Morgunblaðið - 29.12.2007, Síða 14
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
FYRSTA janúar næstkomandi verð-
ur miðasala í öllum þremur húsum
Listasafns Reykjavíkur lögð niður.
Frá og með þeim degi geta borgar-
búar og aðrir gestir heimsótt Ás-
mundarsafn, Kjarvalsstaði og Hafn-
arhús án þess að greiða aðgangseyri.
Ekki var leitað til styrktaraðila
safnsins um framlög vegna ákvörð-
unarinnar um gjaldfrjálsan aðgang.
„Við ákváðum að gera þetta al-
gjörlega á eigin forsendum. Okkur
fannst það mikilvægt vegna þess að
þetta er eitthvað sem snertir allan
rekstur safnsins,“ segir Hafþór
Yngvason safnstjóri.
Lítill hluti kostnaðar
Hafþór segir að í meðalári hafi
safnið haft á milli sjö og átta millj-
ónir í tekjur af sölu aðgangsmiða.
Árið sem er að líða hafi hinsvegar
verið sérlega gott og salan skilað tíu
og hálfri milljón. Heildarkostnaður
við rekstur Listasafns Reykjavíkur
hefur hinsvegar verið um 260 millj-
ónir á ári, svo að aðgangseyrir hefur
staðið undir á milli 2,7 til 4 prósent-
um af rekstrarkostnaði.
Reykjavíkurborg mun greiða sem
nemur 60 prósentum af tekjutapinu
og koma þeir peningar til viðbótar
við núverandi framlög borgarinnar
til menningarmála. Safnið greiðir
hinn hluta kostnaðarins af því fjár-
magni sem því er úthlutað til starf-
seminnar og sem aflast með öðrum
hætti. „Okkur hefur gengið vel með
sértekjur síðustu tvö ár, það eru
tekjur af vörusölu, kaffisölu og sam-
starfssamningum við fyrirtæki.
Þannig að við reiknum ekki með því
að þurfa að draga seglin saman.“
Skarpari áherslur
Hafþór segir að með þessu sé
stefnt að því að ná til fjölbreyttari
hóps en áður og hann hvetur for-
eldra sérstaklega til þess að koma
með börn sín á listsýningar.
Samhliða þessari breytingu er
unnið að því að skerpa á mismunandi
áherslum á Kjarvalsstöðum og í
Hafnarhúsi. Hafþór segir að mun-
urinn felist í því að á Kjarvalsstöðum
verði lögð áhersla á vandaða mynd-
list, en í Hafnarhúsinu byltingar-
kenndari verk. „Við verðum með op-
ið til tíu á fimmtudagskvöldum í
Hafnarhúsi og ætlum að bjóða upp á
kvikmyndasýningar, tónlist og fleira
sem verður á svipuðum nótum og
sýningardagskráin. Við erum að
vonast til þess að þetta verði staður
þar sem fólk kýs að koma til að kíkja
á sýningar og fá sér kaffi eða bjór og
njóta þess að vera hérna. Það á ekki
að þurfa að setja sig í neinar
ákveðnar stellingar,“ segir Hafþór.
„Á sama tíma erum við að auka við
dagskrána á Kjarvalsstöðum. Við
höfum verið með kammertónleika og
ætlum að halda tónlistarstarfi þar
áfram.“
Gjaldfrjáls aðgangur að Listasafni Reykjavíkur eftir áramótin
Ókeypis á eigin forsendum
Í HNOTSKURN
»Listasafn Reykjavíkur hefurumsjón með fimm aðskildum
söfnum á vegum borgarinnar:
Almennri safneign Reykjavíkur-
borgar, Errósafni, Kjarvals-
safni, Ásmundarsafni og safn-
eign byggingarlistadeildar.
»Verk safnsins eru til sýnis íHafnarhúsi, á Kjarvals-
stöðum og Ásmundarsafni, op-
inberum byggingum og á opn-
um svæðum víða um borgina.
Að auki er safnið með tíma-
bundnar sýningar á innlendri
og erlendri samtímalist og
hönnun í öllum húsunum þrem-
ur.
»Fyrstu opnanir á nýju áriverða á sýningum Stein-
gríms Eyfjörð og Inga Rafns
Steinarssonar hinn 10. janúar í
Hafnarhúsi og á Kjarvalsstöðum
verða verk færeyska málarans
Sámels Joensen-Mikines sýnd
frá 27. janúar.
14 LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
♦♦♦
ÞAÐ er orðinn fastur liður að
síðustu tónleikar ársins hér á
Íslandi fari fram í Hallgríms-
kirkju á gamlársdag, 31. des-
ember, kl. 17. Rík hefð hefur
skapast fyrir því að þeir fé-
lagar Ásgeir H. Steingrímsson
og Eiríkur Örn Pálsson tromp-
etleikarar og orgelleikarinn
Hörður Áskelsson kveðji
gamla árið og fagni því nýja
með viðeigandi lúðraþyt og
orgelleik.
Á efnisskrá tónleikanna þessi áramót eru verk
eftir Dubois, Holloway, Molter, Bach, Albinoni/
Giazotto og Pezel.
Tónlist
Hátíðarhljómar
um áramót
Hörður
Áskelsson
ÞAÐ er orðinn árviss viðburður
að framvarðasveit íslenskrar
popptónlistar komi saman um
áramót í Háskólabíói við Haga-
torg og stilli saman strengi sína
fyrir Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna. Árið í ár er
engin undantekning og hefur
dagskráin aldrei verið eins
glæsileg. Á undanförnum árum
hafa yfir 23 milljónir króna
safnast á þessum tónleikum.
Allir listamennirnir gefa sína vinnu og nú 9. árið í
röð mun rjóminn af þekktustu tónlistarmönnum
landsins stíga á svið í Háskólabíói 30. desember kl.
16. Hægt er að nálgast miða á Midi.is.
Tónleikar
Stilla saman strengi
til styrktar SKB
Birgitta
Haukdal
DAGUR B. Eggertsson segir að borgarbúar fái nú enn betri tækifæri til þess
að njóta myndlistar. Dagur með þeim Hafþóri Yngvasyni og Svanhildi Kon-
ráðsdóttur, sviðsstjóra menningar- og ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar.
Upplifunartorg borgarbúa
Morgunblaðið/Frikki
EGYPTAR
hyggjast tryggja
sér höfundarrétt
að þeim fornu
minjum sem finn-
ast í Egyptalandi
að sögn breska
dagblaðsins The
Guardian. Hug-
myndin er að þau
gjöld sem þyrfti
að greiða fyrir
framleiðslu á eftirlíkingum eða
minjagripum af til að mynda pýra-
mídunum og kistum faraóanna
myndu renna til viðhalds minjanna.
Þetta er haft eftir einum helsta
forsvarsmanni forminja í Egypta-
landi, Sahi Hawass, en hann fer fyr-
ir nefnd er sér um varðveislu þeirra
fyrir hönd ríkisins.
Hawass telur að ef lög er mæltu
fyrir um slíkan eignarrétt í Egypta-
landi færu í gegnum þingið, þá
myndu þau gilda um heim allan.
Hann lét þó ekkert uppi um hvernig
hægt yrði að innheimta gjöldin, en
sagði að fyrst og fremst yrði horft
til þess þegar verið er að búa til ná-
kvæmar eftirlíkingar af frægum
minjum og nota þær síðan til að
hagnast á þeim. Sú staðreynd að
Luxor spilavítið í Las Vegas dregur
til sín fleiri gesti en hin upp-
runalega Luxorborg er talin eiga
sinn þátt í þessari umræðu.
Höfundar-
réttur að
fornminjum
Luxor spilavítið vin-
sælla en Luxorborg
Tutankamon í
Kaírósafninu.
VÍSINDAMENN hafa nú lagt fram
þá kenningu að hluti af myndmáli
málara endurreisnarinnar sé feng-
ið úr vísindum – úr líkamsgerð
sjálfs mannsins. Þessu til sönnunar
telja þeir m.a. verk Gerards David
um upprisu Krists, þar sem mynd-
byggingunni svipar mjög til þver-
skurðar af mannsheila. Þeir telja
víst að málararnir hafi verið hug-
fangnir af vísindalegum uppgötv-
unum síns tíma á sviði líffærafræði,
en þurft að sveipa myndmál það er
vísaði til líffæra dulúð til að vera
ekki refsað fyrir guðlast.
Oftast voru það kirkjunnar menn
sem sáu listamönnum endurreisn-
arinnar fyrir lifibrauði sínu svo
ásakanir um guðlast gátu orðið
mönnum dýrkeyptar eða jafnvel
kostað þá lífið.
Endurreisnin
og vísindin
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
„ÞETTA er hugsað sem félag í myndlistarlegu
samhengi,“ segir ljósmyndarinn Spessi, en
hann er nýkjörinn formaður nýstofnaðs Fé-
lags íslenskra samtímaljósmyndara eða FÍSL.
„Við ætlum að sækja um aðild að SÍM og inn-
gönguskilyrðin eru jafnvel strangari hjá okkur
en þar.“ Háskólapróf í ljósmyndun eða sam-
bærileg menntun er skilyrði fyrir inngöngu í
félagið og þá er gerð sú krafa til félagsmanna
að ljósmyndun sé helsti farvegur listsköpunar
þeirra.
Stofnfélagar eru átta og hafa það að mark-
miði að efla veg ljósmyndunnar sem list-
greinar, en hún hefur ekki hlotið sinn eðlilega
sess í menningarlífi landsins að þeirra mati.
Meðal þess sem félagið hyggst beita sér fyrir
eru fleiri og betri ljósmyndasýningar, betri
kennsla í ljósmyndun og útgáfa á ljós-
myndaverkum. „Þetta er til þess að gera fag-
urfræðilega ljósmyndun sýnilegri. Það er til
dæmis engin ljósmyndun kennd á háskólastigi
hérna á Íslandi og það finnst okkur bagalegt. Í
flestum erlendum listaháskólum er kennsla í
listrænni ljósmyndun sjálfsögð. Á Íslandi hef-
ur hún verið stunduð nánast eingöngu sem iðn-
aður og Ljósmyndarafélagið hefur starfað á
því sviði.“
Spessi segir að félagið muni jafnframt beita
sér fyrir rannsóknum á ljósmyndamiðlinum.
„Ljósmyndun á Íslandi hefur aldrei verið
skoðuð sem listrænn miðill í rauninni. Það hafa
margir myndlistarmenn verið að vinna með
ljósmyndun sem miðil en þeir hafa ekki verið
ljósmyndarar fyrst og fremst.“
Fyrsti viðburðurinn sem félagið stendur
fyrir verður samsýning stofnfélaga í Þjóð-
minjasafninu í tengslum við Listahátíð í
Reykjavík í sumar. Á sýningunni verða aðeins
ný verk sem ekki hafa verið sýnd áður.
Félag íslenskra samtímaljósmyndara stofnað til að efla fagurfræðilega ljósmyndun
Vilja betri sýningar
og öflugra nám
Ljósmynd/Bragi Þór Jósefsson
Stofnfélagar Fyrsta fund FÍSL sóttu þau Pétur Thomsen, Þórdís Ágústsdóttir, Bára Krist-
insdóttir, Sigurþór Hallbjörnsson sem er betur þekktur sem Spessi, Ívar Brynjólfsson, Katrín
Elvarsdóttir, Bragi Þór Jósefsson og Einar Falur Ingólfsson.
AÐALSTEINN Ingólfsson
verður með leiðsögn á morgun
kl. 15 um sýninguna Falinn
fjársjóð á Kjarvalsstöðum.
Þetta er seinasta sýningarhelgi
og því um að gera fyrir þá að
drífa sig sem vilja berja augum
verkið Hvítasunnudag eftir
Kjarval, ásamt fleiri merkum
verkum í eigu Landsbankans.
Kjarval málaði Hvítasunnudag
þegar hann hafði nýlokið námi
við Konunglegu dönsku listaakademíuna árið 1917
og færði það vinafólki sínu að gjöf. Aðalsteinn
mun sérstaklega beina augum að verkinu í leið-
sögn sinni.
Myndlist
Síðasta helgi
Falins fjársjóðs
Aðalsteinn
Ingólfsson