Morgunblaðið - 29.12.2007, Síða 38
38 LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSPILSÞRAUTIRNAR sem lesendur
fengu til umhugsunar á aðfangadag jóla voru
tvíþættar. Annars vegar var spurt um bestu
spilamennsku á blaði, hins vegar á borði.
Munurinn felst í þeim upplýsingum sem úr er
að moða. Þrautum á blaði er yfirleitt fylgt úr
hlaði með gerilsneyddum staðreyndum um
sagnir og útspil, en ekkert um það hirt hvern-
ig spilarar báru sig að við verkið, hvort þeir
voru snöggir eða seinir, ánægðir eða áhyggju-
fullir, og svo framvegis. Við borðið er ofgnótt
af slíkum upplýsingum og hver einasti spilari
túlkar þær á sinn hátt, hvort sem hann gerir
sér grein fyrir því eða ekki.
Upplýsingar frá borðhegðun heita „tells“ á
ensku. Hugtakið er mikilvægt í póker, en hef-
ur lítið verið í umræðunni í bridge, enda sá
munur á póker og bridge að ekki er löglegt að
blekkja með látbragði í bridge, sem er bein-
línis hluti af leiknum í póker. Á hinn bóginn
er bæði löglegt og siðlegt í bridge að túlka
ósjálfráða og ómeðvitaða borðhegðun mót-
herjanna (en ekki makkers, sem er annað mál
og flóknara).
En sem sagt, það er mikill munur á þessum
upplýsingum: „Vestur spilar út lauffjarka
gegn fjórum spöðum,“ og „Vestur kom eld-
snöggt út með lauffjarkann og leit á makker
sinn, fullur eftirvæntingar.“ Stóra spurningin
er: hvaða áhrif hafa vísbendingar frá borð-
hegðun á spilamennskuna?
Hraði – Þraut 1
Norður
♠K10874
♥Á75
♦G843
♣K
Vestur Austur
♠62 ♠3
♥KG1085 ♥962
♦K ♦D10962
♣D10982 ♣ÁG32
Suður
♠ÁDG95
♥D3
♦Á75
♣764
Suður gefur, NS á hættu.
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1♠
2♥ 4♠ Pass Pass
Pass
Vestur spilar út lauftíu, sem austur tekur
og skiptir yfir í hjartatvist. Suður setur
drottninguna, vestur kónginn og sagnhafi
dúkkar í þeirri von að fá hjarta áfram. Það
gerist, vestur spilar hjartagosa næst, sem er
tekinn með ás.
Áætlunin hlýtur að vera sú að endaspila
vestur í tígli – hreinsa upp hliðarlitina og
spila svo annaðhvort tígulás og tígli, eða
litlum tígli undan ásnum. Það er freistandi að
leggja niður tígulásinn snemma spils. Eigi
vestur háspil annað er þungt fyrir hann að af-
blokkera ef hann sér ekki hvert stefnir. En
það má ekki eins og legan er. Hins vegar
vinnst spilið með því að spila litlum tígli eftir
að hafa trompað lauf og hjarta. Vestur frýs
inni á tígulkóng og verður að spila í tvöfalda
eyðu:
Norður
♠8
♥–
♦G843
♣–
Vestur Austur
♠– ♠–
♥108 ♥–
♦K ♦D1096
♣D9 ♣G
Suður
♠G9
♥–
♦Á75
♣–
Suður spilar nú litlum tígli og vestur er
dæmdur maður.
En því skyldi sagnhafi spila upp á stakt tíg-
ulmannspil frekar en háspil annað?
Til að svara þessari spurningu verður að
bæta við upplýsingum frá borðinu. Vestur
hugsaði sig lengi um áður en hann sagði pass
við fjórum spöðum. Um hvað var vestur að
hugsa? Væntanlega fórn, því ekki á hann
styrk til að dobla. Þar með verður að teljast
sennilegt að vestur sé með nokkra skiptingu,
fimmlit í laufi til hliðar og þar með einspil í
tígli. Ekki myndi vestur hugsa sig um með:
♠ xx ♥ KGxxx ♦ K10 ♣ D109x
Niðurstaða: Hraði spilamennsku veitir vís-
bendingar. Sá sem spilar hratt, þykist vita
hvað hann er að gera, sá sem hugsar sig
óeðlilega lengi um, er í vafa. Það er svo hlut-
verk sagnhafa að spyrja sig eftir atvikum:
Hvað tefur hann? Hvers vegna er hann svo
fljótur?
Áhugi – Þraut 2
Norður
♠Á84
♥K64
♦KD62
♣K72
Vestur Austur
♠974 ♠DG3
♥D73 ♥109
♦1084 ♦ÁG73
♣10984 ♣G653
Suður
♠K1062
♥ÁG852
♦95
♣ÁD
Suður gefur, allir á hættu.
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 ♥
Pass 2 ♦ Pass 2 ♠
Pass 3 ♥ Pass 3 ♠
Pass 4 ♥ Pass 6 ♥
Pass Pass Pass
Svar norðurs á tveimur tíglum er krafa í
geim, þannig að þrjú hjörtu á eftir lýsir yfir
slemmuáhuga. Útspilið er lauftía.
Þetta virðist einfalt spil: Trompdrottning
verður að vera önnur eða þriðja í austur og
tígulás helst í vestur. Sem sagt, maður tekur
hjartakóng og spilar hjarta að Á-G til að
svína, spilar svo tígli tvisvar að hjónunum. Ef
allt gengur eftir má henda tveimur spöðum
heima í laufkóng og tígulháspil. Reynist aust-
ur eiga tígulásinn er örlítill möguleiki á þving-
un í spaða og tígli.
Þetta var á blaði, en nú koma vísbending-
arnar frá borðinu. Vestur sekkur niður í sætið
og spilar út, þegjandalegur og annars hugar,
að því er virðist. Hann spyr ekkert út í sagn-
ir. Austur er áhugasamari og spyr margs þeg-
ar blindur kemur upp. Hann vill vita hvort
þrjú hjörtu sýna slemmuáhuga og hvort norð-
ur neitar nú fyrirstöðum í hálitunum. Þetta
eru eðlilegar spurningar, en hitt er óeðlilegt
hversu lítinn áhuga vestur virðist hafa á
spilinu. Er það kannski bara sýndarmennska?
Líklega er það svo. Spilarar hafa tilhneig-
ingu til að gera sér upp áhugaleysi þegar þeir
búa yfir viðkvæmum styrk, svo sem drottn-
ingu í trompi eða gosa fjórða. Þögn vesturs
bendir til að hann hafi eitthvað að fela. Hinn
glaðbeitti áhugi austurs segir á hinn bóginn
þá sögu að hann eigi varnarstyrk sem hann
óttast ekki um (líklega tígulásinn), en með
hjartadrottninguna líka myndi hann sennilega
bíða átekta og spyrja sem minnst.
Vissulega eru þetta brothætt vísindi, en ef
sagnhafi er trúr sannfæringu sinni reynir
hann að fella hjartadrottninguna aðra fyrir
aftan – leggur fyrst niður hjartaás. Þegar
vestur fylgir með tíu verður að aðlagast nýj-
um upplýsingum með því að spila gosanum og
láta hann svífa hringinn. Það heppnast, nían
fellur og andstæðingarnir reka upp stór augu
(og makker líka, ef hann er að fylgjast með).
Það væri synd að tapa slemmunni eftir svo
góða byrjun. Því miður reynist austur eiga
tígulásinn, en þvingun er enn til í dæminu.
Sagnhafi trompar einn tígul, hendir spaða í
laufkóng og tekur síðasta trompið í þessari
stöðu:
Norður
♠Á84
♥–
♦6
♣–
Vestur Austur
♠974 ♠DG3
♥– ♥–
♦– ♦G
♣9 ♣–
Suður
♠K106
♥5
♦–
♣–
Spaðahundur fer úr borði og austur
þvingast með litlu hjónin í spaða og hæsta tíg-
ul.
Niðurstaða: Það er til marks um áhuga að
spyrja út í sagnir og áhugi er oft vísbending
um styrk, en þó ekki viðkvæman styrk, eins
og kjötmeti í tromplitnum. Með viðkvæman
styrk hafa menn hneigð til að læðast eins og
músin.
Fum og fát – Þraut 3
Norður
♠852
♥ÁK4
♦ÁD4
♣D1084
Vestur Austur
♠D10963 ♠G74
♥D863 ♥105
♦98 ♦KG1062
♣92 ♣Á53
Suður
♠ÁK
♥G972
♦753
♣KG76
Suður gefur, allir á hættu.
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 ♣
Pass 2 ♣ Pass 2 G
Pass 3 G Pass Pass
Pass
Kerfið er Standard og hækkun norðurs í
tvö lauf er krafa. Suður sýnir 12-14 punkta og
jafna skiptingu með 2G og norður hækkar í
þrjú. Útspilið er spaðatía. Suður spilar laufi í
öðrum slag, austur drepur og spilar spaða-
gosa.
Sagnhafi á tvo augljósa möguleika. Hann
getur toppað hjartað (tekið Á-K) í von um að
drottningin falli önnur, en svínað ella í tígli.
En ekkert liggur á. Það má alla vega taka tvo
slagi á lauf fyrst. Þriðja laufið pirrar vestur
svolítið, hann iðar í sætinu, prófar eitt spil,
svo annað, en velur loks tíguláttuna. Þessi
vandræðagangur vesturs er athyglisverður og
með tilliti til þess er þess virði að taka fjórða
laufið strax. Aftur sýnir vestur merki um van-
líðan þegar hann lætur frá sér hjartaþristinn.
Austur er hins vegar hinn brattasti og
hendir snöggt tígultvisti, sem er kallspil.
Nokkrir spilarar á HM í Kína túlkuðu
þennan vandræðagang vesturs svo að hann
hefði byrjað með drottningu fjórðu í hjarta og
tvo tígulhunda.
Norður
♠8
♥ÁK4
♦ÁD4
♣–
Vestur Austur
♠D96 ♠7
♥D86 ♥105
♦9 ♦KG106
♣– ♣–
Suður
♠–
♥G972
♦753
♣–
Þeir spiluðu tígli á ásinn og spaða úr borði.
Vestur gat tekið þrjá slagi á spaða, en varð að
spila frá hjartadrottningu í lokin.
Niðurstaða: Þegar spilari iðar í stólnum,
tekur upp spil og skiptir því út fyrir annað,
hamrar fótunum upp og niður af taugaæsingi
– sem sagt, sýnir öll merki þess að sér líði illa
– þá er hann oftast í raunverulegum vanda.
Oft er hann í vandræðum með afköst.
Lausnir á jólaþrautum
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll Arnarson
FRÉTTIR
Jón Sigurbjörnsson og
Guðlaug Márusdóttir unnu
minningarmótið í Siglufirði
Árlegt minningarmót um Benedikt
Sigurjónsson bridsspilara var haldið á
veitingastaðnum Bíó Café í Siglufirði á
þriðja í jólum. Sautján pör mættu til
leiks og spiluðu barómeter.
Sigurvegarar urðu Guðlaug Márus-
dóttir og Jón Sigurbjörnsson með 54
stig. Þau náðu fljótlega forustu í mótinu
og héldu sig við toppinn allan tímann og
náðu svo öruggri forustu fyrir síðustu
umferðina þar sem þau gátu leyft sér að
gefa út nokkur stig. Röð næstu para
varð eftirfarandi.
Björn Ólafsson og Sigurður Hafliðason 48
Ólafur Jónsson og Steinar Jónsson 45
Birgir Björnss. og Þorsteinn Jóhanness. 35
Anton Sigurbjss. og Bogi Sigurbjss. 31
Ágúst Sigurðsson og Guðni Kristjánsson 17
Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu
sætin auk þess sem veglegur farandbik-
ar fylgir efsta sætinu.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Morgunblaðið/Örn Þórisson
Minningarmót Sigurvegararnir Guðlaug Márusdóttir og Jón Sig-
urbjörnsson vígreifir með verðlaunin í mótslok.
FLUGELDASORP mun liggja eins
og hráviði um borgina að morgni
nýs árs, segir í frétt frá Sorp-
hirðunni í Reykjavík. Þar er fólk
varað við að henda leifum af flug-
eldum í ruslatunnur. Kaupendur
flugelda eigi að fara sjálfir með um-
búðir og aðrar leifar í endurvinnslu-
stöðvar Sorpu.
Búast má við mikilli loftmengun
á gamlárskvöld því skottertur og
blys valda mestum reyk.
Íbúar á höfuðborgarsvæðinu eru
hvattir til þess að skila umbúðum
og leifum af flugeldum og tertum á
endurvinnslustöðvar Sorpu sem
opna 2. janúar. Starfsmenn endur-
vinnslustöðva meta þá hvort sorpið
getur flokkast með pappa, sé óend-
urvinnanlegt eða hvort það þurfi að
eyða því sökum gruns um að eitt-
hvað sé enn ósprungið.
Starfsmenn Sorphirðu umhverf-
issviðs Reykjavíkur keppast við
milli jóla og nýárs að tæma hverja
einustu tunnu einu sinni. Íbúar
borgarinnar eru hvattir til að moka
frá sorptunnunum svo að hægt
verði að ljúka vikulegri yfirferð fyr-
ir ármót.
Loftmengun
á gamlárskvöld
Búast má við mikilli loftmengun
á gamlárskvöld því skottertur og
blys valda mestum reyk. Ekki er
því gott fyrir þá sem búa við astma
og viðkvæm öndunarfæri að vera
mikið úti á nýársnótt vegna svif-
ryks. Heilsuverndarmörk fyrir svif-
ryk eru 50 míkrógrömm á rúm-
metra. Á nýársnótt 2007 mældust
hálftímagildi svifryks við Grensás-
mælistöðina 1963 míkrógrömm á
rúmmetra. Þétt loftmengun stóð þá
yfir í fjóra tíma. Á nýársnótt 2006
mældust gildin hæst 1809 míkró-
grömm á rúmmetra.
Leifar af flugeldum
fari ekki í öskutunnur