Morgunblaðið - 15.01.2008, Page 1
Blindbylur og stórhríð vakti Grindvíkinga
STAÐBUNDIÐ óveður gekk yfir Suðurnes í
fyrrinótt og kyngdi niður miklum snjó í Grinda-
vík á skömmum tíma. Skólahald féll niður og taf-
ir urðu á millilandaflugi í gærmorgun. Veð-
urstofan spáði því í gærkvöldi að í nótt yrði
austanátt, víða 8-13 m/s, og snjókoma með köfl-
um. Í dag yrði vindur suðlægari og færi að snjóa
austanlands, en rofa til á vestanverðu landinu í
kvöld. Áfram verður fremur kalt veður. | 8
Árvakur/RAX
STOFNAÐ 1913 14. TBL. 96. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 15. JANÚAR 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
ROKK OG RÓL
MIKIÐ STUÐ OG STEMNING Í UPPFÆRSLU
VERSLINGA Á KRÆ-BEIBÍ >> 36
HÉRAÐS-
BÚAR!
273 heppnir íbúar Fljótsdalshéraðs fengu vinning
í Happdrætti Háskólans í fyrra.
Lagarfljótsormurinn var ekki þeirra á meðal.
– Vertu með og fáðu þér miða á hhi.is eða hjá umboðsmanni.
TIL HAMINGJU
Íslenska óperan >> 37
La Traviata í febrúar
Leikhúsin í landinu
FRÉTTASKÝRING
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
ENN ein deilan um skipulagsmál á
Seltjarnarnesi er hafin; að þessu sinni
hefur hópur íbúa skorað á bæjar-
stjórn að hafna tillögu að byggð í
Bygggörðum „og hindra þannig yf-
irvofandi skipulags- og umhverfis-
slys,“ eins og segir í ályktun frá hópn-
um. Jafnframt verði
nýtingarhlutfallið lækkað þannig að
það verði í samræmi við nýtingarhlut-
fall í nágrenninu, eða úr 0,8 í 0,3. Íbú-
ar hafa einnig mótmælt því að íbúða-
svæðið sé stærra en iðnaðarsvæðið.
Í frumhugmynd fasteignafélagsins
Þyrpingar að skipulagi á svæðinu
sem kynnt var fyrir íbúum í haust var
gert ráð fyrir húsum á allt að fjórum
hæðum. Sú tillaga hefur, að sögn
Ingimars Sigurðssonar, formanns
skipulags- og mannvirkjanefndar
bæjarins, verið lögð til hliðar. Í tillög-
unni sem nefndin hefur samþykkt og
vísað til bæjarstjórnar er að lang-
mestu leyti gert ráð fyrir þriggja
hæða húsum og hámarksnýtingar-
hlutfallinu 0,8. Í aðalskipulaginu sem
var samþykkt árið 2006 er gert ráð
fyrir sama nýtingarstuðli og „lág-
reistri, þéttri íbúðabyggð, 2ja-3ja
hæða.“ Samkvæmt upplýsingum frá
Þyrpingu er gert ráð fyrir rúmlega
320 íbúum en ekki 600, eins og íbúa-
hópurinn hefur haldið fram.
Fundur á morgun
Deilur um skipulagsmál hafa sett
svip sinn á pólitískar umræður á Sel-
tjarnarnesi um alllangt skeið. Skýr-
ingarnar eru sjálfsagt margvíslegar:
Byggingarland Seltirninga er af afar
skornum skammti og nýtt bygging-
arland er nánast uppurið. Ekki verð-
ur heldur litið fram hjá því að sumar
skipulagstillögurnar hafa verið býsna
róttækar, s.s. sú sem kom fram á tí-
unda áratugnum um umfangsmikla
byggð á svonefndu Vestursvæði. Síð-
ar var lagt til að reist yrði sjö hæða
hús á Hrólfsskálamel. Þessu mót-
mæltu íbúar kröftuglega með þeim
árangri að áform um byggð á Vest-
ursvæði voru að mestu lögð á hilluna
og húsin á Hrólfsskálamel lækkuð í
4-5 hæðir. Hvað nú? Bæjarstjórn
fundar um það á morgun.
Þröngt
sniðinn
stakkur
Árvakur/Árni Sæberg
Breytt Í Bygggörðum er núna at-
vinnuhúsnæði en það verður rifið.
Enn deilt um skipu-
lagsmál á Nesinu
ENGILBERT Runólfsson, forstjóri
JB byggingafélags, hafði ekki vitn-
eskju um að tveir umræddir menn
störfuðu hjá fyrirtækinu þegar
Morgunblaðið bar upplýsingar þess
efnis undir hann í gærkvöldi.
Að lokinni eftirgrennslan sinni
fékk hann það hins vegar staðfest að
mennirnir væru starfsmenn fyrir-
tækisins og hefðu unnið sem hand-
langarar í múrdeild hjá fyrirtækinu.
Sagðist Engilbert harma mjög að
mennirnir hefðu tekið þátt í árás-
inni. „Þetta er algjörlega glórulaust
og það er alveg klárt að þeir verða
ekkert í vinnu hjá okkur meira,“
sagði hann.
Breyta ráðningarferlinu
„Við viljum ekki hafa svona starfs-
menn í vinnu hjá okkur.“
Sagðist Engilbert telja öruggt að
verkferlum við ráðningar starfs-
manna yrði breytt í framhaldinu og
bakgrunnur starfsmanna kannaður.
„Við munum tvímælalaust skoða
okkar mál í framhaldi af þessu,“
sagði hann.
Boðar brottrekstur
vegna árásarinnar
ÁKVEÐIÐ verður í dag hvort farið
verður fram á áframhaldandi gæslu-
varðhald yfir fimm litháískum karl-
mönnum sem voru handteknir fyrir
árás á fjóra fíkniefnalögreglumenn
fyrir helgi. Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu hefur sent málsgögnin til rík-
issaksóknara.
Friðrik Smári Björgvinsson yfir-
lögregluþjónn vildi í gær ekki greina
frá því hvað mennirnir hefðu borið um
tilefni árásarinnar, en rannsóknin
beinist m.a. að því að upplýsa hvort
um skipulagða atlögu að götuhóp
fíkniefnadeildarinnar hafi verið að
ræða. Fíkniefnalögregludeildin hafði
ekki haft afskipti af Litháunum fyrir
árásina en a.m.k. einn þeirra hafði áð-
ur verið handtekinn fyrir að ráðast að
lögreglumönnum.
Aðspurður sagði Friðrik Smári að
misjafnt væri hversu lengi mennirnir
hefðu dvalið hér á landi.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins vinna tveir mannanna hjá
sama vinnuveitanda, JB bygginga-
félagi, en þeir eru ekki allir með at-
vinnu.
Árásin á götuhópinn var óvenju
heiftúðug og augljóst var af aðförum
mannanna að þeir kunnu mikið fyrir
sér í slagsmálum. Lögreglumaður
sem þekkir til málsins sagði í samtali
við Morgunblaðið í gær að þetta hefðu
ekki verið „venjulegir verkamenn“
heldur bæði haft talsverða líkams-
burði og beitt aðferðum í átökunum
sem aðeins væru á færi vanra manna.
Þrír af þeim fjórum lögreglumönn-
um sem urðu fyrir árásinni eru komn-
ir aftur til vinnu, þótt þeir séu ekki
búnir að ná sér að fullu. Sá fjórði hlaut
þung höfuðhögg og er óvíst hvenær
hann getur snúið aftur til vinnu
Yfirstjórn lögreglunnar ræddi
árásina á fundi í gær með fíkniefna-
deildinni. Stefán Eiríksson lögreglu-
stjóri sagði ekki ákveðið hvort vinnu-
lagi yrði breytt í kjölfar árásarinnar.
Verið væri að fara yfir allt sem lyti að
störfum og öryggi götuhópsins.
Fíkniefnalögreglumennirnir gátu
kallað á hjálp með því að þrýsta á
neyðarhnappa á Tetra-talstöðvum
sínum og meðal þess sem er kannað
er hvernig brugðist var við því kalli.
Skipulögð atlaga?
Ríkissaksóknari hefur fengið í hendur málsgögn um árás fimm manna frá
Litháen á lögreglumenn Rannsakað er hvort um skipulagða árás var að ræða