Morgunblaðið - 29.12.2007, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2007 13
MARGIR bíða með óþreyju eftir
Sundabraut og að samgöngubætur
færi byggðina á Kjalarnesi og upp
á Skaga enn nær höfuðborginni.
Nú kann sú bið senn að verða á
enda, komin er fram á sjónarsviðið
ný leið til að þvera Kollafjörðinn –
með því einfaldlega að aka undir
hann!
Hér ræðir um svissneska hug-
myndabílinn sQuba sem kafað get-
ur allt að tíu metrum undir yfir-
borðið, súrefnisbirgðir sem tryggja
þægilega köfun og létt yfirbygg-
ingin úr kolefni þýðir að bíllinn líð-
ur áreynslulaust um djúpin.
Bíllinn er búinn tveimur
skrúfum og tveimur þotuhreyflum
sem sjá farþegunum tveimur fyrir
nægu afli. Verðið liggur ekki fyrir.
Fyrirtækið Rinspeed smíðaði
bílinn sem er knúinn rafmótor á
landi og því kolefnisfrír.
Kafbíllinn er enn á hugmynda-
stiginu og þykir líklegra en hitt að
hann verði það alltaf. Á hinn bóg-
inn hafa kafbílar óumdeilt aðdrátt-
arafl – James Bond ók á Lotus
Esprit-kafbíl í kvikmyndinni
„Njósnarinn sem elskaði mig“.
Því kunna Rinspeed að berast
ófáar pantanir frá þeim sem eru
loðnir um lófana og vilja láta bera á
sér í umferðinni.
Kafbíll
í djúpin
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
NAWAZ Sharif, fyrrverandi for-
sætisráðherra Pakistans, skoraði í
gær á stjórn landsins að fresta þing-
kosningum sem ráðgerðar eru 8.
janúar. Flokkur hans ákvað að taka
ekki þátt í kosningunum.
„Ef stjórnin er gallhörð á því að
þingkosningar verði haldnar 8. jan-
úar leiðir það til sjálfseyðingar,
verður ekki aðeins stjórninni að falli
heldur steypir það landinu í glötun,“
sagði Sharif við fréttamenn í Ísl-
amabad. „Kosningarnar verða ekki
trúverðugar. Flestir stjórn-
málaflokkanna hafa ákveðið að snið-
ganga þær.“
Sharif hefur lengi verið erkifjandi
Pervez Musharrafs, forseta Pakist-
ans, sem steypti honum af stóli for-
sætisráðherra í valdaráni hersins
1999.
Forsætisráðherra Pakistans, Mo-
hammedmian Soomro, sagði hins
vegar að stjórnin hefði ekki í hyggju
að svo stöddu að fresta þingkosning-
unum. Hann kvaðst þó ætla að hafa
samráð við leiðtoga stjórnmálaflokk-
anna áður en ákvörðun yrði tekin.
Heiðri minningu Bhutto
George W. Bush Bandaríkja-
forseti hvatti Pakistana til að
„heiðra minningu Benazir Bhutto
með því að halda áfram því lýðræð-
islega ferli sem hún fórnaði lífi sínu
fyrir“. Nicolas Sarkozy, forseti
Frakklands, og fleiri þjóðarleiðtogar
tóku í sama streng og hvöttu til þess
að frjálsar og lýðræðislegar kosn-
ingar yrðu haldnar 8. janúar.
Brian Katulis, sérfræðingur í mál-
efnum Asíuríkja, sagði hins vegar að
hyggilegra væri að fresta kosning-
unum, ekki aðeins til að afstýra frek-
ara ofbeldi í landinu, heldur einnig
til að standa betur að þeim og
tryggja að þær yrðu frjálsar og lýð-
ræðislegar.
Katulis sagði að með því að fresta
kosningunum yrði hægt að bæta
skaddaða ímynd Bandaríkjanna í
Pakistan. „Pakistanar hafa ekki
mikið dálæti á Bandaríkjunum. Ef
Bandaríkjastjórn styður það í
blindni að kosningunum verði haldið
til streitu eykur það aðeins úlfúðina,
enda eru Pakistanar vantrúaðir á
kosningarnar og efast um að stofn-
anir Pakistans geti séð til þess að
grunnþörfum fólksins verði full-
nægt, það fái t.d. hveiti og brauð.“
Daniel Markey, annar sérfræð-
ingur í málefnum Pakistans, sagði að
dauði Bhutto gæti haft mjög alvar-
legar afleiðingar fyrir landið og taldi
líklegt að kosningarnar gætu ekki
farið fram í janúar. „Ef allt fer á
versta veg er hugsanlegt allt fari í
bál og brand, herinn geti ekki haft
hemil á ofbeldisseggjunum og leys-
ist upp.“
Deilt um hvort fresta beri
þingkosningum í Pakistan
Bush hvetur til kosninga en Sharif segir að þær geti steypt landinu í glötun
AP
Hnuggnir Nawaz Sharif faðmar Amin Fahim, einn leiðtoga flokks Benazir
Bhutto, á sjúkrahúsi í Rawalpindi þar sem Bhutto lést af sárum sínum.
Katmandu. AP, AFP. | Þing Nepals
samþykkti í gær að afnema 239 ára
gamalt konungsveldi og breyta því í
lýðveldi.
