdur og annar bróðir
hennar var myrtur vegna stjórnmála-
starfa, hinn fannst látinn í íbúð sinni á
frönsku Rivierunni.
Undir herstjórn er allt í báli og brandi
í Pakistan. Hvort Bhutto hefði tekist að
breyta stjórnarháttum til hins betra er
með öllu óvíst. Talið er, að hún hefði
getað stuðlað að stöðugleika í land-
inu. Upplausn magnast við dauða
hennar. Pakistan er helsta gróðrarstía
hryðjuverkasamtaka samtímans. Lík-
legt er að Osama bin Laden leynist þar
einhvers staðar.
Meira: bjorn.blog.is
Guðný Anna Arnþórsdóttir | 28. des.
Jólin
Heimsóknir, fjölskylda, vinir, kaffi,
konfekt, Quality Street, hangikjöt,
uppstúf, bleikt kjöt,
jólaboð, samvera,
grautur með möndlu,
myndatökur, lestur,
músík, kanellykt, negul-
naglar í mandarínum,
jólaglögg í potti með út-
belgdum rúsínum, jólabréf og kort,
gjafir, ljós, snjór, upplýst kirkja, kerti,
jólasveinar. Það eru til dæmis jólin.
Meira: gudnyanna.blog.is
VEÐUR
VETUR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
BLOG.IS
Morgunblaðið/RAX
Snjókarlar Treflarnir hafa eflaust veitt þessum kumpánum einhvern yl í vetrargarranum í gær.