Morgunblaðið - 29.12.2007, Page 12
12 LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
BENAZIR Bhutto, fyrrverandi for-
sætisráðherra Pakistans, var jarð-
sett í grafhýsi ættar sinnar nokkra
kílómetra frá heimabænum Naudero
í sveitahéraði í sunnanverðu landinu
í gær. Bhutto hvílir við hlið föður
síns, Zulfiqars Ali Bhutto forsætis-
ráðherra, sem herinn lét hengja
1979. Hundruð þúsunda manna
fylgdu henni til grafar, margir grétu
og börðu sér á brjóst til að tjá sorg
sína.
Víða hefur komið til harkalegra
mótmæla í Pakistan vegna morðsins
á Bhutto. Gripið hefur verið til mik-
illa öryggisráðstafana en meira en 19
manns hafa fallið í átökum í kjölfar
tilræðisins í Rawalpindi á fimmtu-
dag. Var herlögreglumönnum skipað
að skjóta umsvifalaust á alla sem
efndu til óeirða og var það gert í
Hyderabad í Sindh-héraði þegar
múgurinn kveikti m.a. í banka og
bensínstöð.
Var á „aftökulista al-Qaeda“
Ekki er enn vitað hver sjálfs-
morðssprengjumaðurinn var. Ráð-
herra innanríkismála, Javed
Cheema, gaf í skyn í gær að al-Qaeda
samtökin hefðu staðið á bak við til-
ræðið á fimmtudag og sagði Bhutto
hafa verið á aftökulista samtakanna.
„Það er mjög líklegt að al-Qaeda hafi
staðið fyrir þessari hörmulegu árás
til að grafa undan öryggi í Pakistan,“
sagði ráðherrann. Blaðið The Asia
Times segir að yfirmaður al-Qaeda í
Afganistan, Mustafa Abu al-Yazid,
hafi hringt í einn fréttamanna þess
og sagt samtökin bera ábyrgð á
morðinu á Bhutto. En ekki er sannað
að svo sé og bent er á að hún hafi átt
sér marga volduga fjandmenn, með-
al annars í hernum og leynilögregl-
unni ISI, en einnig meðal pólitískra
keppinauta. Einhverjir gætu hafa
gert út trúarofstækismann til að
myrða hana og ekki víst að nokkurn
tíma verði hægt að rekja sporin.
Minna má á að fjöldi lítilla, sjálf-
stæðra hópa öfgasinnaðra íslamista
starfar í landinu.
Ofstækisfullir múslímar, íslamist-
ar, í Pakistan hötuðu fáa meira en
Bhutto vegna þess hve vestræn hún
var í háttum og naut mikillar hylli
bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum.
Bhutto var einarðasti forystumaður
Pakistana í baráttunni gegn ofstæk-
isöflunum og dauði hennar skilur eft-
ir sig tómarúm sem seint verður
fyllt, að sögn pakistanska fréttaskýr-
andans Ahmed Rashid í grein á vef-
síðu breska ríkisútvarpsins, BBC.
Verst sé að nú sé ekki í augsýn neinn
stjórnmálaleiðtogi sem líklegur sé til
að bregðast af nægilegri hörku við
helstu hættunni gagnvart ríkinu sem
stafi frá íslamistum og talíbönum
með bækistöðvar í Pakistan.
Pólitískur risi meðal dverga
„Hún var tvisvar kjörin forsætis-
ráðherra, tvisvar vék herinn henni
frá völdum vegna ásakana um spill-
ingu og vanhæfni en Bhutto var samt
pólitískur risi í landi pólitískra
dverga og handbenda hersins,“ segir
Rashid.
Bhutto mun fyrr árinu hafa sam-
þykkt að deila völdum með Musharr-
af gegn því að hann afsalaði sér stöð-
unni sem forseti herráðsins. Hún
hafði sjálf brennt sig illa á því að hafa
lítil áhrif í hernum og ætlaði að
tryggja sér betri stöðu ef hún tæki
aftur við ríkisstjórnarvöldum. En
Rashid segir að ljóst hafi orðið fyrir
nokkrum vikum að Musharraf hafi
ekki viljað starfa með Bhutto þrátt
fyrir þrýsting í þá veru af hálfu
Bandaríkjamanna.
Forsetinn og æðstu menn hersins
hafi beitt sér af alefli fyrir því að
fyrrverandi bandamenn Musharrafs
í Múslímabandalagi Pakistans sigr-
uðu í væntanlegum þingkosningum.
Um þriðjungur þjóðarinnar hafi
ávallt stutt Bhutto, segir Rashid, og
reiði almennings beinist ekki ein-
göngu gegn forsetanum fyrir að
tryggja ekki betur öryggi hennar.
Herinn og stjórn Musharrafs hafi
aldrei gætt hlutleysis en þess í stað
virst reyna að grafa undan flokki
Bhutto með kosningasvikum.
Stjórnvöld í Pakistan kenna
al-Qaeda um morðárásina
Reuters
Árásin Mynd af sjónvarpsskjá sem sýnir Benazir Bhutto nokkrum sekúndum áður en tilræðismaðurinn lét til skarar skríða. Á myndinni til hægri sést blossinn frá byssu mannsins.
Bhutto var einarðasti andstæðingur hryðjuverkamanna í landi sínu en fleiri aðilar vildu hana feiga
FRÉTTASKÝRING
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
MORÐIÐ á Benazir Bhutto gæti kippt grund-
vellinum undan stefnu Bandaríkjamanna í Pak-
istan síðustu árin en með stuðningi sínum við
Pervez Musharraf forseta vildu þeir tryggja sér
stuðning þessa öfluga múslímaríkis í baráttunni
gegn alþjóðlegum hryðjuverkaöflum. Síðasta út-
spilið var að embættismenn George W. Bush for-
seta fengu í haust Musharraf til að samþykkja að
Bhutto sneri heim eftir að spillingarákærur á
hendur henni hefðu verið felldar niður.
Markmiðið var sögulegar sættir. Lengi hefur
verið gagnrýnt að Bandaríkjastjórn skyldi alltof
lengi veðja á einn hest í Pakistan, þ.e. Mushar-
raf forseta og mörg dagblöð vestanhafs hvöttu í
gær stjórn Bush til að venda sínu kvæði í kross
og endurmeta stuðninginn við Musharraf.
Viðræður og frumkvæði Bhutto
The New York Times sagði í leiðara að stefna
Bandaríkjamanna yrði framvegis að beinast að
því að byggja upp öflugt lýðræðisskipulag í Pak-
istan „sem nýtur trausts og stuðnings eigin
borgara og ræður yfir jafnt vilja sem búnaði til
að berjast gegn al-Qaeda og talíbönum. Binda
verður enda á þá stefnu að veðsetja hagsmuni
Bandaríkjanna í Pakistan einum eða tveim ein-
staklingum.“
Ljóst er að nokkuð er síðan vöflur voru komn-
ar á Bush og menn hans vegna þess hve óvin-
sæll Musharraf var orðinn og vegna einræðistil-
burða hans. The Washington Post sagði að end-
urkoma Bhutto til heimalandsins í október hefði
verið afrakstur leynilegra samningaviðræðna í
heilt ár, þess má einnig geta að gamall vinur
Bhutto og fyrrverandi sendiherra, Bandaríkja-
maðurinn Peter Galbraith, segir hana sjálfa
hafa stungið upp á viðræðunum. Bandaríkja-
stjórn varð loks ljóst að Bhutto væri eina mann-
eskjan sem gæti bjargað Musharraf, lykil-
bandamanni í baráttunni gegn hryðjuverkum,
frá falli. Það gæti Bhutto með því að samþykkja
að deila völdum með Musharraf. Stjórnarfarið
fengi yfir sig lýðræðislegri blæ.
Æðstu menn í Washington trúðu statt og
stöðugt að Musharraf væri heill í andstöðu sinni
við hryðjuverkasamtök ofstækisfullra íslamista
sem í reynd ráða yfir sumum landamærahér-
uðunum við Afganistan. En aðrir hafa
fullyrt að ýmsir af æðstu mönnum ör-
yggisstofnana ríkisins hafi um áratuga-
skeið leikið tveim skjöldum og stutt
talíbana eða gefið þeim a.m.k. lausan
tauminn og þá um leið gert baráttu tug-
þúsunda erlendra friðargæsluliða
NATO í Afganistan mun erfiðari en ella.
Zalmay Khalilzad, sem er afganskur að
uppruna og nú sendiherra Bandaríkj-
anna hjá Sameinuðu þjóðunum, er sagð-
ur hafa frá upphafi efast um Musharraf
vildi beita sér af afli gegn talíbönum og
öðrum íslamistum.
Pakistan er ekki aðeins fátækt og vanþróað í
mörgum efnum. Því er stundum lýst sem ríki
sem geti snögglega breyst í „hrunið ríki“, land
þar sem allt hefðbundið stjórnkerfi er í rúst.
Vandinn er að ekki einvörðungu er Pakistan
geysifjölmennt múslímaríki heldur ræður það
yfir nokkrum tugum kjarnorkusprengna. Þegar
bætt er út í blönduna þeirri staðreynd að senni-
lega leynast höfuðpaurar al-Qaeda í fjalllendi í
norðaustanverðu landinu og rækta þar samstarf
sitt við talíbana í Afganistan verður skiljanlegra
hve mikla áhyggjur menn hafa víða um heim af
þróun mála, einkum ráðamenn í Washington.
Herinn eina virka stofnunin?
Sumir sérfræðingar segja að í þessu óstöðuga
og flókna samfélagi sé herinn eina stofnunin
sem ráði yfir nægilega miklum aga og skipulagi
til að hindra ríkið í að liðast í sundur og er þetta
ein ástæðan fyrir þolinmóðum stuðningi Banda-
ríkjamanna við Musharraf. Aðrir segja á móti
að með slíkum fullyrðingum sé hlutunum snúið
á haus. Lýðræðið geti ekki skotið traustum rót-
um fyrr en herinn hætti að gerast stöðugt sjálf-
skipaður dómari í stjórnmálalífi landsins.
Herinn hefur alltaf haft lyklavöldin í stjórn-
málalífi landsins og takist Musharraf að halda
tryggð hans er ekki víst að forsetinn verði að
víkja. En geta Bandaríkjamenn fundið nýjar
leiðir til að tryggja áhrif sín og þá ekki síst að-
drætti í Afganistan sem byggjast mjög á góðum
samskiptum við Pakistan? Þekktasti leiðtogi
stjórnarandstæðinga er nú, að Bhutto fallinni,
Nawas Sharif, fyrrverandi forsætisráðherra
sem hefur verið eindregnari en Bhutto í and-
stöðu sinni við herinn og er sagður hata Mush-
arraf. Er erfitt að ímynda sér að Bandaríkja-
mönnum takist að leiða hann og Musharraf
saman en líklega er þó best að hafa í huga að
pakistönsk stjórnmál eru óútreiknanleg.
Morðið getur hins vegar orðið til þess að
Bandaríkjamenn verði enn háðari hinum óvin-
sæla Musharraf en fyrr. Skoðanakannanir gefa
til kynna að 70% Pakistana séu nú mjög andvíg
Bandaríkjunum og faðmlagið við Musharraf
gæti enn aukið óvinsældirnar. Í grein í The Los
Angeles Times er sagt að stjórn Bush hafi mikl-
ar áhyggjur af því að harmurinn vegna morðs-
ins á fimmtudag muni verða kveikjan að út-
breiddum mótmælum gegn stjórn Musharrafs.
Dýrt faðmlag við Musharraf
Benazir Bhutto George W. Bush Pervez Musharraf
Bush sagður hafa tekið of mikla áhættu með því að byggja stefnuna í Pakistan á einum manni sem
nú er að einangrast og sumir telja auk þess ótraustan bandamann í baráttunni gegn hryðjuverkum