Rúmir tveir þriðju þingmannanna
samþykktu breytingu á bráða-
birgðastjórnarskrá landsins til að
gera fyrirhuguðu stjórnlagaþingi
kleift að afnema konungsveldið og
stofna lýðveldi. Breytingin heimilar
einnig þjóðþinginu að lýsa strax yfir
stofnun lýðveldis ef konungurinn
reynir að hindra kosningarnar.
Helstu stjórnmálaflokkar landsins,
þeirra á meðal flokkur fyrrverandi
uppreisnarmanna, höfðu náð sam-
komulaginu um stjórnarskrárbreyt-
inguna fyrr í vikunni.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar í
gær tryggir að konungurinn fer frá
eftir kosningar til stjórnlagaþings í
apríl á komandi ári.
Forseti þjóðþingsins, Subash
Nembwang, sagði að Nepal yrði
sambandsríki og forsætisráðherra
landsins færi með allt framkvæmda-
valdið. „Eftir atkvæðagreiðsluna er
ljóst að konungurinn fer frá eftir
kosningarnar,“ sagði innanríkisráð-
herra Nepals, Krishna Prasad Sit-
aula.
Gyanendra konungur, höfuð kon-
ungsættar sem ríkt hefur frá árinu
1769, leysti þing Nepals upp og tók
sér alræðisvald í febrúar 2005. Hann
sagði það nauðsynlegt til að uppræta
spillingu í stjórnkerfinu og binda
enda á uppreisn kommúnista sem
kostaði yfir 13.000 manns lífið.
Þessi ákvörðun varð konunginum
sjálfum að falli því hún varð til þess
að óvinir hans tóku höndum saman.
Aldagamalt konungs-
veldi afnumið í Nepal
Lýðveldi stofnað eftir kosningar til stjórnlagaþings í apríl
KONA í indverskum fjölleikaflokki fóðrar flóðhest á
sýningu í Bangalore á Indlandi í gær. Hefðbundin ind-
versk fjölleikahús eiga nú í miklum erfiðleikum vegna
hertra reglna um dýravernd og fjárskorts.
AP
Fjölleikahús á hrakhólum
SEX franskir
hjálparstarfs-
menn, sem
dæmdir voru fyr-
ir að reyna að
ræna börnum í
Tsjad, voru fluttir
til Frakklands í
gær.
Frakkarnir
voru dæmdir til
átta ára erfiðis-
vinnu í fangelsi fyrir að hafa reynt að
ræna 103 börnum sem þeir fullyrtu
að væru munaðarlaus og kæmu frá
Darfur-héraði í Súdan. Í ljós kom að
flest þeirra voru frá Tsjad og ekki
munaðarlaus. Stjórn Tsjad féllst á
beiðni stjórnvalda í Frakklandi um
að Frakkarnir fengju að afplána
dóminn í heimalandinu.
Fluttir til
Frakklands
Franskir hjálpar-
starfsmenn.
BRASILÍA hefur allt í áratugi
framleitt mikið magn etanóls úr
sykurreyr og sjá framleiðendur nú
fram á aukna eftirspurn eftir að
ríkisstjórnin setti í lög að frá og
með nýársdegi skuli magn lífræns
eldsneytis í dísil vera 2 af hundraði.
Til að mæta því þarf að framleiða
aukalega um 800 milljónir lítra og
segir stjórnin þegar mögulegt að
gera þrefalt betur.
Brasilíumenn
blanda dísilið
Reuters
Sykurreyr Sendinefnd SÞ kemur
við á brasilískri sykurekru í ár.
MINNST 14 biðu bana og 64 særð-
ust þegar bílsprengja sprakk á úti-
markaði í miðhluta Bagdads í gær.
Mikið af fólki var samankomið á
Bab al-Sharji markaðnum í gær en
sjúkrahús staðfestu tölu látinna.
Mannfall í Írak
ÞYKKUR sígar-
ettureykur hefur
löngum verið eitt
af einkennum
kaffihúsanna í
París. Nú mun
reykurinn brátt
heyra sögunni til
því frá og með
næsta miðviku-
degi verður reykingabann á börum,
kaffihúsum, veitingastöðum og á
diskótekum í Frakklandi.
Hyggjast margir kveðja reykinn
um helgina en sektað verður fyrir
brot. Skrefið kemur í kjölfar tak-
marks banns á reykingum á opin-
berum stöðum í landinu í febrúar.
Um 13,5 milljónir Frakka reykja.
Reyklaus París
JACOB Zuma,
fyrrverandi vara-
forseti Suður-
Afríku og nýkjör-
inn leiðtogi Afr-
íska þjóðar-
ráðsins (ANC),
hefur verið
ákærður form-
lega fyrir spill-
ingu, að sögn lög-
fræðings hans í gær. Réttarhöldin í
máli hans eiga að hefjast 14. ágúst.
Zuma sigraði Thabo Mbeki, for-
seta Suður-Afríku, í nýlegu leið-
togakjöri ANC þótt varaforsetinn
fyrrverandi ætti yfir höfði sér
ákæru fyrir mútuþægni.
Zuma ákærður
Jacob Zuma