Morgunblaðið - 29.12.2007, Page 39

Morgunblaðið - 29.12.2007, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. DESEMBER 2007 39 árnað heilla ritstjorn@mbl.is Félagsstarf Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böð- un, morgunkaffi/dagblöð, hádeg- isverður, almenn handavinna, kaffi. Námskeið félagsstarfsins hefjast mánudaginn 7. jan. Ný námskeið í glerlist verða fyrir og eftir hádegið á miðvikud. Skráning í s. 535 2760. Jóga-leikfimistímar verða tvisvar í viku á mánud. og fimmtud. kl. 9-9.45. Félagsheimilið Gjábakki | Krumma- kaffi kl. 9. Hana-nú ganga kl. 10. 80ára afmæli. Daníel Emilssonverður áttræður 31. desember. Hann tekur á móti vinum og ættingjum á heimili dóttur sinnar og tengdasonar í Súlunesi 16, Garðabæ, milli kl. 13 og 16 á gamlársdag. dagbók Í dag er laugardagur 29. desember, 363. dagur ársins 2007 Orð dagsins: En nú varir trú, von og kærleikur, þetta þrennt, en þeirra er kærleikurinn mestur. (I.Kor. 13, 13) Rauði kross Íslands hefursett á laggirnar verkefnitil að efla tengslanetkvenna af erlendum upp- runa. Verkefnið er í umsjón Garða- bæjardeildar RKÍ og er unnið með styrk VR, Eflingar og Starfsmennt- aráðs. Ása Kolbrún Hauksdóttir er verk- efnastjóri hjá Rauða krossi Íslands: „Hugmyndafræði verkefnisins felur í sér að koma á eins konar náms- sambandi milli tveggja aðila, annars frá heimalandinu og hins frá erlend- um uppruna, svo að báðir njóti góðs af,“ segir Ása Kolbrún. „Við tengjum saman innlendar og erlendar konur, til að aðstoða þær síðarnefndu til að takast á við og nýta sér allt það sem samfélagið getur veitt þeim. Verk- efninu er ætlað að styrkja erlendu konurnar, og rjúfa félagslega ein- angrun.“ Ása Kolbrún segir ljóst að mikil þörf er fyrir að bæta stöðu kvenna af erlendum uppruna á Íslandi: „Ís- lenskt samfélag hefur upp á margs konar stuðning og þjónustu að bjóða, en erfitt getur verið fyrir þá sem ekki þekkja til að nýta sér alla þá mögu- leika sem þeir eiga rétt á. Fé- lagstengslaverkefnið opnar þær gátt- ir sem þarf, og veitir konum af erlendum uppruna brautargengi inn í íslenskt samfélag,“ segir hún. „Verk- efnið veitir einnig færi á að kynnast mörgum þeim óskrifuðu reglum og siðum sem innfæddir þekkja, og um leið að auka atvinnutækifæri og styrkja tengslanet.“ Þátttaka í verkefninu gagnast þó ekki aðeins erlendu konunum, heldur einnig hinum sem taka að sér hlut- verk leiðbeinandans: „Oft vill gleym- ast að konur af erlendum uppruna hafa upp á margt að bjóða, og geta ís- lenskar konur lært margt af þeim,“ segir Ása Kolbrún. „Með því að leggja verkefninu lið gefst íslenskum konum tækifæri á að fá innsýn inn í nýjan heim, og eignast góðan vin.“ Verkefnið er unnið í samstarfi við Allar heimsins konur en á bak við þann hóp standa m.a. Alþjóðahús, Félag kvenna af erlendum uppruna og Kvennaathvarfið auk fleiri fé- lagasamtaka og stofnana. Nánari upplýsingar um verkefnið má fá hjá Ásu Kolbrúnu í tölvupósti asa@recross.is Aðstoð | Styrkja tengsl kvenna af erlendum uppruna við samfélagið Konur styðja konur  Ása Kolbrún Hauksdóttir fæddist í Reykja- vík 1977. Hún lauk stúdents- prófi frá Mennta- skólanum við Sund og leggur nú stund á B.A.- nám í mannfræði við Háskóla Ís- lands. Ása Kolbrún hefur verið verkefnisstjóri hjá Rauða kross Ís- lands frá September 2007, áður vann hún við verkefnið Framtíð í Nýju landi: mentorastarf fyrir unga Víetnama. Hún starfaði einnig á ferðaskrifstofunni Discover the world í tvö ár og var Bókunarstjóri fyrir Fosshótel. Fréttir og tilkynningar AA-samtökin | Neyðarsími AA- samtakanna er 895-1050. MORGUNBLAÐIÐ birtir til kynn-ingar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sín- um að kostn-aðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að ber-ast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudags- og mánudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynningum og/ eða nafn ábyrgðarmanns og síma- númer. Hægt er að hringja í síma 569-1100, senda tilkynningu og mynd á netfangið ritstjorn- @mbl.is, eða senda tilkynn-ingu og mynd í gegnum vefsíðu Morg- unblaðsins, www.mbl.is, og velja liðinn . Bréfið skal stíla á: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Hádegismóum 2110 Reykjavík. FRÉTTIR LÖGREGLAN á höfuðborgarsvæð- inu óskar þess að landsmenn eigi ánægjuleg áramót. Með það í huga er ágætt að minna á þá góðu reglu að ganga hægt um gleðinnar dyr, segir í tilkynningu frá lögreglunni. Í pistli sem Eggert Ólafur Jóns- son, aðalvarðstjóri á svæðisstöðinni á Seltjarnarnesi, skrifaði á dögunum er orðunum beint að foreldrum og segir þar m.a.: „Við viljum hvetja ykkur til þess að huga vel að börn- um ykkar um áramótin. Það er margt sem ber að varast sem við- kemur áramótunum sjálfum. Það er von okkar að fjölskyldur geti átt sem ánægjulegust áramót saman. Við viljum benda ykkur á að öll meðferð flugelda er varasöm enda þeir ekki gerðir til þess að taka þá í sundur heldur ber að umgangast þá eins og leiðbeiningar segja til um. Þrátt fyrir að skólayfirvöld, æsku- lýðssamtök og lögregla hafi unnið saman mikið starf sem miðast að því að ekki þurfi að hafa áhyggjur af unglingum á þessum tímamótum er ábyrgðin foreldranna fyrst og síðast. Enn og aftur viljum við vara við eftirlitslausum samkvæmum ung- linga. Við hvetjum foreldra til að leyfa ekki börnum sínum að gista hjá vini eða vinkonu, a.m.k. ekki nema að hafa samráð við foreldra viðkomandi. Ítrekað hafa unglingar misnotað þessa leið í haust og því nefnum við þetta hér. Orðrómur hef- ur borist þess efnis að í samkvæm- um unglinga fari fram ósæmilegar kynlífsathafnir sem og/eða fíkni- efnaneysla. Við hvetjum foreldra til að ræða við og leiðbeina börnum sín- um sem og að fylgjast vel með þeim og vita hvar og með hverjum þau eru. Foreldrar hugi vel að börnum sín- um um áramótin FLUGELDASÝNING ÍR og Lands- bankans verður í Mjóddinni í kvöld, laugardaginn 29. desember kl. 20. Flugeldasýn- ing í Mjóddinni ♦♦♦ HAUSTÖNN Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi var slitið með athöfn hinn 21. desember sl. og voru 35 nemendur brautskráðir að þessu sinni. Af þeim voru 30 með stúdentspróf frá ýms- um námsbrautum og auk þess 2 trésmiðir, 2 raf- virkjar og einn vélvirki. Athöfnin fór fram á sal skólans og ávarpaði Hörður Ó. Helgason skóla- meistari samkomuna og Atli Harðarson aðstoð- arskólameistari annál haustannar 2007. Margir listamenn komu fram við athöfnina. Ragnheiður Friðriksdóttir nýstúdent flutti ávarp fyrir hönd útskriftarnema. Að vanda fengu nokkrir útskriftarnemar verð- laun og viðurkenningar fyrir góðan námsárangur og störf að félagsmálum og eru þeir eftirtaldir og nöfn þeirra aðila sem gáfu verðlaun eru innan sviga. Almar Gunnarsson hlaut verðlaun skólans fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á haustönn 2007. Einnig hlaut Almar viðurkenningu fyrir góðan árangur í eðlis- og efnafræði, íslensku og samfélagsgreinum, jarðfræði og líffræði, stærð- fræði og þýsku. Enn fremur hlaut Almar við- urkenningu úr minningarsjóði Þorvaldar Þor- valdssonar fyrir góðan árangur í stærðfræði og eðlisfræði. Í lok skólaslitaathafnarinnar ávarpaði Hörður Ó. Helgason skólameistari útskriftarnem- endur, árnaði þeim heilla og þakkaði þeim fyrir samveruna. Samkomunni lauk með því að gestir risu úr sætum og sungu Bráðum koma blessuð jól- in og þáðu síðan veitingar í boði skólans. Skólaslit Fjölbrautaskóla Vesturlands UNDANFARIN fimm ár hafa Blindrafélagið og Slysavarnafélag- ið Landsbjörg unnið saman að for- vörnum til að fyrirbyggja augnslys af völdum flugelda. Nú senda fé- lögin öllum 10 til 15 ára börnum gjafabréf fyrir flugeldagleraugum í samstarfi við Íslandspóst, Sjóvá og Prentsmiðjuna Odda. Með stuðningi þessara fyrir- tækja hafa 27.194 börnum verið send gjafabréf fyrir flugeldagler- augum og er það von okkar að þau verði til þess að ekkert þeirra slas- ist á augum um áramótin, segir í fréttatilkynningu. Þessum gjafa- bréfum má framvísa á öllum sölu- stöðum Slysavarnafélagsins Landsbjargar til að fá gleraugun afhent. Í fréttatilkynningu frá Blindra- félaginu og Landsbjörg segir með- al annars: „Því miður sýnir reynslan okkur að um hver áramót verða slys í tengslum við flugeldavörur. Al- gengast er að einstaklingar slasist á höndum, andliti og augum og má rekja flest þessara slysa til þess að hvorki er farið eftir grundvallar- reglum um notkun flugelda né leið- beiningum sem eru á vörunum. Flugeldagleraugu geta komið í veg fyrir að viðkomandi skaðist á auga og ættu allir að nota þau, sama hvort viðkomandi er að skjóta upp eða eingöngu að horfa á. Fikt með flugeldavörur er alltof algengt hjá krökkum og þá sér- staklega strákum. Þeir taka flug- elda í sundur, safna púðrinu saman og búa til sínar sprengjur eða taka kökur í sundur og sprengja hvern hólk fyrir sig. Þessi leikur er stór- hættulegur og foreldrar verða að vera vakandi og meðvitaðir um það sem börn þeirra eru að fást við þessa daga. Gjafabréf fyrir flugeldagleraugum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